Morgunblaðið - 11.11.1984, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. KÓVEMBER 1984
Akranes:
Nýjar sjálfseignaríbúðir fyrir-
aldraða teknar í notkun
Akranesi, 7. nóvember.
FYRSTII sjálfseignaríbúðirnar fyrir aldraða á Akranesi hafa nú verið afhent-
ar eigendum sínum. Alls hafa 10 íbúðir verið afhentar og standa þær á lóð
dvalarheimilisins Höfða. Á þeirri lóð er fyrirhugað að byggja alls 26 íbúðir og
hefur þegar verið samið um byggingu 10 íbúða til viðbótar sem eiga að
afhendast að ári liðnu.
Eins og kunnugt er, er eitt aðal-
markmið hinna nýju laga um mál-
efni aldraðra það, „að aldrað fólk
geti sem lengst búið eðlilegu heim-
ilislífi". 1 samræmi við þessi lög
hafði Dvalarheimilið Höfði, sem
er í eigu Akraneskaupstaðar og
hreppanna sunnan Skarðsheiðar,
forgöngu um að reisa þessar íbúð-
ir, sem eru raðhús og sérstaklega
hönnuð og reist fyrir aldraða og
öryrkja. Annað aðalmarkmiðið
með byggingu þessara fbúða er að
gefa íbúum þeirra kost á að búa i
sem nánustum tengslum við dval-
arheimilið og hafa þannig aðgang
að félagslegri þjónustu sem heim-
ilið hefur upp á að bjóða.
Kaupandi sjálfur annast alla
fjármögnun byggingarfram-
kvæmda að öðru leyti en því að
dvalarheimilið sá um lántökur frá
Húsnæðismálastofnun rikisins
fyrir þá sem þurftu þess með, en
húsnæðismálastjórn samþykkti að
veita framkvæmdalán til þessara
framkvæmda, þ.e. kr. 413.000 til
hverrar íbúðar, að öðru leyti gekk
fjármögnun þannig fyrir sig að
kaupendur, sem flestir áttu ibúðir
hér á Akranesi, seldu þær og létu
andvirðið renna til þessara íbúða-
kaupa. Voru i upphafi vissar efa-
semdir um að fólk kynni að lenda í
vandræðum með fjármögnun á
vissu stigi framkvæmdanna en
reyndin varð önnur og öll fjár-
mögnun gekk farsællega fyrir sig.
REYKLAUS
OSKUBAKKI
Aöeins
kr. 499.-
Innstunga fyrlr rafmagn
Haldiö andrúmsloftinu hreinu
Reyftur sogast Inn
Hreínt loft kemur út
Losniö viö hvimleiöan
reyk á heimilinu og skrif-
stofunni.
Hljóölátur mótor ösku-
bakkans dregur tóbaks-
reyk og ólykt í gegnum
tvöfalda siu og herberg-
iö veröur ánægjulegri
vistarvera.
Öskubakkinn er bæöi
fyrir rafmagn og rafhlööur.
Nauösynlegur hlutur á hverju heimili og vinnustaö
Vinsamlegast sendiö mér
eftirfarandi
Nafn:
Heimili:
Póstnr./staöur:
□ stk. reyklausa(n)
öskubakka kr.
□ stk. Aukafilter kr.
□ sett (2 stk.)
Rafhlööur kr.
□ Hjálögð greiðsla kr.
(ekkert póstburöargjald)
□ Sendist í póstkröfu
(póstkröfukostn. kr. 63,50)
45,-
SENDIST TIL:
PÓSTVERSLUNIN PRÍMA, PÓSTHÓLF 63,
222 HAFNARFJÖRÐUR SÍMI 91-54943
Endanlegt verð þessara íbúða
liggur ekki fyrir, en lausleg áætl-
un á verði er frá kr. 1.250.000 til
kr. 1.450.000 eftir stærð. Þetta
verð miðast við að íbúðirnar séu
að öllu leyti frágengnar bæði inn-
anhúss og utan og lóð frágengin.
