Morgunblaðið - 11.11.1984, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 11.11.1984, Qupperneq 64
64 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984 + Móðir okkar, SIGÞRÚÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR, Flókagötu 33, andaöist í Landakotsspítala 10. nóvember. Jón Ólafsson, Guójón Ólafsson, Gunnar örn Ólafsson, Ólafur Helgi Ólafsson. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóöir og amma, SJÖFN INGADÓTTIR, Þórufelli 6, verður jarösungin frá Háteigskirkju miðvikudaginn 14. nóvember kl. 15.00. Þeim sem vitdu minnast hinnar látnu er bent á Krabba- meinsfélag íslands. Jón Maríasson, Dagbjört Jónsdóttir, Lilja M. Jónsdóttir, Ingvar Sigurgeirsson, Arnheiöur Jónsdóttir, Gunnar E.H. Guömundsson og barnabörn. + Eiginmaöur minn, ÓLAFUR BYRON GUDMUNDSSON, veröur jarösunginn frá Kristskirkju Landakoti þriöjudaginn 13. nóvember kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á minningarkort Kristskirkju. Fyrir hönd barna og annarra vandamanna. Sigrún Schneider. + Hjartkær eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi, KRISTINN EINARSSON klasöskeri, Holtageröi 46, veröur jarösunginn frá Fossvogskírkju mánudaginn 12. nóvember kl. 3 e.h. Helga Helgadóttir, Einar Axel Kristinsson, Elsa Hafsteinsdóttir og börn. + Eiginmaöur minn, LÝÐUR GUDMUNDSSON loftskeytamaöur, Flókagötu 10, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 13. nóvember kl. 13.30. Guörún Siguröardóttir. Minning: Kristinn Einarsson klœðskerameistari Fæddur 30. september 1918 Dáin 31. október 1984 Þann 31. október sl. lést í Landspítalanum Kristinn Ein- arsson, klæðskerameistari, sextiu og sex ára að aldri, eftir langa og oft erfiða vanheilsu. Kristinn fæddist í Reykjavík, 30. september 1918, sonur hjón- anna Kristínar Jónsdóttur Otte- sen frá Ingunnarstöðum í Brynju- dal og Einars Péturssonar tré- smíðameistara í Reykjavík. Frú Kristín andaðist skðmmu eftir fæðingu sonarins. Eldri bðrn þeirra hjóna voru Sigríður, gift Gísla Halldórssyni verkfræðingi, er hún látin fyrir nokkrum árum, og Gústaf Einarsson verkstjóri og borgarfulltrúi í Reykjavík. Einar, faðir Kristínar, var frá Heiðarbæ í Þingvallasveit, kunnur iðnmeistari á sinni tíð. í minn- ingargrein um hann látinn, sem birtist í Morgunblaðinu 12. júní 1934, segir m.a.: „Nam hann trésmíði hér í bæ, fór síðan til Danmerkur og fleiri landa í Norð- urálfu til frekara náms og frama, og þar á meðal til Sviss og dvaldist þar um hríð. En hvarf hingað heim og settist að hér í bænum og stundaði iðn sína, trésmíði, æ sið- an og lengst af hér við höfnina, bæði meðan hún var gerð og eftir það. Mun enginn hafa lagt þar betri hönd að verki." Ennfremur segir í sömu grein: „Það hygg ég ekki ofmælt að við dauða Einars hafi bærinn látið einn af dáðrikustu borgurum sín- um. Var hann svo frábær maður að atorku og dugnaði, að ég ætla að varla hafi verið hans jafningj- ar.“ Víst er um það, að Kristinn Ein- arsson var af góðu bergi brotinn í báðar ættir. 011 framkoma hans og framganga í lífinu bar um það fagurt vitni. Ungur að árum nam hann klæð- skeraiðn hjá Axel Andersen, klæðskerameistara í Reykjavík, og lauk því námi á árinu 1938. Árið 1942 fékk hann meistarabréf í iðn sinni. Sama ár stofnaði hann eigið fyrirtæki að Hverfisgötu 59 og er það starfandi enn á sama stað í breyttu formi sem Efnalaugin Venus. Árið 1948 kvæntist Kristinn eft- irlifandi konu sinni, Helgu Helga- dóttur, dóttur hjónanna Valgerðar Bjarnadóttur frá Helgastöðum í Biskupstungum og Helga Vigfús- sonar blikksmiðs í Reykjavík, af skaftfellskum ættum. Stofnuðu þau heimili sitt á Hverfisgötu 59 og bjuggu þar til ársins 1967 er þau fluttu í Holtagerði 46, Kópa- vogi. Einkasonur þeirra er Einar Ax- el, vélfræðingur, starfandi í skipa- smíðastöðinni Stálvík. Einar er kvæntur Elsu Hafsteinsdóttur, börn þeirra eru Helga Kristín, Svanfríður og Jón Ómar, öll á barnsaldri. Á árunum 1959—1960 bar skugga yfir hinn bjarta himin þeirra Kristins, Helgu og Einars, þegar alvarleg veikindi lögðust á hinn vörpulega og velgerða heim- ilisföður. Á árinu 1961 gekk hann undir hættulega skurðaðgerð í Kaupmannahöfn. Þótt aðgerð þessi tækist eftir vonum mátti heita að síðan hafi Kristinn átt við varandi heilsuleysi að stríða. En þá komu þau sigildu sannindi i ljós, sem segja mikla sögu og fel- ast í því, að þegar áföll verða skiptir mestu hvernig við