Morgunblaðið - 08.11.1984, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1984
59
tfk^AKANDI
SVARAR j SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
nt/T/ unrrKK''utt'n ir
„Varkár ökumaður“ vill gjarnan benda fólki i, að þótt mörgum brennivínssvelgnum þyki það ótrúlegt, þá er það
samt satt, að bjór og bjórlíki eru áfengir drykkir og ætti því ekki að aka eftir að búið er að neyta þeirra.
Bjórlíkia er líka áfengt
Varkár ökumaður skrifar.
Ágæti Velvakandi!
Nú er sífellt að fjölga þeim veit-
ingastöðum hér í bæ, sem bjóða
viðskiptavinum sínum upp á eins
konar bjór, eða bjórlíki. Þegar
þessi þróun hófst, þá var ég einn
harðasti fylgismaður hennar og
þótti sem þarna væri loksins kom-
inn vísir að bjórmenningu, sem
síðan myndi dafna fagurlega þeg-
ar blessaður bjórinn kæmi loks
hingað á klakann. Ég er harður
stuðningsmaður þess að fá bjór-
inn, eða ætti ég fremur að segja að
ég hafi verið harður stuðnings-
maður þess? Sannleikurinn er sá,
að nú er ég farinn að efast um
réttmæti skoðana minna, þótt
ennþá finnist mér bjórinn góður.
Þegar „bjórkrárnar“ okkar hófu
starfsemi, þá var ég að vonast til
að vínmenning íslendinga færi að
breytast, fleiri myndu drekka létt-
ari drykki, en ekki hvolfa í sig
rótsterku brennivíni, eins og hér
hefur verið siður í áratugi. Og
kannski hefur þessi von mín ræst
að einhverju leyti, en á móti er
kominn hinn voðalegasti hlutur.
íslendingar, sem aldir eru upp við
brennivín, finnst sem bjórsopinn
sé varla áfengur, heldur miklu
fremur léttur drykkur til að
slökkva sárasta þorstann. Þessir
„sönnu“ íslendingar hvolfa í sig
bjórlíkinu, dásama kráarmenn-
ingu, fá sér tvær þrjár kollur í
viðbót og keyra svo heim! „Hvað
eru nokkrar bjórkrúsir? Maður
finnur varla á sér af þessu,“ er
viðkvæði þessa fólks, sem bragðar
áfengi í fyrsta sinn á ævinni um
13 ára aldur og drekkur síðan þá
tegund, helst óblandað brennivín.
Það hefur kannski verið rangt
af mér að trúa því að bjórstaðirnir
bættu vínmenningu íslendinga.
Vaninn er svo rótgróinn í landan-
um, að hann trúir því fram í rauð-
an dauðann að ekkert sé áfengi
nema sterk, brennd vín. Ég á
kunningja, sem alltaf fullyrti að
hann snerti ekki á bílnum sínum
þegar hann væri búinn að fá sér i
glas. Ég fór á veitingahús með
honum fyrir skömmu og þar drakk
hann næstum eina rauðvínsflösku
með matnum. Á eftir fékk hann
sér „irskt kaffi“ og ekki aðeins eitt
glas, heldur tvö. Þegar við ætluð-
um að fara að koma okkur heim-
leiðis og ég bauðst til að hringja á
leigubíl, þá sagði hann: „Nei, það
er algjör óþarfi, ég skutla þér
heim.“ Hann var þá á bifreið, en
fannst algjör óþarfi að sleppa því
að aka, því hann væri bara búinn
að drekka eitthvert rauðvínssull
og dálítið af bragðbættu kaffi.
Hann vinur minn er ekki einn
um að telja brennivín þann drykk
sem eingöngu ber að varast, þegar
sest er undir stýri. Þetta er þvf
miður alltof útbreitt viðhorf og
því miður finnst mér nokkuð á það
skorta að yfirvöld reyni að vara
fólk við hættunni. Gæti heilbrigð-
ismálaráðherra ekki beitt sér fyrir
því, að fræðsla um áfengismagn í
bjór og bjórlíki verði aukin?
