Morgunblaðið - 13.11.1984, Side 28

Morgunblaðið - 13.11.1984, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1984 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoöarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 300 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 25 kr. eintakiö. Áróðurstækni Bandalags jafnaðarmanna ingmenn Bandalags jafn- aðarmanna stunda nú tví- þættan áróðursleik. Annars- vegar ráðast þeir að Sjálfstæð- isflokknum; telja hann hafa brugðist ýmsum baráttumálum sínum. Hinsvegar sigla þeir upp að hlið Sjálfstæðisflokks- ins, skoðanalega; gera stefnu- mið hans að sínum. Þessi áróð- urstækni tekur fyrst og síðast mið af þeirri staðreynd, að frjálslynd og framfarasinnuð borgaraleg sjónarmið, sem flokkast undir samheitið sjálf- stæðisstefna, hafa í raun hljómgrunn hjá meirihluta þjóðarinnar. Þingmenn Banda- lagsins hafa kosið að róa á fengsæl kjósendamið, að þeirra dómi. Þingmenn Bandalagsins hafa hinsvegar skotið allhast- arlega yfir markið í árásum sínum á Sjálfstæðisflokkinn, sem að hluta til hafa einnig beinst gegn Morgunblaðinu. Sem dæmi um slíkan ofleik má nefna ræðu Stefáns Bene- diktssonar í efri deild Alþingis um nýjan viðaukasamning við Alusuisse, sem færir Lands- virkjun 2.300 m.kr. tekjuauka á fimm árum og ríkissjóði 100 m.kr. sáttafé, vegna niður- felldra deilumála, auk þess sem sterkar líkur eru á enn hærra orkuverði til væntanlegrar stækkunar álversins. Þingmað- urinn gekk svo langt að saka Morgunblaðið um „andís- lenska„ afstöðu i þessu máli, sem Sjálfstæðisflokkurinn hafi síðan tekið upp. Þetta er al- varleg ásökun og eins fjarri veruleikanum og hugsast get- ur. Morgunblaðið gagnrýndi vinnubrögð fráfarins iðnaðar- ráðherra, sem klúðraði sam- skiptamálum við álverið stanslaus 1978—1983, og virtist hafa meiri áhuga á lokun þess, sem hann taldi álitlegasta orkukost íslendinga í þing- ræðu, en rétta hlut okkar í orkuverði. Hefði sá samningur, sem nú hefur loks náðst, gilt frá 1979, væri Landsvirkjun 1800 m.kr. betur sett, og skuldastaða íslenska orkukerf- isins önnur og léttbærari. Bæði breskir og amerískir fagaðilar, sem fyrrverandi iðn- aðarráðherra réð til ráðgjafar, mæltu með þeirri leið, sem Morgunblaðið taldi vænlega og nú hefur verið farin. Forsjár- menn Landsvirkjunar telja hinn nýja samning „Lands- virkjun mjög í vil og fyrirtæk- inu verulega til hagsbóta". Bandalagi jafnaðarmanna hefði verið nær að beina gagn- rýni sinni til réttrar áttar, til afturhaldsins í Alþýðubanda- laginu, sem haft hefur af ís- lendingum stórfé með þröng- sýni sinni. Annar þingmaður Banda- lagsins, Guðmundur Einars- son, telur Morgunblaðið of vil- halt undir orkuiðnað, sem heyri til gærdeginum. Morgun- blaðið hefur aldrei talað um stóriðju sem alhliða lausn eða tryggingu fyrir atvinnuöryggi og viðunandi lífskjörum í land- inu. Það hefur hinsvegar talað um þessa leið, þ.e. að breyta íslenskum fallvötnum í út- flutningsverðmæti og lífskjör, sem eina af mörgum sem fara þurfi. Það er einnig rangt af þess- um þingmanni Bandalagsins að gera lítið