Morgunblaðið - 08.11.1984, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1984
Morgunblaðið/RAX.
Á Fiskiþingi
Það er ekki nema von, að á Fiskiþingi séu menn í þungum þönkum, enda eru málin þar rædd af alvöru. Rætt er
um stjórnun fiskveiða, afkomu sjávarútvegsins, gsðamál og ýmsa fleiri þstti. Meðal leiða við stjórnun fiskveiða
hafa þrjár leiðir aðallega verið nefndar, aflamark, sóknarmark og tegundamark. Því er kannski ekki úr vegi að
birta hér eina limru, sem saman var sett undir umræðum um stjórnun veiðanna: Þetta er endalaust eilífðar
hark./ Aflamark, sóknarmark, tegundamark./ En eitt ber að varast/ og ei má svo farast/ að afkvæmið verði svo
ómark./
Fyrst og fremst hægt
að auka gæði netafisks
segir Soffanías
Cecilsson
„ÞAÐ ER fyrst og fremst netafisk-
urinn, sem hægt er að auka að
gæðum og þarf að laga. Því verður
að slægja allan fisk hvenær sem er
ársins, þrátt fyrir reglugerð um hið
gagnstæða. Með því að nota fiski-
kör og kassa er hægt að færa gæði
saltfisks verulega upp,“ sagði Soff-
anías (’ecilsson, einn fulltrúa á
Fiskiþingi, í samtali við Morgun-
blaðið.
Soffanías sagði, að það væri
helzt línufiskur, sem þyldi það
að komið væri með hann óslægð-
an að landi, ef um dagróðra væri
að ræða. Hvað slæginguna varð-
aði sagði hann, að miklu máli
skipti hvernig að henni væri
staðið. Nauðsynlegt væri að
blóðga og þvo fiskinn fyrst og
gæta þess að rista hann frá got-
Soffanías Cecilsson
rauf og fram að lífodda, ekki al-
veg fram úr, til að vernda þunn-
ildin og forða því, að hann yrði
ristur öfugt aftur úr. Síðan
þyrfti að þvo hann að nýju og ísa
í kassa eða kör þannig að kviður-
inn sneri niður. Með þessari
vönduðu aðferð lenti fiskurinn
síðan í svokölluðum stjörnu-
flokki og hækkaði við það í verði
frá því, sem nú er. Þannig kæmi
aukin vinna við bætt gæði beint
fram í fiskverðinu.
Með því að ganga vel frá fisk-
inum í kör og kassa ykist
geymsluþol hans og yrði hann
enn fyrsta flokks eftir nokkra
geymslu. Þetta væri nauðsynlegt
vegna þess, að í kjarasamning-
um væri kvöldvinna takmörkuð.
Bátarnir kæmu inn seint á
kvöldin, en þá væri bannað að
ganga frá aflanum til vinnslu.
Þannig væru kjarasamningar að
skemma fisk í landi og á sjó.
Fullnaðar sigur vinnst
aldrei í gæðamálunum
— segir Ríkharð Jónsson, framkvæmdastjóri Kirkjusands
„GÆÐAMÁLIN eni eilífðar mál,
sem alltaf hljóta að verða til um-
ræðu. Það er alltaf hægt að bæta
sig og aldrei vinnst fullnaðar sigur.
Þó eigum við mikla möguleika á
úrbótum, sérstaklega hvað varðar
netafiskinn,“ sagði Ríkharð Jóns-
son, framkvæmdastjóri Kirkju-
sands, í samtali við Morgunblaðið,
en hann flutti framsöguerindi um
gæðamál á Fiskiþingi.
Á FISKIÞINGI er mikið rætt um
kvótakerfíð og sýnist sitt hverjum.
Einn þeirra, sem lögðu orð í belg
var Soffanías Cecilsson, útgerðar-
maður í Grundarfírði. Sagði
Breiðfírðinga hafa farið illa út úr
þessum ósköpum og hafði eftirfar-
andi sögu að segja því til staðfest-
ingar:
„Aflakvótinn var vitlaust út-
reiknaður í fyrsta lagi og því
hafa bátarnir okkar verið meira
og minna frá veiðum á þessu ári.
Ríkharð sagði, að aldrei væri
fyllilega hægt að gera sér grein
fyrir áhrifum þeirra þriggja
þátta, sem talið væri að hefðu
áhrif á gæði fiskins; stjórnun
fiskveiða, lögum um ríkismat
sjávarafurða og áróðri fyrir
auknum gæðum. Það, sem að
sjómönnum og útgerðarmönnum
snéri ávalt, væri bætt meðferð
afla um borð í fiskiskipunum.
