Morgunblaðið - 08.11.1984, Side 31

Morgunblaðið - 08.11.1984, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1984 31 Nicaragua: Herflugvélar í sovésku skipi? Wa«hington, 7. nóvember. AP. ^ Bandaríkjamcnn hafa undanfarn- ar vikur fylgst gaumgæFilega með sovésku flutningaskipi, sem nú er sennilega komið til hafnar einhvers staðar í Nicaragua, en talsmenn Hvíta hússins segja, að ekkert liggi fyrir sem sanni að um borð í skipinu séu sovéskar orrustuflugvélar af gerðinni MIG 21. Bandaríska sjónvarpsstöðin CBS hafði það í gær eftir heimild- armönnum sínum innan banda- risku leyniþjónustunnar, að bandarísk yfirvöld teldu sennilegt að orrustuflugvélar væru um borð og ef það reyndist rétt hefðu þau í hyggju, að stöðva skipið með ein- hverjum ráðum. Sendiráð Nicaragua í Washing- ton hefur visað þessari frétt á bug og segir ekkert hæft í því að skipið flytji herflugvélar. Jafnframt saka talsmenn sendiráðsins Bandaríkjastjórn um að búa til tylliástæðu fyrir árás á Nicar- agua. Larry Speakas, blaðafulltrúi Reagans forseta, sagði í Los Ang- eles í gær að hann gæti ekki upp- lýst hver farmur fluntingaskips- ins væri. Ef orrustuflugvélar væru um borð liti Bandaríkjastjórn svo á, að um alvarlega ögrun væri að ræða. Símamynd AP. Móðir Teresa harmi slegin Móðir Teresa er miður sín er hún yfirgefur shika-heimili eitt í Trilokpouri-hverfinu I Nýju Delhi. Hún var að kynna sér ástand mála eftir að óeirðunum sem fylgdu í kjölfarið á morði Indiru Gandhi lauk. Þrjú brunnin lík voru í húsi því sem Teresa er að yfirgefa á myndinni. Arthur Scargill: Segir yerkfallid ekki að splundrast Edinborg, 7. nóvember. AP. ARTHUR Scargill, leiðtogi verka- lýðsfélags kolanámuverkamanna í Bretlandi lét hafa eftir sér í dag, að það væri af og frá að hið 8 mánaða gamla verkfall væri að fara út um þúfur. Hélt Scargill þrumandi ræðu á starfsmannafundi í Edinborg og var vel fagnað af viðstöddum. Fund- urinn var einn af fimm áætluðum sem haldnir verða til að stappa stál- inu í námumenn. „Sannleikurinn er sá, að 131 námur hafa stöðvast í verkfallinu og 80 prósent félaga okkar eru í verkfalli. Tölur þær sem atvinnu- rekendur hafa gefið upp um þá sem haldið hafa aftur til vinnu eru villandi," sagði Scargill. Umrædd- ar tölur hljóðuðu upp á 1200 kola- námumenn sem hefðu mætt til vinnu tvo fyrstu daganna í vik- unni, eftir að atvinnurekendur höfðu boðið þeim háar sérgreiðsl- ur í jólamánuðinum. Scargill út- listaði ekki á hvern hátt umrædd- ar tölur hefðu verið „viliandi". Á hinn bóginn fréttist að í dag hefðu 350 námuverkamenn til viðbótar bæst í sívaxandi hóp þeirra sem byrjað hafa vinnu á ný. Margareth Thatcher, forsætis- ráðherra Bretlands, sagði í þing- ræðu í gær, að stjórnvöld hefðu ekkert frekar fram að færa til kolanámumanna, þau hefðu boðið þeim raunhæfar kauphækkanir með hliðsjón af stöðunni í efna- hagsmálum. „Ef Scargill og hans lið gengur ekki að þessu er ekki hægt annað en að velta fyrir sér hvort deilan kunni að standa í raun og veru út af allt öðru en kaupi og kjörum launþeganna sem eru í verkfallinu, þ.e. að ástæðurn- ar fyrir verkfallinu séu af póli- tískiim toga,“ sagði Thatcher. Ekklerallt sem sýnist Sparifjáreigendur eiga nú fleiri kosti en nokkru sinni fyrrtil að ávaxta pening- ana. Og um leið verður allur samanburður á innlánsformum flóknari og erfiðari. Gylliboðin með lýsingarorðum í hástigi birtast úr öllum áttum, en pegar að er gáð þá er ekki allt sem sýnist. Hvað þarf til að ná hœstu ávöxtun? Hvaða áhrif hefur úttekt? Boð okkar er hœkkun vaxta á 6 mánaða reikningum. Þannig fœst 27,2°/o ársávöxtun sem er sambœrileg við hámarksávöxtun hjá peningastofnunum almennt. Einfalt mál. Fáið samanburðinn í Sparisjóðnum. 5PARI5JDÐUR HAFNARFJARÐAR Hagur heimamanna NÝTT GROHE LADYLUX - LADYLINE létta eldhússtörfin Ladylux og Ladyline eru heiti á nýrri kynslóð eldhúsblöndunartækja frá Grohe. Faanleg í fjölbreyttu litaúrvali sem einnar handar eða tveggja handa tæki. Margvíslegir notkunarmöguleikar: Breytilegur úði, skafa eða bursti sem tengja má við tækin með einu handtaki. Ladylux - Ladyline: Nýtt fjölhæft heimilistæki í eldhúsið. GROHE = öryggi, ending og fullkomin viðgerða- og varahlutaþjónusta. RR BYGGINGAVÖKDR HE Nethyl 2, Ártúnsholti, Simi 687447 og Suðurlandsbraut 4, Sími 33331

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.