Morgunblaðið - 08.11.1984, Page 50

Morgunblaðið - 08.11.1984, Page 50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1984 Böðvar Eyjólfs- son — Minning Fæddur 4. október 1921. Dáinn 10. september 1984. Okkar biðu ei ævintýri: önn og strit á túni og mýri. Kanski voru viðfangsefnin venjuleg og hversdagsgrá. Þóer í hverju lífi lifuð leynd, sem aldrei verður skrifuð, til er heimur hulinn bak við hinn sem allir mega sjá. Fagurt galaði fuglinn sá. (Guðmundur Böðvarsson) Böðvar Eyjólfsson var fæddur á Melum í Melasveit í Borgarfjarð- < arsýslu, sonur hjónanna Sigríðar Böðvarsdóttur frá Vogatungu f. 1891 og Eyjólfs Sigurðssonar frá Fiskilæk f. 4. apríl 1891. Viðstaða 1 þeirra var stutt á Melum, því leið þeirra lá fljótlega að Fiskilæk á föðurleifð Eyjólfs, þar sem þau bjuggu allan sinn búskap. i Eyjólfur varð strax sem ungur maður heillaður af ungmenna- og samvinnuhreyfingunni og tileink- aði sér þá lífsspeki sem hann nam af sér fróðari mönnum. Hann kynnti sér ungur að árum sauð- fjárrækt norður í Þingeyjarsýslu, sem kom sér vel eftir að hann fór að búa sjálfur, því fjárbúið á Fiskilæk var eitt hið stærsta utan Skarðsheiðar í hans tíð. Eyjólfur gegndi margvíslegum ábyrgðar- störfum fyrir sveit sína, svo sem í hreppsnefnd, sýslunefnd, oddvita- störfum og var fulltrúi Borgfirð- inga í Stéttasambandi bænda ásamt fleiru og fleiru. Á þessu myndar- og menning- arheimili ólst Böðvar upp með systkinum sínum Sigurði og Jóni sem búa á Fiskilæk með Höllu systur þeirra og Guðrúnu Unni sem er búsett á Akranesi, litla telpu misstu Fiskilækjarhjónin er Diljá hét. Alla tíð var mjög kært með þeim systkinum og í æsku þeirra var alltaf nóg að starfa og nóg til að gleðjast yfir þá tómstund gafst. Var þá ekki ónýtt að fara á bak góðum reiðskjóta. „Því engi er vin fár sem á góðan hest.“ Samband móður og sonar var mjög náið og hún unni heitt þess- um blíðlynda hlédræga dreng sem í látleysi sínu gat innt af hendi öll sín skyldustörf af ósérhlífni. Böðvar lauk tveggja vetra námi frá héraðsskólanum á Laugar- vatni með góðum vitnisburði og þeir gripir sem hann smíðaði og vann í skólanum bera vott um hagleik. Þegar tími gafst frá bú- störfum heima á Fiskilæk vann hann að ýmsu svo sem hjá Vega- gerðinni og stjórnaði þá veghefli. Ekki fannst honum nóg aðgert að hafa einfalt ökupróf heldur réðst í það að taka meirapróf sem hann stóðst með ágætum, og öðiaðist eftir það réttindi til að taka nem- endur í bifreiðaakstri. Á sumardaginn fyrsta 22. apríl 1954 kvæntist Böðvar Önnu Mar- gréti f. 8. júlí 1934, Sigurðardótt- ur, Magnússonar frá Stardal og konu hans Sæunnar Bjarnadóttur frá Gerðum í Garði. Brúðkaupið fór fram í Saurbæj- arkirkju á Kjalarnesi, en þar var Anna Margrét alin upp hjá Guð- laugu Jónsdóttur f. 19. nóvember 1899 í Bakkakoti í sömu sveit og manni hennar Ólafi f. 22. október 1879 Eyjólfssyni, Runólfssonar kirkjubónda í Saurbæ og ljósa fjölda barna allt að 600, að talið er. Eyjólfur faðir Böðvars bar nafn frænda síns Eyjólfs Run- ólfssonar í Saurbæ og Sigríður móðir Böðvars bar nafn Sigríðar Runólfsdóttur frá Saurbæ, er var kona Þórðar Sigurðarsonar er fyrr bjó á Fiskilæk og voru þau for- eldrar Matthíasar Þórðarsonar fornmenjavarðar. Ein systir Eyj- ólfs og Sigríðar í Saurbæ var Guð- rún síðasta kona séra Matthíasar Jochumssonar. Talið er að í Saurbæ hafi sama ættin búið allt frá