Þá var rækjukvótinn f Breiða-
firðinum aukinn og Suðurnesja-
mennirnir komu í rækjuna.
Þorskurinn sem þeir fengu með
rækjunni kom hvergi fram á
kvótanum. Þegar þeir voru hætt-
ir á rækjunni áttu þeir allan
kvótann eftir, en við að mestu
búnir. Þá fengu þeir bátana
okkar til að veiða fyrir sig kvót-
ann og landa honum í gáma. Þeir
hirtu sem sagt fyrst frá okkur
rækjuna og þorskinn svo hirtu
þeir flotann."!
Þannig væru slæging alls fisks
mikilvæg, notkun fiskikassa og
kara og stytting útivistar skip-
anna mikilvægir þættir. Þá
þyrfti að vera ljóst hvert hlut-
verk ríkismats sjávarafurða ætti
að vera. Hann væri þeirra skoð-
unar, að draga bæri úr starfsemi
þess og færa ábyrgðina meira yf-
ir á hendur framleiðenda sjálfra.
Það væri hins vegar erfitt að
fá sjómenn til að leggja á sig
aukna vinnu við meðferð fisks-
ins, kæmi það ekki nægilega
fram í hækkuðu fiskverði. Verð-
munur milli fyrsta og annars
gæðafiokks yrði tæplega aukinn,
en verð á annars flokks fiski
væri nú 72% af verði fyrsta
flokksins. því kæmi helzt sá
möguleiki tif greina að taka upp
stjörnuflokk, sem yrði þá nokkuð
verðmeiri en sá fyrsti og í hann
færi aðeins úrvals fiskur. Sú
staðreynd stæði síðan alltaf að
miklum gæðum fylgdi hátt verð,
bæði til sjómanna og á mörkuð-
um. Því mættu menn aldrei
gleyma.
„Fyrst hirtu þeir rækjuna og
þorskinn, svo hirtu þeir flotannu
22 sjómenn
við Djúp róa ekki
vegna rækjuverðs
TUTTUGU og tveir félagsmenn í
Sjómannafélagi ísfírðinga, sem und-
anfarin ár hafa verið sjómenn á
rækjubátum, er stunda veiðar í ísa-
fjarðardjúpi hafa bundizt samtökum
um að ráða sig ekki til rækjuveiða á
komandi haustvertíð. Ákvörðun
þessi er tekin vegna þeirrar kjara-
skerðingar, sem þeir telja sig verða
fyrir af völdum síðustu verðlags-
ákvörðunar.
I fréttatilkynningu, sem þeir fé-
lagar hafa sent frá sér segir m.a.
að hyggist einhverjir aðilar hefja
rækjuveiðar á „þessu smánar-
verði" og ráði til sín utanbæjar-
sjómenn, sem þeir hafi fullt leyfi
til samkvæmt samningum, þegar
svæðisbundnum forgangsrétti
Sjómannafélags ísfirðinga til
skipsrúms verður ekki viðkomið
vegna skorts á sjómönnum „tökum
við þá ákvörðun, að staðfesta með
eiginhandarundirskrift, að enginn
okkar mun ráða sig til starfa, þeg-
ar viðhorf hafa breytzt á skip í
eigu félaga í Smábátaeigendafé-
laginu Huginn, rækjuverksmiðja á
(safirði eða í eigu annarra aðila,
er rækjuveiðar stunda í ísafjarð-
ardjúpi". Segir að þessi ákvörðun
muni standa þar til hver sjómað-
ur, sem misst hefur skiprúm sitt
af fyrrgeindum völdum, hefur ver-
ið endurráðinn.
Sjómennirnir rökstyðja fullyrð-
ingar sínar um kjaraskerðingu í
fréttatilkynningunni og telja að
hún sé um 11%, þar af 9,86%
vegna verðlækkunar og 1,14%
vegna olíuverðshækkunar.
Rækjuveiðisjómennirnir 22 eru
skipverjar á 20 rækjubátum við
Djúp.
Ólympíumótið í bridge:
Undankeppni
lokið, ísland
í 9. sæti
UNDANKEPPNI Ólympíumótsins í
bridge lauk á þriðjudagsnóttina og
náði íslenska sveitin 9. sæti í sínum
riðii, hlaut 456 stig. Liðið lék síðustu
tvo leiki sína gegn Bandaríkjunum og
Marokkó, tapaði 7—23 gegn Banda-
ríkjamönnum en vann Marokkóbúa
hraustlega 25—2.
