Morgunblaðið - 09.11.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.11.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1984 íslensk fiskverk- smiðja formlega opnuð í Grimsby 8. nÓTember, frá Birni Bjarnasyni, bladamanni Mbl. i Grimsby. SÖLUMIÐSTÍH) hradfrystihúsanna hefur nú formlega tekið í notkun nýja fiskverksmiðju í Grimsby, sem þjóna á breskum og evrópskum markaði með sama hætti og fiskverksmiðjur SH í Bandarfkjunum þjóna markaði þar. Kostnaðurinn við smíði og vélar nýju verksmiðjunnar nemur um 170 milljón- um króna, eða 4 milljónum punda. Starfsmenn þar eru 170, þar af 3 íslendingar. Ólafur Guðmundsson, forstjóri verksmiðjunnar í Grimsby og fyrirtækisins Icelandic Freezing Plants Corporation, sýndi gestum og blaðamönnum verksmiðjuna í dag. Borgaryfirvöld i Grimsby hafa sýnt fyrirtækinu mikinn velvilja og leigt því 31 þúsund fer- metra land til 125 ára fyrir 150 þúsund pund, eða 6,3 milljóna króna upphafsgreiðslu og siðan 100 pund á ári. Hafa íslendingar þar með hafið fiskvinnslu í þess- um gamla togarabæ, þar sem út- gerð á nú mjög undir högg að sækja, ekki sfst vegna útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 200 mílur við ísland. Verksmiðjan er að nokkru reist fyrir styrk úr bresk- um byggðasjóði. Frá því að smíði verksmiðjunn- ar var ákveðin, á árunum 1979 og 1980, hefur pundið lækkað veru- lega í verði gagnvart dollar, sem veldur fjárhagslegum erfiðleikum í rekstri verksmiðjunnar nú. Síð- ustu vikur hefur neysla á fram- leiðsluvörum verksmiðjunnar dregist saman og má að verulegu leyti rekja það til námuverkfalls- ins hér í Bretlandi. ólafur Guðmundsson, forstjóri var bjartsýnn á framtíðina. Fisk- neysla er hlutfallslega mikil í Bretlandi. Verksmiðjan er vel í sveit sett, bæði að því er varðar markað i Bretlandi og á megin- landi Evrópu, en langtímamark- mið Sölumiðstöðvarinnar er að auka hlutdeild sína í fisksölu í að- ildarrikjum Evrópubandalagsins. Stærsti viðskiptavinur verksmiðj- unnar hér í Bretlandi er McDon- alds-fyrirtækið, sem notar fram- leiðsluvöru hennar f fiskborgara. Um 20% af kostnaði við smíði verksmiðjunnar koma frá eigend- um hennar og er að verulegu leyti söluandvirði fiskverslana, sem Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna átti í London og nágrenni. Klakkur VE: Tjónið nemur tug- um milljóna króna EKKI er búið að meta tjónið sem varð á skuttogaranum Klakki VE þegar hann valt á hliðina í skipa- smíðastöð í Cuxhaven á þriðju- dagskvöldið og fylltist af vatni. Þó er Ijóst að tjónið nemur tugum millj- óna. Klakkur liggur enn á hliðinni í sjónum en í gær var unnið við að dæla sjó úr skipinu. Þegar Mbl. hafði siðast spurnir af í gær var búið að dæla sjónum úr lest skipsins og unnið að dæl- ingu úr öðrum hlutum þess. Full- trúi tryggingarfélags útgerðarinn- ar, sem er Tryggingamiðstöðin hf., fór til Cuxhaven strax eftir óhapp- ið og á laugardag fara tveir full- trúar frá útgerðinni, sem er Sam- tog í Vestmannaeyjum, og aðstoð- arforstjóri Tryggingamiðstöðvar- innar til Cuxhaven til að vera viðstaddir rannsókn málsins og gæta hagsmuna sinna fyrirtækja. Er ekki búist við að frekar verði hreyft við Klakki fyrr en þeir koma til Cuxhaven. Vantraustsumræður á Alþingi: Verðum að eyða ágreiningi um valdsvið kjaradeilunefndar sagði Albert Guðmundsson ALBERT Guómundsson, fjármála- ráðherra, sagði í útvarpsumræðum í gærkvöldi um vantraust á ríkis- stjórnina, að óhjákvæmilegt væri að gera breytingar á lögum um verk- fallsrétt opinberra starfsmanna til þess að komast hjá harkalegum deil- um um valdsvið kjaradeilunefndar. Fjármálaráðherra sagði ennfremur, að nauðsynlegt væri að aðilar eildu til muna samstarf sín í milli á samn- ingstímanum og miðli upplýsingum til hvors annars. Fjármálaráðherra sagði, að launafólkið, sem tók þátt i verk- falli BSRB yrði lengi að vinna upp tekjutapið, sem verkfallinu fylgdi og hæpið væri að það mundi vinn- ast upp á samningstímanum. Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra, vitnaði til skýrslu, sem fram var lögð á ríkisstjórn- arfundi í gær um verðlagsþróun- ina og sagði, að svo virtist að þar sem samkeppni væri næg leiddi það til verðlækkunar. Svavar Gestsson formaður Al- þýðubandalagsins, lýsti því yfir í þessum umræðum, að flokkur hans væri ekki til viðtals um aðild að ríkisstjórn fyrr en kosningar hefðu farið fram. Kjartan Jó- hannsson, formaður Alþýðu- flokksins, sagði að eitt höfuð- vandamál þjóðarinnar um þessar mundir væri sú misskipting, sem alls staðar blasti við. Vantrauststillagan var felld með 35 atkv. gegn 23. Tveir voru fjarverandi. AP-símamynd. Klakkur í höfninni í Cuxhaven í gær. Eins og sést á myndinni er búið að koma krókum á skipið og kröftugir kranar lyfta því. Raufarhöfn: Lít á þetta sem uppgjöf stjórnar Jökuls — segir Helgi ólafsson «ÉG LÍT á þetta sem uppgjöf stjórn- arinnar og hefði þótt léleg latína hjá þeirri stjórn sem var í fyrirtækinu fyrir tveimur árum,“ sagði Helgi Oiafsson, hreppsnefndarmaður á Raufarhöfn, er Morgunblaðið ræddi við hann í gær um sölu á fyrirtækinu Jökli hf., en fyrirtækið er eitt frysti- húsa Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna, en samkvæmt frétt í gær eru uppi hugmyndir um að selja kaupfé- laginu á Raufarhöfn meirihluta í fyrirtækinu. „Það er uppgjöf hjá stjórninni að vilja leggja fyrirtækið niður svo til um leið og þeir komast þar til valda. Þeir höfðu líka tækifæri til að gefast upp á síðasta aðal- fundi fyrirtækisins sem var fyrir þremur vikum. Ég er heldur ekki hrifinn af því að þetta fyrirtæki sé afhent einhverjum aðilum fyrir hálfvirði, því eignirnar eru metn- ar á 30 til 40 milljónir en til stend- ur að láta það af hendi fyrir 15 milljónir." Morgunblaðið/RAX. í gærkvöldi voru haldnir kammertónleikar í Bústaðakirkju. Ung stúlka, Guðríður St. Sigurðardóttir lék þar einleik á píanó. Myndin er tekin, er henni voru færð blóm að leik loknum. „Hélt ekki að henni lægi svona mikið á“ — segir Hafdís Svavarsdóttir, sem ól meybarn á Miklubrautinni í fyrrinótt „Það var enginnn tími til að verða hrædd, þetta tók ekki nema fimm mínútur og barnið tók við sér um leið og það var fætt," sagði hin nýbakaða móðir Hafdfs Svavarsdóttir, er blm. Mbl. hitti hana að máli á Fæðingarheimili Reykjavíkurborgar í gær. Hafdís ól meybarn I sjúkrabíl manninum mínum var kippt út á Miklubrautinni klukkan 3:25 i fyrrinótt, með dyggilegri aðstoð Stefáns Steingrimssonar, bruna- varðar, sem tók á móti barninu. „Hríðirnar byrjuðu upp úr klukkan 11 um kvöldið, en hinar dætur mínar flýttu sér nú ekki svona mikið á sínum tíma, svo ég átti ekki von á að þessari lægi svona mikið á,“ sagði Hafdís. En hún og eiginmaður hennar, Guð- jón Hilmarsson, eiga fyrir dæt- urnar Klöru, 5 ára og Stellu, 3 ára. „En þegar vatnið fór ákvað ég að það væri best að koma sér uppeftir. Áður en ég vissi af var fæðingin síðan komin í gang, úr bílnum og inn kom bruna- vörðurinn og tók á móti barninu. Ég held að hann hafi verið mjög stoltur, svona eftir á,“ sagði Hafdís, „enda er þetta víst fyrsta barnið sem hann tekur á móti.“ Móður og barni heilsast vel og sú litla reyndist vera fjórtán merkur og hálfri betur þegar hún loks komst í hendur „réttra yfirvalda". En nákvæmur fæð- ingarstaður mun ennþá vera eitthvað á reiki, þvi að sögn Haf- dísar brá fylgdarmönnum henn- ar svo í brún, áð eftir að allt var um garð gengið „vissu þeir ekki sjálfir hvar þeir höfðu stoppað bílinn". Mbl./RAX Fjölskyldan saman komin á Fæðingarheimilinu. Hjónin Hafdís Svavars- dóttir og Guðjón Hilmarsson, prentnemi, með lithi dótturina sem verður örugglega ekki skírð eftir neinu kennileiti á Miklubrautinni, að því er Hafdís tjáði blm. Mbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.