Morgunblaðið - 11.11.1984, Síða 9

Morgunblaðið - 11.11.1984, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984 9 HUGVEKJA eftir séra Guðmund óskar ólafsson „Hefjið upp augu yðar og lítið á akrana." (Jóh. 4:34.) Þessu boði hafa kristnir menn sinnt um aldir, þeir hafa vitað til þeirra mörgu um ver- öld víða, sem aldrei höfðu heyrt Jesúm Krist nefndan. Frá því í árdaga kristninnar barst fagnaðarerindið um lönd og álfur með þeirri aðferð einni, að sendiboðar lögðu af stað og vörðu dögum sínum til þess að boða, skíra, hjálpa, lækna og kenna eins og Krist- ur hafði sagt fyrir um. Við vorum minnt á það í myndaflokki í sjónvarpinu á þriðjudagskvöldið var, að margt fór verr en skyldi þegar hvítir menn á öldum áður fóru eins og logi um akur i Afríku. Kristniboðar ýmist ruddu braut eða fylgdu í kjölfar her- manna, prangara og kúgara og voru reyndar ekki saklausir ætíð sjálfir af voðaverkum og fordómum. Þeir voru börn síns tíma og fluttu með sér bæði fagnaðarboðskapinn og einnig menningaráhrif og skoðanir sem stundum þyrmdu ekki því sem fegurst var í arfi þeirra sem þeir heimsóttu. En þrátt fyrir það er sú söguskoðun fölsun, hvort heldur í máli eða myndum, sem skýtur undan því, sem til ómælanlegrar blessunar varð úr starfi kristniboðanna, því umfram allt voru þeir boðendur, full- trúar Krists, sem vildu flytja gleðitón inn í myrka tilveru og gerðu það i óendanlega mörg- um tilvikum, þó að tíðarand- inn þá gerði oft góða ætlan að óhæfu. Við heyrðum einnig ný- verið að biskup í Suður-Afríku fékk friðarverðlaun Nóbels. Kristin áhrif eru nú víða ríkj- andi í álfunni, sem máttur í barmi alþýðu sem forsvars- manna til kröfu um réttlæti og frelsi. Og enn þann dag í dag eru kristniboðar að verki í marghrjáðum löndum Afríku við að boða líknarorð Krists og við að sýna það í verki til mett- unar og hjúkrunar. Kirkja ís- lands vill styðja þetta starf og á hennar vegum er einnig hjálparstarf unnið í Eþíópíu í dag og annars staðar á morgun þar sem þörfin reynist mest, því þetta tvennt að verða að liði og votta kærleika Guðs með Orðsins boðan hefur hald- ist í hendur frá því að Jesús sagði: Skírið, hjálpið, kennið. Auðvitað er okkur í lófa lagið að yppta öxlum og segja: Lát- um kristniboð eiga sig, látum séihvern sælan sitja og vera í sinni trú án afskipta okkar. En víst er það, að ef við tök- um slíka afstöðu, þá erum við jafnframt að lýsa því yfir að við höfum sjálf ekkert að þakka fyrir í kristinni arfleifð, að það hefði verið rétt sama hvað forfeðurnir fengu til næringar og geymdar fyrir 1000 árum. Við höfum þá gleymt því sem Tómas Guð- mundsson kvað: Syng Guði dýrð, syng Drottni þökk vor þjóð að það var hann, sem leiddi þig ... En Tómas leit ekki einungis til baka, hann leit einnig á nútíðina og fram á við og hann áleit að í þökkinni fælist ódeig hvöt og ætlan til að biðja hinn sama Drottin að leiða