Morgunblaðið - 09.11.1984, Page 10

Morgunblaðið - 09.11.1984, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1984 Núlifandi stofnendur Iðnaðarmannafélags Suðurnesja voru afhent afrit af mynd af stofnendum félagsins. Þeir eru sex, en einn var fjarverandi. Iðnaðarmannafélag Suðurnesja: Stofnendur voru 23 iðnaðarmenn Iðnaðarmannafélagið í Keflavík, síðar Iðnaðarmannafélag Keflavík- ur og loks Iðnaðarmannafélag Suð- urnesja, var stofnað 4. nóvember 1934. Stofnendur voru 23 iðnaðar- menn, og er talið að aðeins einn hafi haft full iðnréttindi með iðn- skólaprófi, Skúli H. Skúlason, húsa- smiður. Fyrsti formaður félagsins var Þórarinn Ólafsson. Fyrir forgöngu Iðnaðarmanna- félagsins var stofnaöur Iðnskóli Keflavíkur, sem síðar varð Iðn- skóli Suðurnesja og loks hluti Fjölbrautarskóla Suðurnesja eft- ir að hann var stofnaður. Árið 1957 var fyrir forgöngu rafvirkja innan Iðnaðarmannafé- lagsins stofnað Rafverktakafélag Keflavíkur hf., sem m.a. aflaði sér verktakaheimilda á Keflavík- urflugvelli. Stuttu síðar voru eft- irtalin félög einnig stofnuð: Bygg- ingaverktakar Keflavíkur hf., Járniðnaðar- og pípulagninga- verktakar Keflavíkur hf., Málara- verktakar Keflavíkur og Múrara- verktakar Keflavíkur. Hafa þessi fyrirtæki haft mikið samstarf t.d. um skrifstofuhald, og oftast nefnd einu nafni, Keflavíkurverk- takar. Árið 1966 keypti félagið efstu hæðina á Tjarnargötu 3 í Kefla- vík, 160 m' að stærð óinnréttaða. Var félagsheimili síðan vígt þar 9. mars 1968. Þarna hefur félagið sitt aðsetur, en salurinn leigður ýmsum aðilum. Þar hefur Bæjar- stjóm Keflavíkur haldið fundi um langt árabil, og fjöldi sýninga verið haldinn. Við opnun félags- heimilisins efndu 8 félagar í Iðn- aðarmannafélaginu til listsýn- ingar. Á síðasta ári kom út Iðnaðar- mannatal Suðurnesja sem Iðnað- armannafélagið hafði forgöngu um. f ritinuu eru æviágrip iðnað- armanna, starfssaga Iðnaðar- mannafélags Suðurnesja, skrá yf- ir iðnnema 31. des. 1979, starfs- sögur Iðnsveinafélags Suður- nesja, Iðnnemafélags Suðurnesja, Rafverktakafélags Suðurnesja, Múrarafélags Suðurnesja, Meist- arafélags byggingamanna á Suð- urnesjum, Múrarameistarafélags Suðurnesja og Rafiðnaðarfélags Suðurnesja. Auk greinar um iðn og handíðir á Suðurnesjum á lið- inni tíð. Er bókin alls 569 blaðsíð- ur að stærð. Eftirtaldir aðilar hafa verið formenn félagsins: Þórarinn Ólafsson, Guðni Magnússon, Svavar Sigfinnsson, Gunnar Þorsteinsson, Bjarni Einarsson, Egill Þorfinnsson, Sigurður Guð- laugsson, Jóhann Pétursson, Þorbergur Friðriksson, Eyþór Þórðarson, Guðbjörn Guð- mundsson og Birgir Guðnason núverandi formaður. E.G. Iðnaðarmannafélag Suðurnesja 50 ára Iðnaöarmannafélag Suöurnesja átti fimmtugsafmæli þann 4. nóv- ember sl. Þann dag var haldinn hátíöarfundur á Glóðinni í Kefla- vík, þar sem boðið var ýmsum gestum. Á hátíðarfundinum flutti formaður félagsins, Birgir Guðnason, ávarp, og Eyþór Þórðarson gerði grein fyrir að- draganda að stofnun félagsins. Sex af sjö núlifandi stofnend- um félagsins, sem voru mættir á hátíðarfundinn, var afhent afrit af mynd af stofnendum félags- ins. Þeir Ingvar Jóhannsson, Þorbergur Friðriksson, Guð- björn Guðmundsson og Eyþór Þórðarson voru gerðir að heið- ursfélögum. Þá voru sýndar lág- myndir af Guðna Magnússyni og Eyþór Þórðarsyni, gerðar af Erl- ingi Jónssyni, en lágmyndirnar verða í eigu félagsins, en gerðar af þeim mönnum sem áttu mest- an þátt í gerð Iðnaðarmannatals Suðurnesja. í tilefni afmælisins voru félag- inu færðar margar gjafir m.a. bókagjafir frá Landssambandi iðnaðarmanna, Iðnaðarmanna- félagi Hafnarfjarðar. Málverk frá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum og Iðnsveinafélagi Suðurnesja. Einnig gjafir frá Iðnaðarmannafélagi Reykjavík- ur, meistarafélagi bygginga- manna á Suðurnesjum, og Raf- verktakafélagi Keflavíkur. Keflavíkurverktakar gáfu veisluna. E.G. Ljósm.: E.G. Birgir Guðnason formaður félagsins tekur við málverkagjöf frá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum. Það