Morgunblaðið - 11.11.1984, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 11.11.1984, Qupperneq 1
128 SÍÐUR 220. tbl. 71. árg. SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins 150 þjóðir heita þátttöku í Seoul Mexíkóborg, 10. nóvember. AP. RÚMLEGA 150 ríki, þ. á m. Sovétrík- in, afhentu Alþjóðaólympíunefndinni undirritad skjal þar sem því var heit- ið að sKkja sumarólympíuleikana í Seoul í Suður-Kóreu 1988. Nefndarmaður sagði að skjalið væri þó engin trygging fyrir því að ólympíulið ríkja sætu ekki heima eins og á sl. sumri þegar Sovétríkin og 14 fylgiríki þeirra mættu ekki til leiks í Los Angeles. Þegar nær drægi gætu þau t.d. ákveðið að sitja heima þar sem þau teldu öryggi íþróttamannanna ekki tryggt. Fjarvera Sovétmanna og fylgi- ríkja þeirra frá ólympíuleikunum í sumar var að allra áliti í hefnd- arskyni fyrir fjarveru margra tuga ríkja frá Moskvuleikunum 1980. I skjalinu, sem undirritað var af öllum þátttökuþjóðum í fundi al- þjóðasambands ólympíunefnda er lauk í Mexíkó í vikunni, voru sér- stök tilmæli til skipuleggjenda leikanna i Seoul um „ráðstafanir til að tryggja eðlilega framkvæmd leikanna“. Chile: Pinochet herðir tökin Santiago, Chile. 10. nóvember. AP. LEYNILÖGREGLAN í Chile greip til harkalegra aðgerða í dag, réðist inn á skrifstofur tveggja verkalýðshreyf- inga, handtók 17 starfsmenn og lagði hald á plögg og pappíra. Þar með hafa 90 manns verið handteknir síðustu Ættingjar tíbetska „snjómanns- ins“ fundir? New York, 9. nóvember. AP. BANDARÍSKUR mannfræðipró- fessor, dr. Grover Krantz, heldur því fram, að í hinum torfæru skóg- um í norðvesturhluta Bandaríkj- anna sé að finna nokkur þúsund ættingja tíbetska „snjómannsins". Sl. 15 ár hefur prófessorinn leitaö að þessum loðnu 2,15 m háu og að þvi er talið er 100 kg þungu verum, sem ganga undir nafninu Sasquatch eða Stórfótur. Vísbendingarnar eru fjölmarg- ar, t.d. ljósmyndir, en flestar hafa þær reynst falsaðar eða myndatakan verið á misskilningi byggð. Fyrir nokkrum árum henti það einn skógarvarðanna i þjóðgarði einum i Washing- ton-ríki, að hann stóð allt i einu augliti til auglitis við eina af þessum verum. Það varaði svo sem i hálfa mínútu, og síðan hlunkaðist hún á brott. Sérfræð- ingar voru kallaðir til, og gátu þeir tekið mót af fótsporunum. dagana, eða eftir að Augosto Pino- chet setti herlög í landinu. 10 hinna handteknu voru gómað- ir á skrifstofu námuverkamanna, hinir 7 hjá samtökum sem eigi voru nafni gefin, en bæði verkalýðsfé- lögin eru stýrð af Marxistum. Stjómvöld hafa aðeins handtekið Marxista i aðgerðunum, en látið af- skiptalausa félaga i hinu 6-flokka stjórnarandstöðubandalagi, en það skipa ekki kommúnistar. Þó hafa forsvarsmenn samtakanna for- dæmt ákvörðun Pinochets að setja á herlög og svarið að berjast gegn þeim. Pinochet hefur látið hafa eft- ir sér að allt sé þetta gert til þess að lýðræði megi komast sem fyrst á í landinu. Morgunblaðið/Gunnar Berg Hressir Akureyrarsnáðar að leik í snjónum nyrðra í vikunni. í gær var á Akureyri jörð alþakin þéttum snjó. Þá spáði veðurstofan góðu veðri sunnan heiða, með smáskúrum til landsins, og hægviðri og þurru til landsins fyrir norðan en dálitlum slydduéljum á annesjum. Hörð átök í E1 Salvador Suchitoto, 10. nóvember. AP. HÖRÐUSTU bardagar í fimm mánuði áttu sér stað í borginni Suchitoto, sem stjórnarherinn hef- ur á valdi sínu og er hernaðarlega mikilvæg. Öflugur liðsauki var fluttur flugleiðis til borgarinnar þar sem skæruliðar létu til skarar skríða árla á föstudag, og þegar bardögum linnti eftir 11 stunda rimmu, lágu a.m.k. 120 manns í valnum og yfir 30 særðust Borgin er síðasta vígi stjórn- arhersins á landsvæði sem skæruliðar hafa að mestu leyti á sínu valdi. Búa þar um 2.000 manns, flestir þeirra flóttamenn undan hörmungum borgara- stríðsins, sem staðið hefur í fimm ár. Útvarp skæruliða sagði þá hafa nánast yfirbugað lög- reglu og borgaravörð í gærmorg- un og hafið árásir á stöð hersins við miðborgina, en um það leyti barst öflugur liðsauki á