úr íslenskum sjávar- útvegi og landbúnaði. Þessar atvinnugreinar eru ekki úrelt- ar, eins og hann lætur liggja að, fremur en landið sjálft. Þessar atvinnugreinar hafa brauðfætt þjóðina í meir en 1100 ár. Sjávarútvegurinn hef- ur I raun verið stóriðja það sem af er þessari öld. Það þarf hinsvegar að þróa þessa hefð- bundnu atvinnuvegi að tækni— og markaðskröfum. Og fiski- stofna og gróðurmold þarf að nýta innan hyggilegra marka. Morgunblaðið hefur margoft áréttað að atvinnuöryggi og lífskjör verða ekki til í samn- ingum heldur í kviku atvinnu- lífsins. Það hefur lagt áherslu á það að efla hefðbundna at- vinnuvegi og skjóta nýjum stoðum undir atvinnu og efna- hag þjóðarinnar. Það hefur tal- að um orkuiðnað sem eina af mörgum tiltækum leiðum, en engu minna fjallað um fiski- rækt, rafeindaiðnað og lífefna- iðnað, sem óhjákvæmilega tengist bæði sjávarútvegi og landbúnaði. Guðmundur Ein- arsson hefur gert sumar af þessum ábendingum Morgun- blaðsins að sínum. Það er út af fyrir sig fagnaðarefni. Hitt er ástæðulaust hjá þingmannin- um að agnúast út í þann hug- myndabanka, sem hann sækir til. Árásir Bandalags jafnað- armanna á Morgunblaðið og aðra aðila í þjóðfélaginu, sem bent hafa á leiðir til að tryggja atvinnuöryggi og efnahagslegt sjálfstæði þjóðar og þegna, missa marks. Hitt er réttvís- andi, ef Bandalagið fylkir með öflum, sem varða vilja veg þjóðarinnar til velmegunar, frjálsræðis og nýsköpunar í ís- lensku atvinnulífi. Leið þjóðar- skútunnar til bættra lífskjara sækist betur, ef hin pólitísku öfl róa til sömu áttar. Nýskipan sve stjórnarmá eftir Björn Friðfinnsson Inngangur Sveitarfélög hafa frá upphafi byggðar hér á landi verið grund- vallareiningar í stjórnskipan landsmanna. Þau eru eldri en ríkisvald og uppruna þeirra má rekja til þeirra lýðræðishefða, sem um langan aldur fylgdu ger- mönskum þjóðflokkum. fbúar í hverri byggð stofnuðu sveitarfélag með formlegri stjórn til þess að leysa ákveðin verkefni, sam talið var að byggðin yrði sam- eiginlega að bera ábyrgð á. Á þjóðveldisöld var sveitar- stjórnin skipuð þremur mönnum , sem nefndust sóknarmenn eða hreppsstjórar og voru þeir kjörnir á vorþingi til eins árs í senn. Verkefni sveitarstjórna voru í fyrstu framfærslumál, fjallskil- mál og niðurjöfnun bruna- og bú- fjártjóna eftir ákveðnum reglum. Með tíundarlögunum 1096, sem að nokkru leyti giltu fram á þessa öld, var sveitarfélögunum fenginn tekjustofn til þess að standa undir kostnaði við framfærslumálin, en fjórðungur tíundarinnar gekk til framfærslu þurfamanna, meðan biskup, prestur og kirkja fengu sinn fjórðung hver. Verkefnum sveitarfélaganna fjölgaði síðan í aldanna rás, en fé- lagsmálin voru jafnan erfiðust viðfangs. Skv. hreppskilaþætti Grágásar skyldu 20 þingfararkaupsgildir bændur vera í hreppi hið fæsta. Hafa fræðimenn álitið, að af þessu megi draga þá ályktun, að hreppur skyldi hafa um 400 íbúa hið fæsta, en vafalaust hafa þó verið þar undantekningar frá og ýmsir hreppar verið fámennari vegna landfræðilegra aðstæðna. En sum- ir hreppar hafa verið miklu