Morgunblaðið - 13.11.1984, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1984
25
Harry prins situr fyrir
Harry litli Bretaprins sat f fyrsta skipti opinberlega fyrir birdljósmynd-
ara bresku krúnunnar um helgina og er mynd þessi hluti af uppsker-
unni. Falleg mynd af Harry í faðmi móður sinnar, hinnar ungu Díönu
prinsessu. Harry er sem kunnugt er annað barn ríkisarfahjónanna
Díönu og Karls prins.
Eftirlýst vegna
sprengju tilræðis-
ins í Brighton
Londoa, 12. BÓTenber. AP.
ÍRSKA lögreglan leitaði í dag ákaft að 28 ira gamalli konu, sem brezk
yfirröld hafa verið á höttunumn eftir í tengslum við tilraun írska lýðveldis-
hersins (IRA) til þess að myrða brezku stjórnina f sprengjutilrsði fyrir einum
mánuði.
Það hefur vakið reiði jafnt á
meðal brezkra sem irskra yfir-
valda, að blaðið Sunday Times (
London skyldi skýra frá nafni
konunnar nú um helgina, en hún
heitir Evelyn Glenholmes. Scot-
land Yard leitar hennar einnig
vegna vegna 5 sprengjuárása f
London 1981, en þá voru 3 menn
drepnir og 38 særðust.
Athyglin beinist samt fyrst og
fremst að konunni nú fyrir meinta
þátttöku f sprengjutilræðinu f
Grand Hotel í Brighton 12. októ-
ber sl., en þar sluppu frú Margaret
Thatcher forsætisráðherra og
nokkrir aðrir ráðherrar brezku
stjórnarinnar með naumindum.
Fjórir menn biðu bana i þessari
sprengjuárás og 32 særðust.
Kastrup-flugvöUun
Hóta hægagangi
fram yfir jól
Kanpmannabörn 12. nÓTember.
SEXTÁN hundruð starfsmenn og flugvirkjar á Kastrup-flugvelli f
Kaupmannahöfn fara sér nú hægt við vinnu sína til að leggja áherslu á
launakröfur sínar. Hóta þeir að halda aðgerðunum áfram allt til jóla en
forsvarsmenn SAS segjast ekki munu hopa um hænufet
Hægagangur starfsmannanna
hefur valdið nokkrum tðfum á af-
greiðslu flugvéla og einkum
þeirra, sem eru í eigu SAS-flugfé-
lagsins. Flugvallarstarfsmennirn-
ir og flugvirkjarnir krefjast þess
að fá dýrtíðaruppbót á launin, sem
nemur nærri fimm krónum dönsk-
um, en SAS hefur boðið þeim
12—28 aura. Timalaun flugvirkj-
anna eru nú 83 kr. danskar en
hinna, sem eru ófaglærðir, 73 kr.
Er það nokkru betra en gerist á
almennum vinnumarkaði f Dan-
mörku.
Flugvallarstarfsmennirnir hafa
hótað að fara sér hægt fram yfir
jól en forsvarsmenn SAS svara
þvi á móti, að hart verði látið
mæta hörðu, flugvelar félagsins
látnar lenda annars staðar en i
Kastrup. Um leið verði starfs-
mönnunum fækkað.
Mafíumenn gómaðir
l-alenno Sikilej. 12. nÍTenber. AP.
LÖGREGLAN á Sikiley handtók
í dag tvo af ríkustu mönnum Sik-
ileyjar, frændurnar Nino og Ign-
azio Salivo fyrir meint tengsl við
mafiuna.
Handtaka þeirra frænda
hefur vakið mikla athygli á
Ítalíu, enda sem fyrr segir
miklir peningamenn. Þeir eiga
saman eða sitt í hvoru lagi
hótel, framleiðslufyrirtæki og
húsgagnaverslanir, auk þess
sem þeir urðu vellauðugir á
skattheimtu fyrir ríkið. Þeim
er gefið að sök að hafa aðstoð-
að mafíuforingjann Tomasso
Buscetta meðan hann fór
huldu höfði og lögreglan leit-
aði hans. Buscetta náðist síðan
og vitnisburður hans hefur
orðið til þess að handtökuskip-
anir voru gefnar út á hendur
300 manna. Þar á meðal þeirra
frænda.
Tónlistarunnendur
Selfossi og Reykjavík
Þriðja starfsár íslensku hjómsveitarinnar hefst með tónleikum í íþróttahúsi
gagnfræðaskólans á Selfossi laugardaginn 17. nóvember kl. 14:30.
Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn.
Einleikari:
Stephanie Brown Stephanie Brown
Hljómsveitarstjóri:
Ragnar Björnsson
Efnisskrá
Karl Hermann Pillney:
Eskapaden Eines
Gassenhauses.
Svíta fyrir kammerhljómsveit.
Jacques Ibert:
Suite Symphonique.
Svíta fyrir kammerhljómsveit.
Frédéric Chopin:
Mazurka nr. 17, Scherzo nr. 2.
Einleikur: Stephanie Brown.
Wolfgang Amadeus Mozart:
Píanókonsert nr. 9,
í Es-dúr, K271.
Einleikur: Stephanie Brown.
Að loknu meistaraprófi frá Julliard tónlistar-
háskólanum (1976) vakti Stephanie
Brown (1955) þegar athygli tyrir öryggi I
tækni og túlkun. Siðan hefur hróður hennar
vaxið jafnt og þétt með tónleikum víðs
vegar um Bandaríkin. Hún hefur leikið með
mörgum helstu hljómsveitum þariertdis, og
hefur nú á efnisskrá sinni fjölda píanó-
konserta. Ummæli gagnrýnenda stórblað-
anna hafa öll verið á einn veg: „Stephanie
Brown er sannarlega undursamlegur
pianóleikari, eigin tón og ákveðinn listræn-
an persónuleika" (N. Y. Times). „Stephan-
ie Brown er ungur pianisti með stórar hug-
myndir og tækni sem hæfir (jeim. Blæ-
brigðin vonj i fögru jafnvægi og styrkleika-
breytingar virtust hlita innra afli hennar"
(The Wahington Post). Pess má geta, að
Stephanie Brown lék nú i haust þennan
konsert Mozarts með þekktustu kammer-
hljómsveit Bandaríkjanna, St. Paul
Chamber Orchestra, undir stjóm Pinnkas
Zukerman.
Efnisskrá þessi verður endurflutt á fyrstu áskriftartónleikum hljómsveitarinnar
í Bústaðarkirkju sunnudaginn 18. nóvember kl. 17:00.
Áskriftarsímamir eru 22035 og 16262.
Þú getur tryggt þér áskrift með símtaii og greitt gjaldið eftir samkomulagi.
önnur efnisskrá vetrarins verður frumflutt á Akranesi laugardaginn 24. nóvember kl. 14:30 og endurtekin á
áskriftartónleikum í Reykjavík sunnudaginn 25. nóvember kr. 17:00.
MIÐ BJOÐUNV
METRINU
BYRGINN
ZtnmuESTonE
Nú eru fyrirliggjandi BRIDGESTONE
radial og diagonal vetrarhjólbarðar á
vörubifreiðar með hinu frábæra BRIDGE-
STONE ÍSGRIPS-mynstri
Sérlega hagstætt verö.
ISGRIP
BILABORG HF
Smiöshöföa 23 sími 812 99