Morgunblaðið - 09.11.1984, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1984
íslensk fiskverk-
smiðja formlega
opnuð í Grimsby
8. nÓTember, frá Birni Bjarnasyni, bladamanni Mbl. i Grimsby.
SÖLUMIÐSTÍH) hradfrystihúsanna hefur nú formlega tekið í notkun nýja
fiskverksmiðju í Grimsby, sem þjóna á breskum og evrópskum markaði með
sama hætti og fiskverksmiðjur SH í Bandarfkjunum þjóna markaði þar.
Kostnaðurinn við smíði og vélar nýju verksmiðjunnar nemur um 170 milljón-
um króna, eða 4 milljónum punda. Starfsmenn þar eru 170, þar af 3
íslendingar.
Ólafur Guðmundsson, forstjóri
verksmiðjunnar í Grimsby og
fyrirtækisins Icelandic Freezing
Plants Corporation, sýndi gestum
og blaðamönnum verksmiðjuna í
dag. Borgaryfirvöld i Grimsby
hafa sýnt fyrirtækinu mikinn
velvilja og leigt því 31 þúsund fer-
metra land til 125 ára fyrir 150
þúsund pund, eða 6,3 milljóna
króna upphafsgreiðslu og siðan
100 pund á ári. Hafa íslendingar
þar með hafið fiskvinnslu í þess-
um gamla togarabæ, þar sem út-
gerð á nú mjög undir högg að
sækja, ekki sfst vegna útfærslu
fiskveiðilögsögunnar í 200 mílur
við ísland. Verksmiðjan er að
nokkru reist fyrir styrk úr bresk-
um byggðasjóði.
Frá því að smíði verksmiðjunn-
ar var ákveðin, á árunum 1979 og
1980, hefur pundið lækkað veru-
lega í verði gagnvart dollar, sem
veldur fjárhagslegum erfiðleikum
í rekstri verksmiðjunnar nú. Síð-
ustu vikur hefur neysla á fram-
leiðsluvörum verksmiðjunnar
dregist saman og má að verulegu
leyti rekja það til námuverkfalls-
ins hér í Bretlandi.
ólafur Guðmundsson, forstjóri
var bjartsýnn á framtíðina. Fisk-
neysla er hlutfallslega mikil í
Bretlandi. Verksmiðjan er vel í
sveit sett, bæði að því er varðar
markað i Bretlandi og á megin-
landi Evrópu, en langtímamark-
mið Sölumiðstöðvarinnar er að
auka hlutdeild sína í fisksölu í að-
ildarrikjum Evrópubandalagsins.
Stærsti viðskiptavinur verksmiðj-
unnar hér í Bretlandi er McDon-
alds-fyrirtækið, sem notar fram-
leiðsluvöru hennar f fiskborgara.
Um 20% af kostnaði við smíði
verksmiðjunnar koma frá eigend-
um hennar og er að verulegu leyti
söluandvirði fiskverslana, sem
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
átti í London og nágrenni.
Klakkur VE:
Tjónið nemur tug-
um milljóna króna
EKKI er búið að meta tjónið sem
varð á skuttogaranum Klakki VE
þegar hann valt á hliðina í skipa-
smíðastöð í Cuxhaven á þriðju-
dagskvöldið og fylltist af vatni. Þó
er Ijóst að tjónið nemur tugum millj-
óna. Klakkur liggur enn á hliðinni í
sjónum en í gær var unnið við að
dæla sjó úr skipinu.
Þegar Mbl. hafði siðast spurnir
af í gær var búið að dæla sjónum
úr lest skipsins og unnið að dæl-
ingu úr öðrum hlutum þess. Full-
trúi tryggingarfélags útgerðarinn-
ar, sem er Tryggingamiðstöðin hf.,
fór til Cuxhaven strax eftir óhapp-
ið og á laugardag fara tveir full-
trúar frá útgerðinni, sem er Sam-
tog í Vestmannaeyjum, og aðstoð-
arforstjóri Tryggingamiðstöðvar-
innar til Cuxhaven til að vera
viðstaddir rannsókn málsins og
gæta hagsmuna sinna fyrirtækja.
Er ekki búist við að frekar verði
hreyft við Klakki fyrr en þeir
koma til Cuxhaven.
Vantraustsumræður á Alþingi:
Verðum að eyða ágreiningi um
valdsvið kjaradeilunefndar
sagði Albert Guðmundsson
ALBERT Guómundsson, fjármála-
ráðherra, sagði í útvarpsumræðum í
gærkvöldi um vantraust á ríkis-
stjórnina, að óhjákvæmilegt væri að
gera breytingar á lögum um verk-
fallsrétt opinberra starfsmanna til
þess að komast hjá harkalegum deil-
um um valdsvið kjaradeilunefndar.
Fjármálaráðherra sagði ennfremur,
að nauðsynlegt væri að aðilar eildu
til muna samstarf sín í milli á samn-
ingstímanum og miðli upplýsingum
til hvors annars.
Fjármálaráðherra sagði, að
launafólkið, sem tók þátt i verk-
falli BSRB yrði lengi að vinna upp
tekjutapið, sem verkfallinu fylgdi
og hæpið væri að það mundi vinn-
ast upp á samningstímanum.
