Morgunblaðið - 27.10.1984, Síða 47
MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1984
47
• Fyrrum heimsmeistari í hnefaleíkum Muhammad Ali kemur út af
sjúkrahúsinu í New York ( k>k september, en þar var hann í læknis-
rannsókn í fjóra daga. „Ég er alltaf þreyttur," sagói Ali viö fróttamenn.
Ali á við erfiðan
sjúkdóm að stríða
HANN TÓK á móti þungum höggum í hnefaleikahringnum meö stíl og
víssum tígnarleika. Og þau virtust ekki hafa mikil áhrif á hann. Hvaö
eftir annað mátti hann þola mikil og þung högg á höfuó sitt en ekkert
virtist bíta á hann. Fyrrum heimsmeistari í hnefaleik Muhammed Ali
lét líka oft hafa eftir sér aö hann væri fallegastí og um leiö ríkasti
hnefaleikamaöur heims fyrr og síöar. „Hin þungu högg sem ég fæ gera
mig ekki Ijótan eins og svo marga,“ sagói hann hvaö eftir annaö. En nú
er útlit fyrir að hin þungu högg hafi samt sett svip sinn á kappann.
i lok síöasta mánaöar fór Ali á
sjúkrahús í New York og var þar í
læknisrannsókn í fjóra daga.
Niöurstaöan var sú aö hann þjáist
aö hnefaleikaveiki sem er ekki ólík
„Parkinsson"-veikinni.
Um langt skeiö hefur framkoma
Ali þótt all undarleg. Hann er
óvenju fámáll og þykir reikull í
spori, er oft ekki alveg meö sjálf-
um sér. Svipbrigöi sjást varla á
andliti þessa fyrrum stórmeistara í
hnefaleikum. Þaö voru vinir hans
sem gátu eftir langa mæöu fengiö
hann til þess aö fara í læknis-
rannsókn. Hann vildi ekki viöur-
kenna aö eitthvaö væri aö sér. En
raunin var sú aö Ali átti þaö orðiö
til aö þekkja ekki nána vini sína er
þeir komu í heimsókn.
Þaö var fyrst áriö 1964 sem Ali
þurfti aö þola stór og þung högg
frá Sonny Liston. Ár eftir haröa
keppni. Lengsta og erfiöasta
keppni sem Ali lenti svo í á sínum
ferli og sú sem honum var hvaö
erfiðust var gegn Joe Frazier i
Manila 1975. Keppnin stóö í 14 lot-
ur. Fraizer veitti Ali svo mörg þung
högg aö hnefaleikasérfræðingar
áttu ekki til orö aö Ali skildi stand-
ast þau.
Eftir keppnina sem Ali vann
sagöi hann: „Þetta er þaö sem ég
hef komist næst dauöanum". Aö
mati allra átti Ali aö hætta eftir
þessa keppni, en hann flaug áfram
hálf vængbrotinn og tók meira af
höggum en hann virðist hafa þol-
aö. Nú eru eftirköstin aö koma í
Ijós.
Á blaöamannafundi eftir sjúkra-
húsvistina í New York reyndi Ali aö
slá á létta strengi en tókst ekki vel
• Frægöin var ef til vill dýru
verói keypt. Ali kemur i læknis-
rannsóknina.
upp. „Ég er ekki sjúkur. Aöeins
þreyttur." Síöan bætti hann viö:
„Ég er tilbúinn til þess aö hitta All-
ah“. Síöan hrópaöi hann: „Ég mun
sigrast á þessu, ég mun sigrast á
þessu." Einn af þeim sem heim-
sóttu Ali á sjúkrahúsiö var Jesse
Jackson sem reyndi aö ná útnefn-
ingu demókrata til forsetafram-
boös. Margir sendu skeyti til þessa
dáöa íþróttamanns og óskuöu
honum góös bata.
Læknar sjúkrahússins gáfu fylli-
lega í skyn aö Ali ætti viö erfiöan
sjúkdóm að stríöa, en gáfu samt
góöa von um aö hann myndi ná
sér aö fullu.
Góður árangur hjá
Jóni Örvari í Dublin
UNGUR billiardspilari, Jón Orvar
Sigurósson, hefur vakió óskipta
athyglí é heimsmeistaramótí
áhugamanna sem fram fer í Dubl-
in þessa daga. í gærkveldi hafói
Jón leikið sjö leiki og sigrað í
fimm þeirra.
Jón Örvar haföi þá sigraö irskan
keppanda, kanadískan, sænskan
keppenda frá Shri Lanka og
Belgíu. Sigur Jóns gegn írska
keppandanum vakti hvaö mesta
athygli enda er sá sterkur bllliard-
spilari. Jón vann hann 4—3. Jón
tapaöi fyrir Wales-búa og enska
keppandanum í mótinu. Takist
Jóni vel upp í þeim leikjum sem
hann á eftir þá kemst hann mjög
líklega í átta liöa átta manna úrslit
á mótinu. Yröi þaö langbesti ár-
angur sem íslenskur billiard-
keppandi hefur náö á erlendri
grund. Þetta er i fyrsta sinn sem
keppendur frá islandi taka þátt i
móti þessu. Ásamt Jóni keppir
Kjartan Kári Friöþjófsson á mót-
inu. Kjartani hefur ekki gengiö eins
vel, hann hefur unniö tvo leiki en
tapaö fimm.
FURUHÚSGÖGN
OPIÐ LAUGARDAG KL. 10—16 ^$>£1110 SÍml 46460.
OPIÐ SUNNUDAG KL. 14—16 Sendum í póstkrötu.
□PEL
ISUZU
VETRARÞJONUSTA
I. Mótorþvottur 2. Rafgeymasambönd hreinsuð 3. Mæling á
rafgeymi og hleðslu 4. Loftsía athuguð 5. Skipt um platínur
6. Skipt um kerti 7. Skipt um bensínsíu í blöndungi
8. Viftureim athuguð9. Kælikerfi þrýstiprófaðlO. Frostþol mælt
II. Mótorstilling 12. öll Ijós yfirfarin og aðalljós stillt
13.Hemlar reyndir.
Verð:
4 strokka vél kr. 1646
6 strokka vél kr. 2152. &
8 strokka vél kr. 2464 g
o
BíLVANGURstr
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
Auk vinnu er eftirtalið efni innifalið í verði: Kerti, platínur,
frostvari, bensínsía.