Morgunblaðið - 08.11.1984, Side 29

Morgunblaðið - 08.11.1984, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1984 29 Skoðanír Ronald Reagans í innan- og utanríkismálum New York, 7. nóvember. AP. RONALD Reagan, Bandaríkjaforseti, sem var endurkjörinn í kosningunum sl. þriðjudag, er íhaldssamur í skoðunum, jafnt í utanríkis- sem innanríkismálum. Hér á eftir verður getið nokkurra mikilvægra málaflokka og viðhorfa hans til þeirra. „Við erum rétt að byrja“ Reagan, forseti, gefur sigurmerki með fingrinum eftir að hafa fagnað endurkjörinu með ræðu á Century Plaza-hótelinu í Los Angeles. „Við erum rétt að byrja," sagði hann í ræðunni og átti við, að næstu fjögur árin mun hann standa við stjórnvölinn í Hvíta húsinu. AP. AFVOPNUNARMÁL: Reagan er andvígur því, að kjarnorku- vopnaframleiðsla verði stöðvuð vegna þess, að Sovétmenn vilja ekki fallast á raunverulegt eft- irlit með slíkum samningi. Hann telur, að mikill hernað- armáttur Bandaríkjamanna muni einn geta fengið Sovét- menn til alvarlegra viðræðna og er þess vegna hlynntur auknum framlögum til hermála. Reagan vill fækka og draga úr áhrifa- mætti langdrægra eldflauga og takmarka sprengjuflugvélar og stýriflaugar við minni fjölda en kveðið er á um í SALT II. Hann vill einnig alheimsbann við efnavopnum svo fremi Sovét- menn fallist á eftirlit með því. MIÐAUSTURLÖND: Tillaga Reagans um palestínskt ríki á vesturbakkanum og Gaza-svæð- inu á ekki mikinn hljómgrunn lengur eftir að Israelar tóku að setjast að á fyrrnefnda staðn- um. Þrátt fyrir það heldur hann enn tillögu sinni til streitu. MIÐ-AMERÍKA: Reagan er þeirrar skoðunar, að Sovétmenn og bandamenn þeirra á Kúbu og í Nicaragua reyni að breiða út kommúnisma í Mið-Ameríku og annars staðar á vesturhveli Demókratar eru ennþá í meirihluta í fulltrúadeild WAshÍRgtoo, 7. nóvpmhrr. AP. ÞRÁTT fyrir yfírburðasigur Ronald Reagans í forsetakosn- ingunum urðu margir af frambjóðendum repúblikana að sætta sig við að sitja eftir með sárt ennið, þar sem demókrat- ar héldu meirihluta sínum í fulltrúadeildinni og söxuðu á meirihluta forsetans í öldungadeildinni. jafnoka hans að þessu „Það sem við höfum verið að gera er aðeins undirbúningur fyrir það sem við ætlum að gera,“ sagði Reagan við fagnandi stuðn- ingsmenn sína í Los Angeles, þeg- ar þeir hrópuðu „Fjögur ár í við- bót, fjögur ár í viðbót". En talsmaður demókrata í full- trúadeildinni, Thomas P. O’Neill yngri, svaraði að bragði: „Hann hefur ekki fengið umboð frá þjóð- inni til þess að gera eitt eða neitt.“ Átti hann þar við misheppnaða tilraun repúblikana til að vinna á í fulltrúadeildinni. Og O’Neill bætti við: „Kjósendur sendu demó- krata með umboð sitt inn á þing, sem öryggisnet fyrir bandarísku þjóðina." O’Neill kvað sigur Reagans stafa „af gífurlegum vinsældum forsetans. Við höfum aldrei kynnst leyti.“ Þegar ljóst var orðið um skipt- ingu 426 af 435 sætum fulltrúa- deildarinnar, höfðu demókratar fengið 249 sæti, eða 31 sæti fleira en þarf til að halda meirihluta í deildinni. Virtust þeir einnig ætla að hafa betur í keppninni um fjög- ur þeirra sæta sem eftir var að skera úr um. Repúblikanar höfðu fengið 177 sæti og virtust ætla að vinna fimm sæti til viðbótar. Mið- að við þessar tölur virðist flokkur forsetans ætla að vinna 14 af 26 sætum sem töpuðust fyrir tveimur árum. Fyrir kosningarnar sem fram fóru á þriðjudag höfðu demókrat- ar 267 sæti í fulltrúadeildinni, en repúblikanar 168 sæti. í fulltrúadeildinni tapaði demó- kratinn Clarence Long frá Mary- land fyrir frambjóðanda repúblik- ana, Helen Dietrich Bentley, en þetta var í þriðja sinn sem hún bauð sig fram á móti honum. Long, sem verið hefur formaður undirnefndar fjárveitinganefndar fulltrúadeildarinnar, hefur barist hart á móti stefnu forsetans í mál- efnum Mið-Ameríku. Fyrir fjórum árum olli stórsigur Reagans því, að repúblikanar fengu meirihluta í öldungadeild- inni og unnu 33 sæti í fulltrúa- deildinni. Gerði þetta