Morgunblaðið - 11.11.1984, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984
71
Prá sunnudagaskóla kristniboðsstöðvarinnar.
Hópvinna f saumaskap — verið er að vefa altarisdúk. Frá sjúkraskýli ó nálægri kristniboðsstöð.
og ógni tilveru manna. Vegna þess
hve guð þeirra er fjarlægur leggja
þeir allar bænir sínar fyrir „hlust-
anda“ sem þeir kalla — hlustand-
inn getur verið sólin, tunglið eða
eitthvað annað. Þeir sjá tunglið og
álykta að því hljóti tunglið að sjá
til þeirra og þeir álíta að tunglið
geti kannski komið bæninni til
guðs ef það vill. Til að fá hlustand-
ann til að koma bænunum á fram-
færi við guð og friðmælast við illa
anda eru færðar dýrafórnir.
F'rjósemisdýrkun er líka stunduð.
Veikist menn er farið til sær-
ingarmanna sem krefjast dýra-
fórna og selja töfragripi til lækn-
inga.
Þetta fólk lifir í mikilli óvissu
og ótta við dauðann. Hugsum
okkur að ekki komi rigning. Þá er
hægt að senda mann til að kalla til
guðs af hæsta fjallinu — kannski
heyrir guð það en kannski ekki.
Það er margt sem angrar þetta
fólk að innan og mikill léttir fyrir
þá sem komast til kristinnar trúar
að vita að Guð er alltaf nálægur,
og ekki þarf að kaupa hann til liðs
við sig.
Konurnar heyra það í kirkjunni
að þaer séu einhvers virði, sagði
Valdís. Það er alveg nýtt í þeirra
eyrum því þær eru undirokaðar
frá blautu barnsbeini, og innrætt
undirgefni gagnvart karlmönnum.
Karlmenn eiga margir 3 eða 4
konur og það er auðvitað sárt fyrir
þær að víkja fyrirvaralaust fyrir
yngri konu þegar karlinn ákveður
að fá sér nýja. Við reynum að efla
sjálfsvirðingu þeirra og koma
karlmönnunum í skilning um að
þeir verði að hjálpa þeim við að
halda heimilunum gangandi.
— Eru karlemnnirnir ekki nei-
-kvæðir á slíkan boðskap og kom-
ast þar af leiðandi í andstöðu við
kristniboðið?
Nei, við gætum þess að ganga
ekki of langt í þessu. Karlmenn-
irnir eru ánægðir með að konurn-
ar fari í kirkju og hafi samband
við kristniboðið. Þar læra þær
niargt gagnlegt og sjá betur um
heimilið fyrir bragðið.
I»að opnast ný vídd
Misrétti kynjanna er mikið
í vandamál viða i Afrfku — við get-
um ekki breytt þjóðfélaginu á
i nokkrum árum, sagði Kjartan. En
| við getum breytt einstaklingum
með því að leiða þá til Krists. Það
sýnir sig að hjá þeim sem taka
kristni verður heimilisbragurinn
allur annar — andrúmsloftið á
heimilinu verður kærleiksríkara.
Það opnast ný vídd hjá þeim sem
taka kristni — þeir læra að elska
aðra en sjálfa sig og ég held að það
vinni smám saman á óréttlátum
þjóðfélagsháttum.
Stundum virðist manni Þróun-
arhjálp vera ómarkviss. Það er
kannski verið að gefa rándýrar
vélasamstæður sem enginn kann
að nota og enginn getur gert við ef
þær bila. Það góða við kristniboðið
er m.a. að fólkið fær séð hvernig
hægt er að byggja upp gott sam-
félag þótt efnin séu lítil.
— Stundum eru kristniboðar
ásakaðir um að troða sinni menn-
ingu upp á framandi þjóðir.
Það held ég að við höfum aldrei
gert. Þvert á móti höfum við reynt
að koma fólkinu í skilning um að
ekki beri að taka allt í vestrænni
menningu sem gott og gilt. Við
höfum mikið brýnt fyrir því að
glata ekki eigin menningararfleifð
heldur halda fast í gamla og góða
siði, þó að við hvetjum það til að
kasta því sem slæmt er. En það er
mikill skaði hversu sofandi þetta
fólk er fyrir því að halda í eigin
tungu og menningu — oft rekst
maður á það sjónarmið aö allt sé
gott og gilt, bara ef það er vest-
rænt. Þannig berast nú margir
ósiðir inn í landið öllum til ills.
