Morgunblaðið - 13.11.1984, Síða 42
50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1984
Minning:
Ólafur Byron
Guðmundsson
Mánudaginn 5. nóvember sl.
varó ólafur Byron Guðmundsson
bráðkvaddur á heimili sínu hér i
Reykjavík, án þess að þar væri
nokkur fyrirvari á, því heilsan var
góð eins og ævinlega.
Útför hans verður gerð frá kaþ-
ólsku kirkjunni i Reykjavik i dag
kl. 1.30. ólafur Byron var borinn
og barnfæddur Reykvikingur,
fæddur 6. ágúst 1925, sonur hjón-
anna Guðmundar Jóhannssonar
vélstjóra og konu hans, Brietar
Ólafsdóttur, og var hann elstur 6
systkina.
Guðmundur faðir ólafs lést
t
Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
GUORÚN SIGURDARDÓTTIR,
andaöist 5. nóvember á Elll- og hjúkrunarheimilinu Grund.
Útför hennar hefur farið fram I kyrrþey samkvæmt ósk hlnnar látnu.
Þökkum auösýnda samúö.
Arthúr EKasson,
Atli Ellasson, Ragnhildur Bergþórsdóttir,
Dolph E. Hólm, Betty Hólm,
barnabórn og barnabarnabörn.
t
Bróöir okkar,
ARSÆLL ÓLAFSBON
fré Mýrarhúsum, Akrsnesi,
lést 11. nóvember á dvalarheimilinu Höföa.
Fyrir hönd systkina,
Halldóra Ólafsdóttir.
t
Hjartkær eiginkona min og móöir okkar,
GUDRÍDUR BÁRÐARDÓTTIR
frá Jórvfk, Álftaveri,
andaöist i Sjúkrahúsi Suöurlands, Selfossi, 10. nóvember.
Guömann isleifsson og börn.
t
Sonur minn og bróöir,
GUÐMUNDUR ÁSGRÍMUR BJÖRNSSON,
Drápuhlló 48,
andaöist á heimill slnu aö morgni 12. nóvember.
Fyrir hönd systklna og annarra vandamanna,
Soffia Björnsdóttir.
t
ÞORLEIFUR ÓLAFUR GUÐMUNDSSON
frá Bjarnarhöfn,
Grænuhlfó 18,
lést 8. nóvember.
Ólafia Jónsdóttir,
Bergþóra Eirikadóttir.
t
Eiginmaöur minn,
MAGNÚ8 KRISTJÁNSSON,
rafmagnseftirlitsmaöur,
Laugateig 5,
andaöist i Landakotsspltala 11. nóvember sl.
Svanhildur Jósefsdóttir.
t
Móöir okkar, tengdamóölr, amma og langamma,
ÁGÚSTA INGJALDSDÓTTIR
frá Auösholti,
Njörvasundi 36, Reykjavfk,
veröur jarösunginn frá Langholtskirkju miövikudaginn I4. nóvember
kl. I5.00.
Hallur Guömundsson, Súsanna Guömundsdóttir,
Guöjón Guómundsson, Jóna Einarsdóttir,
Sigrföur Guómundsdóttir, Ólafur Helgason,
barnabörn og barnsbarnabörn.
fyrir ellefu árum. ólafur Byron
naut ekki langrar skólagöngu um-
fram venjulegt skyldunám, þó til
þess hefði hann alla burði, því
hann var góðum gáfum gæddur,
og stálminnugur, og varð því ým-
iskonar vinna ýmist til sjós eða
lands hans hlutskipti.
Kynni okkar Ólafs hófust fyrir
rúmlega 40 árum, þegar ég undir-
ritaður kvæntist elstu systur
hans, og tókst þá með okkur góð
vinátta, sem hefur haldist alla tíð
síðan, án þess að skugga bæri á, og
fyrir þá vináttu er ég þakklátur.
