Morgunblaðið - 01.11.1984, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.11.1984, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1984 Stokkahlaðir og garður Aldísar frá aldamótum. Grein og myndir: ÁRNI JOHNSEN Hjá Aldísi á Stokkahlöðum í Eyjafirði sem er 100 ára í dag Þau Arndís Baldvinsdóttir og Þorsteinn Eiríksson koma vikulega til Aldísar með helstu nauðsynjar. Aldís í Stokkahlöðum, 100 ára í dag. suðurgluggamir, nú fara menn tíl Kartöflugarður Aldísar er uppi í fjalli skammt frá fossinum. Kanarí og Majorka“ Aldís á Stokkahlöðum er sérstæð kona, býr yfír heimspeki reynslunnar, því sí- gilda sem gengur fram af huga og hendi vinnunnar. Stokkahlaðir skaga í þjóð- veginn í Eyjafírði, skammt fyrir innan Hrafnagil. Þar býr Aldís ein á býli sínu, 100 ára, í þriggja hæða húsi með fögrum trjágarði, sem hún hóf að rækta fyrir nær 80 árum, hún er með kartöflugarð uppi í fjalli, prjónar sokka og selur á Akureyri, en fyrst og síðast lifír hún sínu lífí í Eyjafírði, því hann hefur verið henni góður. Þegar ég spurðist fyrir um Aldísi vegna þess að ég hugðist heim- sækja hana og ræða við hana, var mér bent á að hún gæti verið nokkuð stygg í þeim efnum, því hún hefði aldrei verið fyrir það að tjá sig opinberlega, enda hefði aldrei verið tekið viðtal við hana þótt rífleg ástæða væri til. Ég ákvað því að byrja á garðinum hennar, trjánum sem hafa notið hlýju hennar í nær heila öld og teygja sig yfír þriggja hæða hús hennar og háalofti betur. Enginn svaraöi þegar ég barði dyra á Stokkahlöðum, en dyrnar voru ólæstar. Ég fór inn í húsið og kallaði. Ekkert svar. Þá skaust ég upp stigann á efra loftið og kall- aði, án árangurs, en þá heyrði ég umgang niðri á hæðinni. Við mættumst í ganginum, hún hafði lagt sig, ég kom óboðinn í hús hennar. Við heilsuðumst með því að horfast í augu. „Mikið er garðurinn þinn falleg- ur,“ sagði ég. „Ein og ein hrísla," svaraði hún. „Þetta hefur kostað mikla vinnu,“ hélt ég áfram. „Allt vex ef að er hlúð,“ svaraði hún. „Mig langar að ræða nánar við þig um garðinn þinn,“ sagði ég. „Gjörðu svo vel,“ svaraði Aldis á Stokkahlöðum og bauð mér til stofu í bænum. „Þeir vilja víst gera Island að skemmtigarði“ 1 gluggunum var blóm við blóm, vaxnar jurtir og afleggjarar sem teygðu sig mót birtunni, það sönglaði i trekkspjaldinu á stofu- þilinu, eilífðarsinfónía vindsins. Útsýnið voru hin frambærilegu fjöll Eyjafjarðar, grónar hliðar og grundir, áin eins og Níl Egypta- lands. Rúm voru uppbúin með prjónuðum og hekluðum teppum, mynd af séra Hallgrími Péturs- syni var á sínum stað, prjónles af sokkaplöggum á lokastigi lá á stól, gamalt skrifpúlt við vegg eins og ankeri liðins tíma, fjölskyldu- myndir á veggjum, myndir frá þeim tima þegar það var hátið aö láta taka af sér mynd, enda leyna sér ekki- persónuleikar í þeim myndum. Þægilegur ylur var frá ofninum, þytur frá þjóðveginum af umferð bíla og ríðandi manna og ljósbrotið frá sólu spásseraði inn um gluggana. íslandssagan leyndi sér ekki í þessu húsi og þeg- ar við vorum að koma okkur fyrir hafði ég á orði að nú væru uppi raddir um það að leggja niður ís- landssögukennslu. „Já, þeir vilja víst gera ísland að skemmtigarði yfir sumarið," svaraði Aldís á Stokkahlöðum um hæl. Það fór ekkert á milli mála að hún fylgdist vel með. Hún var 16 ára um síð- ustu aldamót, flutti í Eyjafjörð barn úr Skagafirði, hefur alla tíð lifað heilbrigðu lífi, hannyrðir hennar eru rómaðar, enda fellur henni aldrei