Morgunblaðið - 09.11.1984, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 09.11.1984, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1984 5 Kjörinn varaforseti á þingi SÞ HÖRÐUR Helgason, fastafulltníi íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, var kjörinn einn af varaforsetum 39. allsherjarþings Sameinuðu þjóð- anna, sem nú stendur yfir. Á myndinni situr Hörður Helgason fyrir miðju, en honum til vinstri handar er aðalframkvæmdastjóri SÞ, Perez de Cuellar, og t.h. er William B. Buffu, aðstoðarframkvæmdastjóri SÞ. Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra um málefni Sjóefnavinnslunnar: „Þeir hafa verið frekir til fjörsins“ — „og varið miklu fjármagni sem þeir áttu ekki til“ „EKKI endanlega, nei, en ég setti tvo nýja menn á mínum vegum inn í stjórn félagsins á síðasta aðalfundi, þá Guðmund Malmquist lögfræðing, sem er formaður stjórnarinnar og Ingjald Hannibalsson, forstjóra Iðntæknistofnunar. Ég hef falið stjórninni að móta framtíðarstefnu fyrir þetta fyrirtæki og bíð eftir þeirra athugun,“ sagði Sverrir Her- mannsson iðnaðarráðherra í samtali við blm. Mbl. þegar hann var spurð- ur hvort hann hefði tekið ákvarðanir um framtíð Sjóefnavinnslunnar á Reykjanesi í framhaldi af skýrslu Iðntæknistofnunar um fyrirtækiö. Eins og komið hefur fram í Mbl. telur Iðntæknistofnun að rekstur Sjóefnavinnslunnar geti aldrei borið sig og var meðal annars lagt til að áform um uppbyggingu Ráöstefna um hjúkrunarferlið RÁÐSTEFNA um hjúkrunarferlið verður haldin á vegum Félags há- skólamenntaðra hjúkrunarfræð- inga í Kristalssal Hótels Loftleiða á morgun, og stendur frá klukkan 10 til 17. Ráðstefnan er öllum opin. Flutt verða níu erindi, en síðan verða fyrirspurnir og almenn um- ræða. Ráðstefnugjald er 400 krón- ur, en innifalið eru ráðstefnugögn og kaffiveitingar. fyrirtækisins verði endanlega lögð á hilluna, en þegar hefur 264 milljónum kr. verið varið til upp- byggingarinnar. „Þetta er auðvit- að orðin mikil fjárfesting og menn verða að gera það upp við sig hvort þeir hafi efni á að halda svona áfram en þessi tilrauna- starfsemi hefur öll verið stunduð fyrir erlent fé. Þarna hefur verið boruð geysilega orkumikil hola og ég vil gjarnan að tekin verið upp samvinna við Hitaveitu Suður- nesja um þá orkuvinnslu sem þar getur orðið," sagði Sverrir. Aðspurður um hvort hann teldi það þarna hefðu verið gerð mistök sagði iðnaðarráöherra: „Já, ætli það sé ekki óhætt að segja það að menn hafi verið frekir til fjörsins þarna og varið miklu fjármagni sem þeir áttu ekki til því satt best að segja er vandséð hvernig við getum leyft okkur mjög miklar erlendar lántökur til að stunda slíka tilraunastarfsemi. En i tíð fyrrverandi ríkisstjórnar voru menn ákaflega uppteknir við hið íslenska hugvit og beislun þess og innlent framtak og allt það sem talið var þjóðlegt því þeir vildu loka fyrir erlenda stóriðju og töldu það bestu orkukostina. Við þurfum alltaf að gá að okkur, fá- tækir menn, að velja réttu leiðirn- ar og standa vel og skynsamlega að verkum," sagði Sverrir Her- mannsson iðnaðarráðherra. Nóvemberútboð rikisvíxla: Meðalársávöxtun 27,77 % í GÆR voru opnuð tilboð í ríkisvíxla að upphæð 30 milljónir króna. Tekið var tilboðum í víxla að nafnvirði 25,5 milljónir kr. Kaupverð þeirra var 23.984.730 krónur sem jafngildir 27,77 % meðalársvöxtum, reiknuðum eftir á. Þau tilboð sem tekin voru eru á bilinu frá 235 til 235,5 þúsund kr. fyrir hvert sett sem er að nafn- verði 250 þúsund krónur. í okt- óberútboði ríkisvíxla var meðal- ávöxtun þeirra víxla sem keyptir voru 27,68%. í útboðinu nú bárust 16 gild tilboð. Tilboðin voru í 106 sett af víxlum, hvert að nafnverði 250 þúsund kr., samtals að fjár- hæð 26,5 milljónir. Næsta útboð rikisvíxla verður í byrjun desem- ber. Offramleiðsla á kartöflum: Reynt að auka framleiðslu kartöfluverksmiðjanna Engir möguleikar á útflutningi EKKI er búið að finna leiðir til að koma hinni miklu offramleiðslu landsmanna á kartöflum í verð, en eins og fram hefur komið í Mbl. er útlit fyrir að kartöfluuppskeran í sumar hafi verið 8 þúsund tonnum meiri en ársneysla landsmanna. Að sögn Gunnars Guðbjartssonar, fram- kvæmdastjóra Framleiðsluráðs landbúnaðarins, er helst rætt um að reyna að auka framleiðslu og mark- aðshlutdeild kartöfluverksmiðjanna tveggja í steiktum kartöflum og eru þegar hafnar tilraunir í þá veru. Þá hafa verið kannaðir möguleikar á út- flutningi en engar líkur eru á að hægt verði að leysa offramleiðslu- vandamálin á þann hátt. Gunnar sagði að Framleiðsluráð hefði rætt um þessi vandamál en engar ákvarðanir tekið í því efni enn sem komið er. Sagði hann að sumir kartöflubændur teldu að heimilisræktunin hefði hlutfalls- lega ekki verið jafn mikil og áður og vandinn því ef til vill ofmetinn. Sagði hann að menn vildu láta á það reyna hvort hægt væri að auka framleiðslu á steiktum kart- öflum í kartöfluverksmiðjunum í Þykkvabæ og á Svalbarðseyri og ná þannig meiri markaði fyrir ís- lenskar kartöflur. Sagði hann að þegar væri byrjað á þessu í verk- smiðjunni á Svalbarðseyri, þar sem nú væri unnið allan sólar- hringinn, og verð framleiðslunnar hefði verið lækkað. Sagði Gunnar að fjárhagsgrundvöllur fram- leiðslu við slíku verði væri ekki Ijós en það væri þó betra að selja kartöflurnar, þó fyrir eitthvað lægra verð væri, heldur en að henda þeim. Gunnar sagði að möguleikar á útflutningi hefðu verið kannaðir en afar litlir möguleikar virtust vera á slíku. Til dæmis hefðu verið kannaðir möguleikar á útflutningi til Færeyja en þar hefði svo lágt verð verið í boði að engu lagi væri líkt. Sagði hann að eftir sumarið væri mikið framboð á kartöflum í Evrópu og lágt verð enda greiddi Efnahagsbandalagið framleiðsl- una mikið niður til að fá þó eitt- hvað fyrir hana.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.