Morgunblaðið - 13.11.1984, Side 40

Morgunblaðið - 13.11.1984, Side 40
~ 48 MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1984 Prentfrelsi á villigötum — eftir Eggert Jónasson í sumarlok bárust þær fréttir til okkar unnenda léttrar tónlistar að von væri á nýju poppblaði. Útgáfa slíkra blaða hefur gengið afar illa á tslandi hingað til og þvi var ekki laust við að maður fylltist aðdáun á útgefanda blaðsins sem ætlaði sér að feta þessa óvissubraut, um leið og maður beið spenntur af- raksturs erfiðisins. Fyrr en varði rann upp útgáfudagur poppblaðs- ins Hjáguðs. Spenntur greip ég eintak af blaðinu á vinnustað mín- um, bókabúð einni hér í borg, og hugðist nú sameina það tvennt að njóta kaffitímans vel og gangast upp í þeirri starfsskyldu minni að vera sæmilega vel upplýstur um söluvarning búðarinnar. Hófst nú lesturinn og er skemmst frá því að segja að líðan mfn eftir nokkrar síður af Hjáguði jafnaðist á við það sem meistari Þórbergur lýsir af stakri snilld í Ofvitanum af veru sinni í Kennaraskólanum: „En drottinn minn dýri! Hvílík vonbrigði! Ég las og las, var búinn að rýna mig rauðeygan í hverja opnuna á fætur annarri. En þær voru alltaf jafn-ómerkilegar, jafn-hundleiðinlegar.“ (bls. 19) Þegar komið var fram undir mitt blað var ég orðinn viss í minni sök; Þórbergur komst að þeirri niðurstöðu að bækur Kenn- araskólans væru bæði ómerki- legar og leiðinlegar, ég komst að þeirri niðurstöðu að blaðið Hjáguð væri eitthvert versta sorp sem komið hefur á prent á íslandi. Þessi fullyrðing skal nú rökstudd. í fyrsta lagi: aldrei á ævi minni hef ég séð annað eins safn móðg- ana og meiðyrða í garð einstakra persóna á prenti. Nokkur dæmi um þetta: „Gunnar poppfáfræð- ingur Salvarsson, aulahúmoristi og Listapoppruglukollur" (bls. 6), „Kynningar Gunnars eru ákaflega þurrar og illa fram setta. Maður- inn er með eindæmum linmæltur, óskýr og litlaus. Að auki er hann hættulega fáfróður um tónlist... Þá talar hann svo rangt mál að furðu sættir." (bls. 23), „í föstu- dagsskapi nefnist skallapoppþátt- ur Séra Helga Más Bárðarsonar. Helgi ætti að biðja Guð um að „Þórbergur komst aö þeirri niðurstöðu að bækur Kennaraskólans væru bæði ómerkilegar og leiðinlegar, ég komst að þeirri niðurstöðu að blaðið Hjáguð væri eitt- hvert versta sorp sem komið hefur á prent á íslandi.“ gera með sér eins og einn þátt. Kannski gæti sá þáttur orðið frambærilegur." (bls. 23), „Hann (Páll Þorsteinsson, dagskrárgerð- armaður á Rás 2 — innskot gr.höfundar) lét Björgvin (Hall- dórsson) nefnilega múta sér.“ (bls. 29) Molar þessir bera þess mjög ákveðin einkenni að vera samdir af ritstjóranum, Jens Guð eins og hann kallar sig. Þegar maður les níð þetta og margt fleira í sama dúr í Hjáguð, fyllist maður for- undran. Hvað er maðurinn að fara, hver er tilgangurinn? Er það öfundin sem fær ritstjórann til að ráðast á menn með óbótaskömm- um og meiðyrðum? Staðreyndin er sú að þeir 3 starfsmenn rásar 2 sem Jens úthúðar svo hér í dæm- unum eru af öllum þorra hlust- enda útvarps viðurkenndir sem áheyrilegustu útvarpsmenn lands- ins, og