Morgunblaðið - 11.11.1984, Side 36

Morgunblaðið - 11.11.1984, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984 37 Pftr|SPMa Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Askrift- argjald 300 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 25 kr. eintakiö. Frjáls samkeppni og frjáls verzlunarálagning w Ifrægri þingræðu Hjörleifs Guttormssonar, fyrrverandi ráðherra, hélt hann því réttilega fram, að verzlunarsamkeppni á Reykjavíkursvæðinu, m.a. af hálfu stórmarkaða, tryggði fólki á því svæði mun lægra vöruverð, og þannig meiri kaupmátt, en fólk hefði í strjálbýli, sem sumt hvert byggi við eina verzlun, oftast kaupfélag. Þetta vóru sannyrði og vöktu athygli, kannski fyrst og fremst vegna þess hver talaði. Matthías Á. Mathiesen, við- skiptaráðherra, lagði sl. fimmtu- dag fram í ríkisstjórninni skýrslu, sem sýnir, að á fyrstu níu mánuðum þessa árs hækkaði framfærsluvísitala um 11%. Þar kemur skýrt fram að þær tegund- ir vöru og þjónustu, sem undan- þegnar eru opinberum verð- ákvörðunum hvað varðar há- marksverð eða hámarksálagn- ingu, hækkuðu að meðaltali minna á þessu tímabili en þær vörur og þjónusta sem lúta há- marksverði og hámarksálagn- ingu. Þeir liðir, sem háðir eru verðlagsákvæðum hækkuðu um 11%, aðrir um 9%. Mikill munur er á hækkunum einstakra vörutegunda. Matvörur hækkuðu, svo dæmi sé tekið, um 16% á þessu níu mánaða tímabili. „Frjálsu" vörurnar hækkuðu um 10% en aðrar um 28%. Allar teg- undir matvöru sem óháðar eru verðlagseftirliti hækkuðu minna en þær vörur sem bundnar eru verðlagsákvæðum. Kjöt með há- marksverði hækkaði um 25% en þær tegundir sem eru með frjálsri verðlagningu um 19%. Egg lækkuðu um 3%, en mjólk, rjómi og ostur hækkuðu um 28%. Kartöflur hækkuðu um 78% en vörur úr þeim, sem ekki falla undir ákvæði um hámarksverð, hækkuðu aðeins um 8%. Sú reynsla, sem nú iiggur fyrir, sannar óumdeilanlega, að hæfileg verzlunarsamkeppni og þroskað verðskin almennings er bezta verðlagseftirlitið. Þröngsýni og hrópyrði haftapostula, sem eink- um og sérílagi fundu farveg f Þjóðviljanum, hafa orðið sér rækilega til skammar. Verðsam- anburður, sem reglulega er birt- ur, er jákvæður, en verðlagshöft, sem lúta pólitískri miðstýringu, hafa ævinlega og undantekn- ingarlaust haft öfug áhrif við til- gang sinn. Frjáls verzlun og hagsmunir neytenda fara ótví- rætt saman. Það hefur oftlega verið undir- strikað í forystugreinum Morg- unblaðsins að lífskjör verða ekki til í samningum, heldur í verð- mætasköpun, tilurð þjóðartekna. Lífskjarabati, sem hér hefur orð- ið á liðnum áratugum, á fyrst og síðast rætur í tækni- og vélvæð- ingu atvinnuveganna, sem marg- faldaði skiptahlut þjóðarfjöl- skyldunnar. Verzlunin gegnir veigamiklu hlutverki í lífskjarasókn þjóðar- innar. Fáar þjóðir, ef nokkur, eru jafn háðar milliríkjaverzlun og við íslendingar. Lífskjör ráðast m.a. af því, hvert verð fæst fyrir útflutningsframleiðslu okkar á erlendum mörkuðum, og hve hag- stæð eða óhagstæð kaup á marg- víslegum innflutningi reynast. Hæfileg samkeppni þjónar al- mannaheill á þessum vettvangi. Það er eitt brýnasta hags- munamál okkar sem heildar í dag