Morgunblaðið - 11.11.1984, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 11.11.1984, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984 65 Ásmundur Eiríksson Ásgarði - Minning Hann lést 27. sept. sl. Útför hans var gerð frá Selfosskirkju laugardaginn 6. okt. að viðstöddu miklu fjölmenni. Jarðsett var á Búrfelli, sóknarprestur, sr. Rúnar Þór Egilsson, jarðsöng. Kirkjukór Selfosskirkju söng undir stjórn Glúms Gylfasonar organista og Guðmundur Þ. Gíslason söng ein- söng. Ásmundur var fæddur í Búr- fellskoti 2. apríl 1921, sonur hjón- anna Guðbjargar Jónsdóttur, ætt- aðri úr Landeyjum, og Eiríks Ás- mundssonar frá Neðra-Apavatni í Grímsnesi, bónda í Búrfellskoti og síðar á Helgastöðum í Stokkseyr- arhreppi. Vegna veikinda móður Ásmund- ar buðust Guðrún Gísladóttir og Guðmundur Ólafsson bóndi í Ás- garði til að annast hið nýfædda barn um einhvern tíma og þannig varð það að Ásmundur flutti að Ásgarði aðeins þriggja nátta gam- all. Upphaflega átti dvölin aðeins að vera um skamman tíma, en svo fór að hann ílentist á þessum stað og átti þar heima alla ævi. Guðrún og Guðmundur í Ásgarði áttu eina dóttur, Guðbjörgu, sem var tvítug stúlka þegar Ásmundur kom á heimilið. Hún og allt heimilisfólk í Ásgarði fagnaði þessum unga sveini, sem kom svo óvænt inn á heimilið og leit Guðbjörg á hann sem fóstbróður sinn alla tíð. Eftir venjulegt barnaskólanám lá leið Ásmundar í íþróttaskólann að Haukadal. Þar hygg ég að hann hafi fengið áhugann á félagsmál- um, því brátt var hann kominn í forystusveit UMF. Hvatar og starfaði þar í stjórn næstu 20 árin. Árið 1941 byrja UMF. Hvöt og UMF. Biskupstungna á árlegu samstarfi um íþróttamót, sem hleypir miklu lífi í starfsemi þess- ara félaga, því eftir íþróttaæf- ingar og keppnir sumarsins hélt þessi hópur áfram að koma saman og snýr sér að leiklist yfir vetrar- tímann. Mörg stór og viðamikil leikrit voru æfð og sýnd hér í byggðalag- inu á þessum árum og fór Ás- mundur jafnan með stór hlutverk, sem okkur yngri félögunum verða minnisstæð. Hann átti auðvelt með að hrífa aðra með sér til slíkra verka, en var jafnan leið- toginn, sem starfið snerist um. Að öðrum störfum í ungmennafélag- inu beitti hann sér fyrir gerð íþróttavallar á Borg 1950 og var svo hvatamaður að byggingu fé- lagsheimilisins að Borg og for- maður byggingarnefndar á meðan húsið var í byggingu á árunum 1959—1966. Mikil sjálfboðavinna var við þessar framkvæmdir og Ásmundur fremstur í flokki þegar kallað var til starfa, auk þess að útvega efni og ráða smiði til verksins. En Grímsnesingar kveðja hann til frekari starfa, hann verður hreppsnefndarmaður og oddviti sveitar sinnar frá árinu 1972 til dauðadags. í oddvitatíð Ásmundar á hann þátt í byggingu sundlaugar við Ljósafoss, sem var vígð 1975, umfangsmiklum endurbótum á skólahúsnæði Barnaskólans við Ljósafoss og byggingu leitar- mannahúss í Kringlumýri, auk annarra framfaramála sveitarfé- lagsins. Allt reikningshald var í besta lagi og samskipti við okkur, sem njótum verka hans með ágæt- um. Oddvitastarf í Grímsnesi er Reykjavík: Veðbókarvottorð þarf ekki lengur