Morgunblaðið - 01.11.1984, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 01.11.1984, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1984 33 Við útför Sanjays: Indira og Raijv Gandhi, sem var að móður sinni látinni kjörinn forsætisráðherra. reyna að berja niður sjálfstæðis- baráttu Austur-Pakistana. Bangla- desh varð til eftir þennan sigur og indverska þjóðin fagnaði foringja sínum af mikilli ákeft. En styrjöldin átti mikinn þátt í að leggja veikburða efnahag Ind- verja í rúst. Milljónir flóttamanna komu til Indlands eftir stríðið, þurrkar og hungursneyð herjuðu á og milljónir sultu til bana. Lífskjör Indverja höfðu ekki verið bærileg en versnuðu stórlega og vinsældir Indiru dvínuðu. Upphófst nú mikil gagnrýni á hana og árið 1974 var Jayaprakash Narayan, roskinn menntamaður og fyrrverandi kommúnisti, talsmaður þeirra afla sem börðust gegn Indiru. Næstu mánuði komust á kreik sögur um spillingu, mútuþægni og manndráp sem forsætisráðherrann átti að hafa staðið að. Þann 12. júní 1975 úrskuröaði undirréttur í Allahbad að Indira hefði misnotaö aðstöðu sína í kosningunum 1971. Indiru var tilkynnt að hún mætti ekki gegna ábyrgðarstöðu næstu sex ár. Radd- irnar um afsögn hennar gerðust æ háværari og átök blossuðu upp víða um land. í lok júní 1975, eða 2 vik- um eftir að dómur undirréttar hafði gengið, lýsti Indira Gandhi yfir því að í gildi væru gengin neyð- arástandslög um allt landið og Narayan og þúsundir andstæðinga hennar voru settir I fangelsi og borgararéttindi skert, ritskoðun komið á. Þetta ástand stóð næstu 20 mánuði og vel það. Stjórnin herti tök sín á öllum sviðum þjóðlífsins, framkvæmdar voru þúsundir ófrjósemisaðgerða á fólki, oftast gegn vilja þess, og lítið mátti út af bera til að fólki væri ekki varpað í dýflissu. öllum að óvörum aflétti Indira neyðarástandslögunum 1977 og efndi til kosninga. Stjórnarand- staðan myndaði Janata-bandalagið gegn henni og hún beið ósigur. Hún lét ekki deigan síga þrátt fyrir and- streymi og hrakspár og kom Congr- ess I á laggirnar sem vann síðan hverjar aukakosningar af annarri. Hún vann síðan kosningarnar 1980 og margir, bundu vonir við endurkomu hennar. Innan Janata- bandalagsins höfðu stjórnað gamlir menn. Þar var hver höndin upp á móti annarri og óstjórnin og ring- ulreiðin var með eindæmum. Þau fjögur ár sem síðan eru liðin hafa verið Indverjum þung í skauti. Varla á nokkru öðru tímabili síðan landið fékk sjálfstæði hefur eymd- in, sundrungin, stéttarígurinn, spillingin, trúardeilur og svo mætti lengi telja, verið meiri. Svo virtist sem Indira Gandhi hefði misst þann kraft sem henni var léður á fyrstu stjórnarárum hennar. Gald- urinn Indiru var ekki lengur. Það var henni mikið áfall þegar Sanjay sonur hennar lést í flugslysi í júní 1980. Hann hafði ekki aðeins verið eftirlæti hennar og augasteinn, heldur hafði hún einnig á prjónun- um áform um að hann yrði eftir- maður sinn. Eftir andlát Sanjays spruttu svo upp deilur milli Indiru og ekkju Sanjays, Maneku Gandhi, meö þeim afleiðingum að Maneka ákvað að stofna sinn eigin flokk og keppa við tengdafólk sitt. Raijv Gandhi, eldri sonur Indiru, hæglát- ur maður og frábitinn stjórnmála- vafstri, lét undan þrábeiðni móður sinnar og gekk til liðs við hana í stjórnmáíum og tók við fram- kvæmdastjórastarfi Congress I. Indira Gandhi tók ómjúklega á aðgerðum sikha