að skjóta nýjum stoðum undir verðmætasköpun í landinu, bæði til að tryggja atvinnu vaxandi þjóðar og bæta lífskjör, og stór- efla markaðskönnun og söluað- stöðu okkar erlendis. Viðvarandi rógur Þjóðviljans í garð íslenzkr- ar verzlunar gengur þvert á þessa hagsmuni. Þær niðurstöður sem nú liggja fyrir um verðþróun á vöru og þjónustu, sem annarsvegar eru bundnar verðlagshöftum en lúta hinsvegar lögmálum samkeppni, sýna glögglega, að síðari kostur- inn þjónar afgerandi betur hags- munum neytenda. Vegvísir til velmegunar egar Einar Guðfinnsson stofnaði til atvinnurekstrar í Bolungarvík fyrir sextiu árum var byggðarlagið fáein hús á fjörukambi. Nú búa þar 1.300 manns og hátt á fjórða hundrað vinna hjá fyrirtækjum, sem hann hefur stofnað og verið burðarás- inn í. Einar Guðfinnsson, heið- ursborgari Bolungarvíkur, er dæmigerður fyrir það framtak einstaklingsins, sem rutt hefur íslenzkri þjóð veg frá fátækt og frumbýlingshætti fyrri tíðar til framfara og velmegunar á líðandi stund. Það eru menn af hans gerð sem farið hafa fyrir samferðar- mönnum á leið þjóðarinnar til batnandi tíma. Fyrirtæki hans og sona hans eru talandi dæmi um það, hvað framtak og framsýni einstaklingsins getur gert í þágu heimabyggðar og þjóðarheildar. Einar Guðfinnsson, sem nú er 86 ára, hefur gegnum tíðina verið einn sterkasti máttarstólpi einkaframtaksins í landinu og Sjálfstæðisflokksins. í viðtali, í tilefni af sextíu ára starfsafmæli fyrirtækja hans, lýsir hann trú sinni á stefnumiðum og forystu Sjálfstæðisflokksins. Orð hans og ævistarf eru vegvísar til velmeg- unar. REYKJAVÍKURBRÉF laugardagur 10. nóvember Meybarn, sem fætt var hér á landi um miðja síð- ustu öld (1850), fékk í vöggugjöf 38 ára meðalævi- líkur. Ævilíkur sveinbarns vóru 32 ár. í dag eru sam- svarandi ævilíkur kvenna 80 ár og karla 74. Þetta er einna lengst meðalævi, sem þekkist í heiminum í dag. Það er hægt að mæla lífskjör þjóða á margs konar mælikvarða. Einn þeirra er meðalævin, sem ræðst af menntun, þekkingu, lífsháttum, mataræði, hús- næði, vinnuaðstöðu og síðast en ekki sízt heilsugæzlu og heilbrigðisþjónustu. Sá mælikvarði gefur íslenzku þjóðfélagi háa einkunn. Það er mikið talað, og ekki að ástæðu- lausu, um vaxandi kosnað við heilsu- gæzlu og heilbrigðisþjónustu hér á landi. Heilsugæzlustöðvar og sjúkrahús hafa risið vítt og breitt um landið. Stofnkostnaður þeirra er hár og rekstur þeirra krefst mikilla viðvarandi fjárút- láta. Heilbrigðisstéttir hafa vaxið að tölunni til meir en nokkrar aðrar. Mannafli heilbrigðismála taldist 1.640 einstaklingar 1963 en 6.7081979 og hafði meira en fjórfaldazt á þessu tímabili. íslendingar verja hærra hlutfalli þjóð- artekna um ríkissjóð til heilbrigðismála en flestar aðrar þjóðir. Arðsemi heilbrigðiskerfisins, sem kemur m.a. fram í færri veikindadögum og lengri starfsævi íslendinga, að ógleymdri líðan mannfólksins, verður ekki mæld á sama veg og hjá annarri starfsemi. Heilbrigðiskerfið er engu að síður hluti, og ekki sá veigaminnsti, af kviku þjóðlífsins, og almennri velferð þjóðfélagsþegnanna. Það má efalítið hagræða mörgu í heil- brigðiskerfinu, eins og hvarvetna þar