Morgunblaðið - 08.11.1984, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1984
9
Innilegar þakkir færi ég œttingjum mínum og öllum
þeim sem heiðruðu mig í tilefni afhundrað ára afmæli
mínu Jf. nóvember si með gjöfum, símskeytum og heim-
sóknum. Sérstaklega þakka ég íbúum Hrafnagilshrepps
fyrir rausnarlegt samsæti, gjafir og góðvild fyrr og síð-
ar. Lifið öU heil
Aldís Einarsdóttir,
Stokkahlöðum.
'PÞtNC HF Q 686988
Sparifjareigandi!
Þú getur fengið,
4296 vexti
(Forsendur: 229fa verðbólga og 169fa vextir
umfram verðbólgu á verðtryggðum
veðsku Idabréfum )
Ef þú hefur ekki
þekkingu á þeim
á vöxt u na rmög u le i ku m
sem bjóðast f dag eða
tíma til að sinna þeim,
láttu þá sérfræðinga
Kaupþings annast
fjárvörslu
þína, þeir hafe tíma og
upplýsingar og auk þess
yndiaf fjárfestingum.
Sölugengi verðbréfa 8. nóvember 1984
SPARISKÍRTEINIRÍKISSJÓÐS:
Solugengi miðað við 8,6% vexti umfram verðtr. pr. 100 kr.
1.FLOKKUR 2.FLOKKUR
Skarö höggvið í verðbólguvarnir
Sú viöurkenning skýtur æ oftar upp kolli í Þjóöviljanum aö
verkföll síöustu vikna hafi fremur veriö pólitísk atlaga aö
ríkisstjórn landsins og veröbólguvörnum hennar en fagleg
kjarabarátta, ef grannt er lesið í textann. Þessi játning
kemur glögglega fram í forystugrein Þjóöviljans sl. þriöju-
dag. Staksteinar glugga í þennan leiöara í dag — sem og
nýlega forystugrein íslendings á Akureyri.
Þjódviljinn
stimplar verk-
föllin pólitísk!
Nýafstaðið verkfall
BSRB var að framkvæmd-
inni til óbilgjarnara en
gengur og gerist í sams-
konar gjörningum aðildar-
sambanda ASÍ. Meint
lögbrot reyndust mörg í
þessu verkfalli. Fram-
kvæmdastjórar þess
keyptu að vísu í þeim
samningum, sem um síðir
tókust, einskonar afláts-
bréf frá meintum lögbrot-
um sínum, a.m.k. að því er
varðar einstaklinga innan
BSRB og einstök ráðu-
neyti, en ríkisvaldið getur
að sjálfsögðu ekki samið
fyrir aðra sjálfstæða máls-
aðiia, sem telja á sér brot-
ið. horri fólks fellst ein-
faldlega á það, að nauð-
synlegt sé að fá skorið úr
ýmsum „vafaatriðum",
varðandi framkvæmd
verkfallsins, eftir leikregl-
um réttarríkisins, þ.e. með
úrskurði löglegra, hlut-
lausra dómstóla.
Þjóðviljinn, „málgagn
sósíalisma, þjóðfrelsis og
verkalýðshreyfingar“,
hamast þessa dagana eins
naut í flagi gegn dómstóla-
mati á þvi, hvað sé löglegt
og hvað sé ólöglegt varð-
andi umdeild fram-
kvæmdaatriði í verkfallinu.
Helzta röksemd blaðsins,
sem berlega kemur fram í
leiðara þess sl. þriðjudag,
er, aö stofnanir, sem leita
réttar síns eftir lagaleiðum
fyrir dómstóhim, „stefni
inn i pólitískar deihir með
vafasömum hætti“. Þannig
segir blaðið orðrétt
„Nú hefur það gerzt, að
Háskóla íslands er stefnt
inn í pólitiskar deilur með
afar vafasömum hætti. For-
ráðamenn stofnunarinnar
hafa ákveðið að sækja
BSRB til saka fyrir verk-
fallsvörslu samtakanna við
Háskólann á fyrstu dögum
nýafstaðins verkfalls. Þessi
ákvörðun er fráleit...“
Forráðamenn Háskólans
hafa tekið skýrt fram að
tilgangur þeirra sé sá einn
að fá, eftir réttum lagaleið-
um, úr því skorið, hvern
veg beri að lita i fram-
kvæmdaatriði, sem um-
deild eru. Slíkt sé nauð-
synlegt með tilliti til fram-
tiðarinnar. Við lifum nú
einu sinni í réttarfarsríki.
