Morgunblaðið - 13.11.1984, Side 1

Morgunblaðið - 13.11.1984, Side 1
64 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 9fguitilrifafrUtí STOFNAÐ 1913 221. tbl. 71. árg. ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins Herskáir námamenn láta til skarar skrída: Kasta sprengjum og spjótum að lögreglu AP-aimamynd. Herskir námamaður tekinn fastur við Cortonwood-námuna f Jórvfkurskíri á Englandi f einhverjum verstu átokum námamanna og lögreglu frá því náma- verfallið hófst 12. marz. Fleiri og fleiri námamenn snúa aftur til vinnu og kom til átaka er herskáir námamenn reyndu að sporna við þvf. LowIob, 12. oÍTeaber. AP. Tvö þúsund námamenn til viðbót- ar sneru baki við samtökum sfnum og mættu til vinnu f dag. Kom til börðustu átaka námamanna og lög- reghi til þessa í námaverkfallinu, sem staðið hefur f nfu mánuði. Köst- uðu striðandi námamenn heima- smíðuðum spjótum og benzín- sprengjum að lögreglunni, sem handtók 54 námamenn. Samtals hafa verið handteknir um 7.000 námamenn f verkfallinu, sem hófst 12. marz vegna fyrirœtl- ana stjórnarinnar um að loka 20 óarðbærum námum. Ofbeldisað- gerðirnar f dag áttu sér einkum stað f Jórvikurskfri er herskáir verkfallsmenn reyndu að sporna við því að félagar þeirra sneru til vinnu. Námamannafjölskyldur eiga nú i miklum raunum og af þeim sök- um snúa æ fleiri námamenn til vinnu. Einnig hafa tilboð um ríf- legan jólabónus virkað hvetjandi á þá. Alls eru skráðir 54.000 náma- menn af 178.000, sem ekki eru í verkfalli og fjölgar þeim daglega Skriðdrekar á götum Managua Muijpia, 12. aATeaber. AP. Tuttugu T-55 skriðdrekar, sem smfðaðir eru f Sovétrfkjunum, tóku sér stöðu á götum höfuðborgar Nic- aragua er ber landsins var skipað f viðbragðsstöðu og öryggissveitir óbreyttra borgara kvaddar saman vegna árásar Bandarfkjanna, sem sandinistastjórnin segir yfirvofandi. Fimmtán skriðdrekar gættu iðnaðarhverfis í norðurhluta Man- Rajiv tekur við formennsku í Kongress-flokknum: Fylgir stefnu móður sinnar [>elkí, 12. BÓvember. AP. RAJIV GANDHI hét þvf f sinni fyrstu stefnuræðu að halda áfram stefnu látinnar móður sinnar, Indfru. Opinberri þjóðarsorg vegna morðsins á Indfru 31. október lauk í gær með því að Rajiv dreifði ösku móður sinnar úr flugvél yfir snævi þöktum tindum Himalayafjalla. „Indverjar halda áfram að Rajiv þá við einslega. vinna í þágu friðar, vináttu og al- þjóðlegrar samvinnu," sagði Rajiv. Hann gaf i skyn að hann muni áfram líta á Sovétríkin sem náinn bandamann, en lýsti samskiptum Indlands og Bandarfkjanna sem „marghliða". Rajiv sagðist áfram um að koma samskiptum Indverja við ná- granna sfna, þ.á m. Pakistana og Kínverja f betra horf. Tilgreindi hann Pakistan sérstaklega, en Zia Ul-haq forseti var viðstaddur bálför Indfru og ræddust þeir Gandhi hvatti þjóð sfna óspart til samlyndis og að sýna umburð- arlyndi, og hét því að útrýma „spillingu, leti og afkastaleysi“ úr stjórnkerfinu og betrumbæta menntakerfið. Árla í dag tók Rajiv formlega við leiðtogahlutverki Kongress- flokksins, og hóf undirbúning að þingkosningum, sem halda á 20. janúar næstkomandi, samkvæmt stjórnarskrá landsins. Sjá: „Ösku Indiru dreift“ ábls.27 agua og öðrum var stillt upp i suð- austurjaðri borgarinnar á vegin- um til Masaya. Þá sást til ferða