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, vitnaði til skýrslu,
sem fram var lögð á ríkisstjórn-
arfundi í gær um verðlagsþróun-
ina og sagði, að svo virtist að þar
sem samkeppni væri næg leiddi
það til verðlækkunar.
Svavar Gestsson formaður Al-
þýðubandalagsins, lýsti því yfir í
þessum umræðum, að flokkur
hans væri ekki til viðtals um aðild
að ríkisstjórn fyrr en kosningar
hefðu farið fram. Kjartan Jó-
hannsson, formaður Alþýðu-
flokksins, sagði að eitt höfuð-
vandamál þjóðarinnar um þessar
mundir væri sú misskipting, sem
alls staðar blasti við.
Vantrauststillagan var felld
með 35 atkv. gegn 23. Tveir voru
fjarverandi.
AP-símamynd.
Klakkur í höfninni í Cuxhaven í gær. Eins og sést á myndinni er búið að
koma krókum á skipið og kröftugir kranar lyfta því.
Raufarhöfn:
Lít á þetta
sem uppgjöf
stjórnar Jökuls
— segir Helgi ólafsson
«ÉG LÍT á þetta sem uppgjöf stjórn-
arinnar og hefði þótt léleg latína hjá
þeirri stjórn sem var í fyrirtækinu
fyrir tveimur árum,“ sagði Helgi
Oiafsson, hreppsnefndarmaður á
Raufarhöfn, er Morgunblaðið ræddi
við hann í gær um sölu á fyrirtækinu
Jökli hf., en fyrirtækið er eitt frysti-
húsa Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna, en samkvæmt frétt í gær eru
uppi hugmyndir um að selja kaupfé-
laginu á Raufarhöfn meirihluta í
fyrirtækinu.
„Það er uppgjöf hjá stjórninni
að vilja leggja fyrirtækið niður
svo til um leið og þeir komast þar
til valda. Þeir höfðu líka tækifæri
til að gefast upp á síðasta aðal-
fundi fyrirtækisins sem var fyrir
þremur vikum. Ég er heldur ekki
hrifinn af því að þetta fyrirtæki sé
afhent einhverjum aðilum fyrir
hálfvirði, því eignirnar eru metn-
ar á 30 til 40 milljónir en til stend-
ur að láta það af hendi fyrir 15
milljónir."
Morgunblaðið/RAX.
í gærkvöldi voru haldnir kammertónleikar í Bústaðakirkju. Ung stúlka, Guðríður St. Sigurðardóttir lék þar
einleik á píanó. Myndin er tekin, er henni voru færð blóm að leik loknum.
„Hélt ekki að
henni lægi
svona mikið á“
— segir Hafdís Svavarsdóttir, sem ól
meybarn á Miklubrautinni í fyrrinótt
„Það var enginnn tími til að verða hrædd, þetta tók ekki nema fimm
mínútur og barnið tók við sér um leið og það var fætt," sagði hin
nýbakaða móðir Hafdfs Svavarsdóttir, er blm. Mbl. hitti hana að máli á
Fæðingarheimili Reykjavíkurborgar í gær.
Hafdís ól meybarn I sjúkrabíl manninum mínum var kippt út
á Miklubrautinni klukkan 3:25 i
fyrrinótt, með dyggilegri aðstoð
Stefáns Steingrimssonar, bruna-
varðar, sem tók á móti barninu.
„Hríðirnar byrjuðu upp úr
klukkan 11 um kvöldið, en hinar
dætur mínar flýttu sér nú ekki
svona mikið á sínum tíma, svo ég
átti ekki von á að þessari lægi
svona mikið á,“ sagði Hafdís. En
hún og eiginmaður hennar, Guð-
jón Hilmarsson, eiga fyrir dæt-
urnar Klöru, 5 ára og Stellu, 3
ára.
„En þegar vatnið fór ákvað ég
að það væri best að koma sér
uppeftir. Áður en ég vissi af var
fæðingin síðan komin í gang,
úr bílnum og inn kom bruna-
vörðurinn og tók á móti barninu.
Ég held að hann hafi verið mjög
stoltur, svona eftir á,“ sagði
Hafdís, „enda er þetta víst
fyrsta barnið sem hann tekur á
móti.“
Móður og barni heilsast vel og
sú litla reyndist vera fjórtán
merkur og hálfri betur þegar
hún loks komst í hendur „réttra
yfirvalda". En nákvæmur fæð-
ingarstaður mun ennþá vera
eitthvað á reiki, þvi að sögn Haf-
dísar brá fylgdarmönnum henn-
ar svo í brún, áð eftir að allt var
um garð gengið „vissu þeir ekki
sjálfir hvar þeir höfðu stoppað
bílinn".
Mbl./RAX
Fjölskyldan saman komin á Fæðingarheimilinu. Hjónin Hafdís Svavars-
dóttir og Guðjón Hilmarsson, prentnemi, með lithi dótturina sem verður
örugglega ekki skírð eftir neinu kennileiti á Miklubrautinni, að því er
Hafdís tjáði blm. Mbl.