verk úr hendi og hef- ur reyndar unnið hörðum höndum alla ævi. Hún les og skrifar þrátt fyrir háan aldur og er einstaklega minnug og hress með 100 ár að baki. „Jú, þetta er víst einn fyrsti garðurinn í firðinum, en á Skriðu í Hörgárdal og Lóni ytra voru sett niður einhver tré upp úr aldamót- um,“ svaraði Aldís," frá því laust eftir aldamót," en upp úr því fór þetta að aukast, sérstaklega eftir að Sigurður búnaðarmálastjóri fór að halda námskeið í Gróðr- arstöðinni á Akureyri, en þar vann ég í hópi átta stúlkna árið 1909 og einnig hluti af Hóla- piltum. Þá var unnið með hest- verkfærum og Hólapiltar unnu við plægingu og þess háttar erfiðari störf. Páll Jónsson frá Reykhús- um, Kristján Jónsson frá Nesi og Sigurður skipulögðu daginn og stundum unnu karlmenn og konur saman. Áður en vinnan hófst dag hvern voru ævinlega fyrirlestrar í eina klukkustund, oftast fluttir af Sigurði um trjárækt og við skrif- uðum. Stundum fórum við að skoða villiblómin með Páli, en Kristján hafði aðallega með kart- öfluræktina að gera. Við unnum kauplaust, höfðum að vísu eina krónu á dag, en það átti að duga fyrir fæði og húsnæði. Það þótti ágætt. Ég var um tíma á kvenna- skóla nokkrum árum áður og þá kostaði fæði og húsnæði 80 aura á dag. Þá voru nokkrar skólasystur mínar hjá séra Matthíasi og borg- uðu eina krónu. Það þótti dýrt, en þær voru aðeins tvær f herbergi og þóttu fríðindi, því venjulega voru fjórar saman í herbergi. „I»að varð ofur- lítil vakning“ Um þetta leyti byrjaði ég á garðinum, einhverja hnausa fékk ég með mér heim og setti niður um hvítasunnuna 1909. Ekki var það nú gert eftir neinni teikningu og ég hafði ekki efni á að drífa upp neina skógrækt að ráði. Fólk hér í kring varð mjög hrifið, það varð ofurlítil vakning og fólk fékk mig til þess að setja niður svolítið, sumt hefur lifað af því. Upp úr þessu hófust einnig matreiðslu- námskeið í Gróðrarstöðinni. Þá kom talsvert til skjalanna Guðrún Björnsdóttir frá Veðramóti, hún var sígild garðyrkjukona og var yfir garðræktinni í fleiri ár eftir Sigurð. Hún var kona Sveinbjörns Jónssonar. Þessi námskeið gerðu mjög gott. Jú, víst hefur garðurinn dafnað vel, hér var áður kartöflugarður síðan í fyrndinni. Hann var stung- inn upp, njólanum var ekki Iiðið að vaxa. Um aldamótin var stofn- að Ræktunarfélag Norðurlands og það höfðu margir áhuga á þessu. Ég var þó aldrei ráðin garðyrkju- kona hjá neinum, en oft var ég ráðin á bæi, í Saurbæjarhrepp, í Núpufell, að Möðruvöllum og til séra Gunnars Benediktssonar í Saurbæ. Ég var þó lítið þar, en nokkuð sinnti ég kirkjugarðinum á Grund og eitthvað lifir af því. Það varð vissulega skógrækt- arvakning. Frúrnar vildu eiga hríslu og allt var kallað hríslur, það var eðlilegt, fólk þekkti ekki nöfnin á þessu. En svo kom þetta, það var kennt um nöfn á ýmsu og uppruna í Gróðrarstöðinni og lengi var þar baslað við eplatré til dæmis. Sigurður var alveg sér- stakur áhugamaður og eldhugi. Ungmennafélagið hér setti á stofn Ungmennafélagsreitinn, sem Framtíðin í Hrafnagilshreppi stofnaði og ég annaðist um árabil. Jakob Líndal var þá fram- kvæmdastjóri í Gróðrarstöðinni og var fenginn til þess að skipu- leggja þetta allt saman. Hann kom hingað fram eftir og þetta vakti áhuga. Allir komu saman einu sinni á sumri og þá var slegið og hreinsað. Oft voru fyrirlestrar úti að sumrinu til, hlaðnir stallar til að sitja á að fyrirsögn Jakobs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.