sem unnið er og starfað í þjóðlífinu. Að- hald samanburðar mismunandi rekstr- arforma og samkeppni er æskilegt þar sem annars staðar. Ef hægt er að tryggja sömu eða betri þjónustu með minni tilkostnaði, þá er það vel. En þeir eru fáir, ef nokkrir, sem vilja sparnað á heilbrigði þjóðfélagsþegnanna, þ.e. lak- ari heilbrigðisþjónustu hér en kröfur standa til í þróuðum þjóðfélögum. Hjartasjúkdómar og krabbamein Ýmsir sjúkdómar, sem fyrr á tíð hjuggu stór skörð í raðir Islendinga, eru nær úr sögunni. Nægir þar að nefna berklaveikina. Aðrir hafa færzt í aukana, einkum hjarta- og æðasjúk- dómar og krabbamein ýmiss konar. Þessir sjúkdómar vega þyngst sem dán- arorsakir á líðandi stund. Það er á þess- um vettvangi sem styrkja þarf varnir heilbrigðisþjónustunnar í landinu. Heilbrigðisþjónusta, hvort heldur er innan veggja sjúkrahúsa eða á öðrum sviðum, byggist fyrst og síðast á vel menntuðum og hæfum heilbrigðisstétt- um. Þar stöndum við íslendingar fram- arlega. Það fer ekki milli mála að við eigum vel menntaðar heilbrigðisstéttir. Engu að síður verðum við að halda vel vöku okkar í þeim efnum. Á sl. 10—15 árum hefur orðið tæknibylting í heil- brigðisþjónustu hjá þróuðum ríkjum. Þar höfum við hinsvegar dregizt nokkuð aftur úr. Morgunblaðið hefur haldið því fram í forystugreinum síðustu misseri að næsta stóra verkefnið í íslenzkri heil- brigðisþjónustu — á eftir B-álmu Borg- arspítala, sem ætlað var að mæta brýnni þörf á sjúkrarými fyrir öldrun- arsjúklinga — eigi að vera K-bygging Landspítala. Sú bygging er forsenda þess að vinna upp það forskot sem aðrar þjóðir V-Evrópu og N-Ameríku hafa fram yfir okkur í tækniþróun og tækni- aðstöðu á þessu sviði. K-byggingu Landspítala er ætlað að vera miðstöð rannsókna, skurðlækninga, krabba- meinslækninga, röntgengreininga, gjör- gæzlu og háþróaðrar tækni. Haustið 1983 beitti Matthías Bjarna- son, heilbrigðisráðherra, sér fyrir endurskoðun á áætlunum um K-bygg- ingu á Landspítalalóð. Niðurstaða þeirr- ar endurskoðunar sýndi tvo kosti: 1) að húsið yrði byggt án áfangaskipta sem þýddi að krabbameinslækningadeild kæmist í gagnið eftir fimm ár, 2) að skipta byggingunni í tvo áfanga, en með því móti mátti taka deildina í notkun ári fyrr. Heilbrigðisráðherra taldi væn- legra að leggja áherzlu á síðari kostinn og reyna að ljúka við krabbameinsdeild- ina svo fljótt sem kostur væri. Sam- kvæmt þessari áætlun átti að steypa upp röskan þriðjung hússins en síðan innrétta deildina á fjórða ári fram- kvæmda. Samkvæmt frumáætlun við þennan áfanga var kostnaður talinn 123 m.kr. en kostnaður vegna tækja og bún- aðar 65 m.kr. Hætt er við að þessar tölur hækki nokkuð vegna afturkipps í verðbólguvörnum. Á fjárlögum 1984 vóru veittar 12 m.kr. til framkvæmda, sem ásamt eldri fjárveitingum var talið nægja fyrir jarðvegsvinnu vegna fyrsta áfanga. Vonir stóðu þá til að viðbótarframlag á fjárlögum 1985 yrði 23 m.kr. en síðan 30 m.kr. á ári 1986—1988, eða samtals 125 m.kr. (miðað við byggingarvísitölu 166 stig). Framkvæmdir hafa hinsvegar ekki hafizt m.a. vegna þess að ekki ligg- ur kortlagt fyrir að fjárveiting fáist á fjárlögum 1985, þó