Morgunblaðið - 08.11.1984, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1984
23
Minnt á Barnaspítala Hringsins
— eftir Björgu M.
Thoroddsen
Nú þegar tvær ungar stúlkur
fundu hvöt hjá sér að safna fyrir
„Barnaspítala Hringsins" með
hlutaveltu og komu upphæðinni til
mín, finn ég ástæðu til að skrifa
nokkur orð og minna á, að verið er
að vinna að þessum málum. Kven-
félagið Hringurinn er nú 60 ára.
Hefur unnið allan þennan tíma og
gerir enn. — Munu félagskonur
leggja sig fram af fullum krafti og
vonast eftir hjálp frá fólkinu sem
fyrr.
Hvað er okkur dýrmætara en
börnin? Það finnum við bezt, þeg-
ar þau veikjast eða verða fyrir
slysum. Þá er gott að fela þau í
hendur góðra lækna. Það er trú
mín, að enginn verði barnalæknir,
sem ekki er hlýtt til barna, svo
ekki sé meira sagt.
Að koma á barnaspítala lætur
engan ósnortinn. Hvað þá um
læknana, sem verða að horfa upp
á veik börn dag eftir dag? —
Hjálpum þeim að vinna við enn
betri skilyrði, svo þeir megi öðlast
umbun verka sinna.
Þegar ég gekk í „Kvenfélagið
Hringinn" var það nánast fyrir
tilviljun. En ef þú einu sinni ert
komin þar, hlýtur starfið að grípa
þig, og þú leggur fram þinn skerf,
því margt smátt gerir eitt stort.
Það var ekki með mín barna-
börn í huga, sem ég var í „Hringn-
Tvær glaðar Afríkustúlkur.
Fjórar
kristni-
boðssam-
komur
FJÓRAR kristniboðssamkomur
verða haldnar í Hafnarfirði, í húsi
KFUM og KFUK við Hverfisgötu,
og hefst sú fyrsta þeirra í kvöld kl.
20.30.
Síðan verða samkomur á sama
stað og tíma þrjú næstu kvöld.
Kristniboðsstarf verður kynnt í
máli og myndum og fluttar hug-
vekjur. Tekið verður við gjöfum til
kristniboðsins. Á þessu ári þarf að
safna 3,3 milljónum króna vegna
starfsins í Eþíópíu og Kenýu.
Ræðumenn á samkomunum í
Hafnarfirði verða sr. Ólafur Jó-
hannsson, sr. Jón D. Hróbjartsson
og kristniboðshjónin Katrín Guð-
laugsdóttir og Gísli Arnkelsson og
Valdís Magnúsdóttir og Kjartan
Jónsson en þau hafa starfað í Afr-
íku og kunna frá mörgu að segja.
Æskulýðskór KFUM og KFUK í
Reykjavík syngur eitt kvöldið.
um“, samt sem áður þurfti barna-
barn og barnabarnabarn mitt á
sjúkrahúsvist að halda.
Það er öryggi að vita þau fá þá
umönnun og hjálp, sem hlýjar og
öruggar læknishendur veita. Fyrir
það vil ég þakka hér og nú —
þakka þeim og öllu hjúkrunarliði
fyrir börnin öll, sem tókst að
lækna og oft á tíðum bjarga frá
dauðans dyrum.
Enn einu sinni vill „Kvenfélagið
Hringurinn" minna á barnaspít-
ala.
Nú er hugur og áhugi fyrir að
byggja nýjan barnaspítala, en sem
kunnugt er, hefur hann tvær hæð-
ir í Landspítalabyggingunni. Með
vaxandi fólksfjölgun og nýrri
tækni er þörf fyrir fullkominn
spítala, sem hentar betur þörfum
nútímans og skapar betri aðstæð-
ur læknum og hjúkrunarliði.
Þar verða áreiðanlega margir til
að leggja hönd á plóginn; þar sem
mannúð situr í fyrirrúmi myndast
kraftur.
Hér er verkefni fyrir góðgerð-
arfélög, sem ávallt eru reiðubúin
til starfs og hjálpar.
Heitið á „Barnaspítala Hrings-
ins“ sem fyrr, og leggið honum allt
það lið, sem þið getið í nafni barn-
anna.
Björg M. Thoroddsen.
ljúffeng
OGSAWR
SííkA!R,,25?
Vitað er að íínustu
veitingahúsin skarta gjarnan karía ámatseðlum
sínum og erþá ott mikið við haít í matreiðslunni.
En karíi er ekkert háður ílókinni matargerð,
sérstaklega ekki BÚRKARFINN, því hann er ílakaður,
roðlaus og beinlaus.
BÚRKARFI íœst í góðum matvórubúðum.
Honum má því kippa með á leiðinni heim úr vinnu
og á hann þarí ekki annað en rasp, salt og pipar.
Þetta heitir: „Að hœtti eldhússins heima"
og bragðast aláeilis stórvel.
Auðvitað má líka nota hveiti, egg, mjólk og annað krydd.
Og hvort með honum eru bornar íslenskar, íranskar eða íranskíslenskar kartöílur,
sítrónusaíi, remolaðisósa eða kokteilsósa og salat, breytir engu.
Allt þetta íellur undir heitið góða: ,Að hœtti eldhússins heima', en nauðsynlegt
er það ekki eins og áður sagði, og verð steikarinnar er nánast hlægilegt.
„Það er kominn matur"!
Eftir samkomurnar gefst fólki
kostur á að fá sér kaffisopa. Allir
eru velkomnir á samkomurnar.
VZ terkur og
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
*Ath. Verðið miðast við 150 gramma Burkaríatlak. roðlaust og beinlaust (auðvitað).
♦
Gylmir