Morgunblaðið - 22.11.1984, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NðVEMBER 1984
Af risa-
eðlum
Lítill drengur hvíslaði í svefn-
rofunum ... þetta var skemmtileg
mynd. Hvaða mynd? spurði pabb-
inn: Þessi með risaeðlunum og
Fróða. Drengur átti við franska
teiknimyndaflokkinn Sú kemur tíð,
sem er á dagskrá „rásar 1“ í sjón-
varpinu, klukkan 19.25 á þriðju-
dögum. Undirritaður getur með
góðri samvisku tekið undir með
litla drengnum, er næstu nótt
dreymdi reyndar mikilfenglega
„risaeðludrauma". Ég er kannski
ekki alfarið á þeirri skoðun, að
sýna eigi börnum myndefni er
fóðrar hugmyndaflug þeirra á
ógnvænlegri tröllasýn. En það er
nú einu sinni svo að blessuð börn-
in sækja í sagnir af forynjum og
tröllum. Kannski engin tilviljun
að ævintýri og þjóðsögur eru full-
ar af slíkum vættum. Sumir sál-
fræðingar og jafnvel bókmennta-
fræðingar (Archetypal Critics)
ganga svo langt, að telja „með-
fæddan" áhuga manna á slíkum
forynju- og tröllasögum stafa af
því, að dýpst í vitundinni sé að
finna safn minninga frá þeirri tíð
er við vorum hluti dýraríkisins.
Þessar minningar kallar sá frægi
undanvillingur Freuds, Carl
Gustav Jung (1875—1961), skugga.
Lýsir hann svo á einum stað
skuggaveröldinni: Skuggarnir eða
svipirnir tilheyra afskekktasta
hluta vitundarinnar, er teygir
rætur sínar aftur til dýraríkisins,
og spannar þar með allt sögusvið
dulvitundarinnar."
Ágœt skemmtun
Hér er kannski komin fulllang-
sótt skýring á því, af hverju pabb-
anum þótti jafn gaman og synin-
um að horfa á risaeðlur spranga
um í franska teiknimyndaflokkn-
um Sú kemur tíð. Ég held einfald-
lega að góðar teiknimyndir séu
jafn skemmtilegar fyrir hina full-
orðnu og blessuð börnin. Mætti
jafnvel skjóta inní kvölddag-
skrána teiknimyndum úr smiðju
þeirra teiknimyndasmiða, er nú
gera garðinn frægan úti í hinum
stóra heimi, eða fannst ykkur ekki
gaman að teikningum Erik Niel-
sen við ævintýri Andersen, er
skaust eins og skrattinn úr sauð-
arleggnum á skerminn á mánu-
dagsveldið var. Mér finnst per-
sónulega býsna upplífgandi að
hverfa við og við frá alvarlegheit-
um hversdagsins, á vit ævintýra
og furðusýna en slíkar njóta sín
einmitt best á hvíta tjaldinu innan
viðja teiknimyndarinnar. Hvet ég
þá hjá sjónvarpinu, að auka veg
teiknimyndarinnar í dagskránni,
og vil í því sambandi benda á, að
nú er mikill blómatími i teikni-
myndagerð, hjá þeirri þjóð er
reynst hefur íslenskum myndlist-
armönnum hvað best.
Rétt til getið: Hér er auðvitað
átt við Hollendinga, sem hafa á
undanförnum árum keypt fyrir
eigin skattpening hugverk hér-
lendra listamanna og hengt upp í
opinberum stofnunum. Hvernig
væri að við þökkuðum fyrir okkur
með því að kaupa eitthvað af
teiknimyndaframleiðslu Hollend-
inga? Minni ég í þessu sambandi á
Ciliu van Dijk, sem rekur dreif-
ingarfyrirtæki í Haarlem er ber
nafnið Animatet People. Kven-
persóna þessi hefur sett sér það
markmið, að eignast allar hol-
lenskar teiknimyndir, frá upphafi
vega, og hefir reyndar þegar eign-
ast hátt í tvö hundruð myndir. Já
það er svo sannarlega fleira til í
þessum heimi en Tommi og Jenni.
Ólafur M.
Jóhannesson.
