Morgunblaðið - 13.11.1984, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1984
Sovézk vél rauf
lofthelgi Japans
Tókýó, 12. aÓT. AP.
FJÖRUTÍU japanskar orustuvélar
voru sendar í loft í morgun, þegar
viðvörun barst um að sovésk
sprengjuflugvél v«ri komin inn í
loftbelgi Japans og hefði ekki skeytt
endurteknum aðvörunum frá Japan.
Talsmaður japanska varnar-
málaráðuneytisins sagði að vélin,
TU-16, hefði verið ein níu véla
þessarar gerðar, sem hefði flogið
yfir Tsushima-sund sem er milli
Suður-Kóreu og Japans. Fjórar af
Fékk tíma-
kaup að konu
sinni látinni
AP.
FYRIR skömmu dæmdi dóm-
stóll í Bamberg í Vestur-
Þýskalandi tryggingafélag
nokkurt til að greiða ekkju-
manni 400 mörk (rúmar
4.600 ísl. kr.) á mánuði vegna
heimilisstarfa, sem hann
þurfti að annast eftir að kona
hans lést í bílslysi.
Maðurinn hafði borið
fyrir rétti, að þau hjónin
hefðu annast heimilisstörf-
in saman, en eftir lát eigin-
konunnar hefði hann orðið
að bæta á sig u.þ.b. einnar
og hálfrar klukkustundar
starfi dag hvern. Eftir
þessu reiknaði dómurinn
manninum tímakaup og
ákvað, að bæturnar skyldu
haldast til ársins 2011, en
þá hefði eiginkonan orðið
72 ára.
Ekkert
frelsi án
Samstöðu“
Varsjá, 12. ■órcnbcr. AP.
LÖGREGLUMENN beittu vatns-
byssum til að tvfstra 4.000 manna
stuðningshópi Samstöðu á sunnu-
dagskvöld. Hrópaði fólkið: „Það er
ekkert frelsi tií án Samstöðu," en
einnig nafn prestsins Popieluszk-
os, sem myrtur var af pólskum
leynilögreglumönnum. Hafði fólk-
ið safnast saman til þess að minn-
ast þess, að 66 ár voru liðin frá því
að Pólland varð sjálfstætt ríki.
Fólkið hugðist síðan halda
áfram og leggja blómsveig að leiði
óþekkta hermannsins, en hafði
ekki farið nema stutta leið, er
lögreglumenn lokuðu leiðinni og
meinuðu fólkinu að komast fram-
hjá. Urðu flestir að snúa við, en
um 100 manns var þó leyft að
halda áfram að lokum og leggja
blómsveiginn á þann stað, sem
honum hafði verið fyrirhugaður.
níu sprengjuvélunum tóku svo
stefnu til norðurs og fóru inn i
japanska lofthelgi yfir sundinu.
Ein vélanna fjögurra hélt síðan
för sinni áfram og fór yfir Okin-
oshima-eyju í tvær mínútur, en
hinar vélarnar sneru á brott þegar
sendar voru viðvaranir frá jörðu.
Þegar japönsku vélarnar komu
síðan á staðinn var sovéska vélin
flogin burt. Sovétmenn brutu síð-
ast lög um japanska lofthelgi
þann 15. nóvember 1983 og alls
hafa Sovétmenn sextán sinnum
gerst brotlegir hvað þetta varðar
frá lokum seinni heimsstyrjaldar.
Síðustu fimm árin hafa sovéskar
sprengju- og orustuflugvélar mjög
oft farið afar nærri mörkum jap-
anskrar lofthelgi, en sjaldnast
sýnt jafn augljósar ögranir og nú,
að því er segir i tilkynningu um
atburð þennan.
Tískan lœtur ekki að sér hœða
Tískan lætur ekki að sér hæða eins og þessi mynd ber með sér, en á henni má sjá
sýningarstúlkur sýna það nýjasta frá einu af virtari tískuhúsum Lundúna. Þetta er
vortískan fyrir 1985 og er óþarfi að hafa einhver orð um herlegheitin, myndirnar
tala sínu máli.
Sendiráð Vestur-Þýzkalands í
Prag yfirfullt af flóttamönnum
EFTIR margra vikna árangurslausar
samningaviðræður við austur-þýzk
stjórnvöld hafa stjórnvöld í Bonn
gefizt upp og hvatt þi Austur-Þjóð-
verja, sem leitað hafa hælis í vestur-
þýzkum sendiráðum í Austur-
Evrópu, til að fara þaðan og snúa
aftur heim til sín.
Um 180 Austur-Þjóðverjar
dveljast nú sem flóttamenn í
sendiráöum Vestur-Þýzkalands I
Prag, Varsjá, Búdapest og Búkar-
est og virðist engin von vera til
þess, að þetta fólk fái nokkru sinni
leyfi til að fara þaðan til Vestur-
Þýzkalands.
