Morgunblaðið - 08.11.1984, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1984
25
GULLNA LÍNAN
= 1985
ENNÞA FALLEGRI,
ENNÞÁ BETRI
Nú er gullna línan árgerö 1985 komin, hlaöin gæöum og ennþá
fallegri.
Gull-system-1 2x40 vött
Þetta er samstæöa meö öllu: útvarpi, magn-
ara, segulbandstæki, plötuspilara, tveimur
hátölurum og skáp. Um gæöin þarf ekki aö
fjölyröa, Marantz-gæöin eru löngu lands-
þekkt. Ekki spillir veröiö eöa kjörin því viö
bjóöum þessa frábæru Marantz-samstæöu á
Moskvubúi á Manhattan
Sæbjörn Valdimarsson
STJÖRNUBÍÓ: MOSKVA VIÐ
HUDSONFLJÓT
(„Moscow on tbe Hudson“) * + ‘A
Leikstjóri og framleidandi: Paul
Mazursky.
Handrit: Mazursky og Leon Capet-
anos.
Kvikmyndun: Donald McAlpine,
AJS.C.
Tónlist: David McHugh.
Aðalblutverk: Robin Williams,
Maria Conchita Alonso, Cleavant
Derricks, Alejandro Rey Savely
Kramarov.
Frumsýnd 1984. Bandarísk frá
Columbia Pictures.
Robin Williams er ungur
Moskvubúi sem hefur atvinnu af
saxófónleik við fjölleikahús. Er
því boðið í sýningarferð til
Bandaríkjanna.
Robin hefur verið hlýðinn
þegn til þessa, en í lok ferðarinn-
ar ákveður hann skyndilega að
verða eftir og gerist flóttamað-
ur.
Hann eignast strax þeldökkan
vin, Cleavant Derricks, hina
lögulegustu vinkonu, Mariu
Conchitu Alonso, sem er inn-
flytjandi af ítölskum ættum, og
því í svipuðu fari og Robin.
En ekki er sopið kálið þó í aus-
una sé komið, frelsisbrölt Robins
gengur misjafnlega. Að vísu er
hann útsmoginn í atvinnuleit-
inni, en fær þó ekki það starf
sem hann þráir mest, hljóðfæra-
leik. Þá sinnast honum við kær-
ustuna, besti vinurinn heldur til
baka á sínar heimaslóðir í Alab-
ama og loks er hann rændur.
Þegar Robin fær svo þær fréttir
að austan að ástkær afi hans sé
allur, fyllist hann örvæntingu og
heimþrá.
En það greiðist úr flestum
vandamálum og í myndarlok er
hann frelsinu feginn og flest
bendir til að hinn gamalkunni
„ameríski draumur" komi til
með að rætast, eina ferðina enn.
Viðfangsefnið hlýtur að vera
leikstjóranum Mazursky kært,
þar sem hann sjálfur er kominn
af rússneskum innflytjendum
sem héldu vestur um haf í byrj-
un þessarar aldar. Og afi Robins
er gömul stríðshetja, líkt og afi
Mazurkys. Þó er tæplega hægt
Lögfræðiað-
stoð Orators
ómótstæöilegu
tilboði:
að tala um að Moskva við Hud-
son sé ævisöguleg, heldur sögu-
skoðun, Mazursky reynir að
skilja frændur sína og þá eink-
um líðan þeirra eftir að hafa
tekið jafn örlagaríka ákvörðun
og snúa baki við föðurlandinu,
brjóta allar brýr að baki og setj-
ast að í helvítinu sjálfu, háborg
kapítalismans!
En ,Moskva við Hudson ristir
sjaldnast djúpt, því miður,
heppnast mun betur sem gaman-
mynd en drama. Mazursky vann
vel að undirbúningi hennar,
ferðaðist vítt um Rússíá og hafði
mikið samband við landflótta
Rússa í Bandaríkjunum. Og
vissulega nær hann stöku sinn-
um að koma áhorfandanum í
snertingu við þær þjáningar og
sálarkvalir sem hljóta að vera
því samfara að yfirgefa allt það
sem maður þekkir.
En sem fyrr segir er hinum
spaugilegu hliðum á þessum
málum mun betur komið til
skila. Mörg atriðin bráðfyndin,
einkum þó þau með afa gamla í
Moskvu. Og átökin í marmara og
speglahöllinni Bloomingdale’s,
þar sem prjál hins vestræna
heims rís hátt með öllum sínum
glysvarningi, að maður tali nú
ekki um gallabuxurnar frá Calv-
in Klein og Jordache!
Robin Williams lagði það á sig
m.a. að læra hrafl í rússnesku og
undirstöðuatriðin á saxófón
fyrir gerð myndarinnar. Hann er
líka einarðiegur í hlutverki sínu
og gerir því viðunandi skil.
Landsfrægur gamanleikari úr
sjónvarpsþáttunum Mork and
Mindy, þar vestra. Maria Conch-
ita Alonso er fegurðardrottning
frá einu S-Ameríkuríkjanna, og
þykir með harðskeyttari met-
orðastigaklifrurum vestan hafs
og er þá mikið sagt. Hún er
snoppufríð, frjálsleg og auð-
sjáanlega einbeitt, vís með að
Höfuðpaurar Moskvu við Hudson, Robin Williams, Cleavant Derricks og
leikstjórinn/framleiðandinn/handritshöfundurinn Paul Mazursky.
klöngrast uppundir efstu rimar
— með hjálp sígilds undirlægju-
háttar.
Moskva við Hudson er at-
vinnumannslega gerð og prýði-
leg skemmtun sem gamanmynd,
enda hafa þær verið aðal hins
eftirtektarverða leikstjóra, Maz-
urkys, sem getur gert mikið bet-
ur en hér.
Kvikmyndir
LÓGFRÆÐIAÐSTOÐ Orators hef-
ur þriðja starfsár sitt í kvöld,
fimmtudagskvöld 8. nóvember, kl.
19.30. Mun hún starfa í vetur á
hverju fimmtudagskvöldi frá kl.
19.30—22.00.
Á þessum tíma getur almenn-
ingur hringt í síma 21325 og borið
upp lögfræðileg vandamál og verð-
ur leitast við að leysa úr þeim eftir
bestu getu.
Aðstoð þessi er ókeypis.
(Fréttatilkynning)
25.980.- stgr. eda 29.980 afb.
Útborgun kr. 5.000.-
Eftirstöðvar á allt að 8 mán.
LITGREINING MEÐ
CROSFIELD
5 40
LASER
LYKILLINN AO VANDAORI
LITPRENTUN
MYNDAMOT HF
SKIPHOLTI 19, SÍMI 29800
MERKI UNGA FÓLKSINS