ÚTVARP / S JÓN VARP
Rollingar og
nýjar fréttir
10
H Kristján Sigur-
00 jónsson og Sig-
urður Sverris-
son sjá um morgunþátt
Rásar 2 í dag. Kristján
sagði, að að vanda yrði
fyrsti hálftími þáttarins
helgaður íslenskri tónlist
og síðan yrði kynning á
hljómsveit. „Sú hljóm-
sveit sem við kynnum í
dag er ekki nýstofnuð,
langt í frá, heldur eru það
kapparnir í Rolling Ston-
es og tónlist þeirra sem
kynntir verða, gömlum og
nýjum aðdáendum þeirra
vonandi til ánægju," sagði
Kristján. „Siðan verður
viðtal við Sólveigu
Schimth, sem er félagi í
Björgunarhundasveit ís-
lands, þ.e. hún heldur
hund og sér um þjálfun
hans. Loks verðum við
kannski með viðtal við
einhvern í sambandi við
nýjar fréttir, þ.e. við
hringjum í fólk með stutt-
um fyrirvara og fáum það
til að rabba við okkur um
eitthvað, sem er í fréttum
þann morguninn. Við höf-
um gert þetta nokkrum
sinnum áður, t.d. hringd-
um við í eiginkonu Bjarna
Friðrikssonar júdókappa
eftir sigur hans. Okkar
gósentími í þessari frétta-
öflun var á meðan dag-
blöðin komu ekki út, en
það gengur alltaf mjög vel
að fá fólk í þáttinn, þó
með skömmum fyrirvara
sé, eða jafnvel alls eng-
um,“ sagði Kristján Sig-
urjónsson.
- • ♦ *
í útvarpinu í dag verður óskalagaþáttur sjomanna, A frívaktinni. Miðað við
langlífl þáttarins hlýtur hetjum hafsins að þykja vænt um að fá sendar
kveðjur á haf ÚL
Kveðjur til sjómanna
■ Þóra Marteins-
30 dóttir sér um
óskalagaþátt
sjómanna „Á frívaktinni"
í útvarpinu í dag. Þóra er
nýlega farin að sjá um
þennan þátt, en hann hef-
ur verið á dagskrá út-
varpsins um tugi ára. Hún
sagði, að vinsældir þáttar-
ins virtust ekkert ætla að
dvína með árunum, en þó
væru bréfin alltaf mis-
jafnlega mörg. „Það fer
!■ í kvöld verður
00 beint útvarp
frá Alþingi fs-
lendinga. Þá mun forsæt-
isráðherra, Steingrímur
Hermannsson, flytja
stefnuræðu sína og verða
umræður um hana á eftir.
Steingrímur talar í allt að
hálfa klukkustund, en
fulltrúar annarra þing-
eftir vertíðum sjómann-
anna hvenær mest er beð-
ið fyrir kveðju," sagði
Þóra. „Það var t.d. greini-
legur fjörkippur þegar
loðnuvertíðin byrjaði."
Lögin eru af öllu tagi sem
fjölskyldur sjómanna og
þeir sjálfir senda sín á
milli, bæði gömul og ný,
en að sögn Þóru er alltaf
mikið um íslensk lög og þá
oft sjómannalög. „Vinsæl-
flokka hafa til umráða 20
mínútur hver í fyrri um-
ferð umræðunnar. í síðari
umferð hefur hver þing-
flokkur 10 mínútna ræðu-
tíma. Umræðurnar munu
taka rúma þrjá klukku-
tíma opg fellur því niður
flutningur á „Betlaraóp-
erunni", en hún verður
flutt eftir viku.
asta lagið undanfarið hef-
ur þó verið erlent, I just
called to say I love you, en
það er auðvitað hið ákjós-
anlegasta í svona þátt,“
sagði hún. „Sjálf hef ég
líka fengið kveðjur sendar
með bréfunum, m.a. eina
vísu og ég hef mjög gam-
an af að sjá um þáttinn,
enda ætla ég ekki að
hætta því í bráð,“ sagði
Þóra Marteinsdóttir.
Steingrímur Hermannsson
flytur í kvöld stefnuræðu
rikisstjórnar sinnar í beinni
útsendingu frá Alþingi.
Stefnuræða
Steingríms
ÚTVARP
FIMMTUDAGUR
22. nóvember
7.00 Veöurfregnlr. Fréttir.
Bæn.
A virkum degi. 7.25 Leikfimi.
7.55 Daglegt mál. Endurt.
þáttur Siguröar G. Tómas-
sonar frá kvöldinu áöur.
8.00 Fréttir. 8.15 Veöurfregn-
ir.
Morgunorð: — Sigurveig
Georgsdóttir talar.
