Morgunblaðið - 09.11.1984, Side 20

Morgunblaðið - 09.11.1984, Side 20
20 Indland: MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1984 Friður á aðal- helgidegi síkha Nýj« Delhí, 8. nóvember. AP. ALLT var með kyrrum kjörum á Indlandi í dag, á aðalhelgidegi þeirra 13 milljón síkha, sem búa í landinu. Yfirvöld, minnug blóð- baðsins í kjölfar morðsins á Ind- iru Gandhi, höfðu óttast að til átaka kynni að koma milli hindúa og síkha og var því mikill örygg- isviðbúnaður hafður uppi. Var mestur viðbúnaður í höfuðborg- inni og í Punjab-fylki, þar sem (lestir síkhar búa. Helgidagur síkha er haldin til að minnast þess, að 515 ár eru liðin frá fæðingu Nanak Dev, sem er upphafsmaður trúar- bragða þeirra. Fjölmenntu síkh- ar í guðshús sín og báðust fyrir á götum úti. Færri tóku þó þátt í helgiathöfnum nú, en undan- farin ár. 1 Amritsar, höfuðborg Punjab-fylkis, voru 50 þúsund manns við Gullna hofið, sem er aðalhelgistaður síkha, en venju- lega sækja fjórum sinnum fleiri helgistundir þar á þessum degi. Pólitísku réttarhöldin í Belgrad: Ein ákærðra telur vörn tilgangslausa Belxrad, 8. nóvember. AP. EINN sexmenninganna í Júgóslavíu, sem ákærðir eru fyrir „stjórnmála- glæpi“, sagði fyrir rétti í Belgrad í dag, að dómstóllinn bryti allar rétt- arreglur til að blekkja almenning í landinu og hann og lögfræðingur hans mundu því ekki halda uppi frekari vörnum. Vopnaðir verðir gæta salarins, þar sem réttarhöldin fara fram. Mennirnir sex eru ákærðir fyrir að hafa lagt á ráðin um, að steypa stjórn landsins og einnig fyrir margs konar stjórnmálastarf ann- að, sem talið er „fjandsamlegt rík- inu“. Vladimir Mijanovic, maðurinn sem ákvað að hætta vörnum, sagði að þær væru tilgangslausar. „Sem einstaklingar skiptum við sex- menningarnir engu máli. Tilgang- ur þessara réttarhalda er að halda fólki niðri og blekkja það og til þeirra er stofnað af þeim ráða- mönnum, sem ekki treysta sér til að taka þátt í raunverulegum skoðanaskiptum um þjóðfélags- umbætur," sagði hann. Carter fyrrum forseti: Reagan vann persónusigur New York, 8. nóvember. AP. JIMMY (’arter fyrrum Bandaríkja- forseti sagðist þeirra skoðunar að Reagan hefði náð endurkjöri þar sem honum hefði tekist að telja kjósendum trú um að þjóðin væri vel á vegi stödd þrátt fyrir 200 milljarða dollara halla á fjárlögum og fjögurra ára deilur við Sovétríkin. Carter sagði sigurinn byggjast á persónulegum vinsældum forset- ans, og að úrslitin í kosningum til þings staðfestu að stefna hans hefði lítinn stuðning. Carter er í New York að biðja bankastjóra og peningamenn að styðja málefni, sem hann helgar sig um þessar mundir. Vopnaðir hermenn fylgjast með síkhum í grennd við musteri þeirra ( Gömlu Delhí í gær, sem var aðalhelgidagur síkha. Yfirvöld óttuðust að til áUka kynni að koma milli hindúa og síkha og var hernum því falið að sjá um öryggisgæslu í stað lögreglunnar. Genscher, utanríkisráðherra Vestur-Þýskalands: Ræddi skattaívilnanir við forstjóra Flick „Reagan hefur sannfært kjós- endur um að allt sé í stakasta lagi, að það sé í lagi að deila árangurs- laust við Sovétmenn í fjögur ár, að það skipti engu þótt ekki hafi náðst samkomulag um takmörkun eða fækkun kjarnorkuvopna, að engu skipti þótt 200 milljarða doll- ara halli sé á fjárlögum. Að allt i lagi sé að súru regni rigni, að í lagi sé að missa 300 hermenn í Líban- on, og í lagi sé að hætta friðartil- raunum í Miðausturlöndum og i lagi sé að ráðast með ólöglegum hætti inn í ríki Mið-Ameríku,“ sagði Carter. Bonn, 8. nóvember. AP. HANS-DIETRICH Genscher, utan- ríkisráðherra Vestur-Þýskalands, viðurkenndi fyrir rannsóknarnefnd sambandsþingsins í dag, að hann hefði rætt hugsanlegar skattaíviln- anir handa Flick-samsteypunni, við forstjóra fyrirtækisins, sem síðan hefur verið sóttur til saka fyrir mútugreiðslur. Gencher neitaði því hins vegar, að hafa gefið fyrirheit um, að beita pólitískum áhrifum sín- um til að fá skatta fyrirtækisins lækkaða. í gær kom Helmut Kohl, kansl- ari, fyrir nefndina og sat þar fyrir svörum í hálfan sjöunda tíma. Hann neitaði því afdráttarlaust, að hann tengdist á einhvern hátt Flick-hneykslinu. Genscher sagði í dag, að hann gæti enga skýringu gefið á þvi, að í einu af mörgum skjölum Flick- samsteypunnar, sem