af þeim sem til þekkja eru ekki bornar brigður á þekkingu þeirra í starfi. Jens Guð ræðst ekki aöeins í greinum sínum á einstaka starfs- menn rásar 2, heldur einnig á rás- ina f heild og stjórnanda hennar, Þorgeir Ástvaldsson. Mér er það fyllilega ljóst að margt mætti færa til betri vegar á rás 2, þó það sé skoðun min að efnislega sé hún vel samsett og hygg ég að skoð- anakannanir um hlustun rásar 2 gefi það ótvírætt til kynna að hlustendur séu almennt ánægðir. óánægjurödd Jens er því rödd hins smæsta minnihluta (16% minnihlutans sem Jens nefnir og segir að sé „sólginn" í „pönk og nýskapandi poppmúsík"). Það er ansi hreint spaugilegt að sjá fuilyrðingu Jens um að Páli Þorsteinssyni hafi verið mútað. Á fyrstu starfsdögum rásar 2 var tekið langt viðtal við Jens Guð í unglingaþættinum Frístund á besta útsendingartíma um nýút- komna bók frá bókaútgáfunni Æskunni eftir Jens, Poppbókin — í fyrsta sæti. Og hver tók svo við- talið kynni einhver að spyrja. Jú, það var Eðvarð Ingólfsson sem vinnur sitt aðalstarf hjá Æsk- unni!! Hér er sem sagt einn starfs- maður Æskunnar að ræða við annan slíkan um bók frá útgáf- unni! Mútur eða mútur, svona lag- að má ekki gerast í hlutlausum fjölmiðli eins og Rfkisútvarpið á að vera. í öðru lagi hlýtur það að teljast til sorpblaðamennsku að velta sér upp úr einkalífi látinna manna á þann hátt sem Hjáguð gerir i greinunum um John Lennon og Elvis Presley. Umfjöllun sú sem þeir fá er aðeins blaðamönnum til skammar, ekki stjörnunum sjálf- um. Endanlega kastaði þó tólfun- um þegar þeir Hjáguðsmenn þótt- ust hafa komist yfir lengdarmál kynfæra Presleys sem og sifja- spjöll hans og móður hans (svo kalla þeir Samúel „klámblað" f blaðinu). Hvaðan koma heimild- irnar? Jens verður svarafátt í les- endabréfi nýverið: „frá Bandaríkj- unum (að vísu með viðkomu í Nor- egi)“ (Mbl. 3. nóv.) Það er ekki að undra að þeir vilji sem minnst segja um heimildir, ansi er ég hræddur um að ábyrgðarmaður Hjáguðe hafi gerst sekur um rit- stuld úr erlendum blöðum með hæfilegu kryddi þó. Rýmis vegna læt ég hér staðar numið í sorp- upptalningu Hjáguðs, þó vissulega mætti halda lengi áfram. Á einum stað f blaðinu er vikið að slæmri fslenskukunnáttu starfsmannas rásar 2, en þeir Hjá- guðsmenn ættu frekar að lfta i eigin barm, því blaðið er fullt af ambögum og málslettum ýmis- konar. Orð eins og „orginal", „kópía“, „spekúlant", „meika", „sándgrúppa" og „kómedía" heyra ekki til fslenskri tungu eftir mfn- um bestu heimildum, og ætti að vera auðvelt að finna fslenska staðgengla þeirra. Ekki verður svo skilið við Hjá- guð að þáttur Poppbókarinnar f blaðinu verði ekki gerður að um- talsefni. 1 blaðinu er að finna mikla lofrullu um bókina sem ber þess ýmis merki að vera samin af höfundi bókarinnar, sem um leið er ritstjóri og ábyrgðarmaður Hjá- guðs. í upphafi greinarinnar segir svo: „Ein söluhæsta bók sfðasta árs var Poppbókin“ (bls. 15). Það er skemmst frá því að segja að hér er farið með hreint fleipur. í fyrsta lagi er það staðreynd að bókin seldist i slöku meðallagi f bókabúðum á Reykjavíkursvæðinu (stærsta sölusvæði landsins), og byggi ég þessar upplýsingar á samtölum við allmarga bóksala. 