er Ellert Eiríksson, formaður SSS, sem afhendir gjöfina. „Krappur dans“ Ný bók eftir Guð- mund Daníelsson SETBERG hefur gefið út bókina „Krappur dans“. Jarðvistarsaga Jóa Vaff eftir Guðmund Daní- elsson. „Bókin er unnin upp úr drögum að sjálfsævisögu Jóhanns, sem hann byrjaði á áttræður að aldri, en entist ekki líf til að ljúka við. Höfundinum, bróðursyni Jóhanns, bárust í hendur þessi drög, sem hann notaði síðan sem uppistöðu þessarar bókar," segir í fréttatil- kynningu frá útgefanda. „Krappur dans“ er í rauninni samfelld háska- og hetjusaga manns, sem yfirgaf foreldrahús sín, Kaldár- holt í Holtum, nýfermdur á mesta harðindavori sem yfir landið hef- ur gengið, 1882. Jóhann var gædd- ur alveg takmarkalausri lífsorku og viljaþreki. Fram yfir þrítugt var hann flestum mönnum fátæk- ari af veraldarauði, en hann ávann sér slíkt traust mikilsmegandi manna þjóðfélagsins, að þeir gerðu hann að fulltrúa sínum og boðbera og fengu honum loks það verk að vinna, sem hann hafði frá barnæsku óskað sér: að stýra verslun." Þá segir ennfremur: „Verslun- arsaga Jóa Vaff fléttast verslun- arsögu landsins á feykilegum um- brotatímum í viðskiptaháttum þjóðarinnar. Hann rak eigin versl- un á Eyrarbakka í rúman áratug. Áður hafði hann verið vikapiltur, sjómaður, lausamaður, vefari, bóndi, pakkhúsmaður og verslun- arstjóri kaupfélagsins. Um þrítugt veiktist hann lífshættulega, en hafnaði uppskurði og sjúkrahús- vist og réðist til sjóróðra. Sem bóndi sá hann bæ sinn hrynja í rúst í jarðskjálftum. Sem verð- andi kaupmaður sá hann verslun- arbúð sína og vörur brenna til ösku. Áhlaup var gert á æru hans og afkomu, en hann stóðst það og bar hreinan skjöld heim frá sér- hverri orrahríð." Bókin er 200 blaðsíður og auk þess prýdd sérprentuðum mynd- um. 26277 Allir þurfa híbýli ~ Hraunbær 4ra—5 herb. 115 fm íb. á 3. hæð. Falleg eign. Sæbólsbraut Fokhelt raðhús, hæð og ris, samt. 180 fm. Innb. bílsk. Skemmtil. teikn. Eftirsóttur staöur. Verð 2.380 þús. Skerjafjörður Einb.hús um 130 fm auk 28 fm bílsk. Síöusel Glæsil. parhús á 2 hæðum, samt. 200 fm, auk bílsk. Allt mjög vandað. HÍBÝLI & SKIP Garðastræti 38. Sími 26277. Brynjar Fransson, síml: 46802. Fínnbogi Albertsson, sími: 667260. Gisli ólafsson, simi: 20178. Jón Ólafsson. hrl. Skúli Pálsson, hrl. Verslunarhúsnæði Til sölu viö fjölfarna götu í miðborg Reykjavíkur 180 fm verslunar- og lagerhúsnæöi. Hentar fyrir ýmiskon- ar starfsemi. Afhending um áramót eöa eftir nánari samkomulagi. Uppl. eingöngu á skrifstofunni. BÚSTAÐIR, sími 28911. Opið sunnudaga 13—16. Eyjabakki — 3ja herb. 88 fm vönduö íbúð á 2. Verö 1800—1850 þús. hæö. Glæsilegt útsýni, suðursvalir. raZE ^iGnAmfÐLunin ÞINGHOLTSSTRÆTI 3 SÍMI 27711 f Sölustjóri: Sverrir Kristinsson Þorletfur Guómundsson, sölum. Unnsteinn Beck hrl., sími 12320 Þórólfur Halldórsson, lögfr. GARÐUR S.62-I200 62-I20I Skipholti 5 Boðagrandi 2ja herb. ca. 65 fm Ijómandi snyrtileg íb. á jarðhæð í lítilli blokk. Hentug fyrir fatlaða. Verð 1700 þús. Vesturberg Mjög góð 3ja herb. ca. 87 fm íb. á 3 hæö. Þvottaherb. Innaf eld- húsi. Tvennar svalir. Frábært útsýni. Verð aöelns 1700 þús. Þangbakkí Ca. 80 fm íb. á 9. hæð. Nyl. og góð íb. Sameign fullfrág. Verö 1700 þús. Engjasel 116 fm endaib. á 2. hæö. Bíl- geymsla fylgir. Ibúð og sameign i góðu lagi. Útsýni. Verð 2,1 millj. Jörfabakki 4ra herb. rúmg., falleg, íb. á 1. hæö. Þv.herb. i íb. Tvennar svalir. Gott tréverk. ný teppi. Verð 2,1 millj. Hafnarfjöróur Einb.hús, jarnklætt timbur- hús, hæð og ris á steinkjal- lara. Vinalegt hús á góðum staö. ___________________ Seljahverfi Einb.hús, hæð, rts og kjallari, samt. ca. 300 fm, Á hæðinni eru stofur, eitf stórt herb., eldhús, snyrting, þv.herb. o.fl. I risi eru 4 herb., sjónvarpshol og bað. Kjallari er óskiptur. Bilskúr. Gott næstum fullgert hús. Verð 5,3 millj. Kári Fanndal Guðbrandsson, Loviaa Kristjánadóttir, Bjöm Jónaaon hdl. V J

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.