Morgunblaðið - 09.11.1984, Síða 58

Morgunblaðið - 09.11.1984, Síða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1984 nmnmn „ Fiyrtu |?ér. De-ÝfispraJJbíxn hx.bt!r brÁ&um. cCÓ \j\rkxt- " Ast er... ... að skoða saman skordýr. TM R*g. U.S. Pat. Off — all ríghts reserved ® 1979 Los Angeles Times Syndicate Ér er búin að lesa Velvakanda! Nei, ég reyki ekki mikið, eina rettu á dag! HÖGNI HREKKVÍSI „ERTU A9 8V/SGJA SAMPKASTAL.A?'' Glerbrot eru aldrei til prýði, en geta valdið meiðslum og skemmdum. Öldruðum skólamanni finnst að setja ætti strangar reglur um meðferð glervara á almannafæri, svo vegfarendur geti verið óhultir. Tilgangslaust að taka ósómann vettlingatökum Aldraður skólamamaður skrifar: Ég hef dvalið hér í Reykjavík nokkur undanfarin ár og jafnan gengið drjúgan vegarspotta á hverjum degi til vinnu minnar. Þetta er rúmlega hálftíma snarp- ur gangur og því ágætt heilsubót- aratriði. Nokkur síðustu misserin hef ég svo tekið upp gamla og góða venju frá fyrri árum: að nota reiöhjól. Þótt forystumenn umferðarmála í Reykjavík geri ekki ráð fyrir hjólreiðum, því miður, tel ég að með fyllstu gætni vegfarenda geti hjólreiðamönnum vegnað vel í umferðinni. Sú er að minnsta kosti reynsla mín og ég mæli þvi eindregið með, að sem flestir iðki meira hjólreiðar og göngur en nú tíðkast. Hníga að því svo sterk og augljós rök, að ég tel ástæðulaust Sadofoss LÍM OG ÞÉTTIEFNI RubboraeaMK að tiunda þau. Að sjálfsögðu var það stórbót fyrir hjólreiðamenn, þegar heimild var gefin til þess að hjóla á gangstéttum, þar sem það hefti ekki gangandi vegfarendur. Engu að síður mælast allir hjólreiðamenn til þess að umferð- arstjórn borgarinnar láti sem fyrst og sem viðast gera sérstaka hjólreiðastíga, þar sem gangstétt- ir eru hvergi. Það mundi stuðla mjög að hvoru tveggja: Aukinni notkun reiðhjólsins og auknu öryggi og hafa margs konar hagnað og blessun í för með sér fyrir fjöl- marga. Ýmsar þjóðir hafa fyrir löngu komið þessum nauðsynlega þætti umferðarinnar í fullkomið horf, eins og öllu ferðafólki ætti að vera kunnugt. Þetta voru nokkur orð um gildi göngu og hjólreiða. En i rauninni var það annað atriði, sem mér bjó ekki siður i brjósti, — atriði, sem i raun og sannleika er mjög alvar- legs eðlis og göngu- og hjólreiða- maðurinn rekur sig alltaf tilfinn- anlega á sér til skaða og skap- raunar. Það eru hin stórhættulegu gler- brot, sem eru svo ótrúlega víða, bæði á götum og gangstéttum. Hvernig sem á því stendur er það óhrekjandi staðreynd, að kæru- lausir vegfarendur hafa lengi iðk- að þann ljóta og hættulega leik — og iðka enn — að henda frá sér tómum glerflöskum í götu eða gangstétt, svo þær brotna í mola. Það þarf ekki að lýsa þeirri hættu, sem af þessu getur leitt, hún er svo augljós, enda er það vitað mál, að fjöldi manns hefur bæði orðið fyrir meiðslum og miklu tjóni á farartækjum af þessum ástæðum. Hjólreiðamenn verða einmitt oft fyrir miklu tjóni af völdum þess- ara glerbrota, því að víða má telj- ast útilokað að varast þau. Ýmsir hafa vakið athygli á þess- um ósóma f blöðum, — og tveir nú síðast fyrir nokkrum dögum. Þessi orð mín eru fyrst og fremst skráð til að taka undir við þá og til að hvetja til tafarlausra aðgerða. Hér er um svo alvarlegt mál að ræða, að það er ekki hægt að láta það afskiptalaust lengur. Ég er í hópi þeirra fjölmörgu sem mælast eindregið til, að umferðarmála- stjórn borgarinnar hefji þegar harðan áróður gegn þessum ósóma i öllum fjölmiðlum. Og beri hann ekki skjótan árangur verði öllum gert kunnugt að þeir, sem staðnir verða að slíkum verknaði, hljóti þungar sektir. Það er tilgangslaust að taka ósómann vettlingatökum. Skemmtigarð undir þaki Ómar Ólafsson skrifar: Moskva hefur Kremlarmúra og Margar borgir hafa mikið að- grafhýsi Lenins, New York Frels- dráttarafl fyrir ferðamenn, isstyttuna og París Eiffelturninn. Því ættum við ekki að byggja eitthvað, sem vekti athygli víða um lönd? Ohófsamir rík- isstarfsmeim Borgfirðingur skrifar: Á ferðalögum mínum til út- landa verð ég iðulega samferða ýmsum ríkisstarfsmönnum og nefndarmönnum sem eru að ferðast á vegum ríkisins. Þessir menn virðast mest ferðast á „business-class“-farrými og virðast því ekki sækjast eftir að ferðast á afsláttarkjörum eins og flestir annars myndu gera ef þeir þyrftu sjálfir að grtiðn ferðakostnaðinn. Nú veit ég ekki af hverju þetta stafar eða í hve miklum mæli þetta er. Ég vona bara að þetta sé ekki eingöngu bruðl með skattpeningana mína eða eitthvert stærilæti. Mér þætti vænt um ef fjár- málaráðuneytið gæti gefið mér skýringar á þessu. i Við gætum gert skemmtigarð með tívolí undir þaki, þar sem væru sígrænir runnar, gosbrunn- ar, gangstígar og grænir grasbal- ar. Við undirbúning mætti taka til fyrirmyndar fallegustu hallar- garða Indlands, Japan og Kína og Versalagarða. Þannig mætti sam- eina það besta og fallegasta undir cinu glerþaki. Þar gæti fólk hist og eytt saman helgum sumar og vetur á meðan börnin leika sér í leiktækjum. Erlendir ferðamenn myndu einnig koma um langan veg til að sjá slíkan garð ef vel tækist til. Ég vildi gjarnan að fleiri létu skoðun sina í ljós, séu þeir sama sinnis og ég. Kostnaður við þetta verður auðvitað mikill, en við erum ekki svo fá að við kljúfum það ekki.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.