ólafur var mjög fróður, vel les-
inn, og skemmtilegur, en umfram
allt reyndist hann við nánari
kynni góður drengur og mikill öðl-
ingur, sem kannski er mest um
vert þegar allt kemur til alls.
Á tímabili átti ólafur mjög á
brattann að sækja og var líf hans
oft örðugt á þessum árum, og eng-
inn dans á rósum. Árið 1955
kynntist Ólafur Auðbjörgu Jó-
hannsdóttur frá Eskifirði, gáfaðri
og dugmikilli mannkostakonu, og
felldu þau hugi saman, og gengu
þau i hjónaband 6. ágúst 1956, og
eignuðust þau 4 börn, sem eru tal-
in hér eftir aldri.
Þorvaður Kári tölvufræðingur,
kvæntur Erlu Stefánsdóttur, og
eru þau búsett í Sviþjóð og eiga
þau 2 börn.
Sólrún hárgreiðslumeistari, gift
Kristjáni Karlssyni vélstjóra, og
eru þau búsett á Patreksfirði og
eiga þau 3 börn.
Bryndis, sem stundar háskóla-
nám í hjúkrunarfræðum, gift
Birni Harðarsyni líffræðingi, og
eiga þau 1 bam, og yngst er
Svanhildur, sem enn er i heima-
húsum.
Móöir okkar og tengdamóöir,
SIGÞRÚÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR,
Flókagötu 33,
sem lést 10. nóvember sl., veröur jarösungin frá Frlkirkjunnl f
Reykjavfk föstudaglnn 16. nóvember nk. kl. 13.30.
Þeim sem viidu minnast hlnnar látnu er bent á Barnaspltalasjóö
Hringsins.
Jón Ólafaaon, Ólöf Björnsdóttir,
Guöjón Ólafsson, Sofffa Pétursdóttir,
Gunnar örn Ólafsaon, Sofffa Pátursdóttir,
Ólafur H. Ólafsson, Margrát Thorlacius.
t
Eiginkona min, móöir okkar, tengdamóöir og amma,
SJÖFN INGADÓTTIR,
Þórufelli 6,
veröur jarösungin frá Háteigsklrkju mlövikudaginn 14. nóvember
kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á
Krabbameinsfélag fslands.
Jón Marfasson,
Dagbjört Jónsdóttlr,
Lilja M. Jónsdóttir, Ingvar Sigurgeirsson,
Arnheióur Jónsdóttir, Gunnar E.H. Guómundsson
og barnabörn.
t
Faöir okkar,
SVEINN EINARSSON,
veiðistjóri frá Miödal,
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni I Reykjavfk miövikudaginn 14.
nóvember kl. 13.30.
örn Svainsson,
Slgrfður Sveinsdóttir,
Valgeröur Sveinsdóttir,
örlygur Svainsson,
Einar Sveinsson.
t
Maöurinn minn, sonur og faöir okkar,
BJÖRN JÓNSSON,
Garóaflöt 15, Garöabæ,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaglnn 14. nóvember
kl. 13.30.
Emelfa Húnfjöró, Sigrföur Björnsdóttir
og dætur hins látna.
t
Þökkum innilega vináttu og hlýhug viö andlát og jaröarför
ÞÓRUNNARÁRNADÓTTUR,
Drápuhlfö 18.
Haukur Gunnarsson og fjölskylda,
Magnús Árnason, Ágústa Arnadóttir,
Margrét Árnadóttir og fjölskyldur þeirra.
ólafur og Auðbjörg áttu góð ár
saman, og byggðu upp fallegt
heimili, en samt fór svo að leiðir
þeirra gátu ekki legið lengur sam-
an, og slitu þau samvistir árið
1972.
Árið 1977 kynnist ólafur Sig-
rúnu Schneider rithöfundi, gáfað-
ri og vel menntaðri konu, og felldu
þau hugi saman, og gengu í hjóna-
band 20. september 1977.
