Morgunblaðið - 01.11.1984, Síða 1

Morgunblaðið - 01.11.1984, Síða 1
56 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 211. tbl. 71. árg. FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sonur Gandhi tekinn við stiérnartaumum Nýja Ðelhí, 31. oklóber. AP. RAJIV Gandhi sór í dag embsttiseið sinn sem forsætiráðherra Indlands og eftirmaður móður sinnar, Indiru Gandhi, sem lést í dag af banvænum sárum, sem hún hlaut í kúlnaregni frá þremur öryggisvörðum hennar af trúflokki sikha. Indverska hernum, sem telur milljón manns, hefur verið skipað í viðbragðsstöðu um allt landið og hefur höfuðborgin verið girt áf. Mikil og djúp sorg ríkir nú í Indlandi þótt mestu öfgamennirnir meðal sikha hafi fagnað ódæðisverkinu. Sums staðar hefur komið til uppþota þar sem hindúar hafa skeytt skapi sínu á sikhum en ekki er vitað um meiriháttar ólgu í landinu í kjölfar morðsins. Þjóðarleiðtogar um allan heim hafa í dag tjáð indversku þjóðinni samúð sína vegna hörmulegs dauða Indiru Gandhi, sem þeir segja hafa verið meðal mestu merkismanna vorra tíma. Þegar Indira Gandhi var að yf- irgefa heimili sitt í Nýju Delhí á tíunda tímanum í morgun að stað- artíma hófu tveir menn eða þrír úr öryggisverði hennar skyndilega skothríð að henni og er talið, að hún hafi orðið fyrir a.m.k. 10 kúl- um. Aðrir öryggisverðir hennar felldu strax einn eða tvo mann- anna en sá þriðji náðist lifandi. Var farið strax með Indiru í sjúkrahús í borginni þar sem hún lést fjórum stundum síðar eftir örvæntingarfulla baráttu lækna fyrir lífi hennar. Mörg hundruð þúsund manns söfnuðust saman fyrir utan sjúkrahúsið og annars staðar í borginni strax þegar fréttist af árásinni og beið fólkið þar grátandi þar til ljóst var, að leiðtogi þess var látinn. Á skyndifundi indversku stjórn- arinnar og helstu leiðtoga Kongress-flokksins var Rajiv Gandhi, sonur Indiru, einróma valinn eftirmaður hennar og sór hann að því búnu embættiseið sinn sem forsætisráðherra. Öllum indverska heraflanum, milljón manns, var jafnframt skipað að vera við öllu búinn af ótta við ólgu í landinu og hermenn girtu höfuð- borgina af og heimili ráðamanna. „Drepum sikha. Þeir hafa deytt móður okkar,“ mátti víða heyra meðal æstra hindúa og á nokkrum stöðum kom til uppþota þar sem æstur múgur misþyrmdi þeim sikhum, sem náðist til. Ekki er þó vitað til, að verulegar blóðsúthell- ingar hafi orðið í landinu í kjölfar morðsins. Það voru eins og fyrr segir menn af trúflokki sikha í öryggis- verði Indiru, sem réðu henni bana, en eins'og kunnugt er hefur ríkt hálfgert striðsástand i ríkinu Punjab, þar sem þeir eru fjöl- mennastir, vegna krafna þeirra um aukna sjálfstjórn og jafnvel sjálfstæði. I júní sl. réðust ind- verskir hermenn til atlögu við vopnaða öfgamenn í Gullna must- erinu í Amritsar í Punjab og féllu þá mörg hundruð manna. Sikhar hafa löngum verið fjölmennir í indverska hernum og jafnan skip- að þar háar stöður sem og í örygg- isverði þjóðarleiðtogans. Höfðu margir orðið til að vara Indiru við áhrifum þeirra og aðstöðu en hún vildi ekki, þrátt fyrir margar líf- látshótanir að undanförnu, hrófla við stöðu þeirra í von um sættir. Helstu leiðtogar sikha hörmuðu í dag dauða Indiru Gandhi en aðrir öfgafyllri drógu enga dul á fögnuð sinn. Indira Gandhi hafði lengi bund- ið vonir við, að yngri sonur henn- ar, Sanjay, tæki við forystuhlut- verki hennar í indverskum stjórn- málum en hann lést í flugslysi ár- ið 1980. Eldri sonur hennar, Rajiv, sem nú hefur tekið við