Morgunblaðið - 09.11.1984, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1984
13
„Lífið er
— æviminningar
Aðalsteins
Jónssonar
útgerðarmanns
SETBERG hefur gefift út bókina
„Lífið er lotterí" sem eni ævi-
minningar Aðalsteins Jónssonar
útgerðarmanns á Eskifirði.
„Saga þessi er baráttusaga
einstaklings, sem hafizt hefur af
sjálfum sér til mikilla eigna og
hún er jafnframt smækkuð
þjóðarsagan á þessari öld, frá
einni brauðsneið til veizlu-
borðs," segir í fréttatilkynningu
frá útgefanda.
„Aðalsteinn Jónsson, sem oft
er kallaður Alli ríki, er löngu
þjóðkunnur og um hann hafa
gengið ýmsar sögur. Ein útgáf-
an er sú, að hann hafi komizt
„áfrarn" á glópaláni og straum-
iða þjóðlífsins borið hann á
ströndina þar sem beið hans
gull og grænir skógar. Þá á Að-
alsteinn að hafa verið glaum-
gosi, sem sat á hóteli meðan
honum var malað gull fyrir
austan.
Saga þessi sýnir allt annan
mann en kviksögurnar um hann.
Hún sýnir mann, sem vakir yfir
sínu fyrirtæki, hugsar jafnan
sitt ráð vandlega og framkvæm-
ir rösklega það sem hann ráð-
gerir. Aðalsteinn er manna
fljótastur að átta sig á aðstæð-
um og til hverra ráða skuli grip-
ið, ef vandi steðjar að honum, og
kjarkurinn og bjartsýnin er
óbilandi. Þá er og þessi saga um
góðan dreng, sem man, að hann
lotterí“
hefur verið fátækur og átt bága
ævi og hefur ekki ofmetnast af
velgengni sinni.
í heiti bókarinnar er látið að
því liggja, að bókin sé um tvo
menn, Aðalstein og Alla. Þetta
er auðvitað skilningur bókarhöf-
undar á manninum, að söguhetj-
an sé tvískipt að gerð, og útgerð-
armaðurinn Aðalsteinn sé um
margt ólíkur gárunganum Alla,
eins og kunnugir þekkja hann.“
Ásgeir Jakobsson hefur ritað
bækur um sjómenn og útgerð-
armenn, þeirra á meðal Einar
Guðfinsson og Tryggva Ófeigs-
son.
„Lífið er lotterí" er 200 blað-
síðna bók og auk þess prýdd
nærri eitt hundrað ljósmyndum.
Líttu við hjá okkur og bragðaðu á þessum
sérdeilis ljúffengu kjúklingabitum.
Þú getur borðað þá á staðnum í snyrti-
legu umhverfi eða tekið þá með þér heim.
Og eins og áður bjóðum við uppá fjölda
annara gómsætra rétta og bpra þjónustu.
lipur þjónusta - lágt verð