Það meginatriði er og al-
mennt viðurkennt, að allir
eigi að vera jafnir fyrir
landsins lögum — og með
lögum skal land byggja —,
einnig forysta BSRB.
Hver heiðarlegur og
löghlýðinn maður, sem
heldur vill hafa það sem
sannara reynist, styður við-
leitni Háskóla íslands til
að fá fram, eftir réttum
lagareglum, nauðsynlegt
mat á umdeildum atriðum.
Ritstjórn Þjóöviljans er
sem betur fer enginn
hæstiréttur í landinu. Sov-
ét-ísland kann að vera
„staðreynd" í hugarórum
íslenzkra marxista — en
ekki í veruleikanum.
Feit ár og
mögur — og
forysta BSRB
„Hverjum f hag?“ heitir
nýleg forystugrein íslend-
ings á Akureyri. Niðurlag
hennar hljóðar svo orðrétt:
„Frá því að opinberir
starfsmenn fengu verk-
fallsrétt árið 1976 hafa þeir
verið sparir á að beita hon-
um. Þeir beittu honum þó
gegn þeirri ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks, sem veitti
þeim hann. Frá þeim tíma
hafa kjör opinberra
starfsmanna versnað stór-
um, þótt ytri aðstæður
þjóðarbúsins væru viðun-
andi fram til 1982. Nú þeg-
ar þjóðartekjur hafa dreg-
izt saman þrjú ár í röð,
vegna versnandi viðskipta-
kjara og minnkandi afla,
blæs forysta BSRB til at-
lögu til að leiðrétta kjör
sín. Mögru árin eru sá
tími, sem Kristján Thor-
lacius velur til þess að
minnast þess, sem hann
gleymdi á feitu árunum.
Það er að vísu rétt, að
feitu árin voru ekki eins
feit og þau litu út fyrir að
vera, því margt var þá
fengið á hriflingarbjörgum
í erlendum lánastofnunum.
| Fyrir að viðurkenna þá
staðreynd hefur ríkis-
stjórninni nú verið refsað.
Það er ekki launungar-
mál, að skattalækkanir
hafa löngum verið Alþýðu-
bandalaginu þyrnir í aug-
um. Trú Alþýóubandalags-
ins á tekjuskatti byggist í
orði kveönu á því, að hann
sé leið til tekjujöfnunar. Á
borði er því hinsvegar ekki
þann veg farið. Tekjuskatt-
urinn er uppspretta mikils
ójafnaðar í þjóðfélaginu og
vatn á myllu þjóðfélags-
afla, sem ætla mætti, að Al-
þýðubandalagið teldi sér
ekki skylt að mylja undir.
Auk þess er siðferðilegur
grundvöllur tekjuskattsins
orðinn i hæsta máta vafa-
samur. Hann er í eðli sínu
refsing fyrir vinnu miklu
fremur en leið til að jafna
tekjur.
Það er Ijóst, að skatta-
lækkunarleiðinni hcfur
verið hafnað og að efna-
hagsmarkmiðum rikis-
stjómar verður ekki náð.
— Alþýðubandalagið hrós-
ar sigri. — Það geta laun-
þegar hinsvegar ekki.“
Alþýðubandalagið sat í
ríkisstjórn á feitum árum
þjóðarbúskapar. Þá nagaði
valdstjórnin ekki aöeins
hverja hnútu, sem góðærið
gaf, heldur batt þjóðinni
þær skuldabyrðar erlendis,
sem eru ein höfuðorsök
lakra lífskjara í dag, ásamt
aflarýrnun, verðfalli út-
flutningsvöru og rangri
fjárfestingu.
