Morgunblaðið - 09.11.1984, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1984
7
Barnastarfið í
Dómkirkjunni
BARNASTARF Dómkirkjusafnaðar-
ins fer nú fram í Dómkirkjunni á
laugardagsmorgnum. Vegna verk-
fallsins var erfitt um alla auglýsingu
á þessari nýbreytni, er starfið hófst í
októberbyrjun. Því er á það minnt
nú.
Söfnuðurinn hefur lengi notið
góðrar aðstöðu í húsakynnum
Vesturbæjarskólans, bæði í skóla-
húsinu sjálfu og svo á Hallveig-
arstöðum. Vegna breyttra að-
stæðna er sú aðstaða ekki fyrir
hendi lengur. Því var ákveðið að
reyna að vera með barnasamkom-
urnar í kirkjunni sjálfri. Þar hag-
ar þó þannig til, að aðstaða öll er
mjög erfið, fyrst og fremst fyrir
það, hve bekkirnir eru djúpir. En
fleira kemur einnig til, þannig að
sr. Agnes Sigurðardóttir, sem nú
leiðir þetta starf ásamt eigin-
manni sínum Hannesi Baldurs-
syni tónmenntakennara, þarf á
aukinni aðstoð að halda. Hafa
kvenfélagskonur hlaupið þar und-
ir bagga, en við þurfum meiri
hjálp en þær geta veitt. Því þætti
okkur vænt um að fá fleiri sjálf-
boðaliða, konur eða karla, sem
mættu þá gjarnan gefa sig fram
við kirkjuvörð, ef þeir vildu hjálpa
til t.d. einu sinni í mánuði.
Barnastarfið fer sem fyrr sagði
fram í Dómkirkjunni hvern laug-
ardagsmorgun kl. 10.30—11.30.
Þar fer fram kristin uppfræðsla,
sagðar eru sögur og mikið sungið.
Að lokum er farið upp á kirkju-
loftið og sýnd stutt kvikmynd.
Miðað er við, að börn fjögurra ára
og eldri hafi gagn og gaman af
þessu starfi. Æskilegt er, að ein-
hver fullorðinn fylgi yngstu börn-
unum.
Stuðlum öll að góðu barnastarfi
í söfnuðinum.
Hjalti Guðmundsson.
Þórir Stephensen.
Baðhús við Bláa lónið
kostar 5 milljónir
HITAVEITA Suðurnesja hefur látið
gera kostnaðaráætlun byggingar að
baðhúsi við Bláa lóniö við Svarts-
engi, samkvæmt tillöguteikningu frá
arkitektunum Ormari Þór og Örnólfi
Hall. Hljóðar áætlunin upp á 5 millj-
ónir króna.
Viðræður hafa farið fram milli
Sambands sveitarfélaga á Suður-
nesjum og Hitaveitu Suðurnesja
um málið, en Hitaveitan telur ekki
eðlilegt hlutverk sitt að byggja
umrætt baðhús, en er reiðubúið til
viðræðna um þátttöku í slíkri upp-
byggingu í samvinnu við sveitar-
félögin og eða áhugaaðila. Áður
hafði stjórn SSS skorað á Hita-
veitu Suðurnesja að hafa forgöngu
um að koma nú þegar upp viðun-
andi aðstöðu við Bláa lónið.
Hugmyndir eru um að bygg-
ingaframkvæmdir verði kostaðar
af HS og sveitarfélögunum.
E.G.
Suðumes:
Sameinast ríkissjóð-
ur og sveitarfélögin
um gjaldheimtu?
NEFND á vegum sambands sveitar-
félaga á Suðurnesjum hefur kannað
möguleika á stofnun sameiginlegrar
gjaldheimtu ríkis og sveitarfélaga á
Suðurnesjum.
Sextugur:
Guðlaugur
Þorvaldsson
Hefur nefndin unnið út frá
þeirri hugmynd, að stofnað verði
sameiginlegt fyrirtæki ríkis og
sveitarfélaga um gjaldheimtu.
Sveitarfélögin og ríkissjóður af-
hendi gjaldheimtunni öll fast-
eignagjöld og opinber gjöld til
innheimtu, og að Gjaldheimtan I
Reykjavík verði fyrirmynd
(stjórnun og uppgjörsmáti).
Að beiðni nefndarinnar hefur
fjármálaráðherra skipað Árna
Kolbeinsson sem fulltrúa fjár-
málaráðuneytisins við nefndina.
Aflað hefur verið tilboða í verk-
efnið frá eftirtöldum aðilum:
Skýrsluvélum ríkisins og Reykja-
víkurborgar, Sparisjóðnum I
Keflavík og Tölvumiðstöðinni s/f.
Aðeins einn aðili Sparisjóðurinn í
Keflavík lagði fram tilboð um að
viðkomandi taki að sér allan
rekstur gjaldheimtu, hvað varðar
starfsfólk, afgreiðslustaði, tölvu-
búnað og húsnæði, auk annars er
til verksins þarf. Gjaldheimtan
legði aðeins til samskiptastjórn.
Hins vegar komu tilboð frá þrem-
ur aðilum í vélavinnslu.
Fjármálaráðherra hefur til
meðferðar nokkrar spurningar frá
nefndinni og að þeim svöruðum
má vænta tillagna nefndarinnar.
í nefndinni eru: Ellert Eiríksson
formaður, Sæþór Fannberg og
Sveinn Eiríksson.
E.G.
GUÐLAUGUR Þorvaldsson, ríkis-
sáttasemjari varð 60 ára hinn 13.
október síðastiiðinn. Hann tekur á
móti gestum í veitingahúsinu
Hrafninn, Skipholti 37 klukkan 16
til 19 sunnudaginn 11. nóvember.
Morgunblaðið/ RAX.
Séra Agnes Sigurðardóttir ásarnt þátttakendum I barnastarfi Dómkirkjunnar.
GOTT VEGGRIP
GÓÐ ENDING
Hvort er mikilvægara griphæfni hjól-
barðans eða ending?
Hvortveggja skiptlr miklu og þess vegna
eru báðir þessir eiginleikar í hámarki í
Goodyear uitra Grip börðunum. Þetta eru
hjólbarðar með sérstæðu munstri, sem
gefur ótrúlega fast grip, jafnvel í bröttum
brekkum. Þeir standa einstaklega vel á
hálku og troða lausamjöll vel undir sig.
Munsturgerðin og hin sérstaka
gúmmíblanda valda því að barðinn
heldur eiginleikum sínum að fullu
út allan endingartímann, sem er
mjög langur. Munsturraufarnar eru
þannig lagaðar, að þær hreinsast af
sjálfu sér í snjó og krapi.
Á auðum vegi eru Ultra Crip
barðarnir mjúkir og hljóðlátir.
Á uitra Gríp hefuröu öryggið með í
förinni.
Goodyear gerir enga málamiðlun,
þegar um er að ræða umferöar-
öryggi.
— Öll hjólbarðaþjónusta fyrir fólksbila og sendibfla —
GOODÉYEAR
GEFUR ^RÉTTA GRIPIÐ
HEKLA HF
Laugavegi 170-172 Sími 21240