Morgunblaðið - 13.11.1984, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 13.11.1984, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1984 51 Minning: Lýður Guðmundsson loftskeytamaður 1 dag fer fram frá Fossvogskap- ellu útför Lýðs Guðmundssonar loftskeytamanns, Flókagötu 10, Reykjavík. Hann varð bráðkvadd- ur að heimili sínu aðfaranótt sunnudagsins 4. nóvember. Lýður var fæddur 7. júlí 1906 á Bildudal, Suðurfjarðarhreppi í Vestur-Barðastrandarsýslu, sonur hjónanna Guðlaugar Jónsdóttur frá Múlastöðum i Flókadal og Guðmundar Árnasonar frá Mjóa- nesi í Vallahreppi, S-Múlasýslu. Þau bjuggu á Bíldudal frá árinu 1902 til 1912 er Guðmundur fórst með galias „Geir“ frá Viðey, ásamt 26 skipsfélögum sínum hinn 12. febrúar. Tveim árum síðar fluttist Lýður með móður sinni til Seyðisfjarðar og stóð heimili þeirra þar til ársins 1925 er þau fluttu til Reykjavíkur. Árið 1924 útskrifaðist Lýður frá Loftskeyta- skólanum og fór til starfa á togara frá Heliers-útgerðinni i Hafnar- firði. í Halaveðrinu 8. febrúar 1925 var hann á togara frá Heli- ers. Árið 1930 hóf Lýður störf hjá Skipaútgerð rikisins, á varðskip- unum, og síðan strandferðaskip- um. Lýður var stöðugt að auka við þekkingu sína með lestri fagrita og á annan hátt. Árið 1946 dvaldi hann í Eng- landi og kynnti sér þar meðferð gýrókompása og radartækja. Árið 1946 kom fyrsti radar í islenskt skip er ms. Esja var búin slíku tæki. Umsjón með niðursetningu tækisins hafði erlendur sérfræð- ingur og var Lýður honum til að- stoðar. Lýður starfaði síðan til eftirlaunaaldurs hjá Skipaútgerð ríkisins. Á meðan heilsan leyfði leysti hann starfsbræður sína af, ýmist á flutningaskipum eða tog- urum. Lýður var í áraraðir gjald- keri Félags fsl. loftskeytamanna og naut óskoraðs trausts félaga sinna. Árið 1934 hlaut hann gullmedalíu frá Leopold II fyrir þátt sinn í björgun áhafnarinnar á togaranum Jan Vanders frá Ostende, sem strandaði árið áður við Sandvík, norðan Reykjaness. Árið 1934 giftist Lýður eftirlif- andi konu sinni, Guðrúnu Sigurð- ardóttur, bónda í Reykjavík, Sím- onarsonar. Synir þeirra eru Sig- urður starfsmaður Hafrannsókna- stofnunar og Guðmundur vél- stjóri, búsettur á Seltjarnarnesi. Fædd 11. október 1916 Diin 4. nóvember 1984 Sunnudaginn 4. nóvember sl. hvarf vinkona okkar, Sólveig E. Jónsdóttir, af þessu tilverustigi. Þegar hún var flutt í sjúkrahús frá okkur i Sjálfsbjargarhúsinu áttu fæstir von á því að hún ætti ekki afturkvæmt en raunin varð hins vegar sú að Sólveig andaðist eftir fremur skamma sjúkrahús- legu. Sólveig var stórbrotinn per- sónuleiki. Það lýsir henni ef til vill best að á meðal okkar á 4. hæð var hún kölluð „drottningin" bæði i gamni og alvöru. Henni voru ná- w Við systkinin vottum frú Guð- rúnu og börnum hennar, tengda- dætrum og barnabörnum innilega samúð okkar. kvæmni og vandvirkni i blóð borin og því vildi hún hafa hlutina í röð og reglu. Hún var vinur vina sinna og vildi flest fyrir þá gera. Hún gat verið ákveðin og föst fyrir og við tókum mikið mark á því sem Sólveig sagði, en jafnframt gat hún brugðið fyrir sig glettni og spaugimálum þegar slikt átti við. Að leiðarlokum Sólveigar er sviðið breytt, 4. hæðin er ekki söm og áður, það er sjónarsviptir að Sólveigu. Við, ibúar og starfsfólk 4. hæðar i Sjálfsbjargarhúsinu, vottum aðstandendum Sólveigar samúð okkar. íbúar og starfsfólk 4. hæðar Einar Vilhjálmsson Sólveig Elísabet Jónsdóttir Kveðja Andrews hitablásarar fyrirgaseðaolíu eru fáanlegir í fjölmörgui stærðum og gerðum Sí r~t<i <& Algengustu gerðireru nú fyríiiíggjandi Skeljungsbúðin Síöumúla 33. Sími 38125. / Meistarafólag járniönaöarmanna — samtök málmiönaöarfyrirtækja VERKSTJÓRANAMSKEIÐ Efnt veröur til eins og hálfs dags námskeiös fyrir verkstjóra málmiönaöarfyrirtækja 28. og 29. nóv- ember nk. í aösetri félagsins aö Hverfisgötu 105, Reykjavík. Á námskeiöinu veröur m.a. fjallaö um: — Stjórnun fyrirtækja og stööu og hlutverk verk- stjórans í þeim efnum. — Lög, reglugeröir og kjarasamningar, sem verk- stjórar þurfa aö kunna skil á. — Starfsmannastjórnun og hlutverk verkstjórans í daglegum rekstri. — Verkundirbúning og framkvæmd. — Gerö fastra veröa í verk og verkhluta. Fluttir veröa fyrirlestrar um ofantalin efni og unniö í starfshópum aö verkefnum sem tengjast þeim. Námskeiösgjald er kr. 2.500- fyrir aöildarfyrirtæki M.j. en kr. 3.000- fyrir önnur. Þátttaka tilkynnist fyrir 23. nóv. á skrifstofu félagsins — sími 91-621755. Aóeins kr. 49,900fyrir Suzuki vélfijól Við höfum til afgreiðslu strax nokkur Suzuki TS50ER vélhjól til aksturs fyrir 15 ára og eldri. Hagstætt verð og greiðsluskilmálar. Suzuki umboðið SUZUKI UMBOÐIÐ Suðurlandsbraut 6, sími 83499. \ NES-SÓL HEILSURÆKT ★ Músíkleikfimi ★ Megrunartímar ★ Nudd - Hvíld ★ Sauna ★ Sólariumbekkir ★ Ný námskeið, morgun-, dag- og kvöldnámskeið fyrir konur á öllum aldri. ★ Síðustu námskeið fyrir jól. OPIÐ FRÁ KL. 9-16 OG 20-23 VIRKA DAGA. INNRITUN í SÍMA: 617020. AU STURSTRÖND 1 SELTJARNARNESI.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.