eins og margsinnis hefur verið frá sagt og bakaði sér hatur og illan hug þeirra. öryggis- varsla um hana hafði verið efld vegna líflátshótana. Indira Gandhi fullyrti alltaf, að hún hefði tekið við arfleifðinni og hagur Indlands væri það sem hún bæri mest fyrir brjósti. Margir drógu þá staðhæfingu í efa hin sið- ari ár og sögðu að valdið hefði eyði- lagt dómgreind hennar og réttlæt- iskennd. Seinna kveður svo sagan upp sinn dóm. misreiknað sig. „Á undan er margt gengið, efnahagskreppa hafði haldið heiminum í heljar- greipum, ókyrrð innanlands hafði magnazt... Eftir setningu lag- anna fékkst ráðrúm til að vinna. Það tókst að draga úr verðbólgu og atvinnuleysi og efla framleiðsl- una. Allt kostar sitt, það vita þeir sem standa í stjórnmálum og þora að sýna ábyrgðartilfinningu og dirfsku, fremur en það sem gæti leitt til stundarvinsælda... Því gekk ég til kosninga með góðri samvizku. Nú fór sem fór, ég fár- ast ekki yfir því frekar en sigri minum nú. Það sem hlýjar mér mest er fögnuður fólksins. Á hverjum degi síðan við unnum f kosningunum hefur fólk þyrpzt að heimilinu. Hún talaði lágt, hló aldrei, enda út af fyrir sig ekkert til að hlægja að, brosti oft. Strauk sér oft yfir hárið. Ég sagði henni að sonur minn safnaði eiginhand- aráritunum, hvort ég mætti kannski biðja hana að skrifa nafn- ið sitt. Heldurðu að hann kannist við mig? Drengur uppi á íslandi? Ja, hérna, þaö er aldeilis skemmti- legt, sagði hún og bætti því við að hún hefði einu sinni átt þess kost að fara til íslands, en þá hefði staðið svo á að það hefði verið ógerningur. Hún sagðist hafa lesið mikið um Ísland og dáðist að þeim menningarverðmætum, sem lægju eftir þessa litlu þjóð. „Það var mikil andstaða gegn mér og er enn og andstæðingar mínir hafa sakað mig um margt, eins og þið kannski vitið. Samt staðhæfi ég að ég hef alltaf reynt að vinna i þeim anda sem faðir minn innrætti mér og enginn hef- ur borið hann ávirðingum." Þá daga sem eftir lifðu Delhi- dvalar voru blóm send frá hótel- inu upp á herbergi mitt og bréfs- efni með nafninu mínu gulletruðu. Ég hafði hitt Indiru Gandhi... það var hvorki meira né minna. Nokkrum mánuðum siðar töluð- um við saman í sima eftir að Desai-stjórnin hafði beðið ósigur á þingi. „Meirihluti þjóðarinnar vill afsögn Desai,“ sagði hún og varð sannspá. Ég sendi henni Moggann og lauslega þýðingu á samtölum okkar. Mánuði seinna fékk ég handskrifað bréf frá henni, þar sem hún þakkaði fyrir og sagði siðan: „Ég man ekki hvort ég minntist á það, þegar við hitt- umst, að ég las i gamla daga sögu Jules Verne um Snæfellsjökul. Síðan hugsaði ég oft um það, barn í hitunum hér, hvað hlyti að vera stórkostlegt að eiga heima á ís- landi og geta andað að sér svölu lofti. Kannski fæ ég seinna tæki- færi til að koma til Islands...“ Dregíð i 7 flokkí 6.november Vinningar í 7. flokki eru:_krónur 1 vinningur til íbúðarkaupa 500.000 8 vinningar til bílakaupa hver á 100.000 40 utanlandsferðir, hver á 35.000 f jöldi húsbúnaðarvinninga á 10.000 og 2.500 krónur hver. MIÐI ER MÖGULEIKI Happdrættí 84-85 MIÐ BJOÐUNV METRINU BYRGINN ZtMDGESTOnE Nú eru fyrirliggjandi BRIDGESTONE radial og diagonal vetrarhjólbarðar á vörubifreiðar með hinu frábæra IRIDGE- STONE ÍSGRIPS-mynstri Sérlega hagstætt verð. ISGRIP BÍLABORGHF. Smiöshöföa 23 sími 812 99
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.