Morgunblaðið - 22.11.1984, Síða 16

Morgunblaðið - 22.11.1984, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1984 Vinir og vandamenn fylgdust með „útförinni“ af þiljum Þórunnar Sveinsdóttur. Vestmannaeyjar: Elzta skipi flotans sökkt Ventmannaeyjum, 20. nóvember. ÞAÐ FÆKKAÐI um einn í bátaflota Vestmanneyinga sl. sunnudag þegar elsta skipi flotans var sökkt í skipa- kirkjugaröi norðvestur af Eiðinu f Eyjum. Haförn VE 23 hafði verið dæmdur í úreldingu og þetta 67 ára gamla happa- og gæfuskip fékk virðu- lega „útfór“. Af þiljum aflaskipsins Þórunnar Sveinsdóttur VE sem hafði hjálpað Haferninum síðustu ferðina út úr höfninni, fylgdust eigendur bátsins, aðstandendur þeirra og vina- fólk, með söknuði og trega með þvi er skipið smá saman seig í sjó og hvarf loks alveg undir lognkyrrt yfirborðið. Langri og farsælli útgerðarsögu Haf- arnarins var lokið. Haförn VE 23 var smíðaður i Fredrikssund í Danmörku árið 1917 og var 36 brúttólestir að stærð. Haförninn var elsta skip Eyjaflotans og jafnframt næst elsta skip íslenska fiskiskipaflot- ans skv. nýjustu skipaskrá. Skipið var keypt hingað til Eyja frá Danmörku árið 1940 af Pétri And- ersen útgerðarmanni, sem kallaður var i daglegu tali Eyjabúa Danski Pétur. Pétur átti bátinn ásamt son- um sínum og hlaut báturinn nafnið Meta VE. Þann 26. október 1959 keyptu svo bátinn bræðurnir Ing- ólfur og Sveinn Matthíassynir og gerðu þeir bátinn út allt fram til loka síðustu vetrarvertíðar að þeir ákváðu að hætta útgerð. Þeir bræð- ur höfðu alla tíð róið sjálfir á bátn- um, Ingólfur sem skipstjóri og Sveinn sem vélstjóri. Ingólfur Matthíasson sagði í samtali við Morgunblaðið að sér þætti mikil eftirsjá í þessum bát. „Þetta hefur alla tíð verið mikil happafleyta og öll þessi 25 ár sem við bræður höfum gert hann út hafa engin slys eða óhöpp hent bát- inn né áhöfn hans.“ Aðspurður um það, hvernig honum hafi verið inn- anbrjósts þegar hann horfið á eftir bátnum í hafið eftir þessi löngu samskipti, svaraði Ingólfur: „Eg fylltist miklum söknuði og eftirsjá. Þó get ég varla verið annað en ánægður með að báturinn fékk þessi endalok en ekki einhver önn- ur óvirðulegri, eftir 67 ára þjónustu og farsælt 25 ára samstarf sem hefur reynst öllu leyti vel og skilað góðum afla og afkomu. Þetta var afbragðs bátur og alla tíð vel búinn tækjum. Ég hefði ekki verið hræddur við að treysta bátnum til að þjóna í 20 ár til viðbótar þeim 67 sem báturinn hefur lagt að baki, en eftir 54 ár til sjós fannst mér tíma- bært að hætta sjósókn og fara að gera eitthvað annað. Við bræður erum orðnir fullorðnir og tókum þá ákvörðun að hætta útgerð." Ingólfur Matthíasson starfar nú sem hafnarvörður við Vestmanna- eyjahöfn og því enn starfandi við lífæð byggðarlagsins þó svo hann sé hættur að færa fisk að landi. „Ég hefi hoppað úr bátnum upp á bryggjuna," sagði Ingólfur Matthi- asson skipstjóri að lokum — feng- sæll og farsæll formaður í 25 ár nú kominn í land eftir rúmlega hálfr- ar aldar sjósókn. — hkj. ENGIS HVAD FELLING ?■ EKKITIL UMRÆÐU HJÁ OKKUR iÉJ fcj EIGUM NOKKRA SKODA ÁRG.1985 Á GAMLA GÓÐA VERÐINU. JÖFUR HF NÝBÝLAVEGI2 KÓPAVOGI SÍMI 42600

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.