Átta sveitir leika nú til úrslita um
ólympíutitilinn, fjórar efstu úr
hvorum riðli. Þær eru, í A-riðli:
Pólland 532, Danmörk 520, Austur-
ríki 508 og Frakkland 502. í B-riðli,
riðli (slendinga, voru fjórar efstu
sveitirnar: Indónesía 531, Bandarik-
in 509, (talía 508 og Pakistan 482.
Norðmenn og Svíar misstu naum-
lega af lestinni, höfnuðu i 5. og 6.
sæti. I kvennaflokki var röð fjög-
urra efstu sveitanna þessi: Holland,
Frakkland, Bandarikin og Bretland.
Úrslitin hófust strax í gær, en þá
áttu að leika saman Pólland og Pak-
istan, Danmörk og ttalia, Indónesía
og Frakkland, og Bandaríkin og
Austurríki. f kvennaflokki áttu að
leika saman Holland og Bretland og
Frakkland og Bandaríkin.
Reykjavíkursamningamir:
Atkvæðagreiðsla
í dag og á morgun
Atkvæðagreiðsla um kjara-
samninga Reykjavíkurborgar og
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar fer fram í dag og á morgun,
(ostudag, að Grettisgötu 89, frá
klukkan 9.00 til 22.00.
Á fundi Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar á þriðjudaginn
sl., var borin upp tillaga um vítur
á formann og meirihluta stjórnar,
fyrir „að hafa rofið samstöðuna í
kjaradeilunni, haldið samninga-
gerð leyndu og fyrir að grípa fram
fyrir hendur á verkfallsstjórn
vegna verkfallsvörslu við
SKÝRR“, að því er segir í tillög-
unni. Morgunblaðið hafði sam-
band við Harald Hannesson,
formann félagsins og spurði hann
álits á þessu máli. Haraldur sagði
m.a. að það væri ekki óalgeng að-
ferð að standa að samningum eins
og gert var, þótt ýmsir hafi viljað
gera það tortryggilegt með því að
kalla það „nætursamninga" og
fleira í þeim dúr. „Ég er í sjálfu
sér ekkert hissa á því, þó að fram
komi óánægjuraddir, eftir svona
átök, eins og voru í þessu verkfalli.
Þetta er sá hópur sem mest hefur
barist og því kannski ekkert óeðli-
legt þó einhver óánægja komi
fram, einmitt innan þess hóps. Ég
hefði hins vegar kosið að sú um-
ræða hefði farið fram innan fé-
lagsins, frekar en'að sækjast eftir
því að fá samþykktir á tillögum til
að blása upp í fjölmiðlum,” sagði
Haraldur.
Sjö skip seldu afla í
Englandi og Þýskalandi
SJÖ ÍSLENSK fískiskip seldu afla í
Englandi og Þýskalandi á þriðjudag
og miðvikudag fyrir samtals tæplega
24 milljónir króna.
Mai úr Hafnarfirði seldi á
þriðjudaginn í Hull þorsk, ýsu og
kola, samtals 92,2 tonn fyrir
3.370,600 krónur, meðalverð 36,54
krónur. Otto Wathne seldi sama
dag í Grimsby 50,4 tonn, blandað-
an afla, fyrir 1.422,400 kr., meðal-
verð 28,22 krónur, og Már SH seldi
á þriðjudaginn í Cuxhaven 147,3
tonn fyrir 3.710,100 krónur, með-
alverð 25,18 kr.
Á miðvikudag seldi Börkur NK
145,7 tonn í Hull, mest þorsk, fyrir
4.536,700 krónur, meðalverð 31,14
krónur. Þá seldi Ólafur Bekkur ÓF
96,3 tonn í Grimsby fyrir 3.102,500
krónur, meðalverð 32,22 krónur.
Aflinn var einkum þorskur, ýsa og
koli.
Vigri RE seldi á miðvikudaginn
151,1 tonn í Bremerhaven fyrir
4.036,400 krónur, meðalverð kr.
26,71, og sama dag seldi Arinbjörn
RE 156 tonn í Cuxhaven fyrir
3.803,600 krónur, meðalverð 24,38
krónur. í afla Arinbjarnar var
talsvert af ufsa, sem lækkaði með-
alverðið.
í frétt í blaðinu á þriðjudag um
sölu í Grimsby misritaðist nafn
togarans, hann heitir Þorleifur
Jónsson HF-12, ekki Þorlákur.
Beðist er velvirðingar á mistökun-
um.