alla menn um veröld víða, því að Kristur ætti sama erindi hvarvetna, þar sem nú einu sinni hjörtum manna svipaði saman bæði í Súdan og Grímsnesinu. Vor kynslóð stendur enn við opna gröf og enn sem fyrr um leiðsðgn yfir harmsins trylltu höf hún hrædd og felmtruð spyr. Bn ofar dauða og kvöl rís krossinn enn sem Kristur ber. Og sjá, hann knýr og kallar alla menn að koma og fylgja sér. ... Og megi kirkjan koma og lýsa þeim að krossi hans, sem þrá að líkna og leiða þjáðan heim að lindum kærleikans. Kristur sagði við lærisveina sína: Farið, skírið, læknið, kennið. Það hefur síðan verið sem frumhvöt fjölda kristins fólks að fylgja þessu boði, til þess að leiða þjáðan heim að lindum kærleika Krists. Það hefur þá verið álitið að ekki væri sama hvað þjóðir og álfur hefðu til átrúnaðar, að það varðaði meira en nokkru hvað „menningin" og sendiboðar hennar hefðu í fórum sínum þegar samskipti væru upp tek- in við einangraðar þjóðir og þjóðabrot. Ef að kristinn boðskapur er ekki á boðstólum, þá skulum við minnast þess að annað efni er ríkulega í boði oft á tíðum, fyrir þann mikla múg um veröld víða, sem aldr- ei hefur heyrt um Krist, enda býsna stór hópur sem bætist við án afláts, þar sem lætur nærri að jafn margir fæðist daglega og nemur fjölda allra íslendinga. Það kann að vera að við eig- um erfitt að meta það og vega hvað við höfum þegið að arfi úr kristinni fóstran í þessu landi, en vist er að við værum önnur þjóð, annað fólk en við erum, ef að hingað hefðu ekki komið kristniboðar í árdaga byggðar. Þeir sem telja það dýrmætari gjöf en allt annað sem hlotnast hefur að við skul- um hafa fengið að þekkja Guð fyrir Jesúm Krist, þeir hafa ætíð átt með sér löngun til þess að veita þá sömu gjöf áfram til þeirra, sem hana skortir og því hefur verið stundað héðan kristniboð nokkuð lengi. Þessa minnumst við á kristniboðsdegi. Og við þökkum það að fyrir fórnfýsi d a g u r og elju íslenskra aðila hefur þúsundum verið hjúkrað, véitt læknishjálp, kennt að lesa og hafa um hönd sóttvarnir með- al framandi þjóða og umfram allt verið losað úr helfjötrum ótta með því að fræða um kærleika Guðs. Já, við skulum þakka fyrir að við höfum átt kristniboða sem hafa farið og skírt, læknað og kennt og þjón- að með auðmýkt og elskusemi. Við skulum hlúa að slíku starfi. Það er víst, að unnt er að finna veika bletti á kristni- boði eins og flestu öðru, sem mennirnir framkvæma, en Guð velur sér ekki verkfærin af því að þau séu fullkomin, heldur skýitur þeim í brjóst vilja til þess að gera sem þau geta til að kunngera ætlan hans og ósk. Svo segir í ljóði af blökkum vörum, þegar kristni- boði einn var kvaddur í Afríku: Herra, vér þökkum þér hann. Hann var þinn auðmjúki sonur og okkur bróðir. Hann predikaði á tungu okkar og sat á meðal okkar í rjóðrunum ... Hversu hefur þú blessað okkur í þessum manni Drottinn. Hann lifði í náð þinni