Morgunblaðið - 13.11.1984, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1984
3
BSRB sam-
þykkti kjara-
samninginn
— 64,3 % samþykktu — 21,7 % skiluðu auðu
NÝGERÐUR kjarasamningur
BSRB og ríkisins var samþykkt-
ur í allsherjaratkvæðagreiðslu
BSRB með 64,3% greiddra at-
kvæða.
Á kjörskrá voru 11.812,
9.654 kusu eða 81,73%. Já
sögðu 6.210 eða 64,3% þeirra
sem atkvæði greiddu, nei
sögðu 1.318 eða 13,7%, 2.100
skiluðu auðu eða 21,7% og 26
gerðu ógilt eða 0,3%.
HJÖRÐUR Zophaníasson formaður
yfirkjörstjórnar BSRB tilkynnir
niðurstöðu talningar i meginhluta
atkvæða í allsherjaratkvæðagreiðslu
BSRB síðdegis i laugardag, en þi
var Ijóst orðið að BSRB félagar
höfðu samþykkt samninginn.
Austurland:
Veruleg fækk-
un nemenda í
grunnskólum
NEMENDUM í grunnskólum i
Austurlandi hefur fækkað um 9%að
meðaltali i undanförnum itta irum,
að því er fram kemur ( fréttabréfi
fri Fræðsluskrifstofu Austurlands-
umdæmis. Þar segir ennfremur, að
þessi fækkun í skólunum hljóti að
benda til fólksfiutninga fri Austur-
landL
Árið 1976 voru 2.620 nemendur í
grunnskólum á Austurlandi, en á
síðastliðnu ári voru þeir 2.388.
Fækkun nemenda hefur orðið
mest sem hér segir: Á Seyðisfirði
27,5%, Breiðdal 23,5%, Eskifirði
22,4%, Hallormsstað 22,4%,
Grunnskólanum að Eiðum 20,7%,
Reyðarfirði 20%, Borgarfirði
12,5%, Fáskrúðsfirði 12,4% og
Nesjaskóla 9.7%. í nokkrum sveit-
arfélögum á Austurlandi hefur þó
nemendum fjölgað nokkuð, svo
sem á Stöðvarfirði, Höfn, Egils-
stöðum og I nokkrum hinna
smærri sveitarfélaga, en það
breytir hins vegar ekki þeirri
staðreynd, að um verulega heild-
arfækkun er að ræða, að því er
segir í fréttabréfinu.
Loðnukvótinn
tvöfaldaður
Sjávarútvegsráðuneytið hefiir nú
ákveðið að auka heildarloðnuveiði-
kvótann á yfirstandandi vertíð um
helming. Verður þvf hverju skipi
fyrir sig heimilt að veiða tvöfalt það
magn, sem því hafði áður verið út-
hlutað á haust- og vetrarvertíð.
Samkvæmt aukningu þessari
verður til bráðabirgða heimilt að
veiða 390.000 lestir í stað 195.000
lesta, sem upphaflega var ákveðið.
f gær höfðu borizt um 180.000 lest-
ir loðnu á land.
í frétt frá ráðuneytinu segir, að
ákvörðun þessi sé tekin á grund-
velli bráðabirgðatillagna frá Haf-
rannsóknastofnuninni, sem stað-
festar hafi verið á fundi fiskveiði-
ráðgjafanefndar Alþjóðahafrann-
sóknaráðsins i byrjun síðustu
viku.
Nú standi yfir frekari bergmáls-
mælingar á loðnustofninum á veg-
um Hafrannsóknastofnunar og sé
þess vænzt að niðurstöður þeirra
liggi fyrir fljótlega og verði þá
tekin afstaða til frekari veiða á
yfirstandandi loðnuvertíð.
Hjálmar hættir
sem siglinga-
málastjóri
Hjálmar R. Bárðarson, sigl-
ingamálastjóri, hefur fengið
lausn frá embætti vegna aldurs.
Embætti siglingamálastjóra
hefur nú verið auglýst laust til
umsóknar, með umsóknarfresti
til 1. desember 1984.
Morgunblaðið/ Árni Ssberg
POLONEZl 1500
árgerð 1985:
HÖRKUBÍLL
á flottu verði
226.00 0] r.
(kominn á götuna)
Daihatsuumboðið hefur nú tekið
við innflutningi á hinum traustu og
vinsælu Polonez frá FSO-verk-
smiðjunum í Varsjá. 1985 árgerðin
er stórglæsilegur lúxusvagn á
hreinu smábílaverði. Nú er rétt
fyrir Polonez-eigendur að endur-
nýja kynnin og aðra að kynna sér
þennan hörkubíl.
Hér eru nokkrir
Polonez-punktar:
★ Vélin er 81 þrumuhestafl og
gírarnir 4.
★ Línurnar nýtískulegar og
sportlegar.
★ Diskabremsur á öllum —
Bamaöryggislapsingar —
ir og sterkir stuöaöar — Or
yggissjónarmið í öllu.
★ Sterkbyggöur og þéttur -
Traust fjöðrun tryggir aksturs
öryggi og farþegaþægindi
★ Fullkomiö mælaborö meö öllu
tilheyrandi.
★ Þægileg sæti fyrir 5 fullorö
— 5 dyr.
★ Skutdyrnar opnast
inn í 300 —* f
lítra farangursrými - ,
sem nær fjórfaldast í
1070 lítra geim er
aftursætið er lagt niður.
★ Teppi á öllum gólfum
og fallegt en hagnýtt
áklæöi.
Þú lagar stýrishæðina
að þínum þörfum.
I jWnfif.'fVH R |Hj
±1
Og þetta er bara brot af
Polonez-punktunum.
Við skorum á alla sem setja upp snúð, er talað er um
Austur-Evrópu bíla að koma og skoða Polonez og það
sem fæst fyrir 226.000 kr.
DAIHATSUUMBOÐIÐ
ÁRMÚLA 23. S. 685870 — 81733.