Nokkrir aðilar hafa notfært sér
heimild til að láta byggja bifreiða-
geymslur við hús sín. Bifreiða-
geymslurnar eru byggðar óháð
byggingu íbúðanna.
Tryggt er í reglugerð að íbúðir
þessar skuli ávallt vera f eigu
aldraðra eða öryrkja. Eins og áður
segir njóta íbúar húsanna ákveð-
innar þjónustu frá dvalarheimil-
inu, eftir samþykktum stjórnar.
Húsin verða tengd dvalarheimil-
inu um neyðarkallkerfi. íbúar
skulu eiga kost á dagvistun og
þátttöku í öðru félagsstarfi, sem
fram fer á heimilinu, svo sem
kvöldvökum eða öðrum samkom-
um. Þátttaka í iðjuþjálfun og ann-
arri endurhæfingu, hár- og fót-
snyrtingu o.fl. stendur íbúum til
boða. Þá verður stefnt að því að
þeir sem á þurfa að halda geti
Sjálfseignaríbúðir aldraðra í landi Höfða.
HorgunblaAið/Jón Gunnlaugsson.
fengið þveginn þvott, keypt mat
svo nokkuð sé nefnt. En þau atriði
eru háð því skilyrði að dvalar-
heimilið sé fært um að veita slíka
þjónustu. Aðgangur að bókasafni
heimilisins og sölubúð sjúkravina
mun verða heimill auk þátttöku í
opnu húsi.
Dvalarheimilið Höfði er sjálfs-
eignarstofnun og eru vistmenn
alls 50 og búa þeir 1 litlum ein-
staklingsíbúðum 28—43 m’. Heim-
ilið var tekið í notkun 1978 og enn
sem komið er hefur aðeins fyrsti
áfangi þess verið reistur. Mjög
brýnt er að hefjast handa við
framkvæmdir annars áfanga, en
LITGREINING MEÐ
CROSFIELD
540
LASER
LYKILLINN AÐ VANDAÐRI LITPRENTUN
hann gerir ráð fyrir byggingu
eldhúss, sameiginlegs matsalar,
auk vistrýmis fyrir 25—30 íbúa, en
biðlisti eftir vist er langur, um
50—60 manns eru nú á biðlista.
Verkfræði- og teiknistofan sf. sá
um hönnun og teikningar þessara
nýju íbúða annarra en raf-
teikninga sem Ellert Ingvason og
Hörður Ragnarsson sáu um. Upp-
hafleg kostnaðaráætlun við bygg-
ingu þessara tíu íbúða var kr.
15.700.000. Verkið var boðið út og
bárust 7 tilboð og var lægsta til- ■
boði tekið, sem var frá Trésmiðju
Guðmundar Magnússonar Akra-
nesi, hljóðaði það upp á kr.
10.500.000 sem er nærri 67% af
áætlun. Rafmagnsvinnu annaðist
Sigurdór Jóhannsson rafvirkja-
meistari. Múrverk var í höndum
Knúts Bjarnasonar múrarameist-
ara. Málningarvinnu önnuðust
Málningarþjónustan hf. og Rík-
harður Jónsson og frágang lóðar
Sigurður Gunnarsson. Ohætt er að
segja að almenn ánægja sé með
þessa tímabæru framkvæmd og
eiga þeir aðilar sem að henni
stóðu á einn eða annan hátt mikl-
ar þakkir skildar.
JG
Diamant
UJ Uy
)g7///g>9j
Hvít matar- og kaffistell úr þunnu, níðsterku postulíni í
hæsta gæöaflokki.________________________________________
Einföld, formfögur hönnun._______________________________
Sænskt listahandbragö eins og þaö gerist best.
Þolir þvott í vél, springur
ekki né kvarnast.
Hagstættjverö.
Póstsendum
Kosta Boda
Bankastræti 10 — Sími 13122