9.00 Fréttir.
9.05 MorgunStund barnanna:
.Breiðholtsstrákur fer I
sveit” eftir Dóru Stefánsdótt-
ur. Jóna Þ. Vernharösdóttir
les (17).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr ). Tónleikar.
114)0 ,Ég man þá tlð“
Lðg frá liönum árum. Um-
sjón: Hermann Ragnar Stef-
ánsson.
11.30 .Sagt hefur þaö ver-
iö . . . "
H j á I m a r Arnason og
Magnús Glslason sjá um þátt
af Suöurnesjum.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veöur-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
13J20 Barnagaman
Umsjón: Gunnvör Braga.
13J0 Tónleikar.
144» A bókamarkaðinum
Andrés Björnsson sér um
lestur úr nýjum bókum.
Kynnir: Dóra Ingvadóttir.
14.30 A frlvaktinni
Þóra Marteinsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veöurfregnir.
16.20 Slödegistónleikar
a. Katía og Marielle La-
béque leika á tvð planó Svltu
nr. 2 op. 17 eftir Sergej
Rakhmaninoff.
b. James Pellerite, David
Oppenheimer, Loren
Glickman, Arthur Weisbeg,
Robert Nagel, Theodore
Weis, Keith Brown og Rich-
ard Hixon leika Oktett fyrir
blásturshljóöfæri eftir Igor
Stravinsky.
c. Ostrova-kvartettinn leikur
Strengjakvartett nr. 2 eftir
Lubomir Zelezny.
17.10 Slðdegisútvarp
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
20.00 Steingrlmur Hermanns-
son forsætisráöherra flytur
stefnuræðu slna. Umræöur
fylgja.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orö kvöldsins.
22.35 „Segöu steininum“.
Anna Ólafsdóttir Björnsson
sér um þáttinn.
23.10 Múslkvaka.
Umsjón: Oddur Björnsson.
23.55 Fréttir og dagskrárlok.
SJÓNVARP
FIMMTUDAGUR
21. nóvember
20.00 Beint sjónvarp frá Al-
þingi. Steingrlmur Her-
mannsson lorsætisráöherra
flytur stefnuræðu slna. Um-
ræöur allra þingflokka.
FÖSTUDAGUR
23. nóvember
19.15 A döfinni
Umsjónarmaöur Karl Slg-
tryggsson.
Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
1925 Veröld Busters
Þriöji þáttur.
Danskur framhaldsmynda-
flokkur I sex þáttum.
Þýðandi Ólafur Haukur Slm-
onarson.
(Nordvision — Danska sjón-
varpið)
19Æ0 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Kastljós
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaöur Sigrún Stef-
ánsdóttir.
2120 Skonrokk
Umsjónarmenn: Anna Hln-
riksdóttir og Anna Kristln
Hjartardóttir.
21.50 Hláturinn lengir Iffiö
Fjórði þáttur.
Breskur myndaflokkur I
þrettán þáttum um gaman-
semi og gamanleikara I fjðl-
miðlum fyrr og slðar.
Þýöandi Guöni Kolbeinsson.
2220 Undir fjögur augu
Ný sovésk bfómynd.
Leikstjóri Niklta Mihajlkof.
Leikendur: Irlna Kúptsénko
og Mihall Uljanof.
Þýöandi Hallveig Thorlacius.
23.50 Fréttir I dagskrárlok.
RÁS 2
10.00—12.00 Morgunþátt-
ur
Fyrstu þrjátlu mlnúturnar
helgaðar Islenskri tónllst.
Kynning á hljómsveit eða
tónlistarmanni. Viötöl ef svo
ber undir.
Stjórnendur: Kristján Sigur-
jónsson og Sigurður Sverr-
isson.
14.00—15.00 Eftir tvö
Létt dægurlög.
Stjórnandi: Jón Axel Ólafs-
son.
15.00—16.00 Nu er lag
Gömul og ný úrvalslög aö
hætti hússins.
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
16.00—17.00 Jóreykur að vest-
an
Litið inn á Bás 2 þar sem
fjósa- og hesthúsamaðurinn
Einar Gunnar Einarsson Iftur
yfir farinn veg og fær helstu
hetjur vestursins til aö taka
lagiö.
17.00—18.00 Gullöldin — lög
frá 7. áratugnum
Vinsæl lög frá árunum
1962—1974 — Bltlatlmabil-
ið.
Stjórnandi: Þorgeir Ast-
valdsson.