við umskráningu bfla Veðbókarvottorð þarf ekki lengur við umskráningu bifreiða í Keykja- Isafjörður: Unglingar játa á sig innbrot LÖGREGLAN á ísafirði befur hand- tekið þrjá unglinga, sem grunaðir voru um nokkur innbrot og skemmdarverk sem framin hafa ver- ið í bænum að undanfórnu. Við yfir- heyrslur játuðu unglingarnir að hafa verið hér að verki og hefur nokkur hlutí þýfisins komist til skila. Af þeim stöðum á ísafirði, sem brotist hefur verið inn í að undan- förnu, má nefna Netagerð Vest- fjarða, Gúmmíbátaþjonustuna, verslunina Vinnuver og verslun óliusamlags útvegsmanna. Var hér um að ræða bæði þjófnaði á peningum og vörum, svo og skemmdarverk, og játuðu ungl- ingarnir þessi innbrot við yfir- heyrslur í gærdag. Þá munu þeir einnig vera viðriðnir bílþjófnaði og skemmdarverk á bflum, sem unnin hafa verið á ísafirði að und- anfömu. vík. Borgarfógetaembættið í Reykja- vík er komið í beint samband við tölvu Bifreiðaeftirlits ríkisins og get- ur nú sent bifreiðaeftirlitinu upplýs- ingar um hvort bifreiðir séu veðsett- ar í Reykjavík. Hvili engin veðbönd á viðkom- andi bifreið með R-númeri getur umskráning nú farið fram hjá Bif- reiðaeftirliti rikisins án þess að veðbókarvottorð liggi frammi eins og venja hefur verið fram að þessu. Hins vegar þarf Borgarfógeta- embættinu i Reykjavík að berast staðfest tilkynning frá Bifreiða- eftirliti ríkisins um umskráningar allra bifreiða með R-númeri, sem veðbönd hvila á. nokkuð frábrugðið því sem gerist í sveitarfélagi með um 300 íbúa, þar sem mikil sumarhúsabyggð hefur risið innan marka sveitarfélags- ins. Viðskiptamenn sveitarfélags- ins eru um 11 hundruð, þannig að í mörg horn er að líta. Fyrir öll þessi miklu störf sem Ásmundur hefur innt af höndum fyrir okkur og sveitarfélagið þökkum við af al- hug. Það var árið 1946 sem Ásmund- ur tekur við búi í Ásgarði og gerist bóndi. Alla tíð rak hann gott og afurðasamt bú og sérstaka ánægju hafði hann af hestum og átti jafn- an góða reiðhesta, sem hann naut i ríkum mæli þegar stund gafst til. Á fyrstu búskaparárum sinum stundaði hann sláturhúsavinnu á haustin, eins og svo margt fólk úr sveitum. Hann var ágætur flán- ingsmaður og var eftirsóttur til þeirra starfa og naut þeirra af gáska og gleði, því hann varð vinmargur hvar sem hann fór. Árið 1952 kvænist Ásmundur Sigríði Eiríksdóttur frá Langholti i Hraungerðishreppi, ágætri konu sem staðið hefur við hlið manns , síns af mikilli prýði. Þau voru mjög samhent alla tíð og fljótlega byrjuðu þau á uppbyggingu i Ás- garði, íbúðarhús, fjós, hlöður og fjárhús rísa hvert af öðru, jafn- hliða mikilli ræktun. Þau eignuðust 8 börn: Eygló Lilja, húsfreyja í Keflavík, gift Hermanni Hermannssyni, Gunn- ar, kjötiðnaðarmaður á tsafirði, býr með Þórdísi Ásgeirsdóttur, Eiríkur, trésmiður, starfar á Sel- fossi, stúlka dó í bernsku, Guð- mundur, bílasmiður í Reykjavík, Margrét, stúdent, Áslaug nemandi í Menntaskólanum á ísafirði og Kjartan, nemandi í Héraðsskólan- um á Laugarvatni. Ég hef með þessum línum stikl- að á nokkrum staðreyndum úr lífshlaupi Ásmundar í Ásgarði. Margs er að minnast og margt