— En hvernig er starfsemi ykk-
ar háttað — hvernig líður dagur-
inn hjá ykkur í kristniboðsstöð-
inni?
Við byrjum daginn á að mæta í
talstöðina kl. 7 á morgnana —
þarna er að sjálfsögðu hvorki sími
og ekki rafmagn, og hafa kristni-
boðarnir reglulegt talstöðvarsam-
band. KI. 7:30 höldum við svo
morgunandakt fyrir alla starfs-
menn trúboðsstöðvarinnar og
verkefnum er úthlutað.
Dagur í kristniboðsstarfí
Eftir morgunmat er gjarnan
farið út í héraðið — s.s. 25 km leið.
Þar hefur Valdís séð um kvenna-
starf, svo sem lestrarkennlsu eða
kennslu í saumaskap. Ég er þá
kannski með útisamkomu undir
tré eða held skírnarnámskeið fyrir
þá sem vilja taka kristni. Á skirn-
arnámskeiðinu er þeim veitt
grundvallarfræðsla um kristin-
dóminn svo að fólkið geti tekið
þessa mikilvægu ákvörðun með
fullri vitund um hvað í henni felst.
Að lokinni ferð út í héraðið er
dagur jafnan að kvöldi kominn og
maður getur gefið sér tíma til að
borða hádegismatinn.
Kvöldsamkomur eru stundum
haldnar á kvöldin en tíminn þess á
milli fer oft ( samtöl, bókhald og
bréfaskriftir.
Ekki veit ég hversu rétta mynd
þetta gefur — á svona kristniboðs-
stöð er alltaf að koma fólk á nóttu
sem degi, í margvíslegustu erind-
um. Barn eða eiginkona er að
deyja og það þarf að aka til
sjúkraskýlisins. Það þarf að gefa
ráð, veita aðstoð og ráða fram úr
vandamálum. Satt að segja
sjaldnast stundarfriður.
— Hvert er viðhorf fólksins
þarna til kristniboðanna?
Það kom mér dálítið á óvart
hversu fólk er almennt vinsamlegt
gagnvart okkur þarna í héraðinu.
Eg hélt að fyrir kæmi að ég mætti
aðkasti vegna starfsins en það
hefur aldrei gerst. Fyrir þeim eru
kristniboðar eitt hið jákvæðasta i
landinu. Stjórnvöld í Kenýa eru og
hafa verið jákvæð í okkar garð og
af hálfu embættismanna njótum
við góðrar fyrirgreiðslu. Þetta
auðveldar starf okkar auðvitað
mikið. Það er alveg fyrirsjáanlegt
að þarna má ná miklum árangri.
En kristniboðsstarf í svo fjar-
lægu landi er auðvitað nokkuð
kostnaðarsamt þó við reynum að
halda í hvern eyri.
Allt byggist þetta starf á frjáls-
um framlögum fólks hér heima
sem vill útbreiða kristindóminn.
Nú stendur yfir söfnun íslensku
þjóðkirkjunnar um allt land fyrir
kristniboðið og það skiptir að
sjálfsögðu miklu fyrir framvindu
starfsins að undirtektir fólks verði
góðar. Ég vil því umfram allt
koma því á framfæri við kristna
menn að þeir gleymi okkur ekki,
heldur reyni að leggja starfinu lið
eftir föngum. Kristindómurinn er
eign allra manna, og við sem
kristin erum berum ábyrgð á út-
breiðslu hans.
Viðtal: Bragi Óskarsson
er smám saman að fyllast
af húsgögnum,
enda heitir það
HUSGAGNAHOLLIN
VIÐ HÖFUM sett okkur þaö marKmiö
aö hafa svo yfirgengilega mikiö úrval
af góöum húsgögnum á hagstæöu
veröi aö þaö detti engum í hug aö
versla annarsstaöar fyrr en hann hef-
ur grandskoöaö þaö sem viö höfum
aö bjóöa.
m v
AUK ÞESS aö vera meö mikiö úrval,
hagstætt verö og 2ja ára ábyrgö á
öllum vörum, bjóöum viö góö
greiöslukjör, 1/3 út og afgangurinn á 6
mánuöum, gefum 5% staögreiöslu-
afslátt — einnig þegar borgaö er
meö kreditkortum.
Landsþjónustan sér um aö pakka vör-
um og senda út á land.
Berðu saman verð
og gæði
HÚS6A6NAHÖLLINI
BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK « 91-61199 og 81410