og kallaði til okkar: Snúið ykkur til hins lifandi Guðs. Við skulum styrkja þá sem vinna til slíks vitnisburðar á akrinum. Við skulum biðja þess að æ fleiri leggi hönd að í hörðum heimi, að Kristur megi fyrir trú í hjörtum búa, að sem víðast megi þeir orðsmiðir upp rísa er geta talað fyrir fjöld- ann og sagt, sem Tómas: Syng Guði dýrð, syng Drottni þökk vor þjóð að það var hann, sem leiddi þig. Kristniboðs Nýjasta í sólbööum! Nú bjóöum viö upp á 28 peru Solana Super sólarbekki meö spegla- perum, lágmarks B-geislun. • Úrval af sólkremum • Kreditkortaþjónusta Veriö velkomin ÆSUFEUJ4,(garömegin>,SlMI71050 • Góö aöstaöa • Rúmgóö sauna Boots-snyrtívörur Opiö alla daga Sk/^IÐSTOÐ VERÐBREFA- VIÐSKIPTANNA „Fyrir þaiui KJÖR BÓK Há- vextir Tromp Bónu§ Dttpcrcray E % sem ckki veit sitt rjuk- andi ráð i frumskógi spamaðartilboða. • — Hann leggur leið sína í gegnum frurn- skóginn beint inná Verðbréfamarkað Fjárfestingarfélagsins. SÖLUGENGIVERÐBRÉFA 12. nóvember 1984 Sparitkírteini og happdrættislán ríkissjóða Veóskuldabréf — verðtryggö Ar-llokkur Sölugengi pr. kr. 100 Avöxtun-1 arkrafa I Dagafjöldi tii innl.d. 1971-1 16.626,04 Innlv. i Seölab. 15.09.84 1972-1 15.065,47 8,60% 73 d. 1972-2 12.020,98 Innlv. í Seölab. 15.09.84 1973-1 8.692.68 Innlv. i Seölab. 15.09.84 1973-2 8.294,48 8.60% 73 d. 1974-1 5.269,57 Innlv. i Seölab. 15.09.84 1975-1 4.570,05 8,60% 58 d. 1975-2 3.399,08 8,60% 73 d. 1976-1 3.101,23 8,60% 118 d. 1976-2 2.544,49 8.60% 73 d. 1977-1 2.242,21 8,60% 133 d. 1977-2 1.903.77 Innlv. i Seölab 10.09.84 1978-1 1.520,22 8,60% 133 d. 1978-2 1.216,22 Innlv. i Seölab. 10.09.84 1979-1 1.034,53 8,60% 103 d. 1979-2 792,90 Innl.v í Seölab. 15.09.84 1980-1 680,52 8,60% 153 d. 1980-2 518,11 8,60% 343 d. 1981-1 436,80 8,80% 1 ár 73 d. 1981-2 316,29 8,80% 1 ár 333 d. 1982-1 315,07 8,60% 109 d. 1982-2 229,28 8,60% 319 d. 1983-1 174,09 8,80% 1 ár 109 d. 1983-2 109,66 8,80% 1 ár 349 d. 1984-1 106,03 9,00% 2 ár 79 d. 1984-2 99.81 9,00% 2 ár 298 d. 1974-E 4.134,04 10,00% 19 d. 1974-F 4.134,04 10,00% 19 d. 1975-G 2.586,90 10,00% 1 ár 19 d. 1976-H 2.362,65 10,00% 1 ár 138 d. 1976-1 1.782,10 10,00% 2 ár 18 d. 1977-J 1.576,28 10,00% 2 ár 139 d. 1981-1. fl. 342,05 10,00% 1 ár 169 d. Lánsl. Nafn Sölugengi m.v. 2 afb vextir mlsm. ávöxtunar,- áári HLV kröfu 14% 16% 18% \ 1 ár 7% 96 94 93 2 ár 7% 93 91 89 3 ár 8% 92 89 87 l 4 ár 8% 90 87 84 • 5 ár 8% 88 85 8i 6 ár 8% 86 83 79 : 7 ár 8% 85 81 77 8 ár 8% 84 79 75 1 9 ár 8% 82 77 73 I 10 ár 8% 81 76 72 1 Veðskuldabréf — óverðtryggð Lánst. Sölugengi m.v. 1 afb. é éri I 2 afb é érl 20*4 28% 20% 28% Spariskírteini ríkissjóðs, verötryggö veöskuldabróf, óverötryggö veöskuldabréf óskast á söluskrá. Daglegur gengisútreikningur Verðbréfamarkaóur Fjárfestingarfélagsins Lækjargötu12 101 Reykjavik lónaóarbankahúsinu Simi 28566

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.