Morgunblaðið - 13.11.1984, Page 27

Morgunblaðið - 13.11.1984, Page 27
MORGUNBLAÐIP, ÞRIÐJUDAGUR13. NÓVEMBEB 1984 27 Sovézku liðhlauparnir neyddir til að snúa heim? London, 12. bít. AP. SEXTÁN mánuðum eftir að tveir sovéskir hermenn í hernámsliði Sovétríkjanna í Afganistan flýðu til Bretlands héldu þeir svo í gærkvöldi með Aeroflot-flugvél áleiðis til Sovétríkjanna. Mennirn- ir tveir sögðu við fréttamenn, að þeir byggjust við, að allt yrði í góðu lagi þegar heim kæmi og þeir voru alls ekki kvíðnir. Sovéskir sendi- ráðsstarfsmenn fylgdu þeim til flugvallar og höfðu áður meinað breskum lögregluyfirvöldum að tala við mennina til að reyna að ganga úr skugga um, hvort þeir hefðu verið kúgaðir til að snúa heim með hótunum um að fjöl- skyldur þeirra myndu hafa verra af ella. Bethel lávarður, þingmaður á Evrópuþinginu sem aðstoðaði mennina við að komast til Bret- lands, sagðist ekki vera i nokkr- um vafa um að þeir hefðu verið beittir hótunum. Þegar þeir komu til Bretlands á sinum tíma, gáfu þeir lögregluyfirvöld- um ljótar lýsingar á framferði sovéska hersins í Afganistan og þykir ekki trúlegt, að sögn fréttaskýrenda, að þeim verði fagTiað innilega við heimkom- una. Starfsmenn sovéska sendi- ráðsins sögðu, að mennirnir hefðu þjáðst af heimþrá og þeir hefðu ekki getað fellt sig við vistina í Bretlandi. Fyrir skömmu fékk annar mannanna bréf frá fjölskyldu sinni og er getum að þvi leitt að fjölskyldan hafi verið neydd til að senda bréfið til að ýta undir sektar- kennd og vanlíðan mannanna. Brottför mannanna tveggja, Rykhov og Khlan, svo og nýleg heimferð Svetlönu Stalinsdóttur hefur vakið mikla athygli á Vesturlöndum og eru uppi get- gátur í æðstu hringjum að Sovétmenn beiti æ harkalegri þvingunum þá sem reyna að búa sér nýtt heimili á Vesturlöndum, en Sovétmönnum þykir akkur i að fá heim aftur. Sím&mynd AF Raijv Gandhi forsætisráðherra Indlands er hér með eina af 25 koparkrúsum sem innihéldu ösku hinnar föllnu Indiru Gandhi, en öskunni var dreift yflr Himalaya-fjöll um helgina. Ösku Indíru dreift Óvíst er um verustað Shcharanskys Jerós&lem, 12. bót. AP ANATOLY Shcharansky, sovézkur gyðingur sem afplánar þrettán ára refsidóm fyrir andsovézka iðju hef- ur verið fluttur í nauðungarvinnu- búðir í Úralfjöllum og fjölskylda hans hefur miklar áhyggjur af bágri heil.su hans, að því er kona hans Avital sagði í dag. Hún sagðist hafa rætt við mág sinn í síma, en ekkert hefði heyrzt frá honum og ekki væri vitað um líðan hans. Shcharansky hefur verið hjartveikur undanfarin ár og mikill áróður verið rekinn fyrir því á Vesturlöndum, að hann fái að fara úr landi. Ríkisstjórn Shimon Peresar samþykkti á síðasta ríkisstjórn- arfundi sínum að skora á sovézk stjórnvöld að leyfa Shcharansky að flytjast til ísraels. Olíufram- leiðsla Óman óbreytt Manama, 12. BÓTember. AP. OMAN dregur ekki úr olíu- framleiðslu sinni, sem nemur 400 þúsundum tunnum á sólarhring, að sögn olíuráðherra landsins. Oman er ekki ÍOPEC. Ráðherrann, Ahmed Al-Shan- fari kvaðst hins vegar styðja ákvörðun OPEC-ríkja um fram- leiðslusamdrátt úr 17,5 milljónum fata á dag í 16 milljónir til þess að sporna við verðlækkun á olíu. Haft var eftir Qaboos, soldán af Oman, um helgina að Oman-búar hyggist stuðla að fjölbreyttni í efnahagslífi sínu til þess að verða ekki algjörlega háðir olíutekjum. Hyggist þeir einbeita sér að þróun