árinu sextán hundruð. Böðvar og Anna Margrét voru bæði alin upp á traustum og góð- um menningarheimilum og höfðu því gott veganesti og var jafnræði með þeim. Fyrsta árið dvöldu ungu hjónin í Saurbæ en árið eftir fengu þau til ábúðar smábýlið Artún í sömu sveit og voru þau síðustu ábúendur þar. íveruhúsið var sumarbústaður sem reyndist lítið eða ekkert einangraður, svo vetrarvistin varð heldur kuldaleg. Vorið 1956 fá þau ábúð á hluta af Saurbænum og síðar allan Saurbæinn og þar hafa þau búið allan sinn búskap i sambýli við Guðlaugu Jónsdóttur fósturmóður önnu, sem dvelur nú háöldruð á Reykjalundi. Fljótlega eftir að Böðvar settist að í Saurbæ var honum falið það ábyrgðarmikla starf að vera fjallkóngur og stjórna leitum og má segja að þar hafi hann verið í essinu sínu, því vart var hægt að hugsa sér fjárgleggri mann. Ær sínar þekkti hann þó í mikilli fjar- lægð væru og nöfn þeirra og ættir gat hann rakið eins og faðirvorið. Bú þeirra hjóna, Böðvars og Önnu, í Saurbæ var alla tíð smátt í sniðum en samheldni og nægju- semi bættu það upp. Bæðu höfðu þau ánægju af því að umgangast búsmalann og voru mjög samhent við hvað eina sem að því laut, áhugamál þeirra beggja voru hestar og þá ánægju veittu þau sér að stíga á bak góð- um hesti þegar tími vannst til. Þau eignuðust sex börn og eru þau þessi í aldursröð: Ólafur f. 27. september 1954, Eyjólfur f. 10. maí 1956, Sigríður f. 25. júní 1957, Guðlaug f. 22. febrúar 1959, Hall- dóra f. 23. mars 1960 og Ragn- heiður f. 23. júní 1961. Nú að leiðarlokum vil ég minn- ast með þakklæti þeirrar vináttu sem hefur ríkt milli heimila okkar og þá gagnkvæmu tryggð sem hef- ur haldist í gegnum áranna rás án þess að skugga hafi borið á milli. Ég vil einnig minnast þess ofur þunga sem hvert heimili ber er þarf að annast fatlaða einstakl- inga. Um nokkurra ára skeið hefur Böðvar barist við þungbær veik- indi, en það er ekki hægt að segja annað en að hann stóð á meðan stætt var og þó öllu lengur. Boðvar andaðist á Reykjalundi mánudaginn 10. september 1984. Við hjónin vottum Önnu konu hans innilega samúð og biðjum henni, börnum þeirra og Guðlaugu fóstru Önnu guðs blessunar. Hulda Pétursdóttir Ólafur Sigvalda- son á Sandnesi Ólafur Sigvaldason bóndi á Sandnesi í Steingrímsfirði er lát- inn. Hann lést þann 11. október sl. þá nýfluttur til Hólmavíkur. Hann þurfti því ekki lengi að vita bæinn, þar sem hann var í heiminum bor- inn og hafði lifað ævi sína alla, standa eftir rúinn allri reisn. En síðast þegar við áttum tal saman fórust honum orð eitthvað á þessa leið: — Afraksturinn af ævistarfi okkar liggur allur í þessu býli. Það hefur brauðfætt okkur og börnin okkar meðan þau voru ekki sjálf- fær. Gróðurlendi sem erjað er upp úr óræktarkarga gagnast framtíð- inni í einhverjum mæli, jafnvel þótt hér verði ekki lengur búið. Og þegar við erum horfin af sviðinu hvíla engar kvaðir á þeim gróður- reitum sem teygja græna kolla móti hækkandi sól í ríki vors- ins. — Ólafur Sigvaldason fæddist á Sandnesi 1. október 1910. Foreldr- ar hans voru Sigvaldi Guðmunds- son bóndi þar og Guðbjörg Ein- arsdóttir kona hans. Þau bjuggu á Sandnesi við viðurkennda rausn og myndarskap búskap sinn allan og má segja að á bæ þeirra hafi verið gistiheimili og veitingastað- ur þeirra ferðamanna sem lögðu leið sína um norðurhluta Stranda- sýslu og að það félli í hlut Ólafs og