Morgunblaðið - 09.11.1984, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1984
Fjórðungsmót í Reykjavík:
Annað sinn sem
slíkt mót er hald-
ið í höfuðborginni
AFRÁÐIÐ er að haldið verði fjórð-
ung.smót í Reykjavík næsta sumar,
nánar tiltekið á félagssvæði Fáks á
Víðivöllum. Eins og venja er til með
fjórðungsmót stendur þetta mót yfir
í fjóra daga, hefst 27. júní og lýkur
sunnudaginn 30. júní.
Er þetta i annað skipti sem
fjórðungsmót er haldið í Reykja-
vík en síðast var slíkt mót haldið
þar í júlí 1956 á félagssvæði Fáks
sem þá var við Elliðaár, í neðri
Fák sem kallað er í daglegu tali.
Undirbúningur er hafinn fyrir
allnokkru og meðal annars er
langt komið með byggingu á nýj-
um 300 metra hringvelli og einnig
hefur verið byggt nýtt 450 m2 fé-
lagsheimili. Fyrir eru tveir
hringvellir 300 metra og 1200
metra kappreiðabraut.
Fyrirhugað er að útbúa sérstakt
sýningarsvæði framan við núver-
andi áhorfendabrekku en hún hef-
ur þótt vera fulllangt frá vellin-
um.
í fréttatilkynningu, sem gefin
var út af framkvæmdanefnd móts-
ins, segir að verið sé að undirbúa
aðstöðu fyrir tjaldbúðir við inn-
keyrsluna í Víðidal og fjölskyldu-
tjaldbúðir eru fyrirhugaðar við
bæinn Vatnsenda við Elliðavatn.
Einnig segir að möguleikar séu á
tjaldstæðum hjá Elliðaánum ef
þörf krefur.
Aðstaða fyrir ferðahesta verður
fyrst og fremst á Korpúlfsstöðum
en mönnum er gefinn kostur á að
taka með sér einn til tvo hesta á
mótssvæðið í girðir.gu þar eða hús.
! fréttatilkynningunni segir að
notuð verði öll fullkomnasta tækni
sem þekkist í framkvæmd hesta-
móta og er þar nefnd tölvuskrán-
ing í öllum greinum mótsins, betri
rásbásar og er þá væntanlega átt
við að sett verði hlið á þá bása sem
Fákur á. Einnig verði notuð
sjálfvirk tímataka á kappreiðum.
FJÓRÐUNGSMÖT
HESTAMANNA
A SUÐURLANDI
FM'85
REYKJAVIK
27.-30. JÚNÍ
Merki mótsins hannaði Gísli B.
Björnsson framkvæmdastjóri móts-
ins.
Dagskrá mótsins verður með
nokkuð hefðbundnu sniði að öðru
leyti en því að boðið verður uppá
ákveðna hápunkta þar sem fólki
gefst kostur á að sjá flest það sem
sýnt er á mótinu á stuttum tíma.
Unnt verður að hýsa öll keppn-
ishross í hesthúsum Fáks þannig
að mótsgestum gefst kostur á að
skoða hrossin í nálægð. Gras verð-
ur slegið daglega í hrossin auk
þess sem boðið verður uppá annað
fóður ef menn vilja slíkt. Ýmsar
sérstakar sýningar eru fyrirhug-
aðar, kvölddagskrá verður og
glæsilegt hlöðuball eins og það er
orðað í fréttatilkynningunni.
Að mótinu standa fimmtán
hestamannafélög á Suður- og Suð-
vesturlandi ásamt hrossaræktar-
og búnaðarsamböndum á svæðinu.
f framkvæmdanefnd eru Gunnar
Dungal formaður, Fáki, Bjarni
Sigurðsson Gusti, Hreinn ólafs-
son Herði, Halldór Guðmundsson
Ljúf, Helgi Eggertsson Búnaðar-
sambandi Suðurlands, Kristján
Jónsson Geysi, Þórir Steindórsson
Sleipni, og framkvæmdastjóri hef-
ur verið ráðinn Gísli B. Björnsson
og hannaði hann merki mótsins.
Kort af athafnasvæói Fáks á Víðivöllum. Fyrir miðju má sjá nýja 300 metra
gæðingavöllinn og vinstra megin við hann má sjá hvar væntanleg reiðhöll
mun rísa.