forsetanum kleift að ganga til samstarfs við íhaldssama demókrata í fulltrúa- deildinni og fá meirihluta fyrir fjárlagafrumvarpi sínu og skatta- lækkanafrumvarpi. Þessi sam- vinna riðlaðist í kosningunum 1982, þegar demókratar unnu 26 sæti í deildinni. Gerðu repúblikan- ar sér nokkrar vonir um það nú, að vinsældir forsetans mundu hjálpa til að vinna aftur tapið frá 1982. jarðar. Hann styður skæruliða, sem berjast gegn stjórn sandin- ista í Nicaragua, og vill auka aðstoðina við stjórnina í E1 Salvador. RÍKISÚTGJÖLD: Reagan er hlynntur því, að stjórnar- skránni verði breytt og alríkis- stjórninni gert skylt að hafa fjárlögin hallalaus. Hann vill draga úr útgjöldunum en ekki er alveg ljóst hvar hann vill bera niður þar sem hann hefur heitið því að hrófla ekki við eft- irlaunagreiðslum og berst fyrir auknum framlögum til hersins. Hann er mikill talsmaður hins frjálsa markaðar og lægri vaxta. VIÐSKIPTAMÁL: Reagan barst fyrir frjálsri verslun og er and- vígur tilraunum þingsins til að skylda erlenda bílaframleiðend- ur til að nota bandarískt vinnu- afl og framleiðslu að hluta í þeim bílum, sem seldir eru í Bandaríkjunum. Hann var and- vígur hömlum á innflutningi stáls en féllst á tolla og nokkrar takmarkanir á innflutningi syk- urs, vefnaðarvöru, vélhjóla og nokkurra stálvörutegunda. FÓSTUREYÐINGAR: Reagan er hlynntur því, að stjórnar- skránni verði breytt og fóstur- eyðingar verði bannaðar. TRÚMÁL: Reagan vill breyta stjórnarskránni og heimila bænastund í opinberum skólum ef skólayfirvöld og foreldrar fara fram á það. Skattalækkun og leyfi til að selja falskar tennur — meðal mála sem kosið var um New York, 7. nóyember. AP. Kosningaslagurinn í Bandaríkj- unum snerist að sjálfsögðu helst Formaður utanríkis- nefndarinnar feildur ( 'hicægo, 7. nóvember. AP. REPÚBLIKANINN Charles Percy, sem setið hefur í öldungadeild Bandaríkjaþings í þrjú kjörtímabil og verið formaður utanríkismála- nefndar deildarinnar, náði ekki endurkjöri í kosningunum í gær. Hann féll fyrir demókratanum Paul Simon, sem setið hefur { fulltrúa- deild þingsins. Að Percy var sótt úr tveimur áttum í kjördæmi hans, Illinois. Annars vegar sökuðu íhaldssamir flokksbræður hans hann um að vera of frjálslyndan og hins vegar gagnrýndu gyðingar hann fyrir að vera of linan í stuðningi við Israel. Paul Simon, sem er fyrrum prófessor og vararíkisstjóri, hefur verið ötull málsvari Israela og lögðu gyðingar í Chicago mikið fé í kosningasjóð hans. Þegar talin höfðu verið 90% at- kvæða í IUinois var hlutur Simons 51% en hlutur Percys 48%. um mennina tvo, sem buðu sig fram í forsetaembættið, en þar að auki var kosið um fjöldamörg önn- ur mál víða um landið, allt frá skattalækkunum til banns við kjarnorkuvopnum. I fimm ríkjum var tekist á um skattalækkunartillögu og hefur það vakið nokkra athygli, að henni var yfirleitt hafnað. Þannig var einnig um tillögu um að leyfa spilavíti í Arkansas og Colorado og í Maine sögðu 67% kjósenda nei við endurbótum á jafnréttislögum. í háskólabænum Ann Arbor í Michigan var lagt til, að bærinn yrði lýst kjarnorkuvopnalaust svæði og kjarnorkuvopnarann- sóknir bannaðar þar en íbúarnir reyndust flestir vera á annarri skoðun. Kjarnorkuvopnabann var þó samþykkt í nokkrum sveitarfélögum í Kaliforníu og Oregon. Fasteignaskattar voru víða nokkurt hitamál en yfir- leitt voru kjósendur ekki á því að setja þeim þröngar skorður. I Montana voru greidd at- kvæði um sérkennilegt mál og þar var samþykkt, að „tanna- klastrarar", sem nefndust svo, mættu selja falskar tennur. Andstæðingar tillögunnar bentu þó á, að menntunin, sem talað væri um, að „tannaklastrararn- ir“ hefðu, væri hvergi fáanleg. í Kaliforníu voru kjósendur andvígir því að skera niður framlög til heilsugæslu- og tryKRÍngamála en samþykktu hins vegar, að hér eftir skuli kjörseðlar aðeins vera á ensku en ekki spænsku líka eins og verið hefur um hríð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.