stjórnar- taumunum að móður sinni látinni, er fertugur að aldri og hefur að undanförnu gegnt embætti fram- kvæmdastjóra Kongress-flokks- ins. Hans bíður nú mikið og erfitt hlutverk, sem framtíðin ein fær skorið úr hvernig hann fær leyst af hendi. Þjóðarleiðtogar um allan heim hafa í dag vottað indversku þjóð- inni samúð sína og lýst yfir djúpri hryggð sinni vegna fráfalls Indiru, sem þeir segja meðal merkustu manna á þessari öld. Sjá „Að Indiru Gandhi lát- inni“ og fl. á bls 32 og 33 og aðrar fréttir á bls. 24 og 25. Kajiv Gandhi, sonur Indiru Gandhi, sem öfgamenn af trúflokki síkha myrtu í gær, sór embættiseið sinn sem nýr forsætisráðherra Indlands aðeins nokkrum klukkustundum eftir lát móður sinnar. Það er forseti landsins, Zail Singh, sem hér les honum eiðstafinn. simamynd ap. „Pólska þjóðin hefur eignast nýjan dýrling“ Vmrsjá, 31. oktdbcr. AP. LOGINN á mörgum þúsundum kerta lýsti í morgun upp kirkju heilags Stanislaws Kostka og næsta ná- grenni, en í alla nótt var beðið þar fyrir sálu pólska prestsins Jerzy Popi- eluszko, sem foringjar f öryggislögr- eglunni rændu og myrtu. í Wroclaw í Suðvestur-Póllandi hefur verið til- kynnt um stofnun mannréttindasam- taka. Mörg hundruð manns voru í alla nótt á bæn í kirkju Popieluszko í Varsjá en í gær fannst lík hans í vatnsbóli við Vislu-á. öll kirkjan og nágrenni hennar er eitt blóma- haf og borða- þar sem Popieluszkos er minnst og látinn í ljós stuðning- ur við Samstöðu. Við altarið stóðu verkamenn frá Huta-stálsmiðjun- um með fána Samstöðu en fjöl- mennur hópur pólskra tónlistar- ,,Ef ég Nýju Delhi, 31. oklóber. AP. „Ef ég dey f dag mun hver dropi af blóði mínu verða til blessunar fyrir þjóðina og hleypa í hana nýju lífi,“ sagði Indira Gandhi aðeins nokkrum klukkustundum áður en hún var ráðin af dögum, kvöldið fyrr á fjölmennum fundi stuðn- ingsmanna hennar f borginni Bhubaneswar. Á fundinum sagði Indira, sem var 66 ára að aldri, að henni væri sama þótt hún næði ekki háum aldri, hún væri hreykin af því að hafa varið ævi sinni til að berjast dag...“ fyrir bættum kjörum indverskrar alþýðu og það væri henni næg umbun þótt árin yrðu ekki fleiri. Hún minntist á fjölmargar morðhótanir, sem henni höfðu borist að undanförnu, og sagði frá því, að hún hefði orðið fyrir steini, sem kastað var að henni á fundi kvöldið áður. „En ég óttast ekkert,“ sagði hún, „og harma það ekki þótt ég láti líf mitt í þjónustu fyrir land mitt og þjóð.“ manna og kvikmyndafólks fyllti kapelluna. „Pólska þjóðin hefur eignast nýj- an dýrling," sagði ungur stærð- fræðingur í kirkjunni. „Hann er kominn í hóp bestu sona Póllands.“ í kirkjunni hefur verið komið fyrir miklu málverki af Popieluszko þar sem hann birtist sem heilagur Georg að berjast við drekann en á pólsku er mannsnafnið Jerzy dreg- ið af Georg. Haft er eftir heimildum innan kirkjurtnar, að Popieluszko verði borinn til grafar á laugardag og er búist við, að hundruð þúsunda manna muni fylgja honum til graf- ar. í borginni Wroclaw í Suðvestur- Póllandi hafa verið stofnuð samtök menntamanna, kennara og verka- manna, sem ætla að fylgjast með mannréttindamálum i landinu, og er þetta í fyrsta sinn frá herlögum sem menn bindast slíkum samtök- um. Héldu stofnendurnir leyni- legan fund í gær og sögðu að hon- um loknum, að sams konar samtök yrðu brátt stofnuð í Varsjá, Kraká, Katowice og Gdansk og að þeir vonuðu, að þau yrðu upphafið að nýjum þjóðarsamtökum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.