1 öðru lagi eru engar tölur til yfir sölu á einstökum bókum, slfkar tölur eru einkamál hverrar bóka- útgáfu fyrir sig og liggja ekki á lausu. Af þvf leiðir að ekki er hægt að leggja slfka fullyrðingu fram. Af greininni má einnig skilja að bókin hafi ekki aðeins valdið deil- um heldur einnig ólátum, sem maður hlýtur að skilja sem slagsmál einhvers konar — nú verð ég að játa mig orðlausan! Mál er að linni; hér hefur heil- mikið verið gagnrýnt, en þrátt fyrir það er Hjáguð ekki alvont blað. Viss ferskleika gætir f upp- setningu og viðtalið við Einar „Kuklara" er ágætt. Að lokum vil ég beina þeirri áskorun til útgefanda blaðsins, ólafs Pálssonar, að hann bjargi æru sinni og útgáfunnar og færi okkur vandað blað um popptónlist, jafnvel þó svo að það kosti endur- nýjun á starfsmönnum blaðsins. Prentfrelsi er vandmeðfarið og bæði blaðamenn og ritstjóri eiga greinilega margt ólært í þeim efn- um. Eggert Jónasson er nemi í viö- skiptafræðum við Hískóia íslands. Markmiö: Á námskeiðinu er lögð áhersla á að gera grein fyrir skipulagi og uppbyggingu fyrirtækisins sem stjórnunareiningar. Gerð er grein fyrir mikilvægi mark- miðasetningar, skipulagningu verkefna og rætt um hvernig takast á við skipulags- og stjórnunarvandamál sem upp koma í fyrirtækjum. Efni: Fjallað verður um: — Stjórnskipulag og tegundir — Verkefnaskiptingu — Valddreifingu — Verkefnastjórnun — Skipulagsbreytingar — Upplýsingastreymi, ákvarðanataka — MBO; stjórnun eftir markmiðum — Hvað er stjórnun? — Samskipti starfsmanna — Samskipti yfirmanna og undirmanna Þátttakendur: Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem hafa mikil, bein samskipti við samstarfsmenn sína, bæði yfirmenn og undirmenn og þeim sem annast skipulagningu og stjórnun á atvinnustarfsemi og tfma- bundnum verkefnum. Leiðbeinandi: Höskuldur Frfmannsson rekstrarhag- fræðingur. Lauk prófi frá viðskiptadeild Háskóla islands 1977 og stundaði síðan framhaldsnám í rekstrarhag- fræði við University of Bridgeport í Bandarfkjunum. Starfar nú hjá Skýrsluvélum ríkisinsog Reykiavíkurborg- ar. | Tfmi: 1984: 26.-29. nóvember kl. 14.00-18.00. 1 Námseiningar: 1.5 TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU í SÍMA 82930 STJÓRNUNARFÉIAG ISLANDS DSS UMULA23 II82930 SIEMENS Einvala liö: Siemens- heimilistækin Úrval v-þýskra SIEMENS-heimilistækja þar sem hvert tæki leggur þér liö viö heimilisstörfin. Öll tæki á heimiliö frá sama aöila er trygging þín fyrir góörí þjónustu og samræmdu útliti. SMITH & NORLAND HF. NÓATÚNI 4, SÍMI 28300. v.v.v.v.;. MATSEÐILL HÁDEGISVERÐUR s 13. 11. Bíómkáíssúpa í °9 % Pörmusteikt ýsuflök með íauksósu, gúrkusaíati og fivítum kartöflum kr. 190. eða Spaqfietti BoCoqnaise kr. 210 i j- Auk annarra rétta á vcegu verði OPNUNARTÍMI ALLA DAGA KL. 11.30-14.00 KL. 18.00-23.00 Veitinqafiúsið Haqameí 67 Reykjavíkj svmi: 26070. —■_ Birtfir V’iöar Haíldorsson, matreiósíumeistari. I v.v/.v.v.vv.v.v

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.