Morgunblaðið - 13.11.1984, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 13.11.1984, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1984 21 Vextirnir orðnir efnahagsleg endaleysa — eftir Ragnar Arnalds Vextir hafa mjög farið hækkandi að raungildi í seinni tíð en þó tók .steininn úr nú í haust, eftir að Þor- steinn Pálsson og Steingrímur Her- mannsson sömdu um, að bankarnir fengju sjálfdæmi um vaxtaákvarðan- ir, þrátt fyrir margyfirlýsta andúð Steingríms á háum vöxtum. Raunvextir, þ.e. vextir umfram verðbólgustig eða fulla verðtrygg- ingu, eru nú orðnir 7—8% á verð- tryggðum útlánum hjá bðnkunum en allt að tvöfalt hærri á almenn- um verðbréfamarkaði. Til þess að menn skilji hvað um Collonil vernd fyrir skóna, leöriö, fæturna. Hjá fagmanninum er að ræða má nefna sem dæmi, að sá sem tekur lán og endurgreiðir það tíu árum síðar með 7% raunv- öxtum, verður að greiða lánsupph- æðina tvöfalda (vextir + afborg- un). Með 10% raunvöxtum tvö- faldast upphæðin á aðeins 7 árum og með 14% raunvöxtum á aðeins 5 árum. Raunvextir af þessari stærð- argráðu eru gersamlega óviðráð- anlegir fyrir flesta lántakendur. Fjárfesting sem skilar andvirði sínu í arð á 5—10 árum er sjald- gæf, þótt auðvitað megi finna þess dæmi. Allur þorri lántakenda, þ.á m. flestir atvinnurekendur, út- gerðarmenn og bændur, geta ekki gert sér vonir um svo skjóta ávöxtun fjárfestingar. Enn síður getur fólk með meðaltekjur vænst þess að eignast i raun þá ibúð, sem það kaupir eða byggir, ef það þarf að snara út andvirði ibúðarinnar í vextina eina á 5—10 ára fresti. Kaunvextir banka á bilinu 7—8% í þjóðfélagi, þar sem þjóðarfram- leiðsla hefur að jafnaði vaxið um eitt til tvö prósent, eru efnahagsleg endaleysa og hljóta og kalla á gjald- þrot fyrirtækja og einstaklinga f stórum stíl að nokkrum tíma liðnum. Vissulega er mjög mismunandi, hvaða áhrif háir raunvextir hafa á afkomu atvinnuveganna. Að und- anförnu hefur verið mikil gróða- myndun í verslun og ýmiss konar þjónustu en aftur á móti erfið af- koma í sjávarútvegi og landbún- aði. Þeir sem átt hafa á brattann að sækja hafa safnað miklum lausaskuldum, sem strax lenda í þessum hæstu raunvöxtum með einum eða öðrum hætti sem nú hafa náð áður óþekktri stærðar- gráðu. Það þarf því engan að undra, að í samkeppni við höfuðborgarsvæð- ið halli nú mjög á landsbyggðina, þar sem hefðbundnar framleiðslu- greinar eru burðarásar atvinnu- lífs. óhjákvæmilegt er að ítreka, að þessi háskalega þróun vaxtamála að undanförnu er ekkert óvænt slys, heldur afleiðing ákvarðana, sem Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, knúði fram í samningum við Steingrfm Her- mannsson. Þetta er stefna auð- Ragnar Arnalds „Óhjákvæmiiegt er að ítreka, að þessi háska- lega þróun vaxtamála að undanförnu er ekk- ert óvænt slys, heldur afleiðing ákvarðana, sem Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, knúði fram í samningum við Stein- grím Hermannsson“ hyggjunnar í sinni verstu mynd, þar sem hagsmunum fjöldans er fórnað í þágu auðmagnsins. Talsmenn hávaxtastefnunnar hafa huggað áhangendur sína með því, að markaðurinn muni smám saman leita jafnvægis og finna vaxtastig, sem samræmist að- stæðum, jafnframt því sem eftir- spurn og framboð fallist í faðma. Fátt bendir til þess að þetta sé rétt, eins og ástandið í lánamálum bankakerfisins ber glöggt vitni um. Síhækkandi vextir hafa ekk- ert bætt úr misvægi framboðs og eftirspurnar á lánum, sem lengi hefur ríkt hér á landi. Sú stað- reynd, að menn bíða í löngum röð- um eftir að taka lán sem í eðli sínu eru flestum óviðráðanleg, sýnir að ástand lánamála er fyrst og fremst vítahringur, sem menn komast ekki úr þótt fegnir vildu; menn taka sem sagt lán í stórum stíl úr neyð með okurvöxtum, þótt skynsemin segi þeim, að þeir ættu ekki að gera það. Hér sem vídar þarf aðra og beil- brigðari stjórnarstefnu en þá sem nú er fylgt Fólkið og fyrirtækin í land- inu eiga kröfu til eðlilegra lífsskil- yrða og þar á meðal hlýtur að vera rétturinn til að fá lán með hæfí- legum kjörum. Ragnar Arnalds er alþingismadur Alþýðubandalags fyrir Norður- landskjördæmi restra og formaður þingfíokks Alþýðubandalags. HELGARa REISURl Helgarreisur veita einstaklingum, fjölskyldum og hóp- um tækifæri til að njóta lífsins á nýstárlegan og skemmti- legan hátt, fjarri sinni heimabyggð. Fararstjórnin er í þín- g um höndum: Þú getur heimsótt vini og kunningja, farið í leikhús, á óperusýningu, hljómleika og listsýningar. Síðan ferðu út að borða á einhverjum góðum veitinga- stað og dansar fram á nótt. Stígðu ný spor í Helgarreisu Flugleiða! Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flug- leiða, umboðsmenn og ferðaskrifstofur. FLUGLEIDIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.