Morgunblaðið - 08.11.1984, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1984
53
fólk í
fréttum
Myndin hans Paul McCartneys
fær slæmar móttökur
-f Hin umUlaða mynd Paul McCartneys, „Berðu
Breiðstræti kveðju mina“, „Give My Rcgards To
Kroad Street", sem var frumsýnd í Bandaríkjunum
fyrir tæpum þremur vikum, virðist vera algerlega mis-
heppnuð ef marka má fyrstu viðtökur.
Myndin kostaði rúmlega 100 milljónir dollara í
framleiðslu en fyrstu vikuna, sem hún var sýnd í
311 kvikmyndahúsum um öll Bandaríkin, komu að-
eins sex milljónir í kassann. Vegna lítillar aðsókn-
ar þykir mikil hætta á, að hætt verði að sýna
myndina í mörgum húsanna.
í Bandaríkjunum er það venjan, að myndir, sem
ekki verða vinsælar strax, verða það yfirleitt alls
ekki og þess vegna spá flestir illa fyrir Paul og
myndinni hans. Það skrítna er þó, að þótt lögin í
myndinni höfði ekki til Bandaríkjamanna þá eru
þau komin ofarlega á vinsældalistann í Bretlandi.
Þau hjónin Paul og Linda McCartney eru nú á
ferð um Bandaríkin og reyna hvað þau geta til að
bjarga myndinni með viðtölum við sjónvarp og
dagblöð. Mörg kvikmyndatímarit segja hins vegar
um hana, að hún sé „lítilfjörleg, blóðlaus og út í
bláinn“ og bæta því við, að það saki þó ekki þótt
fólk sjái hana því að það verði búið að gleyma
henni daginn eftir.
Linda og Paul McCartney heyja nú örvæntingarfulla
baráttu fyrir Iffi myndarinnar „Berðu Breiðstræti
kveðju mína“, sem hefur farið illa af stað í Bandaríkj-
unum.
Merkisafmæli
hjá Mercury
+ Þegar Freddie Mercury, einn
liðsmanna hljómsveitarinnar
Queen, varð 38 ára fannst honum
tilvalið að halda tímamótin hátíð-
leg og bauð 500 gestum í veisluna,
sem fram fór í Xenon-nætur-
klúbbnum í London.
Meðal gestanna var margt
frægt fólk, t.d. John Hurt, sem á
sínum tíma lék „Fílamanninn",
og hann notaði þetta tækifæri til
að bera upp bónorð við banda-
rísku Ieikkonuna Donnu Pea-
cock. Donna sagði já, og daginn
eftir létu þau pússa sig saman
hjá einhverjum fógetanum í
borginni. Myndin er af afmæl-
isbaminu að fá sér fyrsta bitann
af kökunni, sem var í líki gamals
Rolls Royce.
COSPER
— Þarna vorum við heppin, örvarnar eru ekki eitraðar.
Nýstárleg
fatatíska
+ Konur, sem vita ekki hverju
þær eiga að klæðast eða eiga
ekkert til að fara í, eins og þær
segja oft, ættu að geta glaðst yfir
þessari bandarísku nýjung í
fatatískunni.
Þessi föt eiga það sameigin-
legt með nýju fötum keisar-
ans, að þau eru ekki til en
virðast þó vera á sínum stað,
þ.e.a.s. þau eru máluð á kon-
una, sem í raun er nakin eða
a.m.k. topplaus. Allt nema
skartgripirnir, sem hún er
með framan á sér, og kraginn.
Listamaðurinn, sem gerði
fötin, heitir Gines Garcia og
hann var í 10 klukkustundir
við „saumaskapinn", sem hann
kallar „Paradísarfuglinn" eft-
ir fuglinum á baki fyrirsæt-
unnar.
Markmið: Þjónustufyrirtæki eru í raun mjög frábrugðin fram-
leiðslufyrirtækjum. Framleiðsla þeirra, „þjónustan", einkenn-
ist af því að vera óefnisleg og að framleiðsla, dreifing og notk-
un verður ekki aðskilin heldur sett saman sem þjónustuheild
sem viðskiptavinurinn upplifir. Stjórnun þjónustufyrirtækja
krefst þess vegna annarra viðhorfa, tækni og stefnu. Það
sama gildir um þjónustustjórnun framleiðslufyrirtækjanna.
Efni:
Á námskeiðinu verður fjallað um eftirtalda málaflokka:
— Hugtakið þjónusta og þróun þess í þjóðfélaginu á síðustu
árum.
— Hvað er þjónustupakki?
— Þjónustukerfi og uppþygging þeirra.
— Stefnumörkun og þátttaka stjórnenda i þjónustusköpun.
— Þjónustukerfi í reynd (dæmi).
— Þjónustustoðir.
Stjórnskipulag fyrirtækis, þróun þess og áhrif á þjónustu-
kerfið.
— Hópvinna o.fl.
Þátttakendur: Námskeið þetta er einkum ætlað stjórnendum
og þeim sem verða að marka stefnu og uppbyggingu þjón
ustu í fyrirtækjum sínum. ennfremur er námskeiðið gott fyrir
þá sem bera ábyrgð á framkvæmd þjónustu og eru þátttak
endur í umfjöllun stjórnenda þegar þjónustustefnan er mörk-
uð fyrir fyrirtækið.
Leiðbeinandi: Hjörtur Hjartar, rekstrarhagfræðingur. Hann
lauk prófi í kerfisfræði frá Tölvuskólanum í Alaborg og síðan
H.A. og Cand. Merc. prófi frá Háskólanum í Alaborg. Starfar
nú sem deildarstjóri hagdeildar Félags íslenskra iðnrekenda.
Tími: 19.—20. nóvember kl. 9.00—17.00.
TILKYNNIÐ PATTTOKU
í SÍMA 82930
Bl
SUÓRNUNARFÉLAG
ÍSLANDS ^M^BSO23
leikstjóri
SAGA JÓNSDÓHIR
leikmynd
BALDVIN BJÓRNSSON
tónlist
JÓN ÓLAFSS0N
söngtextar
KARL ÁGÚST ÚLFSS0N
Leikendur:
Júlíus Brjánsson
Þórir Steingrímsson
Guörún Alfreösdóttir
Margrét Akadóttir
Sólveig Pálsdóttir
Guðrún Þórðardóttir
Bjarni Ingvarsson
Ólafur Örn
Thoroddsen
o.fl.
Frumsýning í Bæjarbíói fimmtudaginn 8. nóv. kl. 18.00.
önnur sýning laugardaginn 10. nóv. kl. 14:00
Forsala aðgöngumiða hefst á miövikudag.
Miöapantanir i sima 50184 JbEIiíMÖ&iM
MetsöIuNaó á hverjum degi!