85 kandidatar braut-
skráðir frá HÍ á morgun
AFHENDING prófskírteina til
kandídata fer fram við athöfn í Há-
skólabíói laugardaginn 10. nóvem-
ber 1984 kl. 14.00. Rektor háskól-
ans, prófessor dr. Guðmundur
Magnússon, ávarpar kandídata, en
síðan afhenda deildarforsetar próf-
skírteini. Að lokum syngur Iláskóla-
kórinn nokkur lög undir stjórn Árna
Harðarsonar.
Að þessu sinni verða braut-
skráðir 85 kandídatar og skiptast
þeir þannig;
Embættispróf í guðfræði 4,
embættispróf í læknisfræði 1, að-
stoðarlyfjafræðingspróf 1, BS-
próf f hjúkrunarfræði 3, BS-próf í
sjúkraþjálfun 1, embættispróf í
lögfræði 2, kandídatspróf í ís-
lensku 1, kandídatspróf í sagn-
fræði 2, kandídatspróf í ensku 1,
BA-próf í heimspekideild 11, loka-
próf í rafmagnsverkfræði 2, BS-
próf í raungreinum 16, kandí-
datspróf í viðskiptafræðum 29,
kandídatspróf í tannlækningum 1,
BA-próf í félagsvísindadeild 10.
Morgunbladid/Friðþjófur.
Sverrir Friðþjófsson, forstöðumaður Fellahellis.
7
ty
/
i
„Alltaf eitthvað við
að vera í Fellahelli“
— segja unglingarnir f félagsmið-
stöðinni sem nú á 10 ára starfsafmæli
Róbert Arnþórsson og Ásta Jónsdóttir.
Félagsmiðstöðin Fellahellir á f
dag 10 ára afmæli, en henni var
komið á fót 9. nóvember 1974. Dag-
urinn verður haldinn hátíðlegur í fé-
lagsmiðstöðinni með ýmsu móti og
er blm. og Ijósm. bar þar að garði á
dögunum, var undirbúningur í full-
um gangi. Bæði unglingar og starfs-
fólk voru í óða önn að skreyta húsið
og listaverk þeirra af ýmsu tagi
prýddu veggi. Blm. hitti Sverri Frið-
þjófsson forstöðumann Fellahellis
að máli og innti hann hann fyrst
eftir því hver hefðu verið tildrög
þess að Félagsmiðstöðin var stofnuð
fyrir tíu árum.
„Fellahellir er fyrsta félags-
miöstöðin hér á landi og fæddist
hugmyndin að stofnun hennar hjá
Æskulýðsráði fyrir tólf árum,"
sagði Sverrir. „Þá var húsnæðiö
byrgi Almannavarna en var að
öðru leyti óráðstafað. Tónabær
nægði ekki lengur fyrir alla ungl-
inga borgarinnar og þvf var
ákveðið að koma hér á fót félags-
miðstöð fyrir unglinga sem sniðin
yrði að erlendri fyrirmynd. Starf-
semin gafst vel en fór þó hægt af
stað og var aðeins opið tvö kvöld í
viku fyrsta veturinn. Síðan hefur
hún aukist jafnt og þétt og nú er
opið alla virka daga frá kl. 9.00 til
23.00. Á daginn er hér mötuneyti
fyrir nemendur Fellaskóla og kl.
16.00 er húsið opnað fyrir alla 13
ára og eldri."
Hvað geta unglingarnir svo gert
sér til dægrastyttingar í félags-
miðstöðinni?
„Hingað geta þeir komið hve-
nær sem húsið er opið. Húsnæð-
inu er sífellt verið að breyta og
þeir sem vilja geta hjálpað viö að
mála og lagfæra ýmislegt. Þá geta
þeir spilað borðtennis, billiard eða
horft á myndbönd svo eitthvað sé
nefnt. Aðalkjarni starfseminnar
er þó klúbbastarf sem við höfum
boðið krökkunum að stunda. Þá
hittast þau reglulega og funda um
ýmis málefni, fara í ferðalög og
halda skemmtikvöld á hverjum
föstudegi. Þá er haldin spurninga-
keppni og dansinn sfðan látinn
duna fram eftir kvöldi. Áður voru
starfandi allt að 25 manns f hluta-
starfi í félagsmiöstöðinni og þrfr
fastráðnir. Nú hafa hins vegar
fjórir starfsmenn til viðbótar ver-
ið fastráðnir. Teljum við það mjög
til bóta fyrir unglingana, þar sem
nú verður sama starfsfólkið oftar
í viku, sem þau geta treyst á og
myndað góð tengsl við."