Sölugengi 8,6% Sölugengi 8,6%
Útg. pr. 100kr vextirgilda til pr 100 kr. vextirgiida til
1971 16.626,04 i - -
1972 14.558,54 25.01 '85 12.020,98 i
1973 8.692,68 i 8.137,83 25.01.'88
1974 5.269,57 i - -
1975 4.429,94 10.01.'85 3.284,71 25.01.'85
1976 2.980,36 10.03.'85 2.468,02 25.01.'85
1977 2.148,13 25.03.'85 1.903,77 2
1978 1.456,47 25.03.'85 1.216,22 2
1979 997,28 25.02.'85 792,90 2
1980 674,70 15.04.'85 512,62 25.10.'86
1981 435,38 25.01.'86 315,68 15.10.’86
1982 313,36 01 03’85 228,03 01 10.’85
1983 173,55 01.03.86 109.66 01.11.86
1984 103,76 01.02.'87 101,54 10.09.'87
1) lnnlv. Seðlabankans 15.09.'84.
2) lnnlv. Seðlabankans 10.09.'84.
VEÐSKULDABRÉF
______Verðtryggð___________________Óverðtryggð________
Með 2 gjalddögum á ári Með 1 gjalddaga á ári
Sölugengi Sölugengi Sölugengi
14%áv. 16%áv.
Láns- Natn- umfr. umfr. 20% 20%
tlmi vextir verðrt. vertr. vextir HLV1 vextir HLV'
1 71 95,47 94,25 86 87,5 80 82
2 71 92,78 90,88 76 78,5 70 73
3 8 91,78 89,27 67 70,5 61,5 64
4 8 89,86 86,82 60 63 54 57
5 8 88,09 84,59 53 57 48 51
6 8 86,47 82,55
7 8 84,96 80,70
8 8 83,58 79,00
9 8 82,30 77,45
10 8 81,12 76,07 1) hæstu leyfilegu vextir.
Fjárvarsla -Veröbréfasala
“J Íií í KAUPÞING HF
>Iít sm * % Husi Venluntrinnar. simi 686988
TSílamattaduting
^ %% fá§j§|
sQ-littisaötu 12-18
Subaru 4x4 1982
Silfurgrár, ekinn aöeins 27 þús. km. Verö
350 þús.
Cadillac Sedan De Ville 1966
Hvítur, 8 cyi. (508 cc) sjálfsk m/öllu. Raf-
magn i rúöum og sætum. Ath. útlit og gang-
verk í sérflokki. Verö 275 þús.
Lada Sport 1980
Rauöur, ekinn 48 þús. km. Verö kr. 190 þús.
Einnig Lada Sport 1981. Verö kr. 220 þús.
Honda Accord Sport 1983
Rauöur, ekinn 25 þús. Verö 410 þús.
Góður jeppi
Range Rover 1980
Hvitur, ekinn 41 þús. km. Verð 780 þús.
Skipti á ódýrarl.
Bfll fyrir vandláta
M. Benz 380 SE 1981
Grásans, 8 cyl. sjálfskiptur m/ðllu, ekinn 49
þús. km. Sóllúga, rafmagn í öllu. Allur leð-
urfcheddur. Vandaóur bill í sérflokkl. Verö
1350 þús. Skiptl ath. á nýlegum jeppa.
/ffEV,
Sparíbaukur á hjólum
Fiat Uno 45 Es 1984
Dökkgrár ekinn 16 þús. Útvarp, seguiband.
Verö 245 þús.
Algjör dekurbíll
Chrysler Le Baron
Coupé 1979
Grænsans, 8 cyt. m/öllu. Eklnn aöeins 22
þús. km. 2 dekkjagangar og fl. Verð 380
þus.
Cherokee Chief 1979
Rauöur, 8 cyl. m/öliu, ekinn 48 þús. km.
Fallegur jeppi. Verö 490 þús.
Eagle station 4x4 1982
Rauöur ekinn 21 þús, sjálfskiptur, vökva-
stýri, snjódekk. sumardekk, selectdrif,
skráöur okt. 1983. Verö 680 þús.
Mazda 626 2000 1982
Grár, ekinn 30 þús., sjálfskiptur, power-
stýri, rafmagnsrúöur, topplúga. Verö 300
þús.
Datsun Patrol Disel 1983
Hvítur, ekinn 37 þús. km, 7 manna, upp-
hækkaöur o.fl. Verö 690 þús.
Fiat 131 Station 200 1982
(á götuna '84)
Blásans, ekinn 12 þús., 5 girar, rafm.rúöur
og læsingar. vökvastýri. Skipti möguleg.
Verö 330 þús.