Morgunblaðið - 22.11.1984, Page 30

Morgunblaðið - 22.11.1984, Page 30
JMtogtntÞIftfrffr FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1984 HVERJAR ERU IÍESSK(»AMR ÍSLENDINGA Könnun Hagvangs á gildismati og mannlegum viðhorfum Islendinga: Hluti af víðamestu könnun sinnar tegundar í heiminum Morgunblaðid/Július. Starfsmenn Hagvangs opna kassa, sem geyma niðurstödur könnunar fyrirtækisins á gildismati íslendinga. Fulltrúi borgarfógetans í Reykjavík fylgist með. NIÐURífrÖÐUR hinnar umfangs- miklu könnunar, sem fyrirtækið Hagvangur framkvæmdi í vor, á Eldismati og mannlegum viðhorfum lendinga, liggja nú fyrir og hefur hluti þeirra verið gerður opinber og Háskóla íslands afhent öll gögn könnunarinnar til varðveislu og frekari úrvinnslu. þar er að finna mjög forvitnilegar upplýsingar um yerðmætamat þjóðarinnar, viðhorf íslendinga til sjálfra sín, náunga sinna, trúar, atvinnu, fjölskyldulífs, þjóðfélags, siðferðis og lífstilgangs. Gildismat íslendinga og mann- leg viðhorf hljóta að vera lands- mönnum umhugsunarefni á þeim umbrotatímum, sem nú eru. Ekki dregur það úr mikilvægi rann- sókna á þessu sviði, að á siðasta mannsaldri hafa orðið einhverjar mestu breytingar á aðbúnaði og menningu i allri sögu landsins. Þessar breytingar eru ekki sist fólgnar í menningaráhrifum frá öðrum löndum og ef til vill felast verðmæti þeirra niðurstaðna, sem nú liggja fyrir, einkum í saman- burðinum, sem þær veita, á ís- lendingum og öðrum þjóðum. Alþjóðleg könnun Könnunin er liður í alþjóðlegri athugun á gildismati, sem hófst árið 1978 af svonefndum European Values Systems Study Group, sem starfar í Amsterdam, en í hópnum eru háskólamenn frá ýmsum Evr- ópulöndum undir forsæti J. Klerk- hofs, prófessors við Louvain- háskóla í Belgfu. Það var fyrir frumkvæði Klerkhofs að könnun- inni var upphaflega hrint í fram- kvæmd. Taldi hann að þekking, sem aflað væri i slíkum könnunum um heim allan, gæti brúað bil þjóða á milli og aukið skilning þeirra á högum og hugmyndum hverrar annarrar. Forkönnun var gerð fyrir fjór- um árum í Frakklandi, Vestur- Þýskalandi og Spáni og tóku tæp- lega 900 manns þátt í henni. Eftir það var gengið frá endanlegum spurningarlista og hefur hann síð- an verið þýddur og staðfærður í þeim löndum, sem könnunin hefur farið fram f. Sambærilegar úr- taksaðferðir hafa verið notaðar f hinum ýmsu löndum. Miðað hefur verið við 1200 manna úrtak, sem endurspeglun af fbúm landanna 18 ára og eldri. Þó svo að könnuninni hafi átt upptök sin í Evrópu, þar sem hún hefur verið verið framkvæmd i flestum ríkjum, vaknaði brátt áhugi á henni i öðrum heimsálfum og hefur hún nú þegar verið gerð i Ástralfu og nokkrum rikjum f Asíu, Afríku og Suður-Amerfku, s.s. Japan, Suður-Kóreu, Kuwait, Suður-Afrfku, Chile og Argentfnu. Eru löndin nú orðin 27 og hefur svörum verið safnað frá um 30 þúsund einstaklingum. Samhæf- ing allra þessara kannana, einnig hinnar íslensku, hefur verið f höndum Gordon Heald, eins af framkvæmdastjórum Gallup- stofnunarinnar f London, þar sem tölvuúrvinnsla hefur farið fram. Viöamikill