fjöl- mennari. Þessi ákvæði hinnar elztu lög- bókar íslendinga voru sérstaklega áréttuð á Alþingi árið 1583, þar sem sýslumönnum var heimilað að sameina tvo hreppa eða fleiri til þess að þessu marki yrði náð. Með lögtöku Jónsbókar árið 1281 var lögfest sú skipting byggð- arinnar í sveitarfélög, sem þá hafði komist á. Þá var og gerð sú breyting að hreppsnefndar- mönnum eða hreppsstjórum var fjölgað í 5 og skyldu þeir kosnir til óákveðins tíma. Þegar manntal var gert á Is- landi árið 1703 voru 163 sveitarfé- lög í landinu. Á tímabilinu frá lögtöku Jóns- bókar og fram yfir aldamótin 1800 urðu sveitarstjórnir smám saman háðari ríkisvaldinu þrátt fyrir það að lagaákvæði um sveitarstjórn- arskipan héldust óbreytt. Konung- ur náði til sín hluta tíundartekna árið 1556 og umboðsmenn ríkis- valdsins, sýslumennirnir, fóru að hafa meiri afskipti af sveitar- stjórnarmálum, enda hafa vald- mörk milli ríkis og sveitarfélaga trúlega verið óljós í hugum manna á þeim tíma. Sýslumenn fóru m.a. að hafa af- skipti af kjöri hreppstjóra og árið 1699 var kveðinn upp lögréttu- úrskurður um að prestur og starf- andi hreppstjórar ættu að kjósa í lausar hreppstjórastöður, en sýslumaður síðan samþykkja kosninguna. Nokkrum áratugum síðar virðist sá háttur víðast kom- inn á að sýslumaður útnefni 2—5 hreppstjóra í hverjum hreppi og skyldi til starfans velja efnuðustu og greindustu bændur í hreppn- um, ef marka má íslandsauglýs- ingu Skúla Magnússonar landfó- geta frá árinu 1785. Sumarið 1809 var gerð hér á landi skammlíf stjórnarbylting eins og kunnugt er. Vafalaust hafa þeir atburðir orðið tilefni um- ræðna um nauðsyn þess að styrkja ríkisvaldið enn frekar hér á landi og skömmu seinna eða hinn 24. nóvember 1809 gaf Magnús Steph- ensen dómstjóri og báðir amt- menn landsins sameiginlega út er- indisbréf fyrir hreppstjóra, en með því voru hreppstjórar gerðir ríkisstarfsmenn og þeim fækkað. Var sjálfstjórn sveitarfélaga þar með afnumin, en sérstök ákvæði um kaupstaði tryggðu nokkra sjálfsstjórn þeirra áfram. Sums staðar héldu hreppsbúar áfram kjöri hreppsnefnda í trássi við erindisbréfið, enda virðist sem lagalegur grundvöllur þess hafi verið vafasamur. En nú fór alda þjóðfrelsisbar- áttu um löndin og endurreisn sveitarstjórna var eitt af grund- vallaratriðum í þeirri hugmynda- fræði, sem þjóðfrelsismenn boð- uðu. Jónas Hallgrímsson reit grein I 1. árgang Fjölnis, sem hann nefndi „Fáein orð um hrepp- ana á íslandi" og hvatti þar til sjálfsstjórnar sveitarfélaga og endurbóta á stjórnsýslu þeirra. Eftir endurreisn Alþingis 1845 fóru að berast þangað bænaskrár og áskoranir frá héraðsfundum, þar sem hvatt var til lagasetn- ingar um sjálfsstjórn sveitarfé- laga. Árið 1853 samþykkti svo Al- þingi áskorun til konungs varð- andi setningu nýrra sveitarstjórn- arlaga og hófst nú margra ára þref milli Alþings og danskra landsstjórnarmanna um efnisatr- iði slíkra laga. Þvi lauk með kon- unglegri tilskipun hinn 4. maí 1872, þar sem sveitarfélögin fengu sjálfsstjórn á nýjan leik. Tilskipunin frá 1872 er í megin- atriðum grundvöllur