landbúnaðar og iðnvæðingu. Dehlhi, 12. nÓTember. AP. ÖSKU Indíru Gandhi var dreift úr herflugvél yfir Himalayafjöllin, sam- kvæmt ósk Indiru, sem hafði dálæti á fjöllunum tilkomumiklu. Þrjár öskukrukkur, sem verið höfðu til sýnis undir tré við æsku- heimili Indiru, voru fluttar með þyrlu frá Dehlhi til Hindon-flug- stöðvarinnar i norðurhluta lands- ins, þar sem þær voru settar um borð í AN-12 flutningaflugvél ásamt 32 öskukrukkum öðrum, sem verið höfðu til sýnis í borgum Indlands. Á laugardag var lögreglustjór- inn í Dehlhi settur af og eftirmað- ur hans hét því að efla traust manna á lögreglunni, sem þvarr er lögreglunni mistókst að bæla niður fjögurra daga blóðugar óeirðir í kjölfar morðsins á Indiru Gandhi. Stofnaðir mannréttinda- hópar í Varsjá og Kraká Varajá, 12. BÓTember. AP. Menntamenn og fyrrum Samstöðumenn í Krakow í suður- hluta Póllands hafa stofnað nefnd til að fylgjast með framgangi mannréttinda og til að bregðast við morðinu á prestinum Jerzi Popicluszko, sem var stuðnings- maður Samstöðu. Stofnendur mannréttinda- hópsins eru 22 að tölu. í stofnskjali, sem þeir undirrit- uðu allir, er hvatt til endurbóta í dómskerfinu í kjölfar morðsins á Popieluszko. „Við skulum öll gera það sem í okkar valdi stendur til þess að Pólland verði ekki framar vett- vangur pólitískra morða, pynt- inga, mannrána og pólitískra ofsókna," segir í stofnskjali hópsins í Krakow, sem dreift hefur verið til vestrænna frétta- manna í Varsjá. Þá var í dag kynnt stofnun samskonar samtaka í Varsjá. Meðal stofnenda voru Edward Lipinski, virtur hagfræðingur og stofnandi réttindabaráttu- hóps verkamanna, KOR, Jan Josef Lipinski, sem einnig er stofnandi KOR, og Janusz Onyszkiewicsz, fyrrum talsmað- ur Samstöðu. Félagsfundur Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur félagsfund um nýgerðan kjarasamning á Hótel Sögu (Átthaga- sal) miövikud. 14. nóvember kl. 20.30. Dagskrá. Nýr kjarasamningur. Félagsmenn hvattir til aö fjölmenna. Veriö virk í VR. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. T ölvunámskeið MARKMIÐ: Lotus 1-2-3 er hugbúnaður sem náð hefur gífurlegri útbreiðslu um allan hinn tölvuvædda heim undanfarin misseri. Lotus 1-2-3 er fáanlegt á flestar gerðir 16 bita smátölva, s.s. IBM PC og samskonar vélar, Rainbow PC, Wang PC. í þessum hugbúnaði sameinast öflugur töflureiknir (spredsheet), gagnagrunnskerfi (database) og síðast en ekki síst grafisk framsetning upplýsinga. Þessi þrjú kerfi vinna náið saman (intergrated), og með því hafa náðst áður óþekktir möguleikar i gagnavinnslu á minni tölvur. Efni námskeiðsins: - Kenna á þá möguleika sem 1-2-3 býður í tölvu- vinnslu - Notkun allra skipana og verkþátta kerfisins með hjálp tölvu — Notkun gagnagrunns og grafísk framsetning - Samtenging kerfanna 1-2-3 og samtenging við önnur tölvukerfi. Á námskeiðinu er notaður tölvubúnaður sem keyrir Lotus 1-2-3. ÞÁI I IAKENDUR: Stjórnendur fyrirtækja og stofn- ana, fjármálastjórar, deildarstjórar hagdeilda, rekstr- arráðgjafar og þeir sem ábyrgð bera á notkun tölvukerfa við áætlanagerð. TÍMI OG STADUR: Síðumúli 23, 26.-29. nóvember kl. 9-13. LEIÐBEINENDUR: Páll Gestsson, starfsmaður IBM á íslandi. Friðrik Sigurðsson, forstöðumaður Tölvufræðslu SFÍ. TILKYNNIÐ ÞATTTOKU í SÍMA 82930 STJÓRNUNARFÉLAG ISIANDS ISS23 BJARNI DAGUR/AUGL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.