Morgunblaðið - 11.11.1984, Síða 53

Morgunblaðið - 11.11.1984, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984 53 „Gat ekki fengið mig til að drepa ofurstann“ - Samtal við Gabriel Garcia Marquez Erlendar bækur lllugi Jckulsson Plinio A. Mendoza: Duften af guava — Samtaler med Gabriel Garcia Marquez. Samlerens forlag 1983. Garcia Marquez er nú ein skær- asta stjarnan á lofthvelfingu bókmenntanna — og með réttu. Þegar hann fékk Nóbelsverðlaunin fyrir tveimur árum urðu óvenju litlar deilur um útnefninguna; það var helst að einhverjir svarthöfð- ar þusuðu um að maðurinn væri kommúnisti. En stjórnmálaskoð- anir geta ekki breytt því að mað- urinn er unaðslegur rithöfundur, auk þess sem kommúnismi hans er af því taginu að undir hann gætu sanntrúaðir marxistar aldrei skrifað. Marquez er aftur á móti veikari fyrir gagnrýni um tví- skinnungshátt í mannréttinda- málum, en út í þá sálma verður ekki farið að sinni. Látum Vargas Llosa hamast. Þessi viðtalsbók kom fyrst út árið sem Garcia Marquez jafn- hattaði Nóbelinn, 1982, og í henni er því fjallað um allan feril hans fram til þessa; hann hefur ekki sent frá sér bók síðan Frásögn um margboðað morð kom út um sama leyti. Viðmælandinn, Plinio Apu- leyo Mendoza, er sjálfur skáld- sagnahöfundur, en hefur starfað mikið að blaðamennsku meðfram ritstörfunum og ritstýrt fjölda suður-amerískra tímarita um bók- menntir og menningu almennt. Hann er vinur Garcia Marquez og það leynir sér ekki í þessum sam- tölum; hann býr greinilega yfir mikilli þekkingu á Marquez, bæði sem rithöfundi og einstaklingi. Þeir spjalla saman um allt milli himins og jarðar og er auðveldast að birta kaflaheitin til að sýna það: Fjölskyldan, Starfið, Mennt- un, Lestur og áhrif, Bækurnar, Biðin, Hundrað ára einsemd, Haust patriarkans, Nútíminn, Stjórnmál, Konur, Hjátrú og meinlokur, Frægð og frami. Fyrir utan það sem Garcia Marquez seg- ir um sínar bækur er skemmtileg- ast að lesa um skoðanir hans á hjátrú og hindurvitnum alls kon- ar, sem og minnisstæðar lýsingar á uppvextinum í Aracataca sem er fyrirmynd Macondo — að hluta. Þá er einnig athyglisverð sú áhersla sem hann leggur á einkalíf og fjölskyldu — það liggur við að lesandi trúi honum þegar hann segist ekki sækjast eftir frægð eða auðæfum. Þó skrifaði hann Hundrað ára einsemd í og með til þess að krækja í hvort tveggja, og hefur fyrir vikið fremur lítið álit á þeirri bók. Hrifnastur er hann af Hausti patríarkans, og kemur það ekki á óvart, sem og nýjustu bók- inni, Frásögninni. Þessi lesandi varð svolítið hissa þegar Garcia Marquez upplýsti hversu lengi hann hefði gengið með þá bók, eða í hartnær tuttugu ár. Og þó það megi taka undir með Garcia Marquez varðandi Hundrað ára einsemd; í henni er vissulega ýms- um brögðum beitt til að ná fram tilætluðum áhrifum, þá tekst hon- um ekki að rýra gildi hennar, eða skemmtun. Svona viðtöl við rithöfunda eru varasöm. Auðvitað ættu bækur þeirra að standa einar fyrir sínu og höfundamir ekki að vasast í útskýringum; aðstæður þeirra við skriftirnar skipta heldur engu máli þegar upp er staðið. En svo mikil er hnýsni lesenda að þeir sækja í samtöl af þessu tagi og mér sýnist að Mendoza hafi furðu vel tekist að sigla milli skers og báru. Viðtölin við Garcia Marquez eru alltaf skemmtileg og oft mjög fróðleg, án þess að ganga of langt í skýringum og fræðslu. Og það er erfitt að verða ekki svolítið snort- inn þegar Marquez lýsir dauða Aurelíanós Búendía ofursta, einn- ar allra dásamlegustu persónu Hundrað ára einsemdar. „Ég vissi að á tilteknum stað yrði ég að drepa hann, og ég gat ekki fengið mig til þess. Ofurstinn var orðinn gamall og sat bara og smíðaði litlu gullfiskana sina. Og eitthvert síðdegið hugsaði ég með mér: „Fjandinn hafi það!“ Eg var neyddur til þess að drepa hann. Þegar ég var búinn með kaflann gekk ég hríðskjálfandi upp á aðra hæð í húsinu, þar sem Mercedes konan mín var. Þegar hún sá and- litið á mér vissi hún strax hvað hafði komið fyrir. „Ofurstinn er dáinn,“ sagði hún. Eg fór í rúmið og grét í tvo klukkutíma." | Ljósastofa JSB Hjá okkur skin sólin allan daginn — alla daga Höfóar til .fólksíöllum starfsgreinum! Viö bjóðum uppá: Hina viöurkenndu þýzku Sontegra-ljósabekki Góöa baöaöstööu með nuddsturtum frá Grohe. Saunabaö og setustofa. Opiö frá kl. 8 á morgnana virka daga. Frá kl. 9—22 föstudaga og 10—15 laugardaga. 120 mín. sterkar perur eöa 30 mín. fyrir þær sem eru að byrja eöa þær sem vilja veröa brúnar án aukaverkana. Ekki andlitsljós. Öryggi og gæði ávallt í fyrirrúmi hjá J.S.B. 10 tíma kort kr. 900. Stakir tímar kr. 100. Pantið tíma í síma 36645. f fyrsta sinn á íslandi li stóra systir Sex gerðir FACIT prentara til tengingar við IBM SYSTEM 34/36/38. 12 2 I CT> r £ cr Nýjar fljotvirkar REX-ROTARY ljósritunarvélar. Einnig FACIT ritvélar, reiknivélar, tölvuhúsgögn, milliveggir og allt annað til skrifstofuhalds. sunnudag kl. 13—17 GÍSLI J. JOHNSEN n TÖLVUBÚNAÐUR SF - SKRIFSTOFUBÚNAÐUR SF SMIÐJUVEGI 8 - P.O. BOX 397 - 202 KÓPAVOGI - SlMI 73111

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.