Morgunblaðið - 09.11.1984, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 09.11.1984, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1984 59 iftk^AKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS nVD.' Mótmælum verkfalli og prófum PJS.G. skrifar: Mig langar til að koma nokkrum orðum á framfæri varðandi verk- fall BSRB-manna. Verkfallið hef- ur bitnað á miklu fleirum en BSRB-mönnum eingöngu, t.d. kemur það hræðilega illa niður á krökkum, sem eru í skóla. Þar á meðal eru þeir, sem ætla að taka stúdentspróf eða eru í háskóla og síðast en ekki síst þeir, sem nú eiga að taka samræmd próf 9. bekkjar. Vegna þess að sífellt er verið að heimta meira og meira og staðið er í löngum verkföllum, þá geta BSRB-menn eyðilagt framtíð margra sem eru nú í 9. bekk og þurfa að þreyta þessi svonefndu samræmdu próf, sem gera hvern mann hreint og beint brjálaðan og stressaðan. Mig langar til að hvetja þá sem eru í 9. bekk um land allt til að láta nú heyra í sér og mótmæla þessu verkfalli kenn- ara og einnig þessum hroðalegu samræmdu prófum, sem gera ekk- ert gagn, en geta hins vegar eyði- lagt framtíð manns. Þessir hringdu .. Endursýnum Gretti og Allen 7010—9174 hringdi og hafði eftirfarandi að segja: Mig langar til að taka undir beiðni „stúlku við Gautland", sem fyrir skömmu mæltist til þess í Velvakanda, að teikni- myndir um köttinn Gretti yrðu sýndar í sjónvarpinu. Mér finnst Grettir mjög skemmtilegur og ef það er rétt, sem ég hef heyrt, að ekki hafi verið gerðir fleiri sjón- varpsþættir með honum en þeir tveir sem sýndir hafa verið hér, þá mætti a.m.k. endursýna þá. „Stúlka við Gautland" sagði einnig, að sér fyndist rétt að þeir Gísli Rúnar, Laddi og Sigurður Sigurjóns gerðu áramótaskaupið og þar er ég aftur sammála henni. Að lokum langar mig til að koma þeirri áskorun á fram- færi til sjónvarpsins, að endur- sýnd verði myndin „Take that money and run“, með Woody Allen í aðalhlutverki. Golden Gate eöa Watergate? 0550—2292 hringdi: f morgunútvarpinu á miðviku- dagsmorgun heyrði ég ummæli, sem mig langar mikið til að fá skýringar á. Stjórnandi þáttar- ins var að ræða við einhvern en allt í einu heyrði ég að hann kynnti Golden Gate-kvartettinn, „sem stundum er kallaður Wat- ergate-kvartettinn", eins og hann orðaði það. Ég og fleiri er- um miklir aðdáendur Golden Gate-kvartettsins og vildum gjarnan fá skýringar á því hvað í ósköpunum maðurinn átti við. Hver þekkir kvæðið? N.N. hringdi: Mig langar til að fá birtan hluta úr kvæði, í þeirri von að einhver lesandi kannist við það og geti frætt mig um framhald- ið. En það sem ég man úr kvæð- inu er svona: „Hvað gjörir þú mér, það gjöri [ég þér“ svo greinir hin kalda mold ... ( H é r vantar línu)... „þín gæfa er ég“, segir fold. Þeir, sem kunna framhald kvæðisins, eru beðnir um að hafa samband við Velvakanda. fbúa við Kambasel finnst tíraabært að hraðahindrun eins og sú, sem hér sést, verði komið fyrir við götuna, enda er umferð þar mikil og hröð. Hraðahindrun í Kambasel fbúi við Kambasel skrifar: Mig langar að koma með dálitla ábendingu til borgaryfirvalda. Þannig er mál með vexti, að ég á þrjú börn og að auki eru mörg börn búsett hér í kring, því Breiðholtið er jú að mestu leyti hverfi unga fólksins. En eitt er það, sem skyggir á gleði mína yfir börnunum mínum þremur, og það er að ég þori varla að líta af þeim, þegar þau eru úti að leika sér. Um Kambasel er töluverð umferð bíla og það sem verra er, mikill um- ferðarhraði. Að vísu er nýbúið að setja upp hraðahindrun við Jað- arsel, en þegar ökumenn beygja inn í Kambaselið, þá vilja þeir oft auka hraðann aftur, enda er gatan bein og nokkuð löng. Ég veit að ég er ekki ein um þessar áhyggjur, margar mæður hér í götunni hafa af þessu miklar áhyggjur og ekki síst nú, þegar skammdegi fer í hönd og lítil börn sjást enn verr en ella. Væri ekki hægt að ráða bót á þessu vandamáli og það áður en slys verður? Þarf kannski alltaf eitthvað óhapp að verða, svo yfir- völd taki við sér? Sýnum nú fyrir- hyKKJu og byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í. Með því yrði þungum áhyggjum létt af for- eldrum í Kambaselinu. AFCODITE o|v«oð mjjo tTTó/ig/tfiífiPu og smj/ttisfo^i oð 9ðnbúð 4. (jo/iðohír. uppó aQQo admma káíi og sny/ittfijówustu. Sfítt'ð inn og /isyuió vibskifitin. TVmtoni/i í síma 43755. * r t Onnnrij — Cjtifiníiii _J<:tn TíjntiqíinndóHh - PiWihcl Tv’nfncdóitiit Tökum heim húsgögn í allt húsið þitt Ttn Líibeck Viö höfum f verslun okkar langmesta úrval húsgagna á einum staö. Þaó borgar sig þess vegna aó iíta til okkar og gefa sér nægan tíma til aó skoða. VfSA HUSGAGNAHÖLLIN BÍLDSHÓFÐA 20-110 REYKJAVÍK * 91-8119« OQ 81410
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.