er brugðist. ókvikul samstaða og nærfærni, sem ekki verður hér rætt um nema í fáum dráttum á hinu ytra borði. Frú Helga hefur gengið í störf bónda síns af mikl- um dugnaði og myndarskap og unnið fullt starf, hvern starfsdag við fyrirtæki þeirra. Sjálfur hefur Kristinn gengið þar að verki hve- nær sem heilsan leyfði og oftar þó. Einkasonurinn, Einar Axel, hefur stutt foreldra sína eftir megni og þá ekki sist með ágætum árangri i námi og dugnaði i starfi og eftir að Einar kvæntist Elsu hafa þau og börn þeirra verið samtaka um að bera sólskin í bæinn og bregða birtu á veginn, svo sem best gerist með samhentum fjölskyldum. Veikindi sín bar Kristinn Ein- arsson af einstökum manndómi og + Hjartans þakkir til allra sem auösýndu okkur hlýhug og samúö viö andlát og útför HAUKS KRISTINSSONAR, Núpi, Dýrafiröi, + Maöurinn minn, sonur og faöir okkar, BJÖRN JÓNSSON, Garöaflöt 15, Garöabaa, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 14. nóvem- ber kl. 13.30. Emelía Húnfjörö. Sigríöur Björnsdóttir og dastur hins látna. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför PÁLS EINARSSONAR, Bröttukinn 10, Hafnarfiröi. Halldóra Ingimundardóttir og börn. + Þökkum innilega samúö og vinarhug viö andlát og útför dóttur minnar og systur okkar, ODDNÝJAR GUDRÚNAR ÞORVALDSDÓTTUR. Gróa M. Oddsdóttir og systkini hinnar látnu. þann 29. október. Einnig þökkum viö af heilum hug öllu starfsfólki Sjúkrahúss Isafjaröar er veitti honum umönnun og likn í hinstu sjúkralegu hans. Guö blessi ykkur öll. Vilborg Guðmundsdóttir, Margrét Rakel Hauksdóttir og fjölskyldur. + Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför fööur okkar, tengdafööur, vinar og afa, SIGGEIRS LÁRUSSONAR bónda, Kirkjubssjarklaustri. Guömundur Guömundsson „ERRO“, Lárus Síggeirsson, Ólöf Benediktsdóttir, Kristinn Siggeirsson, Ólaffa Jakobsdóttir, Gyöa S. Siggeirsdóttir, Magnús Einarsson, Guölaug Sveinsdóttir og barnabörn. + Þökkum innilega samúö viö andlót og útför BIRGIS KRISTJÁN8 SIGURBJÖRNSSONAR, Smáratúni 1, Seifossi. Sofffa Pálsdóttir, Hflmar Sigurbjörnsson, Höröur Sigurbjörnsson, Reynir Sigurbjörnsson, Jakob Sigurbjörnsson, Kolbrún Sigurbjörnsdóttir og barnabörn. æðruleysi, vildi sem minnst láta á þeim bera eða um að tala, var oftast léttur í máli og glaður á vinafundum og í fjölskylduhófum, eða þegar þau hjónin fögnuðu gestum á fallegu og hlýlegu heim- ili þeirra. Það er trúlega ofraun hraustum mönnum að setja sig fyllilega í spor þeirra, sem þjást og vanheilir eru meira en þriðjung ævinnar, á þriðja áratug, eða gera sér grein fyrir því, hve mikið andlegt þrek þarf til að láta slíka raun ekki skyggja um of á fegurð lífsins og daglega hamingju annarra þeirra sem næst standa. En þetta tel ég að Kristni hafi tekist svo, að vert er rnikillar aðdáunar og virðingar. Grímur Thomsen skáldmæringur segir í ljóði sínu um annan iðnað- armann, Stefán smið: „Viðmótsprúður geði glöðu gekk hann fram í blíðu og stríðu." Sama má með sanni segja um Kristin Einarsson. Þegar ég lít yfir farinn veg Kristins Einarssonar, svila míns, er mér hugstæðast, hve góðrar gerðar hann var. Honum var eðl- islæg hógværð, prúðmannleg kurt- eisi og tillitssemi, án þess að láta hlut sinn, ef svo bar undir. Hann var lastvar maður, fáfengislegt þras og dómharka var honum önd- vert athæfi. Hann var prýðilega greindur maður, leyndi á sér, vegna þess hve dulur hann var. Hann naut góðra bókmennta, las mikið og þótti gaman að ræða um efni þess og málsmeðferð. Hann var listrænn í eðli sínu og þau hjón bæði. Höfðu þau næmt auga fyrir fögrum munum, fallegt heimili þeirra bar því vitni. Við lát Kristins Einarssonar sjáum við á bak ljúfum heiðurs- manni, sem tók tillit til samferða- fólksins af næmum skilningi, stóð vel fyrir sínu og hélt velli, þrátt fyrir langvinna og oft erfiða van- heilsu, vegna góðrar gerðar sinnar og mannkosta. Við tengdafólk hans höfum ríka ástæðu til að þakka honum heils- hugar elskulega samfylgd og það fagra fordæmi, sem hann gaf okkur öllum með æðruleysi og manndómi í þungum þrautum. Við biðjum honum blessunar Guðs á vegum ljóss og kærleika og konu hans, einkasyni, tengdadótt- ur og börnum þeirra biðjum við blessunar og velfarnaðar um alla framtíð. Aðalsteinn Eiríksson Útfor Kristins Einarssonar verður gerð frá Fossvogskirkju mánudag- inn 12. nóv. kl. 3 e.h. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.