vonir standi enn til slíks. Fullt samkomulag er innan Landspítala um fyrirhugað skipulag og nýtingu hússins, og hönnun þess er þar á vegi stödd, að vel má hefja fram- kvæmdir nú þegar. K-bygging Landspítala Landspítalinn er stærsta sjúkrahús okkar, sem veitir landsmönnum öllum sérhæfða læknisþjónustu, og auk þess helzta kennslusjúkrahús landsins í tengslum við Háskóla Islands. Aðal- fyrir það, sem að framan er talið, hafa skurðstofur Landspítala um langa hríð búið við allsendis ófullnægjandi húsa- kost. I K-byggingu er hinsvegar gert ráð fyrir fullkominni skurðdeild, svæfingar- og gjörgæzludeild af svipaðri stærð og nú er á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri, en þar er aðstaða öll til fyrirmynd- ar. Á nútíma sjúkrahúsum, einkum þeim er veita sérhæfða þjónustu, byggist þjónustan að verulegum hluta á starf- semi rannsóknardeilda. Á rannsóknar- deildum Landspítala eru nú gerðar ár- lega yfir 200 þúsund rannsóknir, flestar í flóknum og vandmeðförnum rannsókn- artækjum. I þessu efni þjónar Landspít- ali fjölda sjúkrahúsa vítt um land. Rannsóknardeildir búa hinsvegar við lítið og óhentugt húsnæði sem dreift er um alla Landspítalalóð. Hér myndi K-bygging einnig leysa úr brýnni þörf. Röntgendeild Landspítala er enn að mestu í sama húsnæði og hún hóf starf- semi í fyrir 50 árum — í kjallara gamla spítalans. Heildarfjöldi rannsókna árið 1982 var langleiðina í 40 þúsund. Hér er að hluta til um sérhæfðar rannsóknir að ræða, s.s. kransæðarannsóknir og sér- hæfðari tölvusneiðmyndarannsóknir. Þetta húsnæði er löngu ónógt. Þessi starfsemi hefur brýna þörf fyrir bætta aðstöðu sem naumast fæst viðunandi nema í væntanlegri K-byggingu. Margt fleira mætti nefna af tiltækum röksemdum fyrir K-byggingu Land- spítala, þó hér verði staðar numið. Rétt er að Alþingi hefur úr litlu að spila nú, þegar þjóðartekjur hafa veru- lega skerzt þrjú ár í röð og erlend skuldasöfnun genginna velmegunarára bindur samtíð og framtíð þunga skulda- bagga og greiðslukvaðir. Það er því ekki tímabært að sóa fjármunum, eins og víða er gert, bæði í samneyzlu og einka- neyzlu. Enn verra er þó að sóa heil- brigði, hamingju og starfskröftum fólks, með ónógum vörnum í heilsu- gæzlu, þar sem þekking, sem til staðar er, og nútíma tækni, sem fáanleg er, Gamli Landspítalinn, sem þjónað hefur landsmönnum í rúma hálfa öld. geta fært mjög margt til hins betri veg- ar. í ökla eða eyra Bandalag jafnaðarmanna hefur lagt fram stjórnarskrárfrumvarp sem felur í sér, ef samþykkt verður, að þingrofs- réttur verður niður felldur og afnuminn réttur ríkisstjórna til að gefa út bráða- birgðalög. Rétturinn til að setja bráðabirgðalög á rætur sínar í löngu liðnum tíma þegar stutt þing var aðeins haldið annað hvert ár og að samgöngur vóru með þeim hætti að erfitt var að kalla þing saman með stuttum fyrirvara. Nú eru aðstæður gjörbreyttar. Áuk þess hafa ríkisstjórn- ir nýtt þennan rétt — og stundum mis- notað — oftar en góðu hófi gegnir. Rétturinn til þingrofs styðst og að hluta til við aðstæður, sem ekki eru lengur fyrir hendi. En að hluta til bygg- ist hann á því að þær kringumstæður geti komið upp í