Þau voru mjög hamingjusöm og
samrýnd, enda fóru áhugamál
þeirra mjög saman, þau voru bæði
miklir listunnendur, og fylgdust
vel með því, sem var að gerast á
listasviðinu hér í borg, og höfðu
þau bæði mikið yndi af að sækja
tónleika, málverkasýningar og
leikhús. Það má segja að nýr kafli
hæfist í lífi ólafs, þegar hann fór
að takast á við ný verkefni, sem
hann hafði aldrei komið nálægt
áður, en sem honum fannst i senn
ánægjulegt og áhugavert. ólafur
tók að sér að lesa úr verkum konu
sinnar í Rikisútvarpið, og má þar
nefna nokkuð margar smásögur,
einnig framhaldssögu, og svo
flutti hann þáttinn Um daginn og
veginn nokkrum sinnum, og fórst
honum þetta svo vel úr hendi að
orð var á haft.
ólafur hneigðist til kaþólskrar
trúar á seinni árum, og ræktu þau
hjónin trúarsamfélag i kaþólska
söfnuðinum i Reykjavík, og sóttu
þangað styrk og uppörvun.
Við hjónin minnumst margra
ánægjulegra samverustunda á
hlýlegu heimili ólafs og Sigrúnar,
og eins þegar þau heimsóttu
okkur, og erum við hjónin þakklát
fyrir þá gagnkvæmu vináttu.
Sigmundur Birgir bróðir ólafs,
sem hefur verið búsettur í Malmö
i Sviþjóð ásamt fjölskyldu sinni sl.
8 ár, hringdi til min, og bað mig að
koma á framfæri innilegum kveðj-
um til allra aðstandenda, og
harmar hann að eiga þess ekki
kost að fylgja bróður sínum sið-
asta spölinn. Að leiðarlokum kveð
ég mág minn og vin með söknuði,
og bið honum blessunar guðs, en
um sárast eiga að binda eiginkon-
an, öldruð móðir, börnin hans og
barnabörnin ogsystkini hans og
bið ég þeim öllum blessunar guðs.
Minningin um góðan mann, sem
öllum vildi vel, er huggun i harmi.
Kristján Sigfússon
Húsavík:
Arney KE með
128 tonn af sfld
llásaTÍk, 12. BÓTember.
f NÓTT landaði vélskipið Arney KE á
Húsavík 128 tonnum af sfld, sem baeði
var söltuð og fryst, til beitu. Þetta kom
sér mjög vel þvf birgðir af beitusfld
voru á þrotum.
Bátar þeir sem veiða með linu fá
frekar litið en rækjuveiðin gengur
vel. Bæði veiðar á djúprækju og i
Axarfirði.
Atvinnuástand hér má teljast
gott, og ekki lakara en undanfarin
ár, enda tíðarfarið alveg sérstaklega
gott i haust.
Fréttaritari.
43 þúsund sýn-
ingargestir
á BÚ ’84
— Hugað að nýrri sýningu
Á búvörusýninguna BÚ ’84, sem
haldin var f nýbyggingu Mjólkursam-
sölunnar á Bitruhálsi 21. til 30. sept-
ember sl., komu 43 þúsund sýningar-
gestir. f frétt frá Ilpplýsingaþjónustu
landbúnaðarins um sýninguna segir að
aðsókn hafi verið svo mikil að marga
daga hafl fólk orðið frá að hverfa
vegna þrengsla, en siðasta dag sýn-
ingarinnar hafi komið 6.500 gestir.
I fréttinni segir að sýningin hafi
verið vel heppnuð, neytendur hafi
tekið henni vel og kostnaður verið
nálægt þeirri áætlun sem gerð hefði
verið. Sýningin hafi stuðlað að vöru-
þróun, því flestir ef ekki allir þátt-
takendur, sem voru með matvæli,
kynntu einhverja nýjung. Þá segir í
fréttinni að það væri stefna þeirra
sem stóðu að BÚ ’84 að efna fljótlega
til hliðstæðrar sýningar og nýta þá
reynslu sem fékkst að þessu sinni.