Morgunblaðið - 09.11.1984, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1984
3
Enemy Mine:
Kanaríeyjar í
stað íslands
„VIÐ HEFJUM kvikmyndatökur i
kanarícyjunni Lanzarote þann 26.
nóvember. Þar veróur tekinn si
hluti myndarinnar sem upphaflega
stóó til að kvikmynda i Islandi,"
sagði Hunt Downs, blaðafulltrúi
kvikmyndar 20th Century Fox, „En-
emy Mine“ í samtali við Mbl. Sem
kunnugt er var kvikmyndatökum
frestað í kjölfar brottreksturs leik-
stjórans, Richard Loncraine i fs-
landi sl. vor. Nýr leikstjóri, Wolf-
gang Petersen, var þi riðinn að
myndinni og skömmu síðar hætt al-
farið við frekari kvikmyndatökur
hérlendis.
Að sögn blaðafulltrúans verður
kvikmyndað á Kanaríeyjum í 10
daga, en meginhluti myndarinnar
síðan tekinn í Míinchen í Þýska-
landi. Þar hefur verið byggð ný
sviðsmynd, en upphaflega var i
ráði að taka meginhluta myndar-
innar í Ungverjalandi. Downs
kvað hagkvæmara að taka mynd-
ina í Þýskalandi, þrátt fyrir til-
kostnað við sviðið sem byggt var í
Búdapest, sem framhald af risa-
furunum á Skógarsandi. Það svið
verður senn tekið niður, ónotað.
Auk breytinga sem verða á út-
liti myndarinnar vegna breyttra
tökustaða, hafa einnig verið gerð-
ar nokkrar breytingar á hand-
ritinu. Þá hefur gerfi ,Drekans“,
Louis Gossett jr., veriö breytt í
hagræðingarskyni, en nú tekur um
eina og hálfa klst. að setja gervið
á hann, í stað allt að fimm klst.
áður. Nýja gervið var, eins og hið
fyrra, hannað af ILM (Interna-
tional Light Magic). Downs sagði
áætlað að kvikmyndatökum lyki i
apríl nk., þannig að myndin yrði
eftir sem áður frumsýnd á árinu
1985.
Myllubakkaskóli Kefla-
vík:
Kennsla fatlaðra
hefjist á haust-
mánuðum 1985
Vojfum 7. uóvember.
í MÖRG ár hefur þroskaheftum
börnum af Suðurnesjum verið ekið
til Reykjavíkur í kennslu.
í umræðum er fram fóru um
akstur fatlaðra, kom fram ósk frá
menntamálaráðherra Ragnhildi
Helgadóttur þess efnis að kannað-
ir verði möguleikar á kennslu i
heimabyggð fyrir fötluð börn af
Suðurnesjum, sem nú stunda nám
í ýmsum sérskólum i Reykjavík.
Alls 26—28 börnum er ekið dag-
lega fram og til baka.
Eftir viðræður stjórnar SSS við
fræðslustjóra og sérkennslu-
fulltrúa ríkisins, kom fram að
fræðslustjóri telur kennslu fatl-
aðra best komna í höndum
grunnskóla.
Ákveðið hefur verið að Myllu-
bakkaskóli i Keflavík taki verk-
efnið. Stefnt er að því að kennsla
hefjist á haustmánuðum 1985.
E.G.
Afhenti
Mubarak
trúnaöar-
bréf sitt
HINN 21. október afhenti Hannes
Hafstein forseta Egyptalands,
Hosni Mubarak, trúnaðarbréf sitt,
sem sendiherra íslands í Egypta-
landi með aðsetri i Genf.
VIDE01985 komið
Verð: 36.980 Stgr.
Þráðlaus fjarstýring fylgir með í verðinu
Nú einfaldast málið fyrir þá, sem leita sér að myndbandstæki, sem er í
senn hlaðið tækninýjungum árgerðar 1985, fjarstýrt, þráðlaust (engar
snúrur) og samt á hagstæðu verði ásamt traustri þjónustu
★ 1985 árgerð hlaöin tækninýjungum.
★ Quarts stýröir beincflrifnir mótorar.
★ Quarts klukka.
★ 7 daga upptökuminni.
★ Fjögurra stafa teljari.
★ Myndleitari.
★ Hraöspólun meö mynd áfram.
★ Hraðspólun meö mynd afturábak.
★ Kyrrmynd.
★ Myndskerpu stilling.
★ Myndminni.
★ Framhlaöiö 43 cm. breitt (passar í hljómtækjaskápa).
★ Sjálfspólun til baka þegar bandið er á enda.
★ Svona mætti lengi telja.
★ Sjón er sögu ríkari.