stjórnmálum landsins að réttlætanlegt sé að ríkisstjórn geti skotið málum fyrirvaralítið undir dóm almennings í kosningum. Stundum er sagt að við Islendingar vöðum ýmist í ökla eða eyra í afstöðu okkar til mála en hirðum lítt um milli- leiðir. Það á við um þetta frumvarp þeirra bandalagsmanna. Birgir Isleifur Gunnarsson (S) benti réttilega á það í þingræðu á dögunum að takmarka ætti verulega rétt ríkis- stjórna til útgáfu bráðabirgðalaga. Þessi réttur þurfi hinsvegar að vera fyrir hendi, en takmarkaður við sérstök atvik, t.d. náttúruhamfarir, stríðs- ástand, eða ef afstýra þarf snögglega einhverjum þjóðarvoða. Þá sagði þing- maðurinn hyggilegt að flytja þingrofs- rétt, sem nú er í höndum forsætisráð- herra og ríkisstjórnar, til Alþingis. Þá metur meirihluti rétt kjörins Alþingis, hvort aðstæður réttlæti að málum skuli skotið til almennings með þessum hætti. Endurskoðun stjórnarskrár sýnist nú á lokastigi. Þessi atriði mega gjarnan koma inn í það verk. „Línuhraðall þarf mjög mikl- ar geislavarnir og er ætlað pláss í K-bygg- ingu, enda ekk- ert húsrými á Landspítalalóð sem uppfyllir geislavarn- arkröfur fyrir slíkt tæki. Þessi bygging sýnist bráð- nauðsynleg til að hægt sé að nýta saman þá menntun, sem tiltæk er hér á landi, og þá nú- tímatækni sem skilar beztum árangri í krabbamein- svörnum er- lendis.“ bygging Landspítala hýsir einkum sjúkradeildir en byggingu fyrir þjón- ustudeildir vantar. Fyrir allnokkrum árum var leitað til brezka fyrirtækisins Llewelyn Davis Weeks, sem gert hafði þróunaráætlun fyrir Landspítala, og það beðið um ráðleggingar varðandi staðsetningu nýs geislalækningatækis. Niðurstaðan varð sú að K-bygging yrði að vera næsta verkefnið í þróunaráætl- un spítalans og hýsa m.a. krabbameins- lækningar. Á síðustu fimmtán árum hafa orðið miklar breytingar á krabbameinsmeð- ferð erlendis vegna tilkomu nýrra geislalækningatækja og lyfja. Stjórn- endur Landspítala hafa sl. sex ár æskt fjárlagaheimildar til að festa kaup á nauðsynlegu geislameðferðartæki, línu- hraðli, í stað cobalt-tækis sem úrelt er. Línuhraðall þarf mjög miklar geisla- varnir og er ætlað pláss I K-byggingu, enda ekkert húsrými á Landspítalalóð sem uppfyllir geislavarnarkröfur fyrir slíkt tæki. Þessi bygging sýnist bráð- nauðsynleg til að hægt sé að nýta saman þá menntun, sem tiltæk er hér á landi, og þá nútíma tækni sem skilar beztum árangri í krabbameinsvörnum erlendis. Á Landspítala eru gerðar um fjögur þúsund handlæknisaðgerðir árlega. Á síðasta áratug fjölgaði aðgerðum um 30—40%. Smærri aðgerðir munu að vísu flytjast í sjúkrahús víðsvegar um land. Hins vegar má búast við nýrri þjónustu á Landspítala, s.s. smásjárskurðlækn- ingum, sérhæfðum krabbameinsskurð- lækningum og hjartaskurðlækningum, sem eru skammt undan. Vegna fjölgun- ar á flóknum aðgerðum eru gerðar vax- andi kröfur til svæfinga- og gjörgæzlu- deilda Landspítala. Þar er nú, auk al- mennra skurðlækninga, stundaðar brjóstholsskurðlækningar, bæklunar- skurðlækningar, barnaskurðlækningar, lýtalækningar, þvagfæraskurðlækn- ingar og æðaskurðlækningar. Þrátt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.