undirbúningur á íslandi Undirbúningur að gerð könnun- arinnar á íslandi hófst haustið 1983 með fundi á vegum Hagvangs í Norræna húsinu, þar sem Gord- on Heald mætti til skrafs og ráða- gerða. Yfirstjórn könnunarinnar tók til starfa í desember sama ár og skipuðu hana tíu manns: Ás- mundur Stefánsson, forseti ASÍ, Erlendur Einarsson, forstjóri, Esther Guðmundsdóttir þjóðfé- lagsfræðingur, Guðmundur Magn- ússon rektor, Haraldur ólafsson, dósent, Ingi R. Helgason, forstjóri, Jóhannes Nordal, seðlabanka- stjóri, sem var formaður nefndar- innar, Jónas Haralz, bankastjóri, Pétur Sigurgeirsson, biskup ís- lands og Víglundur Þorsteinsson, forstjóri. Ritari nefndarinnar var ólafur Örn Haraldsson, fram- kvæmdastjóri Hagvangs. Auk þess að hafa með yfirstjórn könnunarinnar að gera var þess- um hóp ætlað, að gæta þess að vísindalegum vinnubrögðum yrði beitt, fullum trúnaði haldið við þátttakendur og að farið yrði með niðurstöður með eðlilegum hætti. Þá hafði hópurinn yfirumsjón með fjármögnun og eftirlit með notkun þess fjár. Starfsnefnd til að vinna með Hagvangi að könnuninni tók til starfa í janúar 1984 og voru eftir- taldir í henni: Bernharður Guð- mundsson, frá Þjóðkirkjunni, Björn Björnsson, frá guðfræði- deild háskólans, og Erlendur Har- aldsson, ólafur Þ. Harðarson, Stefán Ólafsson og Þorbjörn Broddason frá félagsvísindadeild háskólans. Þessari starfsnefnd var falið að taka þátt i gerð spurningarlistans, vera til ráðuneytis um gerð úrtaks og taka þátt i úrvinnslu eftir að niðurstöður lægju fyrir. Á tíma- bilinu janúar til apríl fór fram mikil vinna við þýðingu og aðlög- un spurninganna, fundir í yfir- stjórn voru haldnir mánaðarlega og í starfsnefnd framan af viku- lega. Forkönnun fór fram í apríl- lok, og að fengnu leyfi tölvunefnd- ar og Hagstofu íslands hófst söfn- un svara 4. mai og lauk henni 22. mai. Allir þátttakendur heimsóttir Spyrlar á vegum Hagvangs voru 29. Allir voru þeir frá Reykjavík, hlutu þjálfun hjá Hagvangi og voru síðan sendir vítt og breitt um landið ýmist akandi eða fljúgandi. Samtals voru 1196 manns í ís- lenska úrtakinu og fóru öll viðtöl fram með persónulegum heim- sóknum. Brúttósvarprósenta var 77,5%, en nettó 86,7%. t greinargerð þeirri um könnun- ina, sem Hagvangur hefur nú sent frá sér, er engöngu að finna niður- stöður um gildismat íslendinga sem heildar og í samanburði við Norðurlandaþjóðir, þióðir í Norður-Evrópu (Breta, Ira, Þjóð- verja, Hollendinga og Belga) og þjóðir í Suður-Evrópu (Frakka, ít- ala, Spánverja og Möltubúa). Þá eru íslendingar stundum bornir saman við Bandarikjamenn, en takmarkaðar upplýsingar liggja enn fyrir um þá. Er yfirleitt um einfaldar tíðnitöflur að ræða og ekki kemur fram hvort afstaða manna sé breytileg eftir aldri, kyni, starfi eða búsetu (nema þar sem spurt var um atvinnuþátt- töku, en þar er kynjamunur sýnd- ur). Þær upplýsingar liggja þó fyrir, en eru allt of umfangsmikl- ar til að unnt sé að gera grein fyrir þeim að sinni. Mun i ráði að úrvinnsla þeirra fari fram við Há- skóla íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.