Morgunblaðið - 09.11.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1984
5
Kjörinn varaforseti á þingi SÞ
HÖRÐUR Helgason, fastafulltníi íslands hjá Sameinuðu þjóðunum,
var kjörinn einn af varaforsetum 39. allsherjarþings Sameinuðu þjóð-
anna, sem nú stendur yfir. Á myndinni situr Hörður Helgason fyrir
miðju, en honum til vinstri handar er aðalframkvæmdastjóri SÞ, Perez
de Cuellar, og t.h. er William B. Buffu, aðstoðarframkvæmdastjóri SÞ.
Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra
um málefni Sjóefnavinnslunnar:
„Þeir hafa verið
frekir til fjörsins“
— „og varið miklu fjármagni sem þeir áttu ekki til“
„EKKI endanlega, nei, en ég setti
tvo nýja menn á mínum vegum inn í
stjórn félagsins á síðasta aðalfundi,
þá Guðmund Malmquist lögfræðing,
sem er formaður stjórnarinnar og
Ingjald Hannibalsson, forstjóra
Iðntæknistofnunar. Ég hef falið
stjórninni að móta framtíðarstefnu
fyrir þetta fyrirtæki og bíð eftir
þeirra athugun,“ sagði Sverrir Her-
mannsson iðnaðarráðherra í samtali
við blm. Mbl. þegar hann var spurð-
ur hvort hann hefði tekið ákvarðanir
um framtíð Sjóefnavinnslunnar á
Reykjanesi í framhaldi af skýrslu
Iðntæknistofnunar um fyrirtækiö.
Eins og komið hefur fram í Mbl.
telur Iðntæknistofnun að rekstur
Sjóefnavinnslunnar geti aldrei
borið sig og var meðal annars lagt
til að áform um uppbyggingu
Ráöstefna um
hjúkrunarferlið
RÁÐSTEFNA um hjúkrunarferlið
verður haldin á vegum Félags há-
skólamenntaðra hjúkrunarfræð-
inga í Kristalssal Hótels Loftleiða á
morgun, og stendur frá klukkan 10
til 17. Ráðstefnan er öllum opin.
Flutt verða níu erindi, en síðan
verða fyrirspurnir og almenn um-
ræða. Ráðstefnugjald er 400 krón-
ur, en innifalið eru ráðstefnugögn
og kaffiveitingar.
fyrirtækisins verði endanlega lögð
á hilluna, en þegar hefur 264
milljónum kr. verið varið til upp-
byggingarinnar. „Þetta er auðvit-
að orðin mikil fjárfesting og menn
verða að gera það upp við sig
hvort þeir hafi efni á að halda
svona áfram en þessi tilrauna-
starfsemi hefur öll verið stunduð
fyrir erlent fé. Þarna hefur verið
boruð geysilega orkumikil hola og
ég vil gjarnan að tekin verið upp
samvinna við Hitaveitu Suður-
nesja um þá orkuvinnslu sem þar
getur orðið," sagði Sverrir.
Aðspurður um hvort hann teldi
það þarna hefðu verið gerð mistök
sagði iðnaðarráöherra: „Já, ætli
það sé ekki óhætt að segja það að
menn hafi verið frekir til fjörsins
þarna og varið miklu fjármagni
sem þeir áttu ekki til því satt best
að segja er vandséð hvernig við
getum leyft okkur mjög miklar
erlendar lántökur til að stunda
slíka tilraunastarfsemi. En i tíð
fyrrverandi ríkisstjórnar voru
menn ákaflega uppteknir við hið
íslenska hugvit og beislun þess og
innlent framtak og allt það sem
talið var þjóðlegt því þeir vildu
loka fyrir erlenda stóriðju og
töldu það bestu orkukostina. Við
þurfum alltaf að gá að okkur, fá-
tækir menn, að velja réttu leiðirn-
ar og standa vel og skynsamlega
að verkum," sagði Sverrir Her-
mannsson iðnaðarráðherra.
Nóvemberútboð rikisvíxla:
Meðalársávöxtun 27,77 %
í GÆR voru opnuð tilboð í ríkisvíxla
að upphæð 30 milljónir króna. Tekið
var tilboðum í víxla að nafnvirði 25,5
milljónir kr. Kaupverð þeirra var
23.984.730 krónur sem jafngildir
27,77 % meðalársvöxtum, reiknuðum
eftir á.
Þau tilboð sem tekin voru eru á
bilinu frá 235 til 235,5 þúsund kr.
fyrir hvert sett sem er að nafn-
verði 250 þúsund krónur. í okt-
óberútboði ríkisvíxla var meðal-
ávöxtun þeirra víxla sem keyptir
voru 27,68%. í útboðinu nú bárust
16 gild tilboð. Tilboðin voru í 106
sett af víxlum, hvert að nafnverði
250 þúsund kr., samtals að fjár-
hæð 26,5 milljónir. Næsta útboð
rikisvíxla verður í byrjun desem-
ber.
Offramleiðsla á kartöflum:
Reynt að auka framleiðslu
kartöfluverksmiðjanna
Engir möguleikar á útflutningi
EKKI er búið að finna leiðir til að
koma hinni miklu offramleiðslu
landsmanna á kartöflum í verð, en
eins og fram hefur komið í Mbl. er
útlit fyrir að kartöfluuppskeran í
sumar hafi verið 8 þúsund tonnum
meiri en ársneysla landsmanna. Að
sögn Gunnars Guðbjartssonar, fram-
kvæmdastjóra Framleiðsluráðs
landbúnaðarins, er helst rætt um að
reyna að auka framleiðslu og mark-
aðshlutdeild kartöfluverksmiðjanna
tveggja í steiktum kartöflum og eru
þegar hafnar tilraunir í þá veru. Þá
hafa verið kannaðir möguleikar á út-
flutningi en engar líkur eru á að
hægt verði að leysa offramleiðslu-
vandamálin á þann hátt.
Gunnar sagði að Framleiðsluráð
hefði rætt um þessi vandamál en
engar ákvarðanir tekið í því efni
enn sem komið er. Sagði hann að
sumir kartöflubændur teldu að
heimilisræktunin hefði hlutfalls-
lega ekki verið jafn mikil og áður
og vandinn því ef til vill ofmetinn.
Sagði hann að menn vildu láta á
það reyna hvort hægt væri að
auka framleiðslu á steiktum kart-
öflum í kartöfluverksmiðjunum í
Þykkvabæ og á Svalbarðseyri og
ná þannig meiri markaði fyrir ís-
lenskar kartöflur. Sagði hann að
þegar væri byrjað á þessu í verk-
smiðjunni á Svalbarðseyri, þar
sem nú væri unnið allan sólar-
hringinn, og verð framleiðslunnar
hefði verið lækkað. Sagði Gunnar
að fjárhagsgrundvöllur fram-
leiðslu við slíku verði væri ekki
Ijós en það væri þó betra að selja
kartöflurnar, þó fyrir eitthvað
lægra verð væri, heldur en að
henda þeim.
Gunnar sagði að möguleikar á
útflutningi hefðu verið kannaðir
en afar litlir möguleikar virtust
vera á slíku. Til dæmis hefðu verið
kannaðir möguleikar á útflutningi
til Færeyja en þar hefði svo lágt
verð verið í boði að engu lagi væri
líkt. Sagði hann að eftir sumarið
væri mikið framboð á kartöflum í
Evrópu og lágt verð enda greiddi
Efnahagsbandalagið framleiðsl-
una mikið niður til að fá þó eitt-
hvað fyrir hana.