Morgunblaðið - 09.11.1984, Side 59
MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1984
59
iftk^AKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
nVD.'
Mótmælum verkfalli og prófum
PJS.G. skrifar:
Mig langar til að koma nokkrum
orðum á framfæri varðandi verk-
fall BSRB-manna. Verkfallið hef-
ur bitnað á miklu fleirum en
BSRB-mönnum eingöngu, t.d.
kemur það hræðilega illa niður á
krökkum, sem eru í skóla. Þar á
meðal eru þeir, sem ætla að taka
stúdentspróf eða eru í háskóla og
síðast en ekki síst þeir, sem nú
eiga að taka samræmd próf 9.
bekkjar.
Vegna þess að sífellt er verið að
heimta meira og meira og staðið
er í löngum verkföllum, þá geta
BSRB-menn eyðilagt framtíð
margra sem eru nú í 9. bekk og
þurfa að þreyta þessi svonefndu
samræmdu próf, sem gera hvern
mann hreint og beint brjálaðan og
stressaðan. Mig langar til að
hvetja þá sem eru í 9. bekk um
land allt til að láta nú heyra í sér
og mótmæla þessu verkfalli kenn-
ara og einnig þessum hroðalegu
samræmdu prófum, sem gera ekk-
ert gagn, en geta hins vegar eyði-
lagt framtíð manns.
Þessir hringdu ..
Endursýnum
Gretti og Allen
7010—9174 hringdi og hafði
eftirfarandi að segja:
Mig langar til að taka undir
beiðni „stúlku við Gautland",
sem fyrir skömmu mæltist til
þess í Velvakanda, að teikni-
myndir um köttinn Gretti yrðu
sýndar í sjónvarpinu. Mér finnst
Grettir mjög skemmtilegur og ef
það er rétt, sem ég hef heyrt, að
ekki hafi verið gerðir fleiri sjón-
varpsþættir með honum en þeir
tveir sem sýndir hafa verið hér,
þá mætti a.m.k. endursýna þá.
„Stúlka við Gautland" sagði
einnig, að sér fyndist rétt að þeir
Gísli Rúnar, Laddi og Sigurður
Sigurjóns gerðu áramótaskaupið
og þar er ég aftur sammála
henni. Að lokum langar mig til
að koma þeirri áskorun á fram-
færi til sjónvarpsins, að endur-
sýnd verði myndin „Take that
money and run“, með Woody
Allen í aðalhlutverki.
Golden Gate
eöa Watergate?
0550—2292 hringdi:
f morgunútvarpinu á miðviku-
dagsmorgun heyrði ég ummæli,
sem mig langar mikið til að fá
skýringar á. Stjórnandi þáttar-
ins var að ræða við einhvern
en allt í einu heyrði ég að hann
kynnti Golden Gate-kvartettinn,
„sem stundum er kallaður Wat-
ergate-kvartettinn", eins og
hann orðaði það. Ég og fleiri er-
um miklir aðdáendur Golden
Gate-kvartettsins og vildum
gjarnan fá skýringar á því hvað í
ósköpunum maðurinn átti við.
Hver þekkir kvæðið?
N.N. hringdi:
Mig langar til að fá birtan
hluta úr kvæði, í þeirri von að
einhver lesandi kannist við það
og geti frætt mig um framhald-
ið.
En það sem ég man úr kvæð-
inu er svona:
„Hvað gjörir þú mér, það gjöri
[ég þér“
svo greinir hin kalda mold
... ( H é r vantar línu)...
„þín gæfa er ég“, segir fold.
Þeir, sem kunna framhald
kvæðisins, eru beðnir um að hafa
samband við Velvakanda.
fbúa við Kambasel finnst tíraabært að hraðahindrun eins og sú, sem hér sést, verði komið fyrir við götuna, enda
er umferð þar mikil og hröð.
Hraðahindrun í Kambasel
fbúi við Kambasel skrifar:
Mig langar að koma með dálitla
ábendingu til borgaryfirvalda.
Þannig er mál með vexti, að ég á
þrjú börn og að auki eru mörg
börn búsett hér í kring, því
Breiðholtið er jú að mestu leyti
hverfi unga fólksins. En eitt er
það, sem skyggir á gleði mína yfir
börnunum mínum þremur, og það
er að ég þori varla að líta af þeim,
þegar þau eru úti að leika sér. Um
Kambasel er töluverð umferð bíla
og það sem verra er, mikill um-
ferðarhraði. Að vísu er nýbúið að
setja upp hraðahindrun við Jað-
arsel, en þegar ökumenn beygja
inn í Kambaselið, þá vilja þeir oft
auka hraðann aftur, enda er gatan
bein og nokkuð löng. Ég veit að ég
er ekki ein um þessar áhyggjur,
margar mæður hér í götunni hafa
af þessu miklar áhyggjur og ekki
síst nú, þegar skammdegi fer í
hönd og lítil börn sjást enn verr en
ella. Væri ekki hægt að ráða bót á
þessu vandamáli og það áður en
slys verður? Þarf kannski alltaf
eitthvað óhapp að verða, svo yfir-
völd taki við sér? Sýnum nú fyrir-
hyKKJu og byrgjum brunninn áður
en barnið dettur ofan í. Með því
yrði þungum áhyggjum létt af for-
eldrum í Kambaselinu.
AFCODITE
o|v«oð mjjo
tTTó/ig/tfiífiPu og smj/ttisfo^i
oð 9ðnbúð 4. (jo/iðohír.
uppó aQQo admma
káíi og sny/ittfijówustu.
Sfítt'ð inn og /isyuió vibskifitin.
TVmtoni/i í síma 43755.
*
r t
Onnnrij — Cjtifiníiii _J<:tn TíjntiqíinndóHh - PiWihcl Tv’nfncdóitiit
Tökum heim
húsgögn í allt
húsið þitt
Ttn
Líibeck
Viö höfum f verslun okkar
langmesta úrval húsgagna
á einum staö.
Þaó borgar sig þess
vegna aó iíta til okkar og
gefa sér nægan tíma til
aó skoða.
VfSA
HUSGAGNAHÖLLIN
BÍLDSHÓFÐA 20-110 REYKJAVÍK * 91-8119« OQ 81410