hertrukka, sem smfðaðir eru f Austur-Þýzkalandi, í öðrum borg- arhlutum, en óljóst er hver farm- ur þeirra var. Sovézka flutningaskipið, sem styrr hefur staðið um sfðustu daga, og talið var flytja sandinist- um fullkomnar MiG-orrustuþotur, lét úr höfn f Nicaragua I dag. Fjórða daginn í röð heyrðust yfir Nicaragua hávaði til marks um að hljóðmúrinn hefði verið rofinn og sagði útvarpsstöð sandinista að háfleyg bandarísk SR-71 njósna- flugvél hefði þar verið á ferð. Af hálfu Bandaríkjamanna hef- ur þvf verið visað á bug sem al- gjörum þvættingi, að f ráði væru hernaðaraðgerðir gegn Nicaragua. Starfsmenn leyniþjónustunnar láku þvf til fjölmiðla f sfðustu viku að ekki væri hægt að útiloka hern- aðaraðgerðir til að koma f veg fyrir að MiG-þotunum yrði skipað á land. Caspar Weinberger land- varnamálaráðherra Bandarfkj- anna sagði f gær að „engin stað- festing“ lægi fyrir um að flutn- ingaskipið hefði haft MiG-þotur innanborðs. Lét Weinberger í ljós áhyggjur með „linnulausan flutn- ing árásarvopna“ sem gerði það að verkum að nágrannarfkjunum stafaði mikil hætta af Nicaragua. sem mæta til vinnu. Eru nú 119 námur af 174 starfandi og hafa ekki verið fleiri frá því verkfall hófst. Lögreglan lfkti ástandinu vfða i Jórvíkurskiri við ringulreið. Fóru herskáir námamenn i hópum um mörg námaþorp og rændu og rupl- uðu. Köstuðu þeir benzfnsprengj- um að lögreglustöð, rifu niður ljósastaura úr steinsteypu, kveiktu í bifreiðum og höguðu sér sem á þá hefði runnið æði. Segir lögregian að svo virðist sem um skipulegar aðgerðir hafi verið að ræða um allt skírið. Símasamband við móðurina Stúlkubarnið Fae hlýðir á rödd móður sinnar í gegnum síma. Móðirin þjáist af kvefi og fær því ekki að dveljast hjá dóttur sinni, sem nú er nær mánaðargömul. Fae sýndi þess merki að líkaminn hafnaði bavfana- hjartanu, sem grætt var f hana tveggja vikna gamla, en hurfu þau einkenni með lyfjagjöf og braggast hún vel. Sjá nánar „Baby Fae“ yfir erfiðan hjalla“ á bls. 24. Söguleg björgun fj ar skip tahna ttar KuiTfraHASa, 12. BÓTtmbn. AP. BILUÐUM gervihnetti var bjargað f dag um borð I geimferjuna Discovery. Verður hnötturinn fiuttur til jarðar til viðgerðar áður en honum verður skotið á braut um jörðu á ný. Geimfarinn Joe AUen „hand- samaði“ fjarskiptahnöttinn Pal- apa B2 er hann sveif út fyrir Dis- covery án þess að vera tengdur ferjunni með taug, og er það f fyrsta sinn sem aðgerð af þessu tagi er framkvæmd með þeim hætti. Með sérstökum búnaði stöðvaði hann snúning hnattarins og færði hann siðan að geimferj- unni. Þar greip lyftikrani ferjunn- ar hnöttinn og kom honum fyrir f farangursrýminu. Stjómaði Anna Fisher lyftikrananum. Discovery átti stefnumót við Palapa eftir fjögurra daga elt- ingarleik og 2,5 milljón kilómetra ferðalag. Hafði Discovery farið 64 hringi um jörðina er hún kom að hnettinum i 360 km hæð yfir jörðu. Að björgun lokinni hófst undirbúningur að björgun annars fjarskiptahnattar, Westar 6, sem er á rangri braut í 1.100 km fjar- lægð frá Palapa. Báðir hnettirnir hafa verið gagnslausir frá i febrú- ar sl. er hreyflar þeirra biluðu með þeim afleiðingum að þeir komust ekki á rétta braut um jörðu. Hnettirnir eru metnir á 35 milljónir dollara hvor um sig.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.