Flestir eru flóttamennirnir í
vestur-þýzka sendiráðinu í Prag,
eða yfír 100 talsins. Talið var, að
margir þeirra myndu yfirgefa
sendiráðið um helgina, ef ekkert
gerðist í málum þeirra. „Mikið
vonleysi hefur búið um sig á meðal
flóttamannanna, þar sem þeir vita
ekki hvað um þá verður," var haft
eftir starfsmanni við vestur-þýzka
sendiráðið í Prag. Stjórnvöld í
Bonn hafa þó látið í veðri vaka, að
allt verði gert til þess að gera
þessu fólki kleift að komast til
Vestur-Þýzkalands, þótt síðar
verði.
r 4 w
Linda og Paul McCartney.
Hugðust ræna
konu bítilsins
LomIh, 12. BÍTember. AP.
LÖGREGLAN befur handtekið hóp manna, sem taldir eru viðriðnir
mcint áform um að ræna eiginkonu bítilsins Paul McCartney, Lindu, að
sögn lögreglunnar í Sussex á Englandi.
Hermt er að tilræðismennirn-
ir hygðust krefjast 10 milljóna
sterlingspunda lausnargjalds
fyrir Lindu. Ráðgerðu þeir að
ræna henni nærri sveitasetri
þeirra hjóna I Sussex-sýslu suð-
ur af London og halda henni í
gíslingu á felustað í afskekktu
skóglendi þar til lausnargjaldið
hefði verið borgað.
Að sögn talsmanns McCartney
voru launráðin brugguð fyrir um
það bil ári, en lögreglan komst
fljótlega á snoðir um fyrirætlan-
irnar við rannsókn óskyldra
mála og er talið að allir samsær-
ismennirnir séu nú á bak við lás
og slá.
Deilt um nýja
hernaðaraðferð
Bnuwel, 12. aÍTember. AP.
Ný hernaðaraðferð NATO, þar
sem gert er ráð fyrir árásaraðgerð-
um inn í Austur-Evrópu sem svar við
árás Sovétríkjanna og fylgiríkja
þeirra á Vesturlönd, kann að vera
úrelt sökum nýlokinna breytinga I
hernaðaráformum Sovétmanna.
í skýrslu frá Karsten Voigt I
dag, en hann á sæti á Sambands-
þinginu I Bonn, kom fram, að hin
nýja kenning um hernaðaraðgerð-
ir virtist vera byggð á úreltum
upplýsingum um búnað og skipu-
lagningu sovézka hersins í Aust-
ur-Evrópu.
Nýrri upplýsingar gæfu til
kynna, að Sovétmenn legðu nú
meiri áherzlu á að styrkja her-
sveitir sínar í fremstu fylkingu en
minni áherzlu á þær hersveitir,
sem væru í annarri víglinu.
Önnur hjartagræðsl-
an á tveimur lífsárum
PitWborc, 1Z nóT. AP.
UM HELGINA var grætt hjarta
í tveggja ára telpu, Kellie Cochr-
anan svo og var grædd í hana ný
lifur og er þetta í annað skipti á
stuttum lífsferli, að telpan fær
nýtt hjarta. Læknar segja líðan
bpnnar alvarletra. en nf snemmt
að spá um hvort hún muni lifa af.
Eldri systir hennar sjö ára þjáist
einnig af hjartasjúkdómi en ekki
á jafn háu stigi.
Þetta er í fyrsta skipti sem
samtímis er grætt hjarta og lifur
í manneskju.
Hittast Peres
og Mubarak?
, 12. nórember. AP.
SHIMON PERES, forsætisráðherra ísraels, sagði í ræðu í Jerúsalem í dag,
að hann hefði farið þess á leit við Hosny Mubarak, forseta Egyptalands, að
þeir hittust á völdum stað við landamæri ísraels og Egyptalands og ræddu
kólnandi sambúð landanna. Sagði Peres að Mubarak hefði tekið málaum-
leitan sinni vel, en áskilið sér rétt til að undirbúa þann fund um óákveðinn
um vesturbakka Jórdanárinnar og
landnám ísraela á þeim slóðum
ekki bætt ástandið.
ísraelska ríkisútvarpið greindi
frá því í dag, að sendinefnd væri
væntanleg frá Egyptalandi til að
undirbúa jarðveginn fyrir vænt-
anlegan fund þeirra Mubaraks og
Peresar.
Sambúð umræddra landa kóln-
aði mjög er ísrael gerði innrás
sína í Líbanon og þremur mánuð-
um eftir innrásina kölluðu Egypt-
ar sendiherra sinn heim í mót-
mælaskyni við innrásina, svo og
við fjöldamorðum falangista á
flóttamönnum frá Palestínu sem
ísraelsmenn voru taldir hafa gefið
vilyrði sitt fyrir. Þá hafa deilur