konu hans að halda þeirri reisn uppi fyrstu búskaparárin meðan þjóðbrautin lá um þeirra bæjar- hlað. Þeim Sigvalda og Guðbjörgu fæddust átta börn, af þeim komust fjögur til fullorðinsára, hin létust úr barnaveiki sömu vikuna. Þau sem upp komust voru: Einar, sjó- maður á Drangsnesi, gáfaður sæmdarmaður, Soffía, fluttist til Reykjavíkur, ólafur, bóndi á Jóhann Pétur Jó- hannsson — Minning Minning: Fæddur 14. febrúar 1906 Dáinn 19. ágúst 1984 I Mig langar að minnast með ör- fáum orðum tengdaföður míns, en hann lést í Fjórðungssjúkrahús- inu í Neskaupstað 19. ágúst sl. eft- ir stutta sjúkdómslegu og var jarðsettur 27. ágúst, og lagður til hinstu hvílu að Finnsstöðum, þar sem hann bjó lengst af ævi sinni. Jóhann Pétur Jóhannsson fædd- ist á Tókastöðum í Eiðaþinghá 14. febrúar 1906 og var sonur hjón- anna Guðrúnar Sigurbjörnsdóttur og Jóhanns Þórðarsonar. Þau áttu auk Jóhanns eina dóttur, Önnu, sem var tveimur árum eldri en hann. Faðir Jóhanns lést áður en hann fæddist og var honum fljót- lega komið í fóstur að Finnsstöð- > um. ólst hann þar upp hjá Önnu - Árnadóttur og foreldrum hennar ásamt fóstursystur sinni Unni, sem búsett er á Eskifirði. Móðir hans flutti til Ameríku með systur hans og settust þær að þar, og sá hann móður sína ekki aftur, hún lést þar árið 1925. Jóhann kvæntist eftirlifandi konu sinni, Sigurveigu Ingunni, fæddri Pierson, 25. september 1937. Þau bjuggu lengst af á Finnsstöðum, eða til ársins 1973, að þau fluttu í Egilsstaði og hafa búið í Lagarási 27. Þau hjónin eignuðust 6 börn sem öll eru á lífi, þau eru: Hallbjörn kvæntur Ásdísi Jónsdóttur, þau eiga 2 börn og búa á Finnsstöðum. Anna Kristín gift Ástvaldi Kristóferssyni, eiga þau 4 börn og eru búsett á Seyðisfirði. Sigurveig gift Óla Jóhannssyni, þau eiga 3 börn og búa á Reyðar- firði. Guðrún Ingibjörg gift Sig- urði Leóssyni, þau eiga 2 dætur og búa í Hólssseli á Fjöllum. Jóhann kvæntur undirritaðri, eiga þau 4 Sandnesi, og Ingibjörg, húsfreyja á Svanshóli í Bjarnarfirði. Hún er nú ein lifandi af þeim systkinum. Þetta fólk allt var á vissan hátt ferðafélagar mínir á uppvaxtar- og ungs manns dögum. Við sem byggðum hina afskekktu útskaga höfðum sterka samkennd og mynduðum haldgóða félagsþræði þó hópurinn væri ekki fjölmennur. Hin frjálsu skoðanaskipti og eigin ákvarðanataka var aðall samfé- börn og búa á Stöðvarfirði. Frið- jón Ingi kvæntur Sigríði Sigurð- ardóttur, þau eiga 2 börn og búa á Egilsstöðum. Auk þess eiga þau 2 barnabarnabörn. Jóhann sá Önnu systur sína tvisvar. Árið 1971 fóru Inga og hann til Ameríku og voru þar í 6 vikur, og 1974 komu Anna og mað- ur hennar til íslands og dvöldu í smátíma. Jóhann átti mikið af skyldfólki í Ameríku, og hittu þau hjónin nokkuð af því þegar þau fóru út, og eins hafa nokkrir af þeim komið til íslands. Eg kynntist Jóhanni fyrst árið 1964 þegar ég trúlofaðist syni hans. Hann var að mínum dómi geðgóður maður, og man ég ekki til að ég sæi hann skipta skapi, og hef ég þá trú að hann hafi oftast reynt að gera gott úr því sem mið- ur var. Þau hjónin voru mjög gest- risin og var oft mikill gestagangur á heimili þeirra, og hef ég það fyrir satt að jafnvel hafi krakk- arnir og stundum gestir líka sofið í hlöðunni þegar mest var. Jólin 1970 dvöldu þau hjónin ásamt Friðjóni, yngsta syni sínum, á heimili okkar, og eru þetta lagsins. Þess vegna var baðstofan á Sandnesi