Hæstvirtur menntamálaráðherra
gæti e.t.v. komið á fræðslu í skól-
um um þetta, svo við höldum ekki
áfram að búa hér í þeirri trú, að
ekkert sé áfengi nema sterk vín.
Ég er enn fylgjandi því að fá bjór-
inn, en fyrst verður að uppfræða
þjóðina. Bjór er áfengur, en ég trúi
því samt enn, að verði hann leyfð-
ur, þá gætum við smám saman
lært að drekka hóflegar en nú er.
Þangað til það verður, þá skulum
við fara varlega og umfram allt
ekki auka hættu á slysum i um-
ferðinni með því að fara akandi á
bjórkrárnar.
Fyrirspurn til menntamálaráðherra
Markús B. Þorgeirsson, björgun-
arnetahönnuður, skrifar:
„Mér er gefið það í vöggugjöf, að
sjá milli tveggja heima síðan ég
var tveggja ára drengur. Mér hef-
ur verið gefið það að aðvara fólk,
bæði á sjó og landi í gegnum þá,
sem farnir eru á undan okkur. Því
segi ég við yður, ráðherra, í góðri
trú: Viltu sjá svo um í framtíðinni,
að Ríkisútvarpið byrji sína dag-
skrá með fyrirbænum til alþjóðar,
eins og átti sér stað fyrstu tvo
dagana, að mig minnir, eftir að
verkfallið leystist. Mér finnst þjóð
minni ekki veita af, þegar svo er
komið, að ráðherrar þjóðarinnar,
alþingismenn, eða hinn almenni
íslendingur virðast vera farnir að
gleyma trú sinni, boðorðum og
kenningu, sem þeim var kennt í
barnaskóla og við undirbúning
fermingardagsins. Ég óska þér í
starfi, svo og ríkisstjórninni og
landsmönnum öllum til lands og
sjávar, gæfu og gengis í komandi
framtíð. Lifðu heil, ævina alla,
Ragnhildur Helgadóttir mennta-
málaráðherra.“
Ekki vantraust á boðskap Jesú
Umsjónarmenn síóunnar „Á
Drottins degi“ skrifa:
Kæri L.V.
Við þökkum þér fyrirspurnina
hér í dálknum vegna skrifa okkar
á síðunni „Á Drottins degi“. Orðin,
sem þú vitnar í, eiga vissulega
ekki að fela i sér vantraust á
boðskap Jesú, heldur einmitt hið
gagnstæða. Þau segja, að það sé
ekki nóg að líta á Jesúm sem
skörulegan ræðusnilling og dá
hann sem slíkan. Allt lif hans, þar
með vitanlega ræður hans, bera
boðskapinn, sem hann flutti. Sá
boðskapur segir okkur að hann
láti sig skipta allt líf okkar.
GROHE
Ladylux - Ladyline:
Nýtt fjölhœft helmllistnki I eldhúslh
P
Byggingavörur hl
RevkjBvOarveg 64 Hatnarhrt>i.
& SlGGA V/öGÁ £ \iLVtRAW
HVER FINHST ÞER
FESURST HÉRNR, 3I66R
VlóGfl, BP MÉR UNDRN-
TEKINNI EIN5 OG &EEJ
UNR ÞRRNR ER
RN5I SNOTUR06
EINS H()N LILLR
Tökum hem
ú hverjum
klukkutfma
húsgögn í allt
húsið þitt
Lúbeck
Viö höfum í boröstofuna
langsamlega mesta úrval
húsgagna á einum staö.
þaö borgar sig þess
vegna ad líta til okkar og
gefa sér nægan tíma til
aö skoöa.
V/SA
■ I
HUSGAGN4H0LLIN
BILDSHOFOA 20 -110 REYKJÁVlK « 91-01199 oq «1410y
n-s
RLLURER VRRINN GOþöR,
' 5RÓDIMHWRINN.