Morgunblaðið - 08.11.1984, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 08.11.1984, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1984 KJOR 9 8 4 MASSA CMUSÉTTS RWOOS IS CÓNNCCTICÚT NEW JERSÉY DELAWARE MARYt A\D > AHIiZONA NEW ( ; MEXICO SoMA ^ARK^y^.^^SÉ^CARonjÁ 'iSSiíÍÍÍ—'vVASMlNGTON OC \y^ SCAROUNA TEXAS LOUiSIANA' States won by Reagan States won by Mondale Símamynd AP. Nánast hreint borð. Á kortinu eru ríkin 49 sem Reagan vann sigur í óskyggð, Mondale vann sigur í heimaríki sínu, Minnesota, og er það skástrikað og stingur í stúf við hin. Einnig vann Mondale sigur í höfuðborginni, Washington DC. Nýliðar í öldungadeild Bandaríkjaþings: Tveir repúblik anar og fimm demókratar Washin^ton, 7. nóvember. AP. SJÖ NYLIÐAR náðu kjöri til öld- ungadeildar Bandaríkjaþings í kosn- ingunum á þriðjudag. Tveir þeirra eru úr flokki repúblikana og fímm úr fíokki demókrata. Fjórir nýliðanna hafa áður setið í fulltrúadeild þings- ins. Repúblikaninn Mitch McConnel, sem er 42 ára gamall héraðsdómari frá Kentucky, sigraði demókratann Walter Huddleston. Huddleston, sem setið hefur í deildinni undan- farin tvö kjörtímabil, hefur óskað eftir endurtalningu atkvæöa vegna þess hve mjótt var á mununum. Vegna mjög hagstæöra samninga bjóöum viö nú nokkrar Opel Ascona bifreiöir á lækkuöu verði. 375.330- BILVANGURsf L l I I i HOFÐABAKKA-9 IE4 R6YKJAVIK 5IMI 687300 1 í i i i _______________________ Repúblikaninn Phil Gram, sem er 42 ára gamall, fyrrverandi prófess- or í hagfræði og einn af efnahags- ráðgjöfum ríkisstjórnar Reagans forseta, tekur sæti flokksbróður síns, John Towers, sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Demókratinn Albert Gore, sem er 36 ára og fyrrverandi þingmaður í fulltrúadeildinni, tekur sæti How- ard H. Bakers, sem var leiðtogi rep- úblikana í deildinni, en gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Demókratinn Tom Harkin, sem er 44 ára gamall og fyrrum þing- maður í fulltrúadeildinni, bar sig- urorð af Roger Jepsen, þingmanni repúblikana. Harkin er kunnur fyrir stuðning sinn við smábændur og smáatvinnurekendur i skatta- og orkumálum. Demókratinn Paul Simon, sem er 55 ára, sigraði repúblikanann Charles Percy, eins og greint er frá annars staðar á síðunni. Demókratinn John Kerry, sem er fertugur að aldri og vararíkisstjóri í Massachusetts, tekur sæti flokksbróður síns, Paul Tsongas, sem gaf ekki kost á sér til endur- kjörs. Kerry beitti sér á sínum tíma mjög gegn íhlutun Bandaríkja- manna í Víetnam. Keppinautur hans var repúblikaninn Raymond Shamie, sem er kunnur fyrir ein- arða íhaldsstefnu, og var lítill mun- ur á fylgi þeirra. John D. Rockefeller IV, sem er 47 ára gamall og náfrændi Nelson A. Rockefellers, fyrrum varaforseta, tekur sæti flokksbróður síns, Jenn- ings Randolps. Rockefeller IV hefur verið ríkisstjóri í Vestur-Virginíu. Nýir ríkis- stjórar WaHhington, 7. nóvember. AP. REPÚBLIKANAR unnu fjögur ríkis- stjóraembætti af demókrötum í kosningunum á þriðjudag, en biðu lægri hlut í þremur ríkjum. í allt sigraði flokkur forsetans í átta af þeim þrettán ríkjum þar sem kosið var um ríkisstjóra. Ósigrarnir í Norður-Dakota, Washington og Vermont drógu úr sigurgleði repúblikana eftir kosn- ingarnar á þriðjudag, þegar þeir unnu Norður-Karólínu, Rhode Is- land, Utha og Vestur-Virginíu af demókrötum. f öllum fjórum ríkj- unum höfðu ríkisstjórar demó- krata látið af embætti. í Norður-Dakota sigraði fram- bjóðandi demókrata, George Sinn- er, Allen I. Olson, ríkisstjóra, sem er úr hópi repúblikana. í Wash- ington tapaði John Spellman, rík- isstjóri, sem er úr hópi repúblik- ana, fyrir Booth Gardner, fram- bjóðanda demókrata. í Vermont sigraði frambjóðandi demókrata, Madeleine Kunin, og varð þar með önnur konan sem gegnir embætti ríkisstjóra. Hin er Martha Layne Collins, ríkisstjóri í Kentucky.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.