þægilegur vettvangur fyrir fólk sem hittist á förnum vegi. Þar var engum meinað máls né gefin forskrift að umræðuefni. Ólafur kvæntist Brynhildi Jóns- dóttur frá Bjarnarnesi. Hún var ein úr hópi ellefu systkina og því ekki fákunnandi af fjöllum komin þegar hún tókst á hendur hús- freyjuskyldurnar á Sandnesi og móðurhlutverkið við uppeldi þeirra tólf barna sem hún ól manni sínum. Ólafur á Sandnesi átti giftu- drjúgan vinnudag. Hann reyndist farsæll í hverju því starfi sem hann var kallaður til, hvort sem var innan vébanda heimilisins ell- egar í þágu samfélagsins. Hann var vegabótamaður — ekki á þá lund eina að ryðja grjóti af þjóð- götu Strandamanna heldur einnig lagði hann 115 hverju því máli sem hann áleit horfa til menningar- legrar mannræktar. Kannske gerði hann ekki nein risaátök, starfsvettvangurinn gaf ekki til- efni til útbrotasamra umsvifa. Býlið hans var lftið og líklega fremur erfitt á ýmsa lund. En lífið gaf honum tólf börn sem öll eru vel metið sómafólk. Það verður þvi varla sagt að Sandnesshjónin hafi til lítils lifað þjóð sinni. Þau lok- ógleymanleg jól fyrir mig, og þá sérstaklega laufabrauðsgerðin, en Jóhann skar fallega út laufabrauð með hnífnum sínum. Hann var líka mjög lagtækur maður, og uðu aldrei barnaheimilinu sínu vegna lítilla launa og kunnu full skil á þeirri ábyrgð sem því fylgir að vera frumkvöðull að nýju lífi og það mun aldrei hafa hvarflað að þeim að skorast undan þeirri ábyrgð né leggja hana á annarra herðar á einn eða annan veg. Með Ólafi á Sandnesi er horfinn af sviðinu einn þeirra vökumanna, sem lætur eftir sig mannlífsmynd sem vert er að sé í minnum höfð. Þeim fækkar óðum sem stóðu að ungmennafélaginu í Kaldrananes- hreppi fyrir meira en hálfri öld. Það voru góðir dagar og glatt fólk. Sú gleði var sprottin úr eigin akri innri hugrenninga. Þannig hygg ég að heimilishamingja fjölskyld- unnar á Sandnesi hafi þróast. Við sem enn erum á faraldsfæti frá fyrsta áratug aldarinnar för- um að hyggja að leiðarlokum. Og þegar ég virði fyrir mér samfélag- ið nú, sýnist mér öllu hlýlegra að líta um öxl en fram á veginn. Mér virðist að vegabótamenn, líkar Ólafs á Sandnesi séu þar of fáir á ferð. Mér eru fornu minnin kær. Nú gróa þar götur, sem gengum við forðum ungir. Fari ólafur heill. Ég votta Brynhildi og börnun- um samúð mína. Þorsteinn frá Kaldrananesi. byggði mörg hús, meðal annars öll sín hús á Finnsstöðum. Um og upp úr 1970 fór Jóhann að kenna þess sjúkdóms sem að lokum dró hann til dauða. Bar hann veikindi sín með fádæma æðruleysi og dugnaði, og klæddist hann má segja á hverjum degi, þangað til hann fór í sjúkrahús, tæpum þremur vikum áður en hann lést. Hann var auk þess tví- vegis í nokkra daga sl. vetur í sjúkrahúsinu á Egilsstöðum. All- an tímann þar fyrir utan annaðist Inga hann í veikindum hans. Má segja að það hafi verið með ein- dæmum hvernig henni tókst það, og vil ég fyrir hönd barnanna þakka henni það fórnfúsa starf. Ég sendi þér Inga mín, og fjöl- skyldunni allri innilegar samúð- arkveðjur og bið ykkur Guðs blessunar. Að leiðarlokum kveð ég og afabörnin Jóhann okkar og vonum að hann fái góða heim- komu á æðra tilverustigi. I hjarta mínu er ég glöð yfir því, að hafa verið hjá honum þegar hann kvaddi þennan heim. Guð blessi minningu Jóhanns Péturs Jóhannssonar. Guðný Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.