þyrlum. Skæruliðar kváðust hafa grandað þremur þyrlum og lask- að fjórar, en talsmaður hersins vísaði því á bug, sagði aðeins tvær þyrlur hafa laskast. í til- kynningu stjórnarhersins sagði að „rúmlega 100“ skæruliðar hefðu verið felldir, en tölur um mannfall eru óljósar, að sögn borgarbúa og hermanna. Vam- armálaráðuneytið sagði 20 her- menn hafa fallið og 32 særst. Bandaríkjamenn nú í vafa um tilvist MIG-þotanna Öryggisráð SÞ ræðir málið og Nicaraguabúar búa sig undir stríð Gervihnetti komið á braut hnökralaust Houston, 10. nóvember. AP. Geimfararnir um borð f geimferj- unni Discovery komu kanadískum gervihnetti á hraut um jörðu og tókst framkvæmdin vel. f dag koma þeir öðrum gervihnetti, talsvert stærri, á braut. Á mánudag á geimferjan stefnu- mót við tvo fjarskiptagervihnetti, sem fyrirhugað er að flytja til jarð- ar vegna bilunar. Gervihnöttum hefur ekki áður verið „bjargað" úti í geimnum og þeir fluttir til jarðar. Viðgerð hefur hins vegar farið fram á einum hnetti á braut um jörð, Sol- ar Max. SanU Barbara, Kaliforníu, Managua og vídar. 10. HÁTTSETTIR bandarískir embætt- ismenn sögðu í dag, að Bandaríkja- stjórn vantaði óyggjandi sönnunar- gögn fyrir því að sovéska flutninga- skipið sem liggur við bryggju í Cor- into hafi í raun og veru fært sandin- istum 12 MIG-herþotur af sovéskri gerð, eins og áður hafði verið látið liggja að. Þá er sú skoðun komin upp hjá ýmsum sérfræðingum nóvember. AP. bandarísku leyniþjónustunnar, að þaö hafl í raun aldrei verið MIG- þotur um borð, aðeins veigaminni vígvélar þess eðlis að Bandaríkjunum stafar ekki hætta af þeim eins og um MIG-þotur hefði verið að ræða. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fjallaði um Nicaragua-málið í dag að beiðni sandinista sem telja ör- uggt að Bandaríkin séu í þann mund að ráðast á land sitt. ónafngreindur embættismaður í Washington sagði að þegar skoðuð væri gervitunglamynd af skipinu og þeim gámum sem uppskipaðir hefðu verið, virtist útilokað að 12 þotur gætu enn verið um borð, „kannski örfáar, en aldrei 12 stykki, líkurnar á því að herþotum- ar séu i skipinu fara því óðum þverrandi," sagði hann. Émbættis- maðurinn sagði að gervitungl hefði náð mynd af 12 gámum sem Banda- ríkjamenn töldu að innihéldu MIG-þotur, er flutningaskipið var í höfn í Svartahafinu fyrir mánuði síðan. Voru gámarnir á hafnar- bakkanum. Síðan olli skýjaþykkni því að ekki var unnt að fylgjast með hvað fram fór, en er aftur létti til, voru gámarnir horfnir og skipið lagt af stað til Corinto. Sandinistar segja allt i háalofti heima fyrir, þar sé almenningur óðum að búa sig undir bandaríska innrás. 200.000 manna varalið hef- ur verið ræst út og einstaklingum þess afhentir gamlir rifflar. Blóð- banki landsins er í herferð til að byrgja sig upp fyrir átökin, verið er að skipuleggja barnagæslu, grafa skotgrafir og flýta kaffiuppsker- unni. Segja sandinistar njósnavél- ar Bandaríkjamanna sifellt rjúf- andi lofthelgi sina og hersveitir þeirra séu að koma sér fyrir þar sem strandhöggið eigi að hefjast. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur fjallað um málið að beiðni sendiherra Nicaragua, Javier Chomorro, en fundi var frestað eft- ir talsverðra umræður. í þeim um- ræðum hélt Chamorro öllu fram- anskráðu fram um ástandið heima fyrir og neitaði með öllu að MIG- þotur hefðu verið um borð í skip- inu. Sendiherra Sovétríkjanna, Oleg Troyanovski, sagði Banda- ríkjamönnum að þeir skyldu halda sig á mottunni, það hafi engar MIG-þotur verið fluttar til Nicar- agua. Bandaríkjamenn hjá Sam- einuðu þjóðunum hafa sagt innrás- artal andstæðinga sinna „skáld- skap“. Hins vegar hefur Jesse Jack- son, blökkumannaleiðtoginn sem keppti við Walter Mondale um út- nefningu sem forsetaefni Demó- krataflokksins, iýst yfir að Reagan hafi áform um innrás í Nicaragua á prjónunum. „Hann er að skapa andrúmsloft sem myndi réttlæta innrás með ásökunum um MIG- þotur í Nicaragua," sagði Jackson nýlega í viðtali.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.