ákæruvaldið hefur tekið í vörslu sína, segir að utanríkisráðherrann hafi lofað að beita sér fyrir verulegri skatta- lækkun fyrirtækinu til handa. Hann kvaðst hins vegar vera góð- ur kunningi forstjórans, Eber- hards von Brauchitsch, sem í ág- úst 1980 hefði beðið sig að beita sér fyrir því við þáverandi fjár- málaráðherra Vestur-Þýskalands, Hans Matthoefer, að beiðni fyrir- tækisins um lækkun skatta næði fram að ganga. „Ég sagði forstjór- anum,“ sagði Genscher í dag, „að ég mundi ekki og gæti ekki þrýst á Matthoefer." Genscher, sem er formaður flokks frjálsra demókrata, sagði að í kosningunum 1974 hefði flokkurinn leitað til nokkurra stórfyrirtækja og beðið þau að leggja fé í kosningasjóð sinn, sem þá var rekinn með 10 milljóna marka halla. Flick hefði verið eitt þeirra fyrirtækja, sem gjaldkeri flokksins hafði samband við. Blaðið Suddeutche Zeitung greindi frá því í síðasta mánuði, að samkvæmt skjölum Flick hefði Gencher þegið rösklega eina millj- ón marka af fyrirtækinu. Ráð- herrann sagði ekkert í því hæft. „Ég hef engar greiðslur fengið frá Flick,“ sagði hann á fundinum með þingnefndinni í dag. Viðbrögð við kjöri Reagans: Kúbu- og Nicaragua-menn segja innrásir í vændum New York, 8. nóvember. AP. VIÐBRÖGÐ við endurkjöri Ronald Reagans Bandaríkjaforseta voru ekki á einn veg sem vænta mátti. I>að urðu ekki allir þjóðarleiðtogar til að senda forsetanum heilla- óskaskeyti með tilheyrandi skoðun- um um hvað forsetinn ætti að beita sér fyrir næstu fjögur árin. Til dæm- Ls má nefna stjórnvöld á Kúbu og í Nicaragua. Hin opinbera fréttastofa Kúbu sagði Reagan hafa tekist að blekkja bandarísku þjóðina með „dæmalausu auglýsingaskrumi þar sem forsetinn fékk að leika á als oddi og notfæra sér annars flokks leikarahæfileika sína. Að þjóðin skyldi blekkjast lýsti henni svo prýðilega," eins og þar sagði. Útvarpið sagði jafnframt, að Kúbumenn mættu í vaxandi mæli vænta þess að Bandaríkin myndu gera innrás á eyjuna eins og Grenada forðum, það væri ofar- lega á óskalista Reagans. Daniel Ortega, leiðtogi sandin- ista í Nicaragua sagði í sjón- varpsviðtali, að Reagan yrði hvað og hverju aö gera upp við sig hvort hann ætlaði að fyrirskipa innrás í Nicaragua, því stjórnarherinn hefði gersigrað „Contra-skærulið- anna“ sem CIA hefur ötullega stutt við. í stjórnardagblaðinu „EI Nuevo Diario“ var fyrirsögnin: „Reagan og annað rikið“ til sam- líkingar við Hitler og „þriðja rík- ið“. í El Salvador voru tilfinningar blendnar, allt eftir því hvort menn voru stjórnarsinnar eða stjórnar- andstæðingar. Athyglisverðustu viðbrögð frá Suður-Ameríku komu frá Raoul Alfonsin, hinum nýlega skipaða forseta Argentínu. Hann freistaði þess að troða meðalveg með því að senda heillaóskaskeyti, ekki bara til Reagans, heldur einnig til Ortega í Nicaragua sem vann stór- sigur í nýafstöðnum og umdeild- um kosningum. Sovétríkin: Pasteraak- safni lokað 8. nóvember. AP. EINA Pasternak-safninu í Sov- étríkjunum, sem verið hefur á sveitasetrinu Dacha þar sem skáldið bjó eitt sinn, hefur verið lokað og allar eigur skáldsins fluttar á brott, en safnið var óopinbert. Allt hefur verið flutt á brott, Boris Pasternak, málverk eftir föð- ur skáldsins, Léonid Pasternak, málað árið 1919. húsgögn, föt, bækur og aðrir persónulegir munir, og voru sonur Pasternaks og tengda- dóttir borin út 17. október sl., að því er heimildir í Moskvu sögðu í dag. Fjölskylda Pasternaks hefur barist fyrir því frá því að hann lést árið 1960 að varðveita í Dacha óopinbert minningar- safn um skáldið. Dvaldist fjöl- skyldan þar um helgar og hafði opið fyrir gesti. Lagalega séð á sovéska rit- höfundasambandið þennan stað og hóf það málaferli fyrir tveimur árum i því skyni að ná eignarhaldinu til sín. Sonur Pasternaks, Yevgeny, og Natalya Pasternak, eigin- kona látins sonar skáldsins, höfðuðu mál í því skyni að fá að halda Dacha. Sl. sumar gekk dómur í málinu í Moskvu, og var þeim gert að fjarlægja allar eigur Pasternaks og láta af búsetu á staðnum. Ekki var hægt að ná sam- bandi við ættingja Pasternaks í dag og þar sem yfir standa þriggja daga hátíðahöld vegna 67 ára afmælis byltingarinnar í þessari viku, voru stjórnar- skrifstofur lokaðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.