Morgunblaðið - 08.11.1984, Síða 53

Morgunblaðið - 08.11.1984, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1984 53 fólk í fréttum Myndin hans Paul McCartneys fær slæmar móttökur -f Hin umUlaða mynd Paul McCartneys, „Berðu Breiðstræti kveðju mina“, „Give My Rcgards To Kroad Street", sem var frumsýnd í Bandaríkjunum fyrir tæpum þremur vikum, virðist vera algerlega mis- heppnuð ef marka má fyrstu viðtökur. Myndin kostaði rúmlega 100 milljónir dollara í framleiðslu en fyrstu vikuna, sem hún var sýnd í 311 kvikmyndahúsum um öll Bandaríkin, komu að- eins sex milljónir í kassann. Vegna lítillar aðsókn- ar þykir mikil hætta á, að hætt verði að sýna myndina í mörgum húsanna. í Bandaríkjunum er það venjan, að myndir, sem ekki verða vinsælar strax, verða það yfirleitt alls ekki og þess vegna spá flestir illa fyrir Paul og myndinni hans. Það skrítna er þó, að þótt lögin í myndinni höfði ekki til Bandaríkjamanna þá eru þau komin ofarlega á vinsældalistann í Bretlandi. Þau hjónin Paul og Linda McCartney eru nú á ferð um Bandaríkin og reyna hvað þau geta til að bjarga myndinni með viðtölum við sjónvarp og dagblöð. Mörg kvikmyndatímarit segja hins vegar um hana, að hún sé „lítilfjörleg, blóðlaus og út í bláinn“ og bæta því við, að það saki þó ekki þótt fólk sjái hana því að það verði búið að gleyma henni daginn eftir. Linda og Paul McCartney heyja nú örvæntingarfulla baráttu fyrir Iffi myndarinnar „Berðu Breiðstræti kveðju mína“, sem hefur farið illa af stað í Bandaríkj- unum. Merkisafmæli hjá Mercury + Þegar Freddie Mercury, einn liðsmanna hljómsveitarinnar Queen, varð 38 ára fannst honum tilvalið að halda tímamótin hátíð- leg og bauð 500 gestum í veisluna, sem fram fór í Xenon-nætur- klúbbnum í London. Meðal gestanna var margt frægt fólk, t.d. John Hurt, sem á sínum tíma lék „Fílamanninn", og hann notaði þetta tækifæri til að bera upp bónorð við banda- rísku Ieikkonuna Donnu Pea- cock. Donna sagði já, og daginn eftir létu þau pússa sig saman hjá einhverjum fógetanum í borginni. Myndin er af afmæl- isbaminu að fá sér fyrsta bitann af kökunni, sem var í líki gamals Rolls Royce. COSPER — Þarna vorum við heppin, örvarnar eru ekki eitraðar. Nýstárleg fatatíska + Konur, sem vita ekki hverju þær eiga að klæðast eða eiga ekkert til að fara í, eins og þær segja oft, ættu að geta glaðst yfir þessari bandarísku nýjung í fatatískunni. Þessi föt eiga það sameigin- legt með nýju fötum keisar- ans, að þau eru ekki til en virðast þó vera á sínum stað, þ.e.a.s. þau eru máluð á kon- una, sem í raun er nakin eða a.m.k. topplaus. Allt nema skartgripirnir, sem hún er með framan á sér, og kraginn. Listamaðurinn, sem gerði fötin, heitir Gines Garcia og hann var í 10 klukkustundir við „saumaskapinn", sem hann kallar „Paradísarfuglinn" eft- ir fuglinum á baki fyrirsæt- unnar. Markmið: Þjónustufyrirtæki eru í raun mjög frábrugðin fram- leiðslufyrirtækjum. Framleiðsla þeirra, „þjónustan", einkenn- ist af því að vera óefnisleg og að framleiðsla, dreifing og notk- un verður ekki aðskilin heldur sett saman sem þjónustuheild sem viðskiptavinurinn upplifir. Stjórnun þjónustufyrirtækja krefst þess vegna annarra viðhorfa, tækni og stefnu. Það sama gildir um þjónustustjórnun framleiðslufyrirtækjanna. Efni: Á námskeiðinu verður fjallað um eftirtalda málaflokka: — Hugtakið þjónusta og þróun þess í þjóðfélaginu á síðustu árum. — Hvað er þjónustupakki? — Þjónustukerfi og uppþygging þeirra. — Stefnumörkun og þátttaka stjórnenda i þjónustusköpun. — Þjónustukerfi í reynd (dæmi). — Þjónustustoðir. Stjórnskipulag fyrirtækis, þróun þess og áhrif á þjónustu- kerfið. — Hópvinna o.fl. Þátttakendur: Námskeið þetta er einkum ætlað stjórnendum og þeim sem verða að marka stefnu og uppbyggingu þjón ustu í fyrirtækjum sínum. ennfremur er námskeiðið gott fyrir þá sem bera ábyrgð á framkvæmd þjónustu og eru þátttak endur í umfjöllun stjórnenda þegar þjónustustefnan er mörk- uð fyrir fyrirtækið. Leiðbeinandi: Hjörtur Hjartar, rekstrarhagfræðingur. Hann lauk prófi í kerfisfræði frá Tölvuskólanum í Alaborg og síðan H.A. og Cand. Merc. prófi frá Háskólanum í Alaborg. Starfar nú sem deildarstjóri hagdeildar Félags íslenskra iðnrekenda. Tími: 19.—20. nóvember kl. 9.00—17.00. TILKYNNIÐ PATTTOKU í SÍMA 82930 Bl SUÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS ^M^BSO23 leikstjóri SAGA JÓNSDÓHIR leikmynd BALDVIN BJÓRNSSON tónlist JÓN ÓLAFSS0N söngtextar KARL ÁGÚST ÚLFSS0N Leikendur: Júlíus Brjánsson Þórir Steingrímsson Guörún Alfreösdóttir Margrét Akadóttir Sólveig Pálsdóttir Guðrún Þórðardóttir Bjarni Ingvarsson Ólafur Örn Thoroddsen o.fl. Frumsýning í Bæjarbíói fimmtudaginn 8. nóv. kl. 18.00. önnur sýning laugardaginn 10. nóv. kl. 14:00 Forsala aðgöngumiða hefst á miövikudag. Miöapantanir i sima 50184 JbEIiíMÖ&iM MetsöIuNaó á hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.