Hafa unglingaskemmtistaðirn-
ir i borginni dregiö úr aðsókninni
í Fellahelli?
„Ég hef heyrt að félagsmið-
stöðvar borgarinnar séu illa sótt-
ar en við hér í Fellahelli kvörtum
ekki undan því, enda Fella- og
Hólahverfi fjölmennt hverfi og
koma daglega á staðinn 300 til 400
unglingar. Við leggjum að sjálf-
sögðu strangt bann við þvf að
áfengi sé haft um hönd í húsinu
og þeir unglingar sem ekki vilja
sæta þeim reglum verða að leita
annað. Þeir eru þó svo margir sem
ekki kæra sig um áfengi og vilja
mun heldur skemmta sér innan
um hresst og skemmtilegt fólk
hér í Fellahelli.
Ég vil taka það skýrt fram að
við erum ekki í neinni samkeppni
við unglingaskemmtistaðina né
þeir við okkur og er sambandið
mjög gott okkar a milli. Fellahell-
ir er miklu heldur afdrep fyrir
unglinga en skemmtistaður, enda
var það ætlunin með stofnun fé-
lagsmiðstöðvarinnar," sagði
Sverrir að endingu.
Eins og getið var um hér að
framan verður afmæli Fellahellis
haldið hátíðlegt með ýmsum
hætti í dag. Tertuveisla verður
haldin fyrir unglinga og aðra vel-
unnara Fellahellis kl. 15.00 til
17.00 en í kvöld verður haldin
unglingaskemmtun sem hefst með
borðhaldi kl. 19.30. Á skemmtun-
inni koma fram ýmsir góðir gestir
s.s. HLH-flokkurinn, Omar Ragn-
arsson og Kiza-flokkurinn. Þá
flytja unglingar Fellahellis eigin
skemmtiatriði.
„Alltaf citthvað
við að vera“
Nokkrir unglingar sem verið
höfðu að skreyta félagsmiðstöðina
sátu í anddyri hússins þegar blm.
bar að garði og tók hann fyrst tali
tvær vinkonur, þær Erlu Viggós-
dóttur og Sæunni Hilmarsdóttur,
báðar 14 ára. Kváðust þær oft
eyða frítíma sínum f Fellahelli, en
þangað byrjuðu þær að venja
komu sína sl. sumar. „Ég er starf-
andi í klúbbi sem heitir Happa-
gaukar og hef því í ýmsu að snú-
ast," sagði Erla. „Við sjáum um
skemmtikvöldin á föstudögum og
síðan eru haldnir fundir reglu-
lega. Bráðum förum við til Vest-
mannaeyja og sú ferð verður
væntanlega skemmtileg." Báðar
sögðust þær stöllur vera í Fella-
skóla og eyða frímínútunum í
Fellahelli þar sem hægt væri að
versla mat og drykki. Sæunn
kvaðst ekki vera starfandi í nein-
um klúbbi en kæmi þó oft á kvöld-
in líka. „Á föstudagskvöldum held
ég þó oftast til fyrir utan
únglingaskemmtistaðinn Traffic
því enn er ég of ung til að komast
inn. Ég ætla þó að fara á afmæl-
ishátíðina og hef unnið af fullum
krafti við að undirbúa hana,"
sagði Sæunn.
„Héngum áður í sjoppum"
Þau Róbert Arnþórsson og Ásta
Jónsdóttir, bæði 14 ára, kváðust
bæði hafa byrjað að sækja Fella-
helli sl. ár. „Það er gott að geta
komið hingað í frfmfnútum og á
kvöldin þegar ekkert er við að
vera heima fyrir," sagði Róbert.
„Ég spila stundum borðtennis og
billiard og eins hef ég gaman af
því að taka þátt f spurninga-
keppnum þegar að þær eru haldn-
ar." Ásta sagðist mikið sækja fé-
lagsmiðstöðina f frfmfnútum og á
kvöldin. „Það er ffnt að hafa
svona afdrep þar sem vinir geta
hist og talað saman," sagði hún.
„Áður hékk ég í sjoppum hverfis-
ins til að drepa tímann. Ég mæti
alltaf þegar haldin eru mynd-
bandakvöld og eins hef ég gaman
af að dansa í diskótekunum. Þó er
ég yfirleitt um helgar fyrir utan
Traffic því að þar er alltaf fullt af
krökkum sem gaman er að hitta,"
sagði Ásta að endingu.