er enn ósagt, hans stæsta hamingja var eiginkonan, sem stóð sem klettur við hlið hans í blíðu og stríðu. Sigga mín, megi góður Guð gefa þér og fjölskyldunni allri styrk í ykkar miklu sorg. Böðvar Pálsson Legslelnar Framleidum allar stærðir og gerðir af legsteinum Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf ______um gerð og val legsteina_ ÍS S.HELGASON HF ISTEINSMKUA ■ SWWMUVEGI 48 76677 Ný bók, Svartlist ÚT ER komin Svartlist, ljóð og mynd, eftir Kristján Kristjánsson og Aðalstein Svan. í bókinni eru 25 Ijóð og 18 dúkristur, 60 blaðsíð- ur og er gripurinn prentaður i Hólum. Höfundarnir gefa út. Legsteinar granít — marmari Opiö alla daga, einnig kvöld og helgar.. Hamii ð.f. Unnarbraut 19, Seltjarnarnesi, símar 620809 og 72818. t Móðir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, SIGRÍOUR S. HJÖRLEIFSDÓTTIR, Stuólaseli 4, Reykjavfk, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 12. nóvember ki. 13.30. Kristinn Óiafsson, Ingibjörg Hallgrimsdóttir, Auöur S. Kristinsdóttir, Lúövfk Kristinsson, Hallgrímur Kristinsson, Ólafur Ó. Kristinsson og barm Hjörleifur Ólafsson, Bannay Ólafsdóttir, Ólafur K. Hjörlaifsson, Jóhann Ó. Hjörlaifsson, ibarnabarn. t Viö þökkum af alhug auösýnda samúö og hlýja vináttu viö andlát og útför JÚLÍU SVEINBJARNARDÓTTUR laiósögumanns, Klaifarvagi 11. Baldvin Tryggvason, Sveinbjörn Sigurjónsson, Sofffa Ingvarsdóttir, Svainbjörn I. Baldvinsson, Jóna Finnsdóttir, Tryggvi M. Baldvinsson, Vilborg Einarsdóttir, Guörún Sveinbjarnardóttir, Arnþór Garöarsson. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö fráfall móöur minnar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, ÞÓRU GUDMUNDSDÓTTUR frá Eyöi-Sandvfk, Sólvallagötu 40. Grétar Jónsson, Guöfínna Jóhannesdóttir, Erla Grétarsdóttir, Jón Þór Guömundsson, Halla Grétarsdóttir, Alma H. Guómundsdóttir, Vilborg Grétarsdóttir, Hrafna Guömundsdóttir og barnabörn. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns mins, fööur okkar, tengdafööur og afa, FLOSA ÞÓRORMSSONAR frá Féskrúösfiröi, Klappsvagi 82, Raykjavfk. Sigurborg Jónasdóttír, Áslaug Flosadóttir, Jóhannas Gunnarsson, Stefanía Flosadóttir, Halldór Þórhallsson, Ellan Flosadóttir, Guövin Flosason og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför systur okkar, HELGU EINARSDÓTTUR, Suöurgötu 14, sem andaöist í Sjúkrahúsi Keflavíkur 9. okt. sl. Þorgaröur Einarsdóttir, Sigrfóur Einarsdóttir og aörir vandamann. t Þökkum öllum þelm sem sýndu okkur samúö og heiöruöu minn- ingu móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, EVU FANNEYJAR JÓHANNSDÓTTUR, Kirkjuvagi, 9 Hafnarfiröi, sem jarösungin var frá Frfkirkjunni i Hafnarfiröi mánudaginn 29. okt. sl. Jóhann Ólafsson, Eóvar Ólafsson, Siguröur Ólafsson, Guörún Ólafsdóttir, Bryndfs Ólafsdóttir, barnabörn og Edda Ólafsson, Guöbjörg Guðjónsdóttir, Halga Ármannsdóttir, Guómundur Vigfússon, Hilmar Ágústsson, barnabarnabörn. Lokað Lokaö mánudaginn 12. nóvember vegna jaröarfarar KRISTINS EINARSSONAR, klæöskera. Efnalaugin Venus, Hverfisgötu 59.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.