þeirrar sveit- arstjórnarlöggjafar, sem enn gild- ir, en í tímans rás hafa þó verið gerðar fjölmargar breytingar á henni og ný almenn sveitarstjórn- arlög hafa verið staðfest 1905, 1927 og 1961. Endurskoðunarnefnd Lögin frá 1961 tóku gildi 1. janúar 1962. Síðan hafa margvís- legar breytingar orðið i þjóðlífinu og langt er síðan raddir fóru að heyrast um nauðsyn nýrrar lög- gjafar varðandi sveitarstjórnar- málefni. Samband ísl. sveitarfé- laga hefur fjallað um málið og gert um það ályktanir á fundum sínurn og sama er að segja um landshlutasamtök sveitarstjórna, sýslunefndir og fundi innan stjórnmálaflokkanna. Þann 13. júní 1981 skipaði fé- lagsmálaráðherra nefnd sex manna, er skyldi hafa það hlut- verk að endurskoða sveitarstjórn- arlögin frá 1961 með síðari breyt- ingum ásamt lögunum um sveitar- stjórnarkosningar og lögum, sem sett voru 1970 um sameiningu sveitarfélaga. í nefndina voru skipaðir Alex- ander Stefánsson nú félagsmála- ráðherra, Jón G. Tómasson, þáver- andi formaður Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, Magnús H. Magnússon, fyrrverandi félags- málaráðherra, Sigurjón Péturs- son, þáverandi forseti borgar- stjórnar Reykjavíkur, Sturla Böðvarsson, sveitarstjóri í Stykkishólmi, og Steingrímur Gautur Kristjánsson, héraðsdóm- ari, sem skipaður var formaður nefndarinnar. Haustið 1982 lét Jón G. Tómas- son af störfum sem formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sem eftirmaður hans í formanns- Björn Friðfinnsson „Niðurstaða nefndar- innar er sú, ad leggja til að sýslufélögin verði stækkuð og látin einnig ná til kaupstaðanna. Nefnist þau framvegis héruð og stjórn þeirra héraðsþing.“ sæti tók ég þá jafnframt við starfi hans í endurskoðunarnefndinni. Vorið 1983 varð Alexander Stef- ánsson félagsmálaráðherra og tók Jóhann Einvarðsson við sæti Al- exanders í nefndinni. Nefndin hélt fjölmarga fundi og viðaði að sér miklum fróðleik um sveitarstjórnarlöggjöf í nágranna- löndunum og um ályktanir og af- stöðu hinna ýmsu aðila hérlendis, sem fjallað hafa um endurskoðun sveitarstjórnarlaganna frá 1961. Að beiðni ráðherra samdi nefndin 2 frumvörp til breytinga sem brýnastar þóttu á sveitar- stjórnarlögum og lögunum um sveitarstjórnarkosningar og voru þau frumvörp lögð fyrir Alþingi og samþykkt þar. Þá samdi nefnd- in frumvarp til nýrra heildarlaga um sveitarstjórnarkosningar og var það lagt fyrir síðasta löggjaf- arþing, en varð þar eigi útrætt. Loks samdi nefndin svo frumvarp til nýrra sveitarstjórnarlaga, þar sem steypt er saman ákvæðum núgildandi sveitarstjórnarlaga, laga um sveitarstjórnarkosningar og laga um sameiningu sveitar- félaga jafnframt því sem lagðar eru til margvíslegar breytingar á ákvæðum þeirra. Lauk nefndin störfum í maílok sl. og afhenti þá ráðherra fram- angreint frumvarp. Hann hefur síðan sent það sveitarstjórnar- mönnum og óskað eftir athuga- semdum við það, er hann mun hafa til hliðsjónar við endanlega gerð frumvarps til nýrra sveitar- stjórnarlaga, sem ráðherra hyggst

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.