Morgunblaðið - 04.11.1984, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 04.11.1984, Qupperneq 1
112 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 214. tbl. 71. árg. SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1984 PrentsmiöjaMorgunblaðsins Hundruð þúsunda við bálför Indiru Nýjii Delhi, 3. ■ÓTember. AP. BÁLFÖR Indiru Gandhi, fyrrum forsætisráðherra Indlands, fór fram í dag. Sonur hennar og eftirmaður, Rajiv Gandhi, bar eld að kestinum að viðstöddum mörgum tugum erlendra fulltrúa og hundruðum þúsunda Indverja, sem margir biðu í alla nótt meðfram veginum, sem líkvagninum var ekið. Enn eru síkhar ofsóttir um allt Indland og opinberlega hefur verið gefið upp, að 1.000 manns hafi verið myrtir í hefndaraðgerðum hindúa. Fallbyssuvagni með líki Indiru Gandhi var ekið 11 km langan veg í gegnum höfuðborgina, Nýju Delhí, að garði við Jamuna-á þar sem bálförin fðr fram. Hundruð þúsunda manna, á aðra milljón að mati indverska sjónvarpsins, vörðuðu leiðina og höfðu margir beðið í alla nótt. Fólkið barði sér á brjóst, grét og hrópaði ýmist, að móðir Indlands væri dáin eða að Indira væri ódauðleg. Herinn var með mikinn viðbúnað, vopnaðir menn hvarvetna og fjðldi þyrlna sveimaði yfir borginni. Bálförin fór fram á sama stað og sonur Indiru, Sanjay, var brenndur, faðir hennar og Mo- handas Gandhi, sem kallaður hef- ur verið faðir Indlands. Rajiv Gandhi, sonur Indiru og eftirmað- ur hennar sem forsætisráðherra, bar eld að kestinum, sandalviði gegnvættum í hreinsuðu smjöri, eftir að hafa gengið þrisvar sinn- um kringum hann og snert skadd- að andlit móður sinnar hverju sinni. Forseti Indlands, Zail Singh, sem er af trúflokki síkha, skipaði heiðurssess við bálförina en ströng gæsla var um hann af ótta við hefndaraðgerðir hindúa. Margir síkhar aðrir, sem eru auð- þekktir á höfuðbúnaðinum, voru í mannfjöldanum en ekki er vitað til, að nokkuð hafi borið út af. Prestar af öllum helstu trúflokk- um i Indlandi, hindúar, múham- eðstrúarmenn, búddatrúarmenn, kristnir og síkhar, báðust fyrir við bálköstinn og köstuðu sandalviði, sem er tákn hreinleikans, á eldinn. Enn er víða róstusamt í landinu og segja opinberar tölur, að rúm- Grænland: Ofbeldi mesta heilbrigðis- vandamálið GntmUmáu 3. nóvember. Frá Níli Jttrfen , frétUríUra MbL lega 1.000 manns, aðallega síkhar, hafi verið drepnir. Er óttast, að raunveruleg tala sé miklu hærri og bent er á, að aðeins í höfuð- borginni er vitað um 500 manns, sem hafa verið myrtir. í einu hverfi borgarinnar voru rúmlega 300 síkhar, karlmenn, konur og börn, myrtir án þess að lögreglu- menn reyndu að grípa í taumana og hefði blóðbaðið orðið enn skelfilegra ef miskunnsamir hindúar hefðu ekki skotið skjóls- húsi yfir aðra íbúa hverfisins, sem flestir eru síkhar. George Shultz, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, og Margar- et Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, voru meðal fulltrúa erlendra ríkja við bálförina og einnig Nikolai Tikhonov, forsæt- isráðherra Sovétrlkjanna. Víða um heim voru fánar í hálfa stöng á opinberum byggingum í virð- ingar- og samúðarskyni við ind- versku þjóðina. Símamynd AP. Lögreglumenn fylgdust grannt með ölhi þegar Ifk Indiru Gandhi var flutt 11 km langan veg í gegnum höfuðborgina, Nýju Delhí, en meðfram allrí leiðinni var mikill mannfjöldi, i aðra milljón manna, að sögn indverska sjónvarpsins. Sfkhar, sem eru auðþekktir á höfuðbúnaðinum, voru margir meðal syrgjend- anna en ekki er vitað til að neitt hafi borið út af við biiförina. Á öðrum stöðum hefur viða orðið skelfilegt blóðbað þar sem menn, konur og börn af trúflokki síkha hafa verið myrt I befndaræði hindúa. Vetur konungur Vetur er genginn í garð fyrir nokkru þótt enn sé snjólétt víðast hvar í byggð. Myndina tók RAX þegar hann átti leið um Kambana, af manni, sem reynir færleikinn í fölinni en efst uppi brosir klettakarlinn í haustblíðunni. BERKLAR eru ekki lengur mesta beilbrigðisvandamál Grænlendinga, heldur ofbeldi, að því er fram kemur f skýrslu lækna á grænlenskum sjúkrahúsum. Þriðjungur allra meiðsla sem tilkynnt eru á sjúkrahúsunum er af völdum ofbeldis. í mörgum til- fellum má rekja ofbeldisverknað- ina til drykkjuskapar. Fram kemur f skýrslunni, að þetta bitnar hart á konum. Um 78% fórnarlambanna eru konur, og tölurnar sýna, að þær verða 20 sinnum oftar fyrir barðinu á ofbeldi en konur f Danmörku. Grænlenska landsþingið hefur nú samþykkt lög, sem gefa fórn- arlömbum ofbeldis frekari mögu- leika á bótum en áður var. Jarðarfdr pólska prestsins; „Samstaða, Samstaða“ söng mann- fjöldinn Vuqá. 3. ■ÓTcmber. AP. LECH Walesa og aðrir Samstöðuleið- togar vorn meðal þeirra tugþúsunda, sem voru við jarðarför pólska prests- ins, Jerzy Popieluszkos, f dag. Hefur mannfjöldi a götum úti ekki verið meirí f böfuðborginni frá þvf f júní 1983, er Jóhannes Páll páfi II heim- sótti Varsjá. Framhlið kirkju heilags Stanisl- aw Kostka var tjölduð pólska fánan- um, rauðum og hvftum, en kista prestsins hvíldi á palli fyrir utan kirkjuna, þakin blómsveigum. Hinn mikli mannfjöldi fagnaði Walesa, þegar hann lagði blómsveig að kistunni. Hóf fólkið síðan að syngja nafn frjálsu verkalýðsfélag- anna, „Samstöðu". Ekki hefur fyrr komið fram svo afdráttarlaus stuðningur almenn- ings við Samstöðu frá því að sam- tökin voru bönnuð skömmu eftir að herlög voru sett í landinu. Fyrr í dag kom Lech Walesa til indverska sendiráðsins í Varsjá til þess að votta hluttekningu sina vegna vigs Indiru Gandhi, sem hann kvað „villimannslegt hermdarverk". Kínverjar stækka Peknti. AP. KÍNVERJAR verða lengri og lengri, eftir því sem fram kemur í blaði einu f Peking. Landsmenn, sem eru um milljarður talsins, eta nú meira kjöt og fisk og egg en áður hefur tíðkast og hefur þetta breytta mataræði leitt til þess, að meðalhæð eykst nú um tvo millimetra á ári. Samkvæmt rannsóknum sem gerðar voru i 16 héruðum Kina árið 1955 reyndist meðalhæð karla vera 1,66 m. í